Morgunblaðið - 30.06.2016, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 30.06.2016, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016 ✝ Jónína Vigfús-dóttir (Jóna) fæddist í Reykjavík 2. janúar árið 1951. Hún lést 19. júní 2016. Hún var dóttir hjónanna Guðrúnar Samúelsdóttur (Gurrýjar), f. 3. september 1933, og Vigfúsar Sólbergs Vigfússonar (Sóla), f. 9. maí 1925. Foreldrar hennar skildu og giftist móðir hennar Friðjóni Jónssyni, f. 12.2. 1931. Systkini Jónu eru Lára Emelía Vigfúsdóttir, f. 26.2. 1952, Svan- ur Karl Friðjónsson, f. 5.3. 1966, Signý Rut Friðjónsdóttir, f. 30.3. 1965, og Friðjón Rúnar Friðjónsson, f. 16.12. 1968. Jóna ólst upp á Hellissandi hjá móður sinni og stjúpa. Hún kláraði grunnskóla á Hell- issandi, gagnfræða- próf frá Hlíðar- dalsskóla í Ölfusi og húsmæðraskóla- próf frá Húsmæðraskól- anum á Löngumýri. Jóna giftist Páli Valdimar Stef- ánssyni 31. júlí 1951 og eiga þau tvö börn: Guðrúnu Fríðu Pálsdóttur, f. 17. ágúst 1972, og Stefán Ragnar Pálsson, f. 19. mars 1978. Jóna vann við hin ýmsu störf á lífleiðinni, þar á meðal í fiski, við netavinnslu, í verslun og á leikskóla. Seinast vann Jóna á dvalarheimilinu Jaðri í Snæfellsbæ. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 30. júní 2016, klukkan 13. Í dag er ég að kveðja hana systur mína hinstu kveðju. Við vorum mjög samrýndar systur enda bara eitt ár á milli okkar. Jóna lét það ekki stoppa sig að ég væri heyrnarlaus og til að geta átt í góðum samskiptum við litlu systur lærði hún táknmál. Tákn- málið sem við töluðum saman sem systur var frekar gamaldags táknmál, enda hefur táknmál heyrnarlausra breyst og þróast með árunum. Jóna lærði alltaf ný og ný tákn þegar við hittumst í fríum, en ekki var hún jafn dugleg að læra ný tákn sem notuð eru í dag, hún vildi bara halda sig við þau gömlu. Við systurnar vorum átta og níu ára þegar við fluttumst vestur á Hellissand með mömmu og Fía og þar leið okkur alltaf vel. Alltaf lengdist bilið á milli okkar meðan á skólagöngu stóð, en það stopp- aði okkur ekki í að tala saman eða Jónu í að læra ný tákn og var hún ótrúlega seig að tileinka sér gömlu táknin. Við brölluðum mik- ið saman og margar skemmtileg- ar sögur er hægt að segja um okkur þegar við vorum ungar og er það bara efni í heila bók. Ég vildi helst vera að atast og helst í þér, en þú vildir helst vera að lesa, en við áttum okkar góðu og dýr- mætu stundir sem ég mun alltaf geyma í hjarta mínu. Ég var svo heppin að geta farið með Jónu og Palla í fullt af ferða- lögum, bæði hér innanlands og erlendis, og áttum við margar góðar stundir saman í þeim og vildum við skoða sömu hlutina í borgunum. En við elskuðum að fara saman í Kringluna eða bara á kaffihús og fá okkur gott kaffi og eitthvað gott með því. Ég dvaldi margar stundir með Jónu og fjölskyldu fyrir vestan, bæði um jól og í sumarfríum, og þá var mikið skrafað og mikið kaffi drukkið, enda elskuðum við báðar kaffi. Við töluðum um það í eitt af síðustu skiptunum okkar saman að við ætluðum að vera svo duglegar að fara saman í Kringl- una og fara á kaffihúsin, en fleiri verða ferðarnar ekki með þér, elsku systir góð. Tíminn sem við vorum búnar að ákveða saman eftir að þú fluttir til Keflavíkur reyndist miklu styttri en við áætl- uðum. Þú varst spennt yfir flutn- ingnum og ég yfir mig ánægð að þú skulir vera komin nær mér. Þín verður sárt saknað, kæra systir. Ég vil senda Palla, Guð- rúnu og Stefáni mínar dýpstu samúðarkveðjur og megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Lára Emelía Vigfúsdóttir. Í dag er ég að kveðja systur mína hana Jónu hinstu kveðju. Hún hefur alla tíð verið mikill áhrifavaldur í lífi mínu, og snemma sótti ég í að fá að gista hjá henni og Palla, því þar var svo rólegt, allir að lesa og þurfti ég ekki að vera að slást við bræður mína. Hjá þeim voru líka svo skemmtilegar plötur til að hlusta á og við vinkonurnar kunnum að meta, t.d. Meat Loaf og fleiri. Jóna kenndi mér að meta góðar bókmenntir og kynnti mig fyrir Millý Mollý Mandý og síðan Öddu. Þarna byrjaði lestraráhugi minn og hún vissi alveg hvernig bókmenntir ég vildi helst lesa. Hún var dugleg að kenna mér góð gildi og passaði upp á að ég færi í sunnudagaskólann til Jóhönnu sem barn og unglingur. Ef ein- hver kom í skólann að fjalla um kristileg gildi lagði hún til að ég færi og einnig kynnti hún mig fyr- ir Vindáshlíð. Hún hafði farið þangað sjálf og lagði mikið upp úr því að ég færi, sem ég og vinkon- urnar gerðum. Jóna hafði smitandi áhuga fyr- ir gömlum tíma og hlutum og einnig höfðum við systurnar sam- eiginlegan áhuga á Sjómanna- garði Hellissands. Á þrítugsaf- mælinu mínu gaf hún mér einstaka afmælisgjöf, en það voru fyrstu hlutir mínir í upphlut. Árið eftir fórum við systur ásamt fleiri góðum konum á námskeið hjá Heimilisiðnaðarfélaginu og saum- uðum okkur búning sem við erum ótrúlega stoltar af. Það er margs að minnast við fráfall Jónu og þegar kallið kom var enginn undir það búinn að það myndi gerast svo fljótt sem raun- in varð. Hún var alveg ótrúlegur karakter með sterkar skoðanir en það var alltaf hægt að rökræða við hana, þó að maður væri ekki sammála henni. Aðaláhugamál hennar fyrir utan það að lesa var að fylgjast með íslenska landslið- inu í fótbolta og einnig sínu liði í enska boltanum, Arsenal, hún gat alltaf rætt um fótbolta við alla. Hún var félagsmaður Arsenal- klúbbsins hér á landi og eitt árið keypti hún happdrættismiða og vann fyrsta vinning, sem var að senda dreng til Englands í Arsen- al-skólann. Dag einn kom hún með þær fréttir heim að Hilmar Freyr minn ætti að fara út í Ars- enal-fótboltaskólann og njóta vinningsins hennar, sem hann og gerði. Ein af uppáhaldsstundum okk- ar var að borða skötu saman á Þorláksmessu með Palla, Guð- rúnu og Stefáni og þá höfum við alltaf haft vissa rútínu og hefð við þá máltíð. Þetta var stund sem ég hlakkaði alltaf mikið til og við- kvæðið eftir matinn var að „nú mættu jólin koma, ég væri búin að fá skötu“. Jóna hafði mikinn áhuga á prjónaskap og undanfarin jól hef ég fengið frá henni gjöf sem hún gerði sérstaklega fyrir mig, flík prjónaða úr lopa, allt gjafir sem hittu alltaf í mark. Oft kom hún heim til okkar með gjafir sem henni datt í hug að búa til fyrir okkur og gleðja, alveg ótrúlegur karakter. Hér er tæpt á litlu um Jónu systur og hægt er að segja svo miklu meira um hana. Hennar verður sárt saknað en huggunin er að hún fær góðan hvíldarstað við hlið mömmu. Hvíl í friði. Kveðja, Signý Rut. Jóna systurdóttir mín er fallin frá, langt um aldur fram. Sár er söknuðurinn að elsku Jónu minni. Ekki óraði mig fyrir því að það væri í síðasta skipti sem ég sæi hana frænku mína þegar hún fagnaði með okkur fjölskyldunni, ættingjum og vinum á 80 ára af- mælinu mínu þann 16. apríl síð- astliðinn. Jóna var alla tíð einstaklega ljúf og yndisleg. Hún var látlaus og hæglát en gat líka verið föst fyrir og fylgin sér þegar svo bar undir. Já, hún var seig hún Jóna mín. Hún flutti ung með móður sinni Gurrý, stjúpa sínum Frið- jóni og yngri alsystur sinni Láru Emilíu á Hellissand. Þar bjó Jóna nánast alla sína tíð. Jóna giftist Páli Stefánssyni og áttu þau börn- in Guðrúnu Fríðu og Stefán Ragnar. Það var svo í fyrra að fjölskyldan flutti alfarin af Sandi og suður til Keflavíkur. Ég gleymi aldrei þeim tímum þegar þau Jóna og Palli fóru að draga sig saman. Hún kom glöð og ánægð með hann til að kynna fyrir Jónu ömmu sinni (mömmu minni) á Bergþórugötu 20 og hún sá strax að þarna var mikill eð- almaður á ferð. Jóna amma setti blessun sína á hann og eftir það var aldrei annað þeirra nefnt svo hitt fylgdi ekki með, Palli og Jóna eða Jóna og Palli. Elsku Jóna mín, nú er komið að kveðjustund. Þakka þér fyrir allt og allt. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku Palli minn, Guðrún Fríða, Stebbi, Lára, Kalli, Signý, Bóbi og aðrir ættingjar og vinir. Mikill er ykkar missir. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð. Valdís Samúelsdóttir. Á kvenréttindadaginn 19. júní kvaddi góð vinkona og samferða- kona okkar á Hellissandi til margra ára. Okkur langar að minnast hennar í dag með hlýju og þakklæti. Við höfum verið saman í saumaklúbbi í yfir 40 ár og er því margs að minnast. Við rifjum upp að Jóna var mjög bókhneigð og vel heima í ættfræði og bókmenntum og aldrei kom maður að tómum kof- anum hjá henni. Hægt var að fletta upp í Jónu eins og fræðibók, oftar en ekki rakti hún heilu ætt- irnar og notaði gjarnan skemmti- leg orðatiltæki. Jóna var ákveðin og stóð ávallt á sínu.Hún var hag- mælt og fór létt með að setja sam- an skemmtilega texta og var hægt að leita til hennar fyrir ýmis tækifæri eins og þorrablót á Hell- issandi og fleira. Jóna var mikil handavinnukona enda hús- mæðraskólagengin og var alltaf með eitthvað á prjónunum, hver á ekki lopapeysu frá Jónu frænku. Saumaklúbburinn fór ávallt í skemmtiferðir á vorin og þá var ýmislegt brallað. Seinni árin fór- um við að halda þorrablót heima hjá hver annarri og ferðast er- lendis; þrátt fyrir að hún hafi ver- ið flughrædd lét hún sig hafa það að koma með. Jónu var annt um fólk og vann hún ýmis störf, svo sem á leikskóla og við umönnun fatlaðra og aldraðra. Jóna hafði dálæti á íslenska þjóðbúningnum og saumaði sér upphlut á nám- skeiði á Hellissandi. Hún hvatti ávallt konur til að klæðast þjóð- búningum og viljum við því heiðra minningu hennar með því að klæðast þjóðbúningum við útför hennar. Takk fyrir samfylgdina, kæra vinkona. Sendum fjölskyldu og ættingjum innilegar samúðar- kveðjur á þessum erfiðu tímum. Fyrir hönd saumaklúbbsins, Arnheiður. Ekki áttaði ég mig á því að þær tvær kvöldstundir sem ég átti rúmri viku fyrir andlát Jónínu Vigfúsdóttur, með henni og Palla, yrðu þær síðustu með henni. Ég gerði mér hins vegar grein fyrir því að baráttan fram undan við ill- vígan sjúkdóm yrði hörð og óvæg- in, krabbameinið hefði því miður Jónína Vigfúsdóttir ✝ Steinunn LáraÞórisdóttir fæddist á Heil- brigðisstofnun Suð- urlands á Selfossi 26. ágúst 1985. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 16. júní 2016. Foreldrar Steinunnar eru Sig- ríður Gróa Guð- mundsdóttir, f. 29.3. 1951, og Þórir Stein- dórsson, f. 10.6. 1955. Systkini Steinunnar eru Steindór, f. 1978, og Lárus Arnar, f. 1981. Hálfsystir Steinunnar er Bryn- hildur, f. 1970. Steinunn ólst upp á Eyrar- bakka til fjögurra ára aldurs en flutti svo í vesturbæ Kópavogs, þar sem hún bjó alla sína grunn- skólagöngu. Við tók nám við Menntaskólann í Kópavogi og þar eftir við Háskólann í Reykja- vík þaðan sem hún útskrifaðist sem viðskiptafræðingur árið 2013. Hún starfaði sem sér- fræðingur á lífeyr- isdeild hjá Lífeyris- sjóði starfsmanna ríkisins (LSR). Eftirlifandi eiginmaður Steinunnar er Þor- leifur Gunnar Gíslason, f. 1981. Foreldrar Þor- leifs eru Gísli Sveinsson, f. 1959, og Svala Þórðardóttir, f. 1956. Steinunn Lára og Þorleifur kynntust á Kaffibarnum árið 2002 og giftu sig árið 2015. Börn þeirra eru tvö, Alexander Októ Þorleifsson, f. 15.5. 