Morgunblaðið - 06.07.2016, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 06.07.2016, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Þórður teningnum með bekki og kolla; Huðnu og Kiðling, bólstraða með geitaskinni, sem þau settu á markað og voru innblásin af víkinga- tímabilinu. Grófgerðir skartgripir úr málmi leðri, hrafns- og strútsfjöðrum sem Greta á heiðurinn af hafa hins vegar hitt í mark, aðallega hjá túr- istum. „Þeir kaupa líka mikið af slæð- um, púðum, buffum og bolum, oft sem minjagripi því þeim finnst gaman að hafa verk með íslenskri list með sér heim. Annars er þessi vefnaðarvara ekki síður vinsæl hjá landanum, sem gefur hana í alls konar tækifær- isgjafir,“ segir Greta og viðurkennir að einungis þeir allra áhugasömustu leggi leið sína í fyrrnefnda hlaupa- hjólabúð til að kaupa hönnun sem dragi dám af klassískri list. Flestir geri innkaupin í netversluninni eng- ilbert-honnun.is, Listasafni Íslands, Fríhöfninni, Hörpunni eða annars staðar þar sem hönnun þeirra er seld ásamt öðrum listmunum. Hönnun í hlaupahjólaverslun Nokkur forsaga býr að baki fyr- irkomulaginu. Og hún helgast af því að Greta og Hjörtur hafa mörg járn í eldinum – og eru gefin fyrir að prófa eitthvað nýtt. Hún er kennari og förð- unarfræðingur að mennt og hefur síð- ustu tvo áratugina farðað fólk fyrir útsendingar hjá 365 miðlum. Hann er tónlistarmaður, spilaði áður með rokkbandinu Casio Fatso og semur eigin lög og texta. Í fyrra fóru þau að flytja inn hlaupahjól frá Danmörku og hafa í rúmt ár rekið útibú dönsku hlaupahjólaverslunarinnar Scootlife á Íslandi og eru í þann mund að taka við rekstri verslunarinnar í Esper- gærde í Danmörku. „Átján ára sonur minn, Jón Eng- ilberts, stundar og keppir í þeirri jað- aríþrótt sem hlaupahjólasportið er talið vera. Áhugi hans leiddi til þess að við fórum út í þetta fyrirtæki og þá þótti okkur einfaldlega handhægt að vera með hönnunina í einu horni verslunarinnar,“ útskýrir Greta, en fer ekki út í smáatriði um aðkomu þeirra að hlaupahjólabransanum. „Efalítið hefur sumum þótt list afa míns líka vera á jaðrinum í gamla daga,“ bætir hún við sposk á svip. „Hann málaði mikið abstrakt og fí- gúratíf verk. Fyrir vikið fékk hann og þeir listamenn sem ekki máluðu landslag og beljurassa – eins og hann sagði sjálfur – oft skömm í hattinn.“ Lífið í Englaborg Og hugsanlega hefur hún ein- hvern tímann heyrt afa sinn taka þannig til orða heima í Englaborg við Flókagötu þar sem hún ólst upp hjá móður sinni, Birgittu Engilberts, afa sínum og Tove, ömmu sinni. Þau eru látin fyrir allmörgum árum og sem eini erfinginn eignaðist Greta ekki að- eins mörg listaverk eftir Jón Eng- ilberts heldur líka höfundarréttinn að þeim. „Afi lést þegar ég var fjórtán ára. Hann málaði margar myndir af mér og okkur saman og ég var oft að leika mér í kringum hann á vinnustof- unni. Lífið í Englaborg var með heimsborgaralegum blæ, frjálst og óþvingað og þangað var stöðugur straumur listamanna. Amma var dönsk og því var alltaf töluð danska á heimilinu, hún var meistarakokkur og þekkt um allan bæ sem slíkur,“ rifjar Greta upp. Henni finnst sér renna blóðið til skyldunnar að kynna listaverk afa síns fyrir landi og lýð og út fyrir land- steinana ef því er að skipta. Listkynning „Ég opnaði nýlega sýningu á grafíkverkum hans í Norðuratlants- hafshúsinu í Óðinsvéum. Sýningin stóð í tvo mánuði og var mjög vel sótt, bæði af Íslendingum búsettum þar ytra sem og Dönum. Mörg verk afa eru reyndar á listaverkasöfnum í Danmörku, en þar lærði hann og bjó í mörg ár, Svíþjóð, Noregi, New York, Kanada og víðar. List Jóns