Morgunblaðið - 06.07.2016, Page 17

Morgunblaðið - 06.07.2016, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 Nú, er ég geng fram hjá þeim stað þar sem styttan stóð áður, finn ég fyrir sársauka og skömm. Ég spyr mig – hvers vegna lét ég þessa styttu falla,“ segir Kadhim al- Jabbouri í samtali við fréttamann breska ríkisútvarpsins (BBC). Hann er einn þeirra sem tóku þátt í því að fella styttu af Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, árið 2003, en styttan stóð á torgi einu skammt frá Hótel Palestínu þar sem flestir erlendir fréttamenn dvöldu er þeir voru í Bagdad. Fjöl- margar sjónvarpsstöðvar sýndu at- burðinn í beinni útsendingu. „Helst myndi ég vilja setja hana upp aftur, endurreisa hana. Ég myndi gera það ef ég óttaðist ekki um líf mitt,“ segir al-Jabbouri. Hann er bifvélavirki að mennt og vann áður hjá Hussein og sá um við- hald á mótorhjólum í hans eigu. „Ríkisstjórn Saddams lét myrða 14 eða 15 ættingja mína. Ég var því glaður þegar Bandaríkjamenn komu og losuðu okkur við þessa harðstjórn. Þegar ég frétti að Bandaríkjamenn væru komnir að úthverfum Bagdad, sótti ég slag- hamar, fór á torgið og hóf að berja í styttuna. Eg vildi rífa hana niður,“ segir hann. Al-Jabbouri segir hins vegar verri tíma hafa tekið við eftir stjórnarskiptin. „Spilling varð meiri, innbyrðis deilur, morð og þjófnaðir. Saddam myrti fólk, en ekkert í líkingu við þessa ríkis- stjórn sem nú er. Saddam er farinn, en 1.000 aðrir komu í hans stað.“ Myndi endurreisa styttuna Reuters Stjórnarskipti Fjölmiðlar heimsins fylgdust grannt með atburðinum. Ljósmyndari fréttaveitu AFP náði mynd af því þegar íraskir sérsveitarmenn virtu fyrir sér húsarústir í íbúðahverfinu Shuhada í suðurhluta Fallujah. Borgin er nú aftur komin í hendur stjórnvalda eftir stórsókn hersins, en vígamenn Ríkis íslams lögðu hana undir sig árið 2014. Baráttan um Fallujah var afar hörð og fengu hersveitir á jörðu niðri meðal annars aðstoð frá banda- rískum orrustuþotum. Nú þegar vígamenn hafa lagt á flótta blasir gríðarleg eyðilegging við, margar bygg- ingar og önnur mannvirki eru rústir einar. Gríðarleg eyðilegging blasir við eftir hörð átök við vígamenn AFP Mörg íbúðahverfi Fallujah rústir einar Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Bandaríska alríkislögreglan (FