Morgunblaðið - 06.07.2016, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Eftir sigurinn gegn Englandi segi
ég við strákana eitt kvöldið hvort
ég ætti ekki bara að biðja Huldu.
Hvort það yrði ekki nokkuð flott
að komast í kossamyndavélina og
biðja hennar á vellinum. Og þeim
fannst það góð hugmynd og hjálp-
uðu mér mikið,“ segir Elís Hólm
Þórðarson, sem fór á skeljarnar
fyrir leik Íslands og Frakklands á
Evrópumótinu í Frakklandi. Hulda
Teitsdóttir, unnusta Elísar, sagði
já og völlurinn fagnaði líkt og
mark hefði verið skorað.
Fyrir alla leiki á Evrópumótinu
í knattspyrnu er svokölluð kossa-
myndavél þar sem pör smella
kossi á hvort annað fyrir framan
tugþúsundir manna. Elís gekk þó
skrefinu lengra með bónorðinu.
Eftir sigurinn á Englandi flaug
Hulda út til Frakklands til að
horfa á sinn fyrsta fótboltaleik á
ævinni og sá varð eftirminnilegur.
„Eftir að Ísland vann England
hringdi ég í hana og sagði að hún
yrði að koma og upplifa þessa
stemningu. Ég vildi hafa hana hjá
mér og upplifa þetta með henni.
Þannig að við björguðum miðum,
flugi fyrir hana, pössun og öðru,“
segir Elís, en parið á þrjú börn.
„Ég fór að velta fyrir mér við
hvern ég ætti eiginlega að tala,
hvort það væri KSÍ eða hver, en
ég mundi að það væri íslenskur
vallarþulur og gróf upp númerið
hans Páls Sævars Guðjónssonar
og spurði hvort hann gæti eitthvað
hjálpað mér. Hann gat ekki lofað
neinu en ætlaði að gera sitt besta
til að reyna að láta þetta gerast.
Það tók fimm daga og ég fékk
ekki lokasvar fyrr en klukkan 16
að frönskum tíma á sunnudeg-
inum, titrandi af stressi,“ segir
hann.
Erfitt að finna hring í París
Eftir ferðalagið frá Nice, þar
sem Englandsleikurinn fór fram,
hafði Elís nægan tíma til að finna
rétta hringinn. Eða svo hélt hann.
„Að finna hring í borg ástarinnar
París ætti ekki að vera mikið mál,
hugsaði ég, en annað kom á dag-
inn. Það var einfaldlega hlegið að
mér þegar ég ætlaði að kaupa
hringa því það er víst mánaðarbið
þannig ég græjaði lítinn gullhring,
svona til að hafa eitthvað.“
Í skilaboðum á leikdegi frá Páli
stóð að hann og Hulda yrðu að
vera kominn í sætið sitt klukkan
19.45 og þetta myndi gerast tvær
mínútur yfir átta. „Það mátti ekk-
ert klikka. Um hálf átta var ég
orðinn mjög stressaður því við
vorum enn fyrir utan leikvanginn.
Þannig að ég segi henni að koma
því nú sé kominn tími til að fara
inn á völlinn. Undirtektirnar voru
heldur dræmar enda var mjög
gaman þar sem við vorum. Ég
stressaðist allur upp og vissi ekk-
ert hvernig ég ætti að ljúga mig út
úr þessum aðstæðum. Þegar ég
hafði loks náð henni í sætið sitt
leit ég á klukkuna og þá var hún
19.45 þannig að þetta rétt slapp
fyrir horn.“
Verðum að horfa á upphitun
En raunum Elísar var ekki lokið
því að parið þurfti að vera í sætinu
sínu þangað til röðin kæmi að
þeim. Það vissi Hulda auðvitað
ekkert um. „Nánast um leið og við
settumst niður fór Hulda að segja
hvað hún væri orðin svöng og ætl-
aði að fara að kaupa sér eitthvað
að borða. Þá þurfti ég að segja
eitthvað og ákvað að segja henni
hvað það væri gaman að horfa á
upphitun strákana,“ segir hann og
hlær. „Ég sagði líka að við mætt-
um ekki missa af einni sekúndu,
þannig að maturinn yrði að bíða.“
Klukkan 20 fór kossamyndavélin
í gang og var Elís síðastur í röð-
inni svo að myndin gæti lifað
lengi, en hvert par er aðeins
nokkrar sekúndur. „Þegar klukkan
sló átta taldi ég einhver pör á und-
an og beið einfaldlega eftir að ég
myndi horfa á mig á skjánum. Svo
birtist ég og þá var að duga eða
drepast, það var ekkert flóknara
en það. Ég henti mér niður á
skeljarnar, sagði nokkur vel valin
orð og hún svaraði með því að
segja já. Sem betur fer, því annað
svar hefði verið frekar niðurlægj-
andi,“ segir hann og hlær
Fögnuðu ákaft
Áhorfendur á vellinum tóku vel í
bónorðið, hvort sem þeir voru að
styðja Frakkland eða Ísland, og
fögnuðu áhorfendur ákaft þegar
ljóst var að Hulda hafði sagt já.
„Það fór gæsahúð um mann
þegar ég gerði þetta og þetta er
nokkuð sem ég gleymi aldrei. Vin-
ir mínir vita reyndar ekki alveg
hvernig hægt verður að toppa
þetta bónorð,“ segir Elís, ástfang-
inn upp fyrir haus.
Settu upp hringana á EM
Elís fór á skeljarnar fyrir leik Íslands og Frakklands Tugir þúsunda horfðu
á á risaskjá Fögnuðu ákaft þegar hún sagði já Verður erfitt að toppa þetta
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bónorð í beinni Mynd sem Skapti Hallgrímsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, náði af augnablikinu sem blasti við
áhorfendum á Stade de France þegar Elís fór á skeljarnar og spurði Huldu hvort hún vildi giftast sér. Hún sagði já.
Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
Röddin Páll Sævar aðstoðaði.
Vertu upplýstur!
blattafram.is
ÞÚ ERT LÍKLEGRI
TIL AÐ GRÍPA INNÍ
EF ÞÚ HEFUR ÞEKKINGU
Á ÓÆSKILEGRI HEGÐUN
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is og facebook.com/laxdal.is
STÓRÚTSALA HAFIN
30%-40%
afsláttur
25% afsláttur
af öllum vörum í nokkra daga
TILBOÐSDAGAR
Ofnar
Háfar
KæliskáparHelluborð
Frystikistur
Ryksugur
Uppþvottavélar
Þvottavélar
Þurrkarar
LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800 · ormsson.is
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
—með morgunkaffinu