Morgunblaðið - 06.07.2016, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. J Ú L Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 156. tölublað 104. árgangur
TEKUR SJÁLFAN
SIG OG REYNSL-
UNA MEÐ SÉR
FJÖLBREYTT OG FERLEGT
NOTAR LISTAVERK
MÓÐURAFA Í
HÖNNUN SINNI
EISTNAFLUG Í NESKAUPSTAÐ 31 ENGILBERTSHÖNNUN 12KK Á ARCTIC CONCERTS 30
Fyrir alla leiki á Evrópumótinu í
knattspyrnu var svokölluð kossa-
myndavél þar sem sýnt var á risaskjá
þegar pör smelltu kossi á hvort annað
fyrir framan tugþúsundir manna.
Elís Hólm Þórðarson gekk þó skref-
inu lengra því hann bað Huldu Teits-
dóttur um að giftast sér og sagði
Hulda já fyrir framan rúmlega 80
þúsund manns á Stade de France
fyrir leik Frakklands og Íslands í átta
liða úrslitunum. Parið hefur verið
saman í átta ár og á þrjú börn.
„Það var kominn tími á þetta,“ seg-
ir Elís, en fimm daga tók að fá stað-
festingu á að hann yrði síðastur í
kossamyndavélaröðinni. „Ég og vinur
minn ákváðum að fara á leikinn í 16
liða úrslitum gegn Englandi og þá var
ég ekki búinn að ákveða að trúlofast í
París nokkrum dögum síðar. Eftir
sigurinn gegn Englandi segi ég við
strákana eitt kvöldið hvort ég ætti
ekki bara að biðja Huldu. Hvort það
yrði ekki nokkuð flott að komast í
kossamyndavélina og biðja hennar á
vellinum. Og þeim fannst það góð
hugmynd og hjálpuðu mér mikið.“
Elís fann símanúmerið hjá Páli
Sævari Guðjónssyni, vallarþul KSÍ í
Frakklandi, og spurði hvort hann
gæti eitthvað hjálpað sér. „Hann gat
ekki lofað neinu en ætlaði að gera sitt
besta til að reyna að láta þetta gerast.
Þetta tók fimm daga og ég fékk ekki
lokasvar fyrr en klukkan 16 að
frönskum tíma á sunnudeginum, titr-
andi af stressi.“
Þegar Elís og Hulda birtust á risa-
skjá Stade de France fór hann niður á
hnén og kom unnustu sinni á óvart.
„Þegar ég birtist var að duga eða
drepast, það var ekkert flóknara en
það. Ég henti mér niður og sagði
nokkur vel valin orð. Hún sagði já,
sem betur fer, því að annað svar hefði
verið frekar niðurlægjandi,“ segir
hann og hlær. Áhorfendur á vellinum
tóku vel í bónorðið og fögnuðu áhorf-
endur ákaft þegar ljóst var að Hulda
hafði sagt já. „Það fór gæsahúð um
mann þegar ég gerði þetta og þetta
er nokkuð sem ég gleymi aldrei. Vinir
mínir vita reyndar ekki alveg hvernig
hægt verður að toppa þetta bónorð,“
segir hann og hlær.
benedikt@mbl.is »11
Á skeljarnar í kossamyndavél
Elís Hólm bað um hönd unnustunnar fyrir framan 80 þúsund áhorfendur á EM
Elís og Hulda „Hún sagði já.“
Þeir Anton Arnarson og Benedikt Benediktsson skipa dúettinn BMX
brós og eru mörgum Íslendingum kunnir eftir frammistöðu sína í Ís-
land Got Talent. Þeir hafa verið með BMX-hjólanámskeið fyrir unga
krakka í sumar og eins og sjá má er hægt að nota hjólin í alls kyns
brellur eins og að stökkva niður af tröppum. Þeir ítreka að hjá þeim sé
öryggið alltaf í fyrirrúmi og að allir sem sæki námskeið þeirra þurfi að
vera með hjálm. Hver veit nema í uppsiglingu sé annað BMX-æði líkt
því sem þeir muna eftir sem ólust upp á níunda áratug síðustu aldar.
Arnar og Benedikt hafa verið með BMX-hjólanámskeið fyrir krakka í sumar
Kátir í loftköstum á BMX-hjólum
Morgunblaðið/Ófeigur
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Reglur sveitarfélaganna um fasteignagjöld
eru mjög mismunandi og endurspeglast í
mishárri álagningu gjaldanna í hverju
sveitarfélagi fyrir sig.
Fasteignagjöld eru hæst í Borgarnesi, að
því er fram kemur í útreikningi Þjóðskrár
Íslands fyrir Byggðastofnun, sem tekur mið
af fasteign af sömu gerð á öllum stöðunum,
einbýlishúsi sem er 161,1 fermetrar að
grunnfleti og 808 fermetra lóð. Samkvæmt
mati Þjóðskrár eru fasteignagjöld í Borgar-
nesi um 351 þúsund krónur á ári. Næst á
eftir kemur Keflavík með gjöld upp á 344
þúsund og þar á eftir Húsavík, með 330 þús-
und. Lægstu gjöldin eru á Vopnafirði, 180
þúsund, eða 51% af hæstu gjöldunum.
Mesta hækkun fasteignagjalda frá fyrra
ári er á Siglufirði, 25%, en þar lækkuðu
gjöldin mest í fyrra.
Hæst fasteignagjöld á höfuðborgarsvæð-
inu eru í Suður-Þingholtunum í Reykjavík,
um 320 þúsund. Lægst eru þau í Úlfars-
árdal, um 235 þúsund.
Fasteignagjöld lækkuðu í þremur
sveitarfélögum; á Hólmavík, á Seyðisfirði
og Blönduósi, þar sem lækkunin var mest,
1,8%.
Hæstu fasteignagjöldin
St
yk
kis
hó
lm
ur
Ke
fla
vík
Bo
rga
rn
es
Gr
un
da
rfj
ör
ðu
r
Hú
sa
vík
350.000
300.000
250.000
200.000
2015 2016
kr.
Heimild: Byggðastofnun
Gjöldin hæst
í Borgarnesi
Misjöfn á landsvísu
Hlýindi í vor
gefa vísbendingu
um góðan hey-
skap í sumar, en
Borgar Páll
Bragason, fag-
stjóri í nytja-
plöntum hjá Ráð-
gjafarmiðstöð
landbúnaðarins
(RML), segir
horfurnar fyrir
heyskaparárið almennt góðar.
Bændur víða um land eru búnir
með fyrsta slátt.
Þurrkar hafa þó gert bændum
lífið leitt, t.a.m. í Mýrdal, þar sem
ekkert rigndi frá miðjum apríl og
fram yfir miðjan júní, sem er mjög
óvenjulegt.
Í Eyjafirði hefur heyfengur verið
misjafn, meðal annars vegna kals í
túnum í vor. »4
Búist við góðum
heyskap í sumar
Mýrdalur Bændur
byrjaðir að heyja.