Morgunblaðið - 06.07.2016, Side 8

Morgunblaðið - 06.07.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 Vef-Þjóðviljinn kærir sig oftastkollóttan um regluverk rétt- trúnaðarins og viðrar hiklaust hina hlið hvers máls:    Eitt sem ekki breytist er að enner verið að gefa út Bóta- skrárnar. Auglýsingar heyrast allsstaðar: Bótaskrárnar eru komnar út. Kaupið bótaskrárnar.    Tryggingastofnun sendir frá sérlista yfir hæstu bótaþega í hverju kjördæmi og fréttamenn lesa þá upp. Engin lagaheimild er fyrir því að senda þetta út en það er gert samt, og enginn fettir fing- ur út í það, af ótta við að vera tal- inn vinur bótaþega. Fjölmiðlar vinna upp úr bótaskránum. Þeir birta lista yfir hæstu atvinnuleysis- bótaþega, hæstu örorkubótaþega, hæstu vaxtabótaþega, hæstu barnabótaþega og svo framvegis.    Ef einhver mótmælir þessu ogbendir á að hér sé fjallað opinberlega um viðkvæm persónu- leg málefni er því svarað að þetta eigi að vera opinberar upplýs- ingar, þar sem bótagreiðslurnar komi úr sameiginlegum sjóðum. Fólk sem borgi skatta eigi rétt á að vita í hvað skattarnir fara. Í öðru lagi er sagt að birting bóta- skránna sé mikilvæg í baráttunni gegn bótasvikum.    Menn þori ekki að þykjast veraatvinnulausir en vinna samt svart, ef þeir vita að bótaskráin verður birt. Ef þessi rök duga ekki er því bætt við að fjárhagslegar upplýs- ingar séu ekkert viðkvæmar upp- lýsingar, nema menn hafi eitthvað að fela. Þess vegna koma Bóta- skrárnar áfram út.“ Bótaskrárnar komnar út STAKSTEINAR Veður víða um heim 5.7., kl. 18.00 Reykjavík 16 léttskýjað Bolungarvík 14 heiðskírt Akureyri 15 léttskýjað Nuuk 7 heiðskírt Þórshöfn 10 heiðskírt Ósló 18 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 skúrir Stokkhólmur 19 skúrir Helsinki 14 skúrir Lúxemborg 20 léttskýjað Brussel 17 léttskýjað Dublin 15 skýjað Glasgow 15 skýjað London 20 léttskýjað París 21 alskýjað Amsterdam 16 rigning Hamborg 16 þrumuveður Berlín 24 skúrir Vín 28 léttskýjað Moskva 16 skýjað Algarve 23 heiðskírt Madríd 34 léttskýjað Barcelona 29 léttskýjað Mallorca 30 heiðskírt Róm 28 heiðskírt Aþena 30 léttskýjað Winnipeg 18 skýjað Montreal 26 skýjað New York 25 rigning Chicago 25 alskýjað Orlando 32 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 6. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:19 23:48 ÍSAFJÖRÐUR 2:26 24:50 SIGLUFJÖRÐUR 2:05 24:37 DJÚPIVOGUR 2:37 23:29 Gangi lang- tímaspár um samdrátt í bresku efnahags- lífi og gengisfall sterlingspundsins eftir getur það haft áhrif á ferðalög Breta. OECD gerir ráð fyrir að lands- framleiðsla í Bretlandi til langs tíma verði um 5% minni en hún er nú. Í Hitamælinum, fréttabréfi Sam- taka ferðaþjónustunnar, segir að Bretlandsmarkaður sé mikilvægur fyrir áfangastaðinn Ísland, en um 240 þúsund Bretar sóttu Ísland heim á síðasta ári. Bretar voru í fyrra 19% erlendra ferðamanna sem komu til Íslands og hefur þeim fjölgað mikið á undanförnum árum. Hafa þeir haft sérstaklega góð áhrif á stöðugleika í ferðamannaiðnaðnum vegna þess að þeir koma hingað mest að vetr- arlagi, þ.e. utan háannatíma. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru Bretar 36% erlendra ferðamanna sem komu til landsins. jbe@mbl.is Gæti dregið úr straumi ferðamanna  Brexit hefur áhrif á ferðahegðun Breta Vesturverk hefur lagt fram frum- matsskýrslu um mat á umhverfis- áhrifum Hvalárvirkjunar í Ófeigs- firði í Árneshreppi á Ströndum. Virkjunin er í orkunýtingarflokki Rammaáætlunar. Kynningarfundur um skýrsluna verður í félagsheim- ilinu í Trékyllisvík í dag klukkan 14. Ekki er frágengið hvernig tengingu virkjunar við landskerfið verður háttað en nokkrar hugmyndir hafa verið skoðaðar með Landsneti, sem mun sjá um undirbúning að teng- ingu Hvalárvirkjunar við flutnings- kerfið, að því er fram kemur í frum- matsskýrslunni. Þrjár ár virkjaðar Í samantekt kemur fram að Vest- urverk ehf. áformar að virkja rennsli ánna Hvalár, Rjúkanda og Eyvindarfjarðarár til orkuöflunar. Miðað við núverandi hönnun er gert ráð fyrir að afl virkjunarinnar verði um 55 MW og orkuframleiðsla um 320 GWh á ári. Rjúkanda verður veitt yfir í Vatnalautavötn sem eru á vatnasviði Hvalár. Í Vatnalautum er myndað miðlunarlón með stíflu í Hvalá og vatninu síðan veitt að Hvalárlóni í Efra- og Neðra-Hval- árvatni með stíflu við Hvalá og ofan við Dagverðardalsá. Einnig er fyrirhugað er að gera miðlun í Neðra-Eyvindarfjarðar- vatni, sem verður Eyvindarfjarðar- lón, með gerð stíflu við útfall þess og vatni verður veitt þaðan um jarð- göng til Hvalárlóns. Frá Hvalárlóni er vatn leitt um aðrennslisgöng að stöðvarhúsi neðanjarðar með frá- rennsli um göng niður í ós Hvalár. Í skýrslunni segir í kafla um mótvægisaðgerðir: Miðað er við að stilla hæðir yfirfalla þannig að yf- irfallsvatn fari frekar á fossa sem staðkunnugir hafa metið mikilvæg- ari en aðra, svo sem í fossaröð Ey- vindarfjarðarár frekar en í Hvalá og á Rjúkandafoss í Rjúkanda frekar en Drynjanda í Hvalá. Heildarniðurstaða mats á umhverf- isáhrifum Hvalárvirkjunar er að áhrif framkvæmda séu á bilinu óveruleg til talsvert neikvæð. aij@mbl.is Frummat á 55 MW Hvalárvirkjun LANGVIRK SÓLARVÖRN ÞOLIR SJÓ, SUND OG LEIK. BARNIÐ ÞITT Á SKILIÐ 5 STJÖRNUR SÓLARVÖRNIN SEM HÚÐLÆKNAR MÆLA MEÐ Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð. Engin paraben, engin nanótækni, ilm- eða litarefni. Sölustaðir | Öll apótek, Nettó, Hagkaup, Fjarðarkaup, Fríhöfninni og víðar | www.proderm.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.