2007, og Karólína Bríet Þorleifsdóttir, f. 27.5. 2013. Útför Steinunnar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 30. júní 2016, klukkan 13. Elsku ástin mín. Þetta er svo erfitt að sætta sig við. Þú í blóma lífsins, með tvö yndisleg börn, nýútskrifuð úr háskóla og nýkomin með nýja og spenn- andi vinnu og allt gekk svo vel hjá okkur. Við vorum rétt farin að geta skipulagt framtíð okkar þegar lífið ákvað að skella til- veru okkar á hvolf. Verkir í öxl sem höfðu plagað þig í nokkra mánuði reyndust vera sjaldgæft beinkrabbamein. Ekkert gat búið okkur undir þetta áfall. En sorgin vék fljótt fyrir bjartsýni og óbilandi baráttu- hugarfari sem einkenndu þig alla tíð. Þetta hugarfar var smitandi og við rerum öll í sömu átt. Þú sagðir að það gagnaðist engum að þú veltir þér upp úr sjálfsvorkunn og depurð yfir þessu. Stefnan var sett á bata, annað kom aldrei til greina. Meðferðin gekk vel og níu löngum og erfiðum mán- uðum síðar fengum við þær gleðifregnir að meinið væri far- ið og þú krabbameinslaus. Hví- líkur sigur! Við gátum aftur far- ið út í lífið að huga að einhvers konar framtíðarplönum. Lífið var við það að falla í ljúfa löð á ný þegar enn eitt áfallið dundi yfir. Meinið hafði tekið sig upp að nýju eftir aðeins fjóra mán- uði. Okkur var gert ljóst að tím- inn sem við ættum saman væri dýrmætur. Líkaminn þinn var ekki tilbúinn í aðra eins baráttu þó að hugur þinn væri það. Þú gerðir allt sem hægt var. Með sama ljónshjartanu og hugar- fari sigurvegarans sem hafði tekist á við þessi veikindi und- anfarið ár. Við fengum fimm dýrmæta mánuði í viðbót. Ég fékk að dekra við þig sem best ég gat. Minn betri helming, lífs- förunaut síðustu 14 ára og ofur- móður barna minna. Ég sakna þín meir en orð fá lýst. Ég mun alltaf elska þig. Nú þarf ég að læra á lífið án þín þar til ég hitti þig á ný í fyrirheitna land- inu. Þangað til mun ég leggja mig fram við að halda öllum góðu minningunum á lofti og reyna að tileinka mér allt það sem var svo gott í þínu fari. Þú sást alltaf björtu hliðarnar á öllu og dróst ávallt það besta fram í mér og börnunum. Þú varst svo stolt og góð móðir og ég mun gera allt sem ég get til að gera þig stolta. Ég kveð þig með möntrunni sem þú sagðir börnunum okkar á hverju kvöldi: „Góða nótt, sofðu rótt og dreymdu fallega drauma ástin mín.“ Ég elska þig út af lífinu. Þorleifur Gunnar Gíslason. Það hafði snjóað og við í 5. bekk í Kársnesskóla eitthvað að pempíast í útivistinni. Sjáum þá nýja stelpu í bleikfjólubláum snjógalla í snjókasti. Skemmti sér með nýju skólafélögunum sínum og gaf með ásýnd sinni hversdagslegum skóladeginum nýtt líf. Hún var nýkomin heim eftir dvöl í Danmörku með aukalokk í eyranu og sítt hárið bundið aftur í lausa fléttu. Horfðum á hana með aðdáun í augum, þessa nýju skólasystur okkar sem varð besta vinkona okkar. Við vorum öllum stundum saman, í skólanum á daginn, kórnum eftir skóla og í sjopp- unni á kvöldin þegar við urðum unglingar. Steinunn eignaðist margar góðar vinkonur, bæði í okkar árgangi og næsta á und- an. Skemmtileg og gaman að hlusta á hana segja frá, húm- oristi og hnyttin í tilsvörum. Stríðin og hafði smitandi hlátur. En fyrst og fremst hlý og hjartagóð. Næm á fólk og botn- aði fyrir mann setningarnar því hún vissi alltaf hvað kæmi næst. Einlæg vinkona og hreinskilin og gott að leita til hennar. Hafði ríka réttlætiskennd og tók óhrædd upp hanskann fyrir vin- konur sínar ef henni fannst á þeim brotið. Steinunn vissi hvað hún vildi, var einstaklega dugleg og vann mikið samhliða skólanum á menntaskólaárunum. Hún var óstöðvandi eftir að hún fékk bíl- prófið, tók okkur á rúntinn á bíl móður sinnar og reykspólaði