Morgunblaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016 ✝ Rósa Fjóla Guðjóns-dóttir fæddist í Reykjavík 23. maí 1927. Hún andaðist á Vífils- stöðum 19. júní 2016. Foreldrar hennar voru Magnúsína Jóhannsdóttir, húsmóðir, f. 22. ágúst 1904, d. 13. júní 1974, og Guðjón Helgi Krist- jánsson, vélstjóri, f. 22. mars 1901, d. 20. október 1962. Systur hennar eru Pálína Kristjana, f. 1925, d. 1990, og Guðný Erla, f. 1932, d. 2016. Fyrstu æviár Rósu bjó fjölskyldan í Reykjavík. Síðar flytur fjölskyldan norður þar sem Rósa bjó á unglingsárum sín- um, bæði í Ólafsfirði og á Siglu- firði. Ólafur Karlsson fæddist á Hvammstanga 28. maí 1927. Hann andaðist á Vífilsstöðum 23. júní 2016. Foreldrar hans voru Guðrún Sigurðardóttir, húsmóðir, f. 13.apríl 1893, d. 17. febrúar 1973, og Karl Friðriksson, brúar- smiður, f. 1. apríl 1891, d. 22. mars 1970. Þau skildu. Systkini Ólafs eru: Eva, f. 1913, d. 2004, Sigurður, f. 1915, d. 1994, Ingunn Elísabet, f. 1916, d. 2003, Friðrik, f. 1918, d. 1989, Kristín, f. 1920, d. 2015, Baldur, f. 1923, d. 2006. Hálfbræður hans samfeðra eru Sigurður, f. 1927, og Jón Vídalín, f. 1928, d. 2014. Rósa og Ólafur gengu í hjóna- band 12. október 1946. Þau bjuggu í Reykjavík, lengst af á steinsdóttir hársnyrtir. Börn þeirra eru: a) Burkni, b) Svanhvít. 2b) Björgvin Sigmar, húsasmíðameist- ari og framkvæmdastjóri, kona hans er Steinunn Jó- hanna Sigfúsdóttir leið- beinandi, börn þeirra eru: a) Stefán Ægir, í sambúð með Helgu Hauksdóttur, barn þeirra er Íris, b) Sig- ríður Karen, c) Jökull Steinan, sonur hans er Orri Olavi. 2c) Stefán Karl, leik- ari, kona hans er Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og rit- stjóri. Börn þeirra eru: a) Júlía, b) Þorsteinn. Fyrir átti Steinunn Ólína þær Bríeti Ólínu og Elínu Þóru. 3) Elísabet Ólafsdóttir, sagnfræðingur, f. 13.10. 1954, gift Jóhanni J. Hafstein, f. 3.6. 1946, framkv.stj. Börn þeirra eru: 3a) Ragnheiður, leikskóla- liði, starfar við leikskólann Háls- askóg, maður hennar er Krist- mann J. Ágústsson kvikmynda- gerðarmaður. Börn þeirra eru: a) Guðrún Lilja, b) Rósa Kristín. 3b) Davíð, hugbúnaðarverkfræð- ingur, starfar hjá Superior Energy Services í Aberdeen í Skotlandi. 3c) Ólafur, leikjahönn- uður. Rósa hafði yndi af tónlist, spil- aði á gítar, söng og samdi lög. Hún saumaði og sneið föt á alla fjölskylduna, enda hafði hún lært kjólasaum hjá Bergljótu klæð- skerameistara á Laugar- nesveginum. Á Siglufirði hafði Rósa lært síldarsöltun og fóru þau hjónin því norður á Rauf- arhöfn og síðar austur á Seyð- isfjörð og tóku þátt í því að bjarga síldarverðmætum á síld- arárunum. Rósa starfaði sem verkakona við hins ýmsu störf í Reykjavík en síðustu starfsárin, þar til hún var 74 ára starfaði hún í prentsmiðju þeirra hjóna að Austurströnd 8. Eftir skilnað foreldra Ólafs flutti hann með móður sinni frá Hvammstanga til Reykjavíkur ásamt tveimur systkinum, en hann var þá á barnsaldri. Ung að árum voru Óli og Rósa saman bæði á leikskóla og í barnaskóla en 17 ára hittust þau í Iðnó og voru saman upp frá því. Á tán- ingsárum lagði Óli stund á íþrótt- ir og keppti í hnefaleikum, sem þá voru leyfðir, hjá Íþróttafélag- inu Ármanni. Seinni árin átti brids hug hans allan og keppti hann ótal sinnum í þeirri íþrótt og varð Reykjavíkurmeistari árið 1954. Óli hafði yndi af laxveiði og fór ótal veiðiferðir með vinum sínum og Rósu. Hann var félagi í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur til margra ára. Eftir að langri starfsævi lauk gátu þau sinnt áhugamálum sínum af kappi, lagt stund á ferðalög og sund meðan heilsan leyfði. Óli lærði prent í Iðnskólanum í Reykjavík og var lærlingur í Prentsmiðjunni Eddu við Skuggasund í Reykjavík. Síðar varð hann verkstjóri þar til margra ára. Hann starfaði einnig hjá Sölu Varnarliðseigna á Kefla- víkurflugvelli. Árið 1981 stofn- uðu hjónin Prentsmiðju Ólafs Karlssonar, prentuðu og gáfu út ýmis rit og bækur. Útför þeirra hjóna verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 30. júní 2016, klukkan 13. Laugarnesvegi, en síðustu fjögur árin bjuggu þau á Hjallabraut í Hafnarfirði. Börn þeirra eru: 1) Magnús Ólafsson, leikari, f. 17.2. 