Morgunblaðið - 06.07.2016, Page 10

Morgunblaðið - 06.07.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 Fjöldi fólks hefur haft samband við lögfræðinga undanfarna daga til að leita réttar síns eftir að hafa keypt miða af Birni Steinbekk á leik Ís- lands og Frakklands í París á sunnudag. Eins og fram hefur kom- ið komust margir þeirra sem greitt höfðu fyrir miðana aldrei inn á leik- vanginn. Nú hefur verið stofnaður lokaður hópur á Facebook þar sem undir- búin er málsókn gegn Birni, en samkvæmt heimildum mbl.is er málið þó ekki komið formlega inn á borð neinnar lögmannsstofu. Er hópurinn því á þessu stigi umræðu- vettvangur þar sem meintir tjón- þolar ræða saman og ákveða í sam- einingu næstu skref. Ekki er því ljóst hvort málsókn verður að veru- leika á þessu stigi, en fjölmargir vilja þó leita réttar síns. Hættur sem framkvæmdastjóri Björn Steinbekk hefur verið framkvæmdastjóri Sónar tónlist- arhátíðar. Hann ritaði færslu á Facebooksíðu sína í gærkvöldi að hann hyggist hætta sem fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar. Ítrekað var reynt að ná á Björn og lögmenn Forum lögmannsstofu, sem hefur milligöngu um endur- greiðslu miðanna sem ekki bárust til íslenskra stuðingsmanna, í gær- kvöldi, en án árangurs. Umræður um hóp- málsókn gegn Birni Misstu af Margir misstu af gleðinni í stúkunni á sunnudag þrátt fyrir miðakaup. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Töluverð reiði er meðal farþega sem ferðuðust til Frakklands með fyrir- tækinu Netmiða til að sjá viðureign Íslands og Frakklands í átta liða úr- slitum á Evrópumótinu í knatt- spyrnu. Fluginu heim var flýtt um 14 klukkustundir og áttu farþegar að mæta út á flugvöll um fjögur um nóttina. Auglýstur tími hafði verið átta á mánudagskvöld. Samkvæmt heimildum blaðsins gerði flugfélagið mistök í bókun sem leiddi til þess að vélin þurfti að fara fyrr í loftið. Ekki fengu allir farþegar tilkynn- ingu um að fluginu hefði verið flýtt heldur spurðist það út í París. Vil- hjálmur Vilhjálmsson, lögmaður, var í vélinni og hefur hann fengið nokkrar fyrirspurnir frá farþegum um hvort eitthvað sé hægt að gera. Hann segir Kristján Atla Bene- diktsson, forsvarsmann Netmiða, hafa unnið með sér í góðu samstarfi. „Það má skipta þessum hóp upp í fernt, sem á kröfu á Netmiða. Það eru þeir sem keyptu flug og miða á leikinn en fengu ekki. Að mínu mati eiga þeir rétt á endurgreiðslu á ferðinni. Svo eru þeir sem fengu ekki skilaboð um nýjan brottfar- artíma vélarinnar og urðu þar af leiðandi strandaglópar í París. Þer eiga rétt á að fá kostnað sinn við heimförina endurgreiddan. Síðan er það loforð aðilanna sem seldu þessa ferð að endurgreiða 10% af ferða- verðinu ef það tækist að fylla vélina og það tókst. Það er krafa sem allur hópurinn á, óháð því hvaða pakka þeir tóku. Í fjórða lagi er hópur sem keypti flugfarið en ferðin var stytt um einn þriðja.“ Frétti í hálfleik Styrmir Gunnarsson, stofnandi Tólfunnar, var að tala við aðra með- limi stuðningsmannasveitarinnar í hálfleik á leiknum við Frakka þegar hann frétti að flogið yrði 14 klukku- stundum fyrr. „Ég hitti nafna minn í flugvélinni til Parísar og það eru ekki margir sem heita þessu nafni þannig að ég spjallaði heillengi við hann. Sá ágæti maður var ekki í fluginu heim. Í svona ferð er ég ekki mikið að skoða netpóstinn minn og tilkynningin kom víst bara þar og á Facebook. Ég var reyndar að skoða póstinn minn og þar var engin til- kynning.“ Styrmir og félagar í Tólfunni þurftu að hafa hraðar hendur við að taka til allt sitt hafurtask, trommur, fána og annað og koma sér upp á hótel að pakka niður. Þeir reyndu að hringja í sem flesta til að láta vita af breytingunni og náðu í einhverja en ekki alla. Netmiði og auglýsingastofan 23 tóku 180 sæta flugvél til að ferja ís- lenska stuðningsmenn landsliðsins. Í fréttatilkynningu var sagt að flug- vélin færi heim á mánudagskvöldi eða daginn eftir leik. Ætluðu margir farþegar að njóta fegurðar Parísar þennan aukadag en hann var tekinn af þeim. Enn Íslendingar í París „Það var tekinn af okkur heill dagur sem við ætluðum að nýta í París. Við vorum búnar að borga hótel sem við þurftum í raun ekki neitt,“ segir Erna Hrund Grétars- dóttir, sem átti bókað flug heim með vélinni. Enn eru einhverjir Íslendingar í París og fékk Styrmir fyrirspurn frá einum sem spurði hvort Tólfan gæti eitthvað gert fyrir sig. „Við gátum lítið gert en reyndum að leiðbeina henni áfram. Það virtist allt fara úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis í kringum sumar ferðirnar. Ég veit að 55 úr Partývél- inni fengu ekki miða og fóru ekki á völlinn.“ Flýttu fluginu frá París til Íslands um 14 klukkustundir  Netmiði byrjaður að endurgreiða fólki  Mikil reiði hjá þeim sem misstu af Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gleði Bláa hafið eins og stuðningsmenn Íslands voru nefndir á leiknum við Frakka. Ekki komust allir á leikinn þrátt fyrir að hafa borgað miða. MOGGAKLÚBBURINN Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. Hvernig fæ ég afsláttinn? Til að fá afsláttinn þarf að fara inn á moggaklubburinn.is og smella á „Operugala um sumar“. Þá opnast síða þar sem þú klárar miðakaupin með afslætti. Allar nánari upplýsingar á www.pearls.is FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á EÐA Í SÍMA 25% AFSLÁTTUR Á ÓPERUGALA UM SUMAR Í HÖRPU Á þessum tónleikum beinum við athygli okkar að sögu óperunnar á Íslandi. Fjórir einsöngvarar og píanisti flytja fjölbreytta óperutónlist, bæði innlenda og erlenda auk þess sem ýmsum fróðleik um óperuflutning á Íslandi verður gaukað að áhorfendum. Söngvararnir eru; Lilja Guðmundsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Egill Árni Pálsson tenór, Kristján Jóhannesson baritón og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari. Tónleikar: 10. 17. og 24. júlí og 7. og 14. ágúst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.