upp Suðurvörina í þriðja. Við uxum upp úr sjoppuhangsinu og inn á Kaffibarinn og næturlífið í miðbæ Reykjavíkur. Eitt ör- lagaríkt kvöld hitti Steinunn þar myndarlegan strák úr Reykjavík sem hafði að sjálf- sögðu tekið eftir henni eins og allir hinir strákarnir. Þetta varð ást við fyrstu sýn, þau eyddu því sem lifði nætur á spjalli saman úti á palli fyrir utan Kaffibarinn og voru upp frá því óaðskiljanleg. Steinunn og elsku Þolli hennar stofnuðu síðar ynd- islega fjölskyldu þar sem hlýja og manngæska Steinunnar skein í gegnum bæði börnin þeirra, Alexander og Karólínu, sem áttu í henni góðhjartaða og ástríka mömmu. Samhliða móð- urhlutverkinu gerði hún sér lít- ið fyrir og náði sér í háskóla- gráðu í viðskiptafræði frá HR. Fékk við það flotta vinnu hjá LSR og var rétt byrjuð að finna sig í nýja starfinu þegar áfallið kom. Steinunn greindist með sjaldgæft beinkrabbamein og við tóku erfiðir tímar. Í þeirri baráttu dáðumst við að henni, rétt eins og við höfð- um gert þegar við sáum hana fyrst í bleikfjólubláa snjógall- anum sínum, dáðumst að styrk hennar og jákvæðu hugarfari og reyndum af fremsta megni að tileinka okkur það á þessum raunastundum. Ást hennar og umhyggja fyrir vinkonum sín- um var söm fram á síðustu stund. Við munum ævinlega sakna þín en erum þakklátar fyrir hverja stund sem við áttum saman. Við viljum minnast þín með því hugarfari sem þú kenndir okkur og með því að breyta sorg okkar í ástina sem þú gafst okkur. Þú munt alltaf eiga þinn stað í vinahópnum og í hjörtum okkar allra sem þú snertir svo djúpt. Hvíldu í friði, elsku vinkona okkar. Við elskum þig. Elsku Þolli, Alexander, Kar- ólína, Sigga Gróa, Lalli og fjöl- skylda. Englar Guðs veri með ykkur og gefi ykkur styrk. Helga, Íris, Linda, Lára, Þóra Björk og Ásta. Sumir atburðir verða til þess að lífsýn manns gjörbreytist og hugsar maður þá lífið upp á nýtt. Ung manneskja í blóma lífsins rétt rúmlega þrítug kvaddi þetta líf, yndisleg eigin- kona og móðir tveggja barna. Hún var eins og sól sem geislar af ást og vináttu og þeir sem baðast í geislum hennar gleyma henni ekki. Steinunn var svo sannarlega eins og sólin. Þor- leifur eiginmaður hennar, börn- in Alexander og Karólína hafa misst svo mikið en fallegu minningarnar lifa. Þegar ég sá hana fyrst aðeins 16 ára gamla, þá nýbúna að kynnast Þorleifi varð hún hluti af tilverunni. Mér fannst eins og ég hefði alltaf þekkt hana og kunni strax vel við hana. Hún var svo einstaklega opin, skemmtileg og hláturmild. Það voru farnar margar ferðir aust- ur í Skaftártungu í sumarhús tengdaforeldra Steinunnar. Þar áttum við ógleymanlegar stund- ir og ekki má gleyma grillveisl- unum á Sundlaugavegi. Þetta á ég í minningunni sem ég geymi vel. Önnur falleg minning var fal- legt samband Steinunnar og Þorleifs, en þau báru mikla virðingu hvort fyrir öðru og hún var alltaf svo stolt af Þorleifi sínum. Alexander sonur þeirra átti hennar hjarta, þau voru lík og miklir vinir og skildu svo vel hvort annað. Hann bara níu ára en samt svo þroskaður. Karól- ína þriggja ára prinsessa sem söng hástöfum með tilþrifum fyrir mömmu sína og ekki verra ef fleiri áheyrendur voru, það var yndisleg sjón. Steinunn var góð mamma og bera þau þess merki. Alveg fram á síðasta dag var Steinunn að hugsa um þeirra framtíð, skrá þau á nám- skeið og ýmislegt fleira. Hún var ákveðin að vinna þessa orr- ustu, en því miður fór það á annan veg. Elsku Þorleifur, Alexander og Karólína, á þessari erfiðu stundu votta ég ykkur öllum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Guð veri með ykkur. Sjöfn og Árni. Steinunn Lára Þórisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.