Morgunblaðið - 06.07.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016
Listaverk til heiðurs Vilhelmínu
Lever var afhjúpað í Naustinu í
Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í
gær. Vilhelmína var fyrsta konan á
Íslandi til að kjósa í opinberum kosn-
ingum, til sveitarstjórnar árið 1863 á
Akureyri. Verkið er sett upp í tilefni
af 100 ára kosningaafmæli kvenna í
fyrra. Um er að ræða skúlptúr úr
timbri eftir listakonuna Aðalheiði S.
Eysteinsdóttur sem sýnir maddömu
Vilhelmínu í fullri líkamsstærð sitj-
andi á bekk og við hlið hennar er
kjörkassi. Í kassann má setja hug-
myndir um skapandi verkefni sem
gætu orðið konum til hagsbóta eða
framdráttar með einhverjum hætti.
Vilhelmína Lever á Akureyri var fyrsta konan til að kjósa til sveitarstjórnar á Íslandi árið 1863
Fyrsta
konan til
að kjósa
Morgunblaðið/Þorgeir
Hugmyndakassi Við hlið listaverksins er kassi þar sem setja má hugmyndir um skapandi verkefni.
Landsnet hyggst halda áfram fram-
kvæmdum við Kröflulínu 4 sem mun
sjá nýrri Kísilverksmiðju á Bakka
fyrir rafmagni.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála hefur fyrirskipað
bráðabirgðastöðvun á framkvæmd-
um meðan nefndin tekur fyrir kæru
Landverndar og Fjöreggs.
Bannið bara á einu svæði
Bann úrskurðarnefndarinnar gild-
ir þó aðeins við Leirhnjúkshraun þar
sem framkvæmdir eru ekki hafnar. Í
svari Landsnets við fyrirspurn
Morgunblaðsins segir „Stöðvunar-
krafan er til bráðabirgða meðan úr-
skurðarnefndin er með málið til af-
greiðslu. Við bíðum eftir þeirri
niðurstöðu [...] við gerum ráð fyrir að
halda áfram með framkvæmdir á
þeim svæðum þar sem öll tilskilin
leyfi liggja fyrir“.
Ekki ljóst hvort tafir verði
Það er því ljóst að lagning línunn-
ar er enn sem komið er á áætlun en
framkvæmdin gæti tafist verði frek-
ari seinkun á afgreiðslu málsins. Í
svari Landsnets segir þó „Á þessu
stigi vitum við ekki hvort þetta muni
leiða til tafa á tengingu Þeista-
reykjavirkjunar og Bakka við flutn-
ingskerfið en ef leyfi til fram-
kvæmda liggur ekki fyrir innan fárra
vikna mun það hafa áhrif á framgang
verksins“.
Gæti valdið miklu tjóni
Tafir á lagningu Kröflulínu 4 gætu
haft í för með sér seinkun á að Kís-
ilver á Bakka geti hafið starfsemi.
Standi verksmiðjan auð verða
rekstraraðilar Kísilversins og sveit-
arfélagið Norðurþing fyrir töluverðu
fjárhagstjóni. elvar@mbl.is
Framkvæmdir
halda áfram við
Kröflulínu 4
Stöðvun aðeins á afmörkuðu svæði
Tölvuteikning/Landsnet
Möstur Ekki eru allir sáttir við nýju
raflínuna og staðsetningu hennar.
Íslensk heimili njóta háhraðateng-
ingar í meira mæli en aðrar Norð-
urlandaþjóðir og Eystrasalts-
löndin, samkvæmt
samanburðarsamantekt sem gerð
var meðal þjóðanna.
Háhraðatenging telst tenging
með 30Mb/s niðurhalshraða eða
meira. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá Mílu. Síðustu sjö ár
hafa eftirlitsstofnanir á fjar-
skiptamarkaði Norðurlanda og
Eystrasaltslanda, alls átta landa,
gefið árlega út samanburðar-
skýrslu um notkun helstu þátta
fjarskiptaþjónustu og þróun
þeirra.
Samkvæmt könnuninni er um
0,31 breiðbandstenging á hvern
íbúa á Íslandi. Næstir koma Svíar
með 0,21 tengingu á hvern íbúa.
Könnun á þessum þætti nær aftur
til ársins 2010 og hefur Ísland
haft forystu allan þann tíma.