Eng- ilberts höfðar til allra aldurshópa eins og glögglega sést á viðtökum hönn- unar okkar með áprentuðu mynd- unum eftir hann sem og facebook- síðunni. Teikningar hans og málverk af nöktum konum og fólki í faðm- lögum, eins og eru til dæmis á slæð- unum og bolunum, hneyksluðu marga í gamla daga. Sumt af því sem hann gerði þá, fyrir meira en hálfri öld, eru listamenn að gera í dag og hneykslar engan,“ segir Greta og lætur þess getið að Jón Engilberts hafi kært sig kollóttan um almenningsálitið. Greta segir að þótt þau Hjörtur verði með annan fótinn í Danmörku í nánustu framtíð muni þau engu að síður halda áfram að hanna undir merkjum Engilberts-hönnunar og kynna list Jóns Engilberts hvar sem þau fái því við komið. Til dæmis í hlaupahjólaverslunum í tveimur lönd- um. Listabolir Verk Jóns prýða fjórar gerðir bola frá Engilberts-hönnun. Tíska Slæður í mörgum myndum. Hönnunarhornið Greta með slæðuna Hotel Picale í hlaupahjólaversluninni Scootlife í Árbænum. Vikulegt borðspilakvöld verður haldið kl. 19 í kvöld, þriðjudag 6. júlí, í spilasal Nexus í Nóatúni. Fyrirkomulagið er eftirfarandi: Þátttakendur mæta og taka með sér spil, eða detta inn í spil hjá öðrum sem hafa tekið eitthvað með sér. Einnig er hægt að fá lánuð spil hjá Nexus, en vissara að láta vita með fyrirvara, vilji þátttekendur fá smákennslu eða hafi augastað á ákveðnum spilum. Þannig er best tryggt að allir hafi nóg að gera. Endilega ... ... spilið borðspil DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 Skuggamyndir spila hina margrómuðu þjóðlagatónlist frá Balkanskaganum kl. 20.30 í kvöld, þriðju- dag 6. júlí, í Seyðis- fjarðarkirkju. Hljómsveitin var stofnuð um mitt ár 2010 og er hún ís- lenskum tónlistarunn- endum að góðu kunn. Efnisskrá hljómsveit- arinnar er samsett af þjóðlegri tónlist frá Balkanlöndunum en sú tónlist er annáluð fyrir ólgandi tilfinningahita, blandaðan austurlenskri dul- úð. Hljómsveitina skipa: Haukur Gröndal, Ásgeir Ásgeirsson, Borislav Zgur- ovski, Guðmundur Pétursson, Þorgrímur Jónsson og Erik Qvick. Þeir félagar hafa sótt sér innblástur með ferðum til Búlgaríu þar sem þeir hafa numið hjá ýmsum þarlendum hljómlistarmönnum. Tónleikar í Seyðisfjarðarkirkju mbl.is/Freyja Gylfa Skuggamyndir Hljómsveitin Skuggamyndir hefur sótt sér innblástur á ferðum sínum til Búlgaríu. Skuggamyndir frá Býsans Jón Engilberts fæddist 1908 í Reykjavík og lést 1972. Réttu nafni hét hann Jón Ingólfur Sigurjónsson, en sl ppti mið- nafninu og tók upp eftirnafnið Engil- berts. Á árunum 1921-22 gekk hann í einkaskóla Gu mundar Th rsteins ona (Muggs) í Reykjavík og stu daði síðan nám við Samvinnuskólann árin 1925- 1926. Hann fluttist til Kaupmannahafnar 1927, hóf teikninám við Teknisk Selskab Skole og síðar í skóla V ktors I br nd og við Konungl gu akademíuna. Árið 1931 hóf Jón nám í Statens kun takademi í Osló og var þa til ársins 1933. Jón kynntist danskri eiginkonu sinni, Tove, þegar bæði stunduðu nám við Teknisk Selskabs Skole. Þau gengu í hjónaband 1932 og eignuðust tvær dætur, Amy og Birgittu. Fjölskyldan bjó í Kaupmannahöfn 1933-1940 en fluttist þá t l Íslands. Það ár byrj ði Jón ð byggja sér hús með stórri vinnustofu á horni Flókagötu og R uðarárstígs. Húsið er þekkt sem Englaborg eða Hús málarans og þar hélt Jón ína fyrstu sýningu í árslok 1943. Líf og list LISTAMAÐURINN JÓN ENGILBERTS ...með nútíma svalalokunum og sólstofum Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16 • Svalalokanir • Glerveggir • Gler • Felliveggir • Garðskálar • Handrið Við færumþér logn & blíðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.