Morgunblaðið - 30.06.2016, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.06.2016, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016 ✝ Guðrún Jón-asdóttir, Dúna, fæddist í Vest- mannaeyjum 17. janúar 1930. Hún lést á Landspít- alanum 18. júní 2016. Foreldrar henn- ar voru Jónas Sig- urðsson í Skuld, f. 29.3. 1907, d. 4.1. 1980, og Guðrún Kristín Ingvarsdóttir, f. 5.3. 1907, d. 26.3. 2005. Systkini Guðrúnar eru: Ingunn, f. 1928, d. 2013, Sjöfn, f. 1932, Sigur- geir, f. 1934 og Sigurjón, f. 1940. Guðrún giftist Steinari Júlíussyni, f. 30.1. 1930, feld- skera frá Mjölni í Vestmanna- eyjum, þann 3. apríl 1954. For- eldrar hans voru Júlíus Þórarinsson, f. 5.7. 1906, d. 2.6. 1983, og Sigurragna M. Jóns- dóttir, Ragna, f. 25.10. 1905, d. 20.12. 1995. Börn Guðrúnar og Steinars eru: 1) Jónas Þór Steinarsson, f. 2.10. 1946, kvæntur Þóreyju Morthens, f. Steinarsson, f. 2.7. 1964, var kvæntur Mirja Kuusela, f. 12.5. 1964, d. 1.5. 2004, og eru dætur þeirra: Tira Tuila Gunnarsdótt- ir, f. 19.4. 1993 og Iris Gunn- arsdóttir, f. 7.2. 1995. Guðrún ólst upp í Vest- mannaeyjum hjá foreldrum sín- um sem bjuggu þar á nokkrum stöðum. Síðast bjó hún hjá þeim í Skuld þar sem Ingunn amma hennar bjó einnig. Guðrún og Steinar bjuggu á Hilmisgötu 1 í Vestmannaeyjum uns þau fluttu til Reykjavíkur 1963. Þar bjuggu þau lengi í Safamýri og nú síðasta aldarfjórðunginn í Trönuhjalla í Kópavogi. Guðrún stundaði íþróttir sem unglingur í Eyjum og var vel á sig kominn fram á seinni ár og voru þau hjón leiðbeinendur í jóga í Heilsuræktinni og Jógastöðinni Heilsubót. Að loknu gagnfræða- prófi í Eyjum starfaði hún yfir tíu ár á Ritsímanum í Eyjum en var síðan heimavinnandi á með- an börnin voru ung. Síðan starf- aði hún hjá Orðabók háskólans í um 20 ár en einnig við prófayfirsetu í Háskóla Íslands fram undir áttrætt. Útför Guðrúnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 30. júní 2016, klukkan 15. 25.10. 1947, og eru synir þeirra: Guð- jón Ragnar Jón- asson, f. 25.5. 1974 og Jónas Páll Jón- asson, f. 14.8. 1976. Jónas Þór ólst upp hjá móðurforeldr- um sínum. 2) Ragna Steinars- dóttir, f. 22.5. 1957, gift Þorsteini Þór- hallssyni, f. 2.7. 1956, og eru börn þeirra: Þóra Þorsteinsdóttir, f. 19.10. 1977, Guttormur Þorsteinsson, f. 11.3. 1988 og Steinar Þorsteinsson, f. 2.9. 1993. 3) Júlíus Þórarinn Steinarsson, f. 1.12. 1958, kvæntur Sigrúnu Guðmunds- dóttur, f. 15.1. 1959, og eru syn- ir þeirra: Steinar Júlíusson, f. 6.1. 1980 og Oddur Júlíusson, f. 21.6. 1989. 4) Eyvindur Ingi Steinarsson, f. 13.12. 1960, var kvæntur Báru Grímsdóttur, f. 24.4. 1960 og eru synir þeirra: Andri Eyvindsson, f. 2.4. 1986, Eysteinn Eyvindsson, f. 7.9. 1993 og Júlíus Eyvindsson, f. 8.8. 1997. 5) Gunnar Kristinn „Gjörðu svo vel, þetta eru bara afgangar.