1946, kona hans er Elísabet Sonja Harðardóttir húsfreyja, f. 27.3. 1948. Börn þeirra eru: 1a) Hörður, íþróttafréttamaður, starfar hjá 365 miðlum, í sambúð með Guðrúnu Björk Kristins- dóttur. Börn Harðar eru: a) Magnús Haukur, í sambúð með Björgu Pálsdóttur. b) Vigdís Ósk, c)Tómas Geir, d) Hinrik, e) Egill. 1b) Rósmundur, prentari, starfar hjá Prentun í Hafnarfirði. Börn Rósmundar eru: a) Agnes Ýr, b) Elísabet Sonja. 1c) Sonja Maggý, hjúkrunarfræðingur, í sambúð með Baldvini Ólafssyni. 1d) Hjalti Freyr, nemi. 2) Hulda Kar- en Ólafsdóttir, f. 14.12. 1949, félagsfræðingur og sjúkraliði. Búsett í Noregi. Gift Stefáni Björgvinssyni, f. 7.12. 1945, d. 22.11. 2012. Börn þeirra eru: 2a) Ólafur, búsettur í Noregi og starfar hjá Sørvest Betongsagn- ing, kona hans er Lilja B. Ey- Elskuleg móðir mín, Rósa Fjóla Guðjónsdóttir, og faðir minn, Ólafur Karlsson, eru látin. Mamma fór frá okkur 19. júní eftir langvinn veikindi, en pabbi aðeins fjórum dögum seinna, 23. júní, líka eftir veikindi. En dauðinn kemur manni alltaf jafn mikið á óvart, þó að maður viti að hann er á leiðinni alveg frá fæðingu. Rósa móðir mín var mikil dugn- aðarkona. Hún var gift föður mín- um Ólafi Karlssyni í rúm 70 ár. Séra Bjarni Jónsson gifti þau 12. október 1946, og ég var skírður um leið í höfuðið á ömmu minni, Magnúsínu móður mömmu. En þegar ég horfi í huganum til baka finnst mér þetta vera stuttur tími fyrir eina mannsævi, þó að mamma og pabbi hafi náð því að verða 89 ára, sem er hár aldur í dag. Á svona tímamótum hrann- ast upp allar minningarnar og ég gæti skrifað heila bók um móður mína og föður. Mamma var mjög næm fyrir allri tónlist og spilaði á gítar, söng og samdi lög. Mamma kenndi mér söng, glens og grín. Eina lagið sem komið hefur út eftir mömmu var lag sem ég söng á plötu við texta Steins Steinars „Elín Hel- ena“. Mamma og pabbi eignuðust tvær dætur, Huldu Karen og El- ísabetu, núna á þessum erfiðu tímamótum hafa þær reynst mér sérlega vel og bara öll mín fjöl- skylda, en konan mín Elísabet Sonja Harðardóttir þó sérstak- lega. Mamma og pabbi vildu að fram- tíð mín yrði farsæl. Leiklist var engin framtíð sagði pabbi oft og talaði við vin sinn og kom mér í nám í prentverki sem hét setjari á þeim tíma þegar blýið var og hét. Þetta nám mitt hefur fleytt mér í gegnum lífið og verð ég alltaf þakklátur mömmu og pabba. Leiklistin kom síðar og voru mamma og pabbi alltaf stolt að sjá drenginn sinn þar. Ég var svo heppinn að fá að vinna með mömmu og pabba þeg- ar þau fluttu á Seltjarnarnesið með prentsmiðjuna. Konan mín hafði unnið hjá þeim þegar að mik- ið lá við og mamma og konan mín voru ótrúlega samrýmdar, þær höfðu svo mikinn húmor, sameig- inlegan dugnað og hlógu út í eitt. Í prentsmiðjunni á Seltjarnarnesi fundum við okkur aukabúgreinar og gáfum út jólakort og hinar ýmsu bækur og blöð. Einnig vann konan mín þar með mömmu í bók- bandinu þegar mikið var að gera. Pabbi þurfi líka hjálp í prentun- inni og sá Rósmundur sonur minn um það, hann er góður prentari eins og pabbi var. Þetta er mér ógleymanlegur tími. Ég gæti lengi talið upp æviferil mömmu