Fleiri háhraðateng-
ingar hér en hjá
samanburðarþjóðum
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Horfurnar fyrir heyskaparárið eru
almennt góðar, að mati Borgars Páls
Bragasonar, fagstjóra í nytja-
plöntum hjá Ráðgjafamiðstöð land-
búnaðarins (RML). Hann sagði að
vorið hafi verið hlýtt sem er gott fyr-
ir sprettuna.
„Sprettan hefur verið góð um allt
land nema þar sem þurrkar hafa sett
strik í reikninginn,“ sagði Borgar.
Hann sagði að korn og grænfóður
hafi einnig vaxið mjög vel. Kornið sé
farið að skríða þannig að horfurnar
fyrir það séu einnig góðar.
Borgar starfar á Hvanneyri í
Borgarfirði. Hann sagði þó nokkuð
síðan að sláttur hófst á Vesturlandi.
Það hvað sláttur hefst snemma
ræðst nokkuð af því hvort beitt hefur
verið á túnin að vori.
„Hér eru menn á fullu í heyskap
þessa góðu daga,“ sagði Borgar.
Margir bændur á Vesturlandi eru
búnir með fyrsta slátt og sumir fyrir
nokkru.
Töluverðar rigningar hafa verið á
Austurlandi síðustu vikur eftir mikla
þurrka þar á undan. Borgar sagði að
einhverjir bændur á Austurlandi hafi
verið byrjaðir að slá fyrir rigning-
arnar. Grasspretta hafi væntanlega
tekið vel við sér í úrkomunni.
Misjafn heyfengur í Eyjafirði
Vel viðraði til heyskapar í Eyja-
firði þar til í síðustu viku að það fór
að rigna, að sögn Sigurgeirs B.
Hreinssonar, framkvæmdastjóra
Búnaðarsambands Eyjafjarðar.
Sumir voru þá búnir með fyrsta slátt.
Óvenju mikil hlýindi höfðu verið í
mánuð fram að síðustu viku. Bændur
glöddust yfir því að fá rigninguna,
enda var orðið verulega þurrt.
„Ég hef varla heyrt menn tala um
jafn misjafnan heyfeng á þessum
tíma og nú,“ sagði Sigurgeir. Hann
sagði að annars vegar hafi sums
staðar verið mikið kal í túnum í vor.
Hins vegar voru óvenju miklir
þurrkar þar til í síðustu viku. Við
þær aðstæður fer það mikið eftir
landinu hvernig uppskeran verður,
hvort landið er frjósamt með miklum
og góðum jarðvegi eða hvort það er
viðkvæmt fyrir þurrkum eins og þar
sem stutt er niður á sand eða möl.
Sigurgeir sagði dæmi um að menn
hafi fengið afleita uppskeru vegna
þurrka sem komu jafnvel ofan á kal.
Þeir sem eru með framræstar mýrar
sem halda rakanum vel hafa fengið
góða uppskeru.
„Heyskapur var ágætlega
snemma á ferðinni. Menn geta fengið
annan slátt og jafnvel þriðja góðan.
Þar sem var þurrast og tún skrælnuð
og brunnin, orðin alveg gul út af
þurrkum, þar er þetta lengi að ná
sér,“ sagði Sigurgeir.
Óvenju þurrt í Mýrdalnum
Jónas Erlendsson, fjárbóndi og
fréttaritari í Fagradal í Mýrdal,
byrjaði að slá rétt fyrir mánaðamót.
Hann beitir túnin vor og haust.
Nær ekkert rigndi frá miðjum
apríl og fram yfir miðjan júní, sem er
mjög óvenjulegt í Mýrdalnum. Tún
sem ræktuð eru á sandi voru orðin
mjög þurr og skrælnuð af þurrki sem
hamlaði sprettu. Skúrir komu í
fyrrakvöld og í gær. Því meiri sem
vætan er þess meiri er gróskan.
Spáð er hagstæðu heyskaparveðri
í Mýrdal næstu daga, að sögn Jón-
asar.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Heyannir Ágætlega hefur gengið að heyja á bænum Hvannbóli í Mýrdal. Þar var verið að taka upp heyrúllu til að
pakka henni í plast þegar myndin var tekin. Vorið var hlýtt en sums staðar var það heldur of þurrt fyrir sprettuna.
Góðar horfur fyrir
heyskapinn í sumar
Vorið var hlýtt og gott Þurrkar setja strik í reikninginn
Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is
Moules Frites
Bière
Bláskel með frönskum
og bjór
3490,-
alla fimmtudaga