“ Þetta sagði tengdamóðir mín iðulega þegar mér var boðið að setjast að borð- um, þó að afgangarnir væru kræsingar. Þetta var á fyrstu ár- unum sem ég fór að venja komur mínar í Safamýrina. Hjónunum Steinari og Dúnu fannst gaman að ferðast og fóru þau oft til Ameríku til að hitta skyldfólk og líka vinnuferðir til að sérsauma mokkaflíkur á am- eríska viðskiptavini. Í þessum ferðum myndaðist góður vin- skapur milli hjónanna og Landau sem seldi flíkurnar. Þegar Land- au kom til landsins var á óska- listanum að fá lambahrygg og púðursykurköku hjá Dúnu sem honum þótti algjört lostæti. Þegar þær mæðgur Dúna og Ragna fóru í ferð til Portúgals komu þær með ýmsar nýjungar þaðan í matargerð og bræðurnir minnast þess enn að paprikurétt- ir voru í öll mál og öllum mögu- legum útfærslum. Fyrirmyndarhúsmóðir var hún tengdamóðir mín og börnin hennar minnast þess þegar þær vinkonurnar Erla brutu saman þvottinn með tilþrifum í Safa- mýrinni. Þó að Dúna hafi verið heimavinnandi alla tíð voru börn- in látin taka þátt í öllum verkum á heimilinu. Dúna var jafnrétt- issinni og hlífði strákunum ekk- ert við að taka þátt í heimilis- störfum. Bræðurnir minnast oft á skemmtilegu afmælisveislurnar sínar. Á þeim tíma voru mörg börn í hverri íbúð í stigagang- inum í Safamýrinni og öllum boðið. Dúna bakaði þvílíkar hnallþórur og allaf þurfti að prufa nýjar kökusortir. Dúna og æskuvinkona hennar Stína hafa haldið vinskap alla tíð og börnin hennar sögðu að Dúna væri eins og móðursystir þeirra, enda þau hjón aufúsugestir hjá fjölskyldunni. Þær vinkonur voru miklar hannyrðakonur og prjónuðu eins peysur á barna- börnin, það eru þær fallegustu peysur sem ég hef séð og vöktu alls staðar athygli. Tengdamamma skellti sér í jógatíma hjá Jógastöðinni Heilsubót og fyrr en varði var hún orðin leiðbeinandi. Seinna tók Steinar tengdapabbi að sér hádegistíma fyrir karlmenn. Þetta var góður hópur sem stóð vel saman og fór í ferðalög bæði hérlendis og erlendis og tóku börnin með og voru þetta ferðir sem fjölskyldan minntist oft á. Á föstudögum þegar foreldr- arnir voru við jógaæfingar fengu systkinin í Safamýrinni að spreyta sig heima í matargerð og þá voru gerðar ýmsar tilraunir. Keppnisskap hafði Dúna mik- ið enda hafði hún keppt á árum áður í spretthlaupi. Tengda- mamma átti til að taka spretti með strákunum sínum á þeirra yngri árum og framan af var það Dúna sem kom fyrst í mark. Þau hjón Dúna og Steinar byggðu sér sumarhús í Eilífsdal og höfðu gaman af skógrækt og að gróðursetja, það voru líka ófá- ar kartöflusortir sem gerðar voru tilraunir með. Þau voru samrýmd systkinin frá Skuld og það var ekki logn- molla þegar hópurinn hittist og ekki síst systurnar sem töluðu nánast daglega saman. Það gat líka gustað í kringum Dúnu en það var fljótt að lygna. Dúnu var umhugað um allt og alla og mátti ekkert aumt sjá. Barnabörnin voru henni ofar- lega í huga og fengu þau sann- arlega að njóta þess, þau koma nú til með að sakna ömmu sinn- ar. Vestmanneyjar voru henni kærar og var það hátíðarstund að mæta í Eyjakaffið og hitta þar vini og kunningja. Kvöldstundanna í Safamýrinni hjá Dúnu og Steinari með Duke Benny og Ellu ásamt góðu kvöldkaffi með heimabökuðu og góðu spjalli