og pabba, en ég ætla að leyfa mér að geyma í minningunni margt gott sem þau gerðu fyrir mig og einu tengdadótturina. Þegar ég hugsa til baka man ég alltaf eftir því þeg- ar mamma og pabbi urðu 70 ára. Haldin var mikil veisla og kom margt fólk. Eina dóttir mín, Sonja Maggý, söng að beiðni okkar hjóna lag sem mamma og pabbi héldu mikið upp á: „Bréfið hennar Stínu“, ég breytti einu nafni, Rósa í staðinn fyrir Stína. Ég man hvað þau voru hissa og glöð. Mamma og pabbi (Rósa og Óli) hefðu átt að fá milljón Fálkaorður. Blessuð sé minning þeirra. Ykkar eini sonur, Magnús Ólafsson. Nú hafa foreldrar okkar kvatt þetta jarðlíf. Þegar sorgin bankar á dyr er margt sem leitar á hug- ann. Og ef horft er yfir farinn veg gleðjast fjölskyldur okkar yfir öll- um árunum sem við fengum að hafa þau hjá okkur. Bæði sorg og gleði leita á hugann. Sorgin yfir því að hafa þau ekki lengur hér og gleðin yfir að þau fengu að fylgjast að. Eins og þau hefðu örugglega óskað sér. Árið 2012 var fjölskyld- unni erfitt þegar Stefán tengda- sonur Rósu og Óla andaðist snögglega eftir erfið veikindi. Og það var þeim sérstaklega þung- bært, enda litu þau ætíð á Stefán sem sinn eigin son. Hann aðstoð- aði þau alla tíð og þau voru honum ævinlega þakklát. Samfylgd foreldra okkar stóð yfir í rúm sjötíu ár, sem er langur tími í árum talið. Þau áttu góða ævi og unnu hvort öðru heitt en auðvitað skiptust á skin og skúrir hjá þeim eins og flestum. En ástin hans pabba fór fjórum dögum á undan honum og það var honum þungbært, enda sjálfur orðinn veikburða. Á blaði í náttborðs- skúffunni hans fundum við þessar ljóðlínur; Vor hinsti dagur er hniginn af himnum í saltan mar. Sú stund kemur aldrei aftur sem einu sinni var. Og sólbrendar hæðir hnípa Við himin fölvan sem vín: það er ég sem kveð þig með kossi kærasta ástin mín. Því okkur var skapað að skilja. Við skiljum. Og aldrei meir. Það líf kemur aldrei aftur, sem einu sinni deyr. (Halldór Kiljan Laxness) Ástin hans pabba til hennar mömmu var sterk og var gagn- kvæm. Það er yndislegt að hafa fengið að sjá slíka ást, ekki síst að foreldrar okkar þurftu ekki að skilja heldur fylgjast þau nú að og skilja aldrei meir. Við erum þakklátar og auð- mjúkar þegar við nú kveðjum for- eldra okkar. Þakklátar fyrir allt það góða veganesti sem þau gáfu okkur út í lífið. Og auðmjúkar þeg- ar við hugsum um hversu góð og hugulsöm þau reyndust okkur öll- um alla tíð. Blessuð sé minning foreldra okkar. Hulda Karen og Elísabet. Afi minn og amma dóu með fjögurra daga millibili á Vífilsstöð- um. Fyrst fór amma Rósa og síð- an afi Óli. Ég er skírður eftir afa mínum og þessar tvær manneskj- ur eru stærstu örlagavaldar í lífi mínu, ásamt foreldrum mínum. Þegar ég var lítill var ég mikið hjá ömmu minni og afa og þeim þótti ákaflega vænt um mig og það var gagnkvæmt. Þau voru mér ein- staklega góð og þetta var yndis- legur tími. Amma og afi ferðuðust líklega yfir 30 sinnum til Spánar frá 1970 og eitthvað fram yfir 2000. Mér er í fersku minni öll tónlistin, sögurnar og gjafirnar sem amma og afi komu með sér þaðan. Laxveiði og útivera með afa og ömmu í Leirvogsá, Elliða- ánum og allt í kringum veiðiskap afa hér áður fyrr eru minningar sem eru mér svo minnisstæðar. Og þegar amma tók upp gítarinn og söng svo fallega, hún var lífs- glöð og yndisleg kona. Og ekki spillti útsýnið úr glugganum í eld- húsinu og svölunum í Laugarnes- inu þar sem þau bjuggu sem lengst. Allar þessar minningar eru litlum strák dýrmætar og maður skilur það í dag hvað fjölskyldan, amma og afi eru dýrmætur þáttur í lífi barns. Þetta eru hin raun- verulegu verðmæti. Þetta hefur gefið mér mest af öllu. Elsku afi Óli og amma Rósa, ég vona að lífið sé meira en mölur og ryð og að við fáum að hittast aftur síðar. Sakna ykkar mikið. Ólafur (Óli). Rósa Fjóla Guðjónsdóttir og Ólafur Karlsson Eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, BRYNDÍS EINARSDÓTTIR, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 20. júní. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 4. júlí klukkan 13. Blóm og kransar afþökkuð, en hverjum þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. . Guðmundur Óskar Hermannsson, Guðbjörg Sigríður Kristjónsdóttir, Hermann Guðmundsson, Signý Magnúsdóttir, Ingþór Guðmundsson, Sigríður Harpa Benedikts., Sólveig Guðmundsdóttir, Daníel Sveinbjörnsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN M. BALDURSSON, landfræðingur og leiðsögumaður, Kúrlandi 27, Reykjavík, varð bráðkvaddur föstudaginn 24. júní. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 1. júlí klukkan 13. . Elín Ýrr Halldórsdóttir, Anna Rut Kristjánsdóttir, Ásta Ýrr Kristjánsdóttir, Kári Logason, Herdís Kristjánsdóttir, Pétur Andri Dam, Halldór Kristjánsson, Ásdís Nína Magnúsdóttir og barnabörn. SIGRÍÐUR Þ. SIGURÐARDÓTTIR lést á Hrafnistu í Reykjavík þann 17. júní síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. . Aðstandendur hinnar látnu. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra VILHJÁLMS S. VIÐARSSONAR, Hólavegi 12, Sauðárkróki. Guð blessi ykkur öll. . Kolbrún Eva Pálsdóttir, Viðar Vilhjálmsson, Inga Vala Vilhjálmsdóttir, Rakel Eva Vilhjálmsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Rósa Dóra Viðarsdóttir, Kristján H. Viðarsson og aðrir aðstandendur. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, PÁLL S. ÁRNASON, Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ, lést 10. júní. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Sigurður Arnar Pálsson, Guðbjörg Jónsdóttir, Hulda Björk Pálsdóttir, Guðlaugur Jóhann Snorrason, Heiðar Örn Vilhjálmsson, Birgitta Jóna Fanndal, barnabörn og systkini hins látna. Kæra vinkona Anna. Margs er að minnast og margs er að sakna. Anna, þú varst einstök vinkona og tókst fölskvalaust þátt í gleði og sorg. Þú varst mágkona mágkonu minnar, hennar Dóru okkar. Þannig kynntumst við fyrir langa löngu. Við vorum nágrannakonur, ég bjó í Goðheimum og þú í Álfheim- um þar sem þú varst dagmamma og fékk Bryndís, dóttir mín, að njóta þess að vera hjá þér í pössun er ég var í vinnunni. Hún ber mik- inn hlýhug til þín og bað mig fyrir góðar kveðjur til þín og þinna, en eins og þú veist þá býr hún í Kan- ada. Þú fylgdist vel með öllum börn- um mínum og hvað þau voru að gera hverju sinni. Anna Kristjánsdóttir ✝ Anna Krist-jánsdóttir fæddist 17. mars 1932. Hún lést 25. maí 2016. Útför Önnu fór fram 3. júní 2016. Er ég fór í Sjúkraliðaskólann með fjögur börn heima, það yngsta þriggja ára, þá komst þú og hjálpað- ir til með heimilið og brúaðir bilið þar til Keli kom heim úr vinnu. Það varst þú, Anna. Þú varst ósérhlíf- in og áttir góðan og eljusaman mann, hann Einar. Þið Einar unnuð vel saman þar sem þú varst verkstjórinn. Þið hjálp- uðuð oft Kela mínum, sem var góður í bókhaldi en ekki á bora og skrúfjárn. Við urðum báðar ekkjur, fórum ófáar ferðir hingað og þangað um landið. Minnisstæðust er heim- ferðin okkar frá Kristjáni og Unni í Vík, þar sem við enduðum ofan í skurði til að afstýra stórslysi, bíll- inn ónýtur en við sluppum betur en áhorfðist, þökk sé Guði. Endalaust er hægt að rifja upp en nú kveð ég þig, kæra vinkona. Haf þú þökk fyrir allt og allt. Þín vinkona Þorbjörg Jónsdóttir (Tobbý).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.