Morgunblaðið - 06.07.2016, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016
Gullaldarliðið svonefnda hafnaði í
sjöunda sæti á Heimsmeistaramóti
skáksveita, 50 ára og eldri, sem
lauk í Þýskalandi á mánudag. Skot-
ar voru lagðir að velli í lokaumferð-
inni, með þremur og hálfum vinn-
ingi gegn hálfum. Jóhann Hjartar-
son, Jón Árnason og Friðrik
Ólafsson unnu sínar skákir en Mar-
geir Pétursson gerði jafntefli. Held-
ur verr gekk sl. sunnudag er sveitin
tapaði fyrir Englendingum með
einum og hálfum vinningi gegn
tveimur tveimur og hálfum hjá
þeim ensku.
Þjóðverjar unnu nauman sigur á
mótinu, eftir harða viðureign við
Armena, eftir því sem fram kemur
á vefnum skak.blog.is.
Bestum árangri Íslendinganna á
mótinu náðu þeir Margeir Péturs-
son og Friðrik Ólafsson, ef hlut-
fallstölur eru skoðaðar. Margeir
náði sex vinningum úr átta skákum
og Friðrik með þrjá vinninga úr
fjórum skákum.
Gullaldar-
liðið í sjö-
unda sæti
Lögðu Skota í
lokaumferð HM
Morgunblaðið/Ómar
Sveitin Margeir, Helgi, Friðrik, Jón
L. og Jóhann tefldu fyrir Ísland.
„Það er alltaf kraftur í þessu á upp-
hafsdögunum og hefur verið með
svipuðum hætti og undanfarin ár,“
segir Sigurjón Örn Þórsson, fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, um upp-
haf útsölutíðarinnar þar á bæ.
Útsala hófst í öllum helstu versl-
unum Kringlunnar á lokadegi júní-
mánaðar og hefur farið vel af stað
þrátt fyrir að leikir Íslands á Evr-
ópumeistaramótinu í knattspyrnu,
sem hlutu gríðarlegt áhorf íslensku
þjóðarinnar, hafi oft skarast við af-
greiðslutíma verslananna.
„Við höfum reynt að vinna með
þetta líka – þegar það voru leikir
sem tengdust Íslandi þá voru styrkt-
araðilar í húsinu að gefa merkta
hluti, blöðrur og andlitsmálningu,“
segir Sigurjón en þá hafi einnig ver-
ið blásið til skiptimarkaðar með fót-
boltamyndir í Kringlunni í tengslum
við keppnina.
„Við höfum líka tekið eftir því
hvað það er mikil jákvæðni í fólki,“
bætir hann við en svo hafi gott veð-
ur ekki spillt fyrir. „Þegar veðrið er
viðvarandi þá hvetur það fólk til að
fara og finna sér eitthvað létt til að
skreyta sig með,“ segir hann, að-
spurður hvort verslun innandyra
dragist ekki saman í sólarveðri.
Aukning hjá Smáralind
„Við erum að sjá góða aukningu
frá því í fyrra og verslanirnar eru
að bjóða upp á flott tilboð núna,“
segir Sandra Arnardóttir, verk-
efnastjóri markaðsdeildar hjá
Smáralind. Útsölurnar standa til
loka mánaðarins og enda á götu-
markaði.
Mikill kraftur í útsölunum
Morgunblaðið/Eggert
Útsölur Verslanir Kringlu og Smáralindar bjóða allt að 40-50% afslátt.
Fólk flykkist í Kringlu og Smáralind til að gera góð kaup
Landsnet hefur
lækkað verð á af-
hendingar-, afl-
og orkugjaldi fyr-
ir stórnotendur
um 9%. Breyt-
ingin tók gildi 1.
júlí sl. og er aft-
urvirk til 1. júní.
Ekki voru gerðar
breytingar á gjaldskrá fyrir dreifi-
veitur né vegna sölu á flutnings-
töpum og kerfisþjónustu.
Breytingarnar grundvallast á
ákvörðun Orkustofnunar um tekju-
mörk Landsnets og viðmið um
leyfða arðsemi, segir í frétt á vef
Landsnets.
Ákvörðun um leyfða arðsemi 2016
lá fyrir í maí og setti Orkustofnun
Landsneti tekjumörk fyrir tekju-
tímabilið 2016-2020. Það þýðir að
fyrirtækinu eru úthlutaðar
ákveðnar tekjur og umhverfi til að
afla þeirra tekna. Leyfð arðsemi
Landsnets til stórnotenda reyndist
hærri en niðurstaða Orkustofnunar
varð um ákvarðað arsemishlutfall
árið 2016.
Stórnotendur
fá lækkun hjá
Landsneti
VINSÆLAR BRÚÐARGJAFIR
Í MIKLU ÚRVALI
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
YAXELL ALHLIÐA HNÍFUR RAN 12 cm 10.866 kr.
ÝMSAR STÆRÐIR OG GERÐIR
LOTUS GRILL Verð frá 34.000 kr.
MARGIR LITIR, ÚRVAL AUKAHLUTA
DUALIT STUDIO KETILL 1,5 L Svartur/hvítur 10.854 kr.
DUALIT STUDIO BRAUÐRIST, 2 sn. Svört/hvít 10.355 kr.
DUALIT HRAÐSUÐUKETILL 1,7 L Kopar 39.688 kr.
DUALIT BRAUÐRIST, 2 sn. Kopar 37.324 kr.
DUALIT HRAÐSUÐUKETILL 1,7 L Stál 35.340 kr. DUALIT BRAUÐRIST, 2 sn. Stál 37.324 kr.