minnist ég með hlýju. Takk fyrir allt. Meira: mbl.is/minningar Sigrún (Simo) tengdadóttir. Mín kæra tengdamóðir, Guð- rún Jónasdóttir, sem alltaf var kölluð Dúna, er látin 86 ára göm- ul. Hún hafði glímt við krabba- mein í nokkur ár en fór ekki á sjúkrahús fyrr en viku fyrir and- látið. Allt fram að því hafði hún hagað sínu daglega lífi eins og hún var vön, sinnti öllum heim- ilisstörfum, heimsótti vini og vandamenn og fylgdist með öllu í kringum sig. Krafturinn í þessari konu var með ólíkindum, hreyf- ingarnar og göngulagið eins og í unglambi og andinn óbeygður. Þess vegna er sárt að sjá á eftir henni og söknuður afkomenda mikill. Dúna var alla tíð atorkusöm , hélt fallegt heimili, sinnti stórri fjölskyldu og vann úti. Í Eilífsdal reistu þau hjón sumarhús og voru óþreytandi í ræktunarstarfi sem borið hefur mikinn ávöxt. Var dásamlegt að fylgjast með því hversu samhent þau Dúna og Steinar voru í bústaðnum, eins ólíkir persónuleikar og þau voru. Ég fann strax fyrir því þegar ég kom inn á heimilið fyrir meira en 40 árum að húsmóðirin var nokkuð gustmikil. Fjörið var mikið og þegar systur hennar og aðrir ættingjar frá Vestmanna- eyjum voru á staðnum var mikið hlegið og stemningin nýstárleg fyrir ungan svein sem hafði verið einbirni hálfa ævina. Eitthvað hefur tengdamóður minni þótt ég vera á skjön við þessa hressu Vestmannaeyinga því að tíu ár- um eftir okkar fyrstu kynni var Dúna í heimsókn hjá okkur Rögnu í Ameríku og fékk sér í glas með okkur, sem hún annars nánast aldrei gerði. Eitthvað var ég að grínast og þá sagði Dúna orð sem ég mun aldrei gleyma: „Ekki vissi ég að þú hefðir húm- or, Steini.“ Ákvað ég eftir þetta að vera almennilegur við tengda- móður mína og vera henni gleði- gjafi. Vona ég að það hafi tekist því að upphaf níunda áratugarins var þeim hjónum erfitt, fyrirtæki Steinars gekk illa og hann neyddist til að sækja vinnu í Noregi. Ekki síst vegna styrks Dúnu komust þau yfir þessa erf- iðleika. Dúna var mjög ánægð í vinnu sinni á Orðabók Háskólans og Steinar fékk vinnu með fötluðum á Bjarkarási sem greinilega átti vel við hann. Önnur gæfa þeirra hjóna var að festa sér íbúð hjá Búseta í Trönuhjalla þar sem þau bjuggu við öryggi og afskap- lega góða nágranna. Eftir að Dúna komst á eftirlaun naut hún þess að rækta sambandið við gamla vini og fjölskyldu og þau hjónin eignuðust nýja vini í gegnum starf Steinars með Bú- mönnum. Er það með miklum söknuði að ég kveð tengdamóður mína, sem var einn af mestu áhrifavöldum í lífi mínu. Þorsteinn G. Þórhallsson. Frá okkur er farin amma Dúna. Mig langaði til að minnast hennar í nokkrum orðum. Amma Dúna var vinur minn. Okkar samband styrktist þegar ég full- orðnaðist og komst til vits og ára. Alltaf var gott að koma í heimsókn til hennar og afa Stein- ars, fá kaffi og smá smákökur með. Með aldrinum lærist manni að slík vinátta snýst einungis um áhuga og væntumþykju en ekki veraldlega hluti. Þegar ég hugsa til baka veit ég ekki alveg hversu vel ég þekkti hana sjálfa, því