Morgunblaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016
Danska blaðið Politiken hefur boðað
stuðningsmenn íslenska landsliðsins
á Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn í
hádeginu á morgun í þeim tilgangi
að taka upp heróp Íslendinga og
senda landsliðinu kveðju. Áður hefur
blaðið lýst yfir stuðningi við lands-
liðið og ekki látið sitt eftir liggja í
fréttaflutningi á meðan Evr-
ópumótið hefur staðið yfir.
Friðrik Weishappel, eigandi La-
undromat Café, er blaðinu til halds
og trausts og er í óða önn að bjóða
sem flestum Íslendingum á sam-
komuna. Auglýsir hann eftir
trommuleikara til að stjórna takt-
inum á föstudag.
Friðrik efndi til sannkallaðrar Ís-
lendingahátíðar í Kaupmannahöfn í
gærkvöldi er hann bauð gestum og
gangandi í bjór á Laundromat Café
við Elmegade í Norrebro til að fagna
velgengni íslenska liðsins.
„Við keyptum tólf kúta af bjór og
buðum öllum sem við þekkjum og Ís-
lendingum hingað. Það komu fleiri
hundruð manns og þetta fékk rosa-
lega umfjöllun,“ sagði Friðrik í sam-
tali við mbl.is í gær, en mikill um-
gangur hefur verið á öllum stöðum
Laundromat Café í Kaupmannahöfn
í tengslum við Evrópumótið.
Friðrik er ánægður með gengi ís-
lenska liðsins og segir sigurinn á
Englandi sæta hefnd á Breta. Hann
segir sér hafa runnið blóðið til skyld-
unnar eftir sigurinn og langað að
umkringja sig góðum Íslendingum
og sýna samstöðu. „Mér finnst liðið í
dag búið að vinna mótið með þessum
árangri þó svo að ég kjósi auðvitað
að vinna í París á sunnudag,“ sagði
hann.
Stuðningsmenn Íslands
hittast á Ráðhústorginu
Kristín Edda Gylfa
Heróp Hróp og köll íslenskra stuðn-
ingsmanna hafa vakið athygli.
Politiken styður
Íslendinga áfram
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Búast má við því að meira verði að
gera hjá Umboðsmanni skuldara
eftir að Evrópumótinu í knattspyrnu
lýkur. Eins og komið hefur fram í
fréttum er kortanotkun Íslendinga í
Frakklandi allt að 1.200% meiri frá
miðjum júnímánuði miðað við meðal-
ár.
Það er reynsla Umboðsmanns
skuldara að umsóknum fjölgar í úr-
ræði vegna greiðsluerfiðleika eftir
jól og sumarleyfi og er það í fylgni
við aukna kortanotkun. Samkvæmt
Ástu Sigrúnu Helgadóttur, umboðs-
manni skuldara, má því leiða að því
líkur að einhverjir muni eiga í erfið-
leikum með að greiða af greiðslu-
kortaskuldum eftir EM.
„Ekki má heldur gleyma auknum
yfirdrætti, en það er atriði sem hef-
ur einnig mikil áhrif. Það verður því
fróðlegt að sjá hvað gerist hér á
landi varðandi fjölgun umsókna
vegna greiðsluerfiðleikaúrræða, en
það mun koma fljótlega í ljós eftir
EM,“ segir Ásta Sigrún. „Því má
heldur ekki gleyma að þetta eru oft
óvænt útgjöld sem ekki hefur verið
sparað fyrir, þar sem árangur lands-
liðsins hefur verið með ólíkindum,“
bætir hún við.
Í hverjum mánuði sem af er árinu
2016 eru að berast allt að 130 um-
sóknir á mánuði um úrræði vegna
greiðsluerfiðleika til Umboðsmanns
skuldara.
Samkvæmt upplýsingum frá Ís-
landsbanka er ekki enn að sjá að
skammtíma lántaka, eins og yfir-
dráttur, hafi aukist vegna EM.
Búast er við
greiðsluerfið-
leikum eftir EM
Embætti Umboðsmanns skuldara
berast um 130 umsóknir á mánuði
AFP
Útgjöld EM reynist eflaust ein-
hverjum erfitt fjárhagslega.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Mikill fjöldi flugsæta er í boði til
Frakklands um helgina til að sjá leik
Íslands og Frakklands í átta liða úr-
slitum á Evrópumótinu í Frakka-
landi. Komið hefur fram að stóru
flugfélögin, Icelandair og WOW
muni fjölga ferðum og var Icelandair
um tíma með það í bakhöndinni að
leigja breiðþotu. Fyrir utan flugsæti
stóru flugfélaganna hafa bæst við hið
minnsta 463 flugsæti.
