Morgunblaðið - 06.07.2016, Síða 16

Morgunblaðið - 06.07.2016, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 BAKSVIÐ Jón Þórisson jonth@mbl.is Verði af lokun Debenhams í Smára- lind næsta vor, eins og boðað hefur verið, mun vörumerki Debenhams hverfa af íslenskum markaði. Þetta segir Sigurður Reynaldsson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Haga, rekstraraðila verslunar Debenhams í Smáralind. Eins og fram kom nýlega í afkomu- tilkynningu Haga, mun verslunarfer- metrum á vegum fyrirtækisins í Smáralind fækka um 9.500 á næsta ári. Eru það mest áhrif minnkunar verslunar Hagkaups í austurenda um 5.000 fermetra. Verslun Útilífs verður færð í austurenda og verður nær 200 fermetrum minni en núverandi versl- un er. Hluti þessarra 9.500 fermetra er vegna lokunar verslunar Deben- hams, en verslunin er um 4.300 fer- metrar. Í afkomutilkynningunni segir að Hagar muni loka verslun Deben- hams í Smáralind eigi síðar en í lok maímánaðar 2017, þegar núverandi leigusamningur rennur út, þar sem ekki hafi náðst samningar við leigu- sala um endurnýjun. Sigurður segir að 9.500 fermetrar séu ekki stór hluti af þeim verslunarfermetrum sem fyr- irtækið hefur starfsemi sína á. „Þetta telst vera 7-9% af heildinni,“ segir Sigurður. Lengi stefnt að breytingum Sturla Gunnar Eðvarðsson, fram- kvæmdastjóri Smáralindar, segir að lengi hafi legið fyrir að Smáralind áformi endurskipulagningu á versl- anasvæði hússins. „Það er eðlilegt að ákveðin breyting verði á úrvali versl- ana í verslunarmiðstöðvum eins og Smáralind og þær breyti áherslum sínum í takt við þróun markaðarins.“ Hann segist ekki reiðubúinn að tjá sig um viðræður við einstaka verslunar- eigendur. „Nú standa yfir miklar breytingar í austurenda hússins þar sem verið er að minnka verslun Hag- kaupa og fjölga verslunum á því svæði og þar á meðal eru nýjar verslunar- keðjur. Það er einn liður í uppstokk- uninni.“ Sturla minnir á að Smáralind er 15 ára um þessar mundir. „Við teljum að gera megi ýmsa hluti betur nú heldur en upphaflega var. Einn liður í þess- um breytingum er að verslun Útilífs færist í hluta þess svæðis sem losnar þegar Hagkaupsverslunin verður minnkuð,“ segir hann. „Við óttumst ekki, þótt 9.500 fermetrar losni, að ekki takist að leigja þá. Það er allt í leigu hér í húsinu.“ Um ástæður breytinganna segir Sturla að eðli verslunarmiðstöðva sé að verslanir hætti og aðrar komi í staðinn. „Vinsældir merkja og vara dvína og því þarf að mæta. Og við er- um að taka inn verslanir með töluvert af nýjum vörumerkjum.“ Það muni svo skýrast um hvaða verslanir sé að ræða þegar nær dregur. Sturla segir að aðsókn að verslun- armiðstöðinni sé stöðugt að aukast. „Á fyrri hluta ársins var 15% auking gestafjölda í húsið,“ segir hann. Hagar draga saman seglin í Smáralind Smáralind Hagar munu loka Debenhams næsta vor náist ekki samningar.  Breytingar staðið til lengi segir framkvæmdastjóri Smáralindar Smáralind » Verslunarmiðstöðin er 15 ára um þessar mundir. » Aðsókn hefur aukist um 15% það sem af er ári. ● Kaupmáttur hefur aukist um 30% á sex ára tímabili frá maí 2010 til maí í ár. Kaup- mátturinn hefur aukist nokkuð stöðugt á þessu tímabili, en aukningin frá því í árs- byrjun 2015 er sérstaklega hröð og sú langmesta frá aldamótum, að því er fram kemur í Hagsjá hagfræðideildar Landsbank- ans. Frá því í maí 2015 hefur kaup- máttur aukist um 11,4%. Launa- vísitalan hækkaði um 13,3% á þessu tímabili og segir Landsbankinn það verða að teljast miklar launabreyt- ingar í ljósi þess að stöðugleiki ríki og verðbólga sé lítil. Auk mikilla launahækkana vegna kjarasamninga telur Landsbankinn vísbendingar um launaskrið þar sem launavísitalan hefur hækkað nokkuð stöðugt frá mánuði til mánaðar. Aukinn kaupmáttur og vaxandi launaskrið Vörur Kaupmáttur hefur aukist hratt. 