hún var ekki mikið að flíka eða trana sér fram. Við ræddum um ætt- ina, börnin og um það hvað ég væri að gera. En hún var líka veraldarvön og þau afi voru dug- leg að ferðast. Ég veit ekki um marga komna hátt í áttrætt sem ákveða að skella sér í lestarferð yfir Kanada þvert og endilangt. Ég sé þau fyrir mér, afi með þessa stóísku ró sína, en amma að passa upp á að þau kæmust nú eitthvað áfram. Þau ræktuðu vel sambandið við nokkuð fjar- skylda Vestur-Íslendinga á Sléttunum miklu og voru dugleg að heimsækja þau. Lífið var þó ekki alltaf dans á rósum hjá henni ömmu minni, sér í lagi þegar afi bjó um hríð í Noregi. Aðfangadagskvöld hjá ömmu Dúnu, á hverjum þeim stað sem hún bjó á, voru þó alltaf ljósið í minningu minni um jólin. Amma var alltaf ljúf og góð og ég man aldrei eftir að hún skammaði nokkurn mann, nema kannski hann Gunnsa frænda sem var alltaf á sömu rólegu bylgjulengd- inni og hann afi Steinar. Enda féll ömmu Dúnu aldrei verk úr hendi. Alltaf fékk ég eitthvað handprjónað frá henni í gjöf á jólunum og litlu börnin mín síð- ustu árin, iðulega var ég spurður út í hver hafði nú prjónað svona fínt. Amma mín ræddi aldrei um veikindi sín við mig, nema þegar ég kvaddi hana í síðasta sinn í heimahúsi með þeim orðum að hún kæmi ekki á ættarmótið síð- ar í sumar. Hún vissi að hún ætti stefnumót á annað ættarmót. Amma, hvíldu í friði. Þinn vinur, Jónas Páll. Elskuleg vinkona mín, hún Dúna, er látin. Kynni okkar Dúnu hófust um átta ára aldur en þá flutti Dúna í næsta hús við mig, í Hlaðbæ við Austurveg í Vestmannaeyjum. Við urðum fljótt góðar vinkonur enda var Dúna einstök mann- eskja og traust vinkona. Við gengum saman í barnaskóla Vestmannaeyja og það var sama hvaða vonskuveður gerði, aldrei vantaði okkur tvær í skólann. Við innrituðum okkur í barnakórinn og nutum þess báðar að syngja þar saman. Dúna var ekki bara góður námsmaður með andlegt þrek heldur tók hún líka fram úr öll- um stelpum á hlaupum í leikfimi- tímum. Við Dúna unnum síðar saman á Landssímastöðinni og urðum traustar vinkonur áfram. Dúna var áræðin í hugsun, lífs- glöð og skemmtileg kona. Dúna fluttist síðar með manni sínum, Steinari feldskera, til Reykjavíkur í Safamýrina og nokkrum árum síðar fluttist ég sjálf til Reykjavíkur á Háaleit- isbrautina, nálægt Dúnu, með mína fjölskyldu. Með okkur hjónunum tókst mikil vinátta og aldrei bar á milli okkar. Samvera við Dúnu og Steinar var alltaf notaleg. Síðustu árin tengdumst við enn dýrmætari og traustari vinaböndum og hittumst reglu- lega. Nú skilur Dúna eftir sig tómarúm í lífi okkar og sökn- uðurinn er mikill. Ég votta Steinari, vini mínum, og börnum þeirra innilega sam- úð. Blessuð sé minning Dúnu. Kristín (Stína). Dúna var besta vinkona mömmu. Þær höfðu alist upp í Vestmannaeyjum og voru nánar vinkonur í meira en 80 ár; vin- konur eftir kreppuna, seinna stríð og gosið. Dúna var bros- mild, frá á fæti og einstaklega minnug og athugul. Hún fylgdist með öllu því sem við krakkarnir höfðum fyrir stafni og