Þannig hefur knattspyrnu- og æv-
intýramaðurinn Grétar Sigfinnur
Sigurðarsson tekið 100 sæta flugvél
á leigu, Eskimo Travel býður upp á
133 sæta flugvél, Netmiði og auglýs-
ingastofan 23 er með 180 sæta flug-
vél og uppselt er í 50 manna ferð frá
Akureyri í gegnum ferðaþjónustu-
fyrirtækið Circle Air en vonir standa
til að hægt verði að bæta við stærri
farþegaþotu. Tugir eru á biðlista.
Gífurlegur áhugi er á leiknum hér
á landi og þessi stærsta ferðahelgi
landsins mun trúlega fara fram þetta
árið í háloftunum í staðinn fyrir á
þjóðvegum landsins. Svo virðist sem
stefnan sé frekar sett á París en í
Galtalæk. EM gengur einfaldlega
fyrir og eru dæmi um að krakkar
hafi misst af knattspyrnumótum hér
innanlands, bæði Landsbanka-
mótinu á Sauðarkróki fyrir 6. flokk
kvenna og N1 mótinu á Akureyri
fyrir 5. flokk karla vegna ferðalaga
barnanna til Frakklands.
Tólfan fær 22 frí flugsæti
Meðlimir Tólfunnar, stuðnings-
mannasveitar landsliðsins, fá 22 sæti
af þessum flugsætum sem í boði
verða. Tíu meðlimir Tólfunnar fá
ókeypis flugmiða hjá auglýsingastof-
unni 23 gegn því að allavega 140 ein-
staklingar kaupi sér flugmiða í ferð-
ina þeirra. Þá býður WOW tólf
Tólfumeðlimum í sitt flug. Áður
hafði komið fram að óvíst væri hvort
nokkrir af helstu stuðningsmönnum
íslenska landsliðsins og meðlimir
Tólfunnar yrðu á áhorfenda-
pöllunum í París vegna fjár-
skorts þeirra en fáir með-
limir sveitarinnar
virðast hafa haft
trú á liðinu því
flestir fóru heim
eftir riðlakeppn-
ina. Stade de
France tekur 80
þúsund manns og
seldist fljótt upp á
leikinn.
AFP
Bláa hafið Íslendingar hafa fjölmennt til Frakklands til að styðja landsliðið. Loftbrú til Parísar verður um helgina.
Nóg af sætum til
Parísar um helgina
Stærsta ferðahelgi landsins fer fram í háloftunum
Samkvæmt Exton, sem sér um
að leigja risaskjái, er mikil eft-
irspurn eftir slíkum skjám í
tengslum við leikinn gegn
Frökkum. Skjárinn við Arnarhól
verður aftur settur upp, Skaga-
menn munu setja upp risaskjá í
skógræktinni Garðalundi í
tengslum við bæjarhátíðina
Írska daga sem verður haldin á
Akranesi um helgina. Sá
verður jafnstór og sá við
Arnarhól á mánudag; 26
fermetrar eða rúmlega
300 tommur og því tölu-
vert stærri en skjárinn á
EM-torginu á Ingólfs-
torgi. Einnig verða risa-
skjár í Vestmannaeyjum
og á Ráðhústorginu á Ak-
ureyri og líklega verða sett-
ir upp skjáir í Hafnarfirði og
á Selfossi. Það skýrist í dag.
Eftirspurn
eftir risaskjá
FANZONE Á ÍSLANDI
EM Í FÓTBOLTA KARLA
„Þessa dagana gengur allt út á EM
og þjóðin slítur varla gangstéttum
eða götum því það snertir enginn
jörðina. Það þarf engu að síður að
standa vel að þessu og skoða málið
vel áður en við tökum ákvarðanir,“
segir Dagur B. Eggertsson, borg-
arstjóri Reykjavíkur, spurður um
hvort til standi að gera endurbætur
eða stækka Laugardalsvöll.
„Við erum að skoða þetta með já-
kvæðum huga en það er ekki búið
að botna málið enn þannig það er
ekki hægt að segja meira á þessu
stigi,“ segir Dagur.
Hann segir að borginni hafi bor-
ist erindi frá KSÍ fyrir nokkrum
vikum um ástand vallarins og tekið
hafi verið jákvætt í það.
Ástand Laugardalsvallar hefur
verið talsvert í umræðunni und-
anfarna mánuði en í janúar sagði
Heimir Hallgrímsson, annar lands-
liðsþjálfari íslenska karlalandsliðs-
ins í knattspyrnu, aðstöðuna á vell-
inum til skammar.
Endurbætur á Laug-
ardalsvelli í skoðun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugardalsvöllur Er kominn til ára
sinna og vill KSÍ kaupa völlinn.
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R