6. júlí 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.16 122.74 122.45 Sterlingspund 161.0 161.78 161.39 Kanadadalur 94.6 95.16 94.88 Dönsk króna 18.306 18.414 18.36 Norsk króna 14.682 14.768 14.725 Sænsk króna 14.459 14.543 14.501 Svissn. franki 125.65 126.35 126.0 Japanskt jen 1.2001 1.2071 1.2036 SDR 170.56 171.58 171.07 Evra 136.22 136.98 136.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.9419 Hrávöruverð Gull 1344.75 ($/únsa) Ál 1653.0 ($/tonn) LME Hráolía 49.9 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Sigríður Bene- diktsdóttir, fram- kvæmdastjóri fjár- málastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands, lætur af störfum 1. október næstkom- andi. Hún tekur þá við starfi hjá Yale- háskóla í Bandaríkj- unum þar sem hún mun sinna rannsóknum og kennslu. Sigríður starfaði áður við Yale á árunum 2007-2012, þó með hléi á árunum 2009-2010 þegar hún sat í rannsókn- arnefnd Alþingis um aðdraganda og or- sakir falls íslensku bankanna árið 2008. Sigríður lætur af störf- um hjá Seðlabankanum Sigríður Benediktsdóttir STUTT Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, segir afstöðu fjár- málaráðuneytisins varðandi skipurit Seðlabankans út af fyrir sig gleði- lega, en hún breyti því ekki að það hafi aldrei verið fótur fyrir ásökun- um bankans gagnvart Samherja. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær lítur fjármála- og efnahagsráðu- neytið svo á að aðstoðarseðlabanka- stjóri teljist undirmaður seðlabanka- stjóra og samkvæmt því ættu að gilda um þá vanhæfisreglur stjórn- sýslulaga. „Það sem hins vegar hefur breyst er að seðlabankastjóri og undirmenn hans, sem hafa frá upp- hafi ýmist lýst yfir eða ýjað að sekt Samherja opinberlega, eru vanhæf- ir,“ segir Þorsteinn. „Í gegnum tíðina hefur seðla- bankastjóri ekki virt lög, reglur eða niðurstöður sérstaks saksóknara og skattrannsóknarstjóra og virðist nú telja að hann geti haldið málinu á einhvern hátt áfram, með því að breyta sjálfur skipuriti bankans og skipa í raun nýjan bankastjóra sér við hlið,“ bætir Þorsteinn við. „Ábyrgðin á aðför Seðlabankans undanfarin fimm ár mun áfram hvíla á seðlabankastjóra. Undan henni getur hann ekki vikist eða komið yfir á aðra.“ Málið snýr að málarekstri Seðla- bankans gegn Samherja og mögu- legu vanhæfi seðlabankastjórans við úrlausn málsins. Á fundi bankaráðs Seðlabankans, þar sem mögulegt vanhæfi Más Guðmundssonar í mál- inu var til umræðu, lýsti seðlabanka- stjóri því yfir að ef vafi léki á hæfi hans vegna ummæla um málið mundi hann víkja sæti og aðstoðar- seðlabankastjóri taka við yfirstjórn málsins. Sá síðarnefndi væri ekki undirmaður hans og aldrei hefði ver- ið litið svo á. Undir þessa skoðun er tekið í lögfræðiáliti sem seðlabanka- stjóri óskaði eftir í framhaldi fund- arins. Seðlabankinn vildi ekki bregðast við áliti fjármála- og efnahagsráðu- neytisins þegar eftir því var leitað. jonth@mbl.is Skapti Hallgrímsson Gögn Mál Seðlabankans gagnvart Samherja hófst með húsleit í mars 2012. Samherji fagnar áliti ráðuneytis  Segir bankastjóra hafa breytt skipuriti SCREEN- OG RÚLLUGARDÍNUR Henta vel þar sem sól er mikil en þú vilt geta séð út Láttu sólina ekki trufla þig Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. 40 ára Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.