var alltaf einhvern veginn til staðar á stórum atburðum í æsku okkar. Dúna var aðeins á undan sam- tímanum, eins og þegar hún hóf að stunda leikfimi fyrir tíma stóru líkamsræktarstöðvanna og mamma skokkaði í Háaleitinu með henni í leikfimitíma. Það fannst okkur krökkunum fram- andi. Dúna og Steinar voru afar samrýnd og áttu stóran og glæsi- legan barnahóp og það var því mikið fjölmenni og gleði þegar fjölskyldurnar tvær hittust. Við viljum þakka Dúnu fyrir samfylgdina og vináttu og biðj- um góðan Guð að geyma hana. Steinari og fjölskyldu vottum við okkar dýpstu samúð. Þorsteinn Ingi, Árni, Gylfi, Margrét, Þór og Sif Sigfúsar- og Kristínarbörn. Guðrún Jónasdóttir Elskulegur faðir okkar, GUNNAR GEIR GUNNARSSON, Klapparstíg 1, áður til heimilis að Kárastíg 15, Hofsósi, lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn 20. júní. Kveðjuathöfn verður frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. júlí klukkan 15. Jarðsett verður frá Hofsóskirkju laugardaginn 2. júlí klukkan 14. . Gunnar Geir Gunnarsson, Þröstur Viðar Gunnarsson, Pálína Sif Gunnarsdóttir og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HILDUR EINARSDÓTTIR, Bolungarvík, lést á hjúkrunarheimilinu í Bolungarvík mánudaginn 27. júní. Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 9. júlí klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á orgelsjóð Hólskirkju í Bolungarvík, rnr. 1176-18-911908, kt. 630169-5269. . Einar Benediktsson, María Guðmundsdóttir, Halldóra Benediktsdóttir, Sören Pedersen, Bjarni Benediktsson, Bjarnveig Eiríksdóttir, Ómar Benediktsson, Guðrún Þorvaldsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞORVALDUR VEIGAR GUÐMUNDSSON læknir, er látinn. Útförin fer fram miðvikudaginn 6. júlí frá Kópavogskirkju, klukkan 15. . Birna Friðriksdóttir, Helga Þorvaldsdóttir, Douglass Turner, Sólveig Þorvaldsdóttir, Valgeir Ómar Jónsson, Arndís Þorvaldsdóttir, Geir Fenger og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir, KARL FRIÐJÓN ARNARSON húsasmíðameistari, Vesturbergi 41, lést af slysförum mánudaginn 27. júní. . Snjólaug Guðrún Kjartansdóttir, Örn Þór Karlsson, Atli Björn Karlsson, Úlfar Snær Arnarson. Okkar ástkæri EIÐUR JÓNSSON frá Gauksstöðum á Skaga, til heimilis að Heiðarbrún 2, Stokkseyri, er lést af slysförum 20. júní, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 2. júlí klukkan 14. Minningarathöfn verður í Hvammskirkju í dag, fimmtudaginn 30. júní, klukkan 18. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Fyrir hönd fjölskyldunnar, . Hulda Rúnarsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR STEINUNN JÓNASDÓTTIR frá Brekkum, lést 26. júní. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 5. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á kvennadeild Landspítalans. . Pálmi Sævar Þórðarson Hafdís Ásgeirsdóttir Jónas A. Þórðarson Heiðrún P. Maack Bergrún Lilja, Guðný Lilja, Pétur Geir, Guðbjörg Stella og Júliana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.