Morgunblaðið - 06.07.2016, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Þótt Jón Engilberts, listmál-ari, hafi verið talinn býsnaframúrstefnulegur á sínumtíma, hefði hann trúlega
ekki órað fyrir að andi hans ætti eftir
að svífa yfir vötnum í hlaupa-
hjólaverslun í Árbænum næstum
hálfri öld eftir andlát hans. Dótt-
urdóttir hans og eini afkomandi,
Greta Engilberts, og sambýlismaður
hennar, Hjörtur Sólrúnarson, bera
ábyrgðina.
„Afi hefði ábyggilega látið sér
vel líka, hann var svo nýjungagjarn,
opinn og skemmtilegur,“ getur Greta
sér til um, en hún hefur undanfarin ár
unnið ötullega að því að nútímavæða
listamanninn Jón Engilberts og halda
nafni hans á lofti. Slæður, púðar, buff
og bolir taka þátt í því. Líka Facebo-
ok. Að undirlagi þeirra Gretu og
Hjartar vitaskuld.
Jón Engilberts á Facebook
„Við stofnuðum Facebook-síðu í
hans nafni og höfum verið að setja
þar inn myndir af verkum hans og
upplýsingar um líf hans og list. Fólk
fer rosalega mikið inn á síðuna, les og
líkar. Það má segja að við séum á
fullu að vekja afa minn aftur til lífsins.
Hann og aðrir meistarar sem voru
samtíða honum eru flestir grafnir inni
á listasöfnum og núna eru að vaxa úr
grasi kynslóðir sem lítið þekkja til
verka þeirra. Þótt list afa væri á
stundum umdeild, var hann einn ást-
sælasti listamaður þjóðarinnar og
langt á undan sinni samtíð.“
Greta upplýsir að þegar þau
Hjörtur kynntust fyrir nokkrum ár-
um hafi hún lengi verið búin að ganga
með í maganum að vinna með verk
afa síns. Hana langaði að koma þess-
um þjóðararfi með einum eða öðrum
hætti til almennings. „Líklega erum
við Hjörtur bæði með einhver lista-
gen í okkur. Hann varð strax mjög
áhugasamur og smám saman kvikn-
aði sú hugmynd að hanna slæður,
púða og buff með áprentuðum mynd-
um af nokkrum olíumálverkum, blý-
ants- og krítarteikningum eftir afa.
Til þess að halda utan um hugmyndir
okkar og hugarfóstur stofnuðum við
Engilberts-hönnun árið 2013 og síðan
hefur starfseminn smám saman verið
að vinda upp á sig.“
Freisting götunnar
og sjálfsmyndin
Slæðurnar eru til í fjórum gerð-
um og bera sömu nöfn og listaverkin
sem prýða þær; Gyðjan, Borgund-
arhólmsklukka, Abstrakt og Hotel
Picale. Fyrir áramótin létu Greta og
Hjörtur svo prenta fjögur ólík verk
Jóns Engilberts á boli, sem eru öðru-
vísi og tískulegri í sniðinu en hefð-
bundnir bómullarbolir. „Þeir skarta
líka myndum sem eiga sér engan líka,
en þær eru Elskendur, Víkingarnir,
Freisting götunnar og Sjálfsmynd, en
þá mynd málaði afi með olíu árið 1968
þegar hann var orðinn mjög veikur
og þjáður og vissi að endalokin nálg-
uðust,“ segir Greta, en henni er síð-
astnefnda myndin einna kærust af
verkum afa síns.
Þau Hjörtur hafa prófað sig
áfram með ýmiskonar hönnun, til
dæmis kjóla og kímónó skreytta lista-
verkum Jóns, en þeir reyndust of
dýrir í framleiðslu. Sama var uppi á
Þar sem hönnun
mætir klassískri list
Slæður eru stundum
miklu meira en höfuð-
og/eða hálsklútar. Þær
geta verið listaverk og
sama á við um púða, buff
og boli. Að minnsta kosti
ef framleiðslan er úr
smiðju Engilberts-hönn-
unar. Þar ráða lögum og
lofum Greta Engilberts
og Hjörtur Sólrúnarson,
sem nota listaverk eftir
móðurafa Gretu, listmál-
arann Jón Engilberts, í
hönnun sinni – á slæður,
púða, buff og boli.
Með afa Jón Engilberts ásamt gulldropanum sínum, eins og hann kallaði Gretu.
T.v. er málverkið Greta og máninn, sem hann málaði þegar hún var 6 ára.
Elskendur Teikningar Jóns Engilberts af nöktum konum og fólki í faðm-
lögum eins og á þessum púða, hneyksluðu marga í gamla daga.
Á Hríseyjarhátíðinni 2016, sem haldin
verður helgina 8. – 10. júlí, er boðið
upp á fjölbreytta og fjölskylduvæna
dagskrá. M.a. óvissuferðir fyrir börn,
unglinga og fullorðna um eyjuna,
fjöruferð, kvöldvöku, varðeld og söng.
Hríseyjarhátíðin hefst á föstudaginn
með því að nokkrir eyjarskeggjar og
sumarhúsaeigendur bjóða heimafólki
og gestum í kaffisopa heima í görð-
unum sínum.
Aðalhátíðarhöldin verða á laugar-
daginn, en þá er dagskrá frá hádegi og
fram eftir kvöldi. Boðið er upp á fjöru-
ferð með Skralla trúð, dráttarvélar-
ferð, leiktæki, tónlist, ratleiki og
fleira. Að venju lýkur hátíðinni á kvöld-
vöku á sviðinu, varðeldi og brekku-
söng.
Ferðamálafélag Hríseyjar stendur
fyrir hátíðinni, sem fyrst var haldin ár-
ið 1997 og hefur síðan verið árlegur
viðburður. Aðgangur að hátíðinni er
ókeypis.
Á Hrísey er verslun, veitingahús,
sundlaug, tjaldsvæði og gisting. Ferjan
Sævar gengur til og frá eyjunni níu
sinnum á dag. Siglingin tekur 15 mín-
útur frá Árskógssandi, sem er um 35
km frá Akureyri.
Nánari upplýsingar um Hrísey, ferju-
áætlun og þjónustu: www.hrisey.net
Fjölskylduhátíð í Hrísey, perlu Eyjafjarðar, 8. til 10. júlí
Garðboð, fjöruferð með Skralla
trúð, tónlist og brekkusöngur
Ljósmynd/Sigurður Bogi Sævarsson
Hrísey Hríseyjarhátíðin hefur verið árlegur viðburður síðan árið 1997.
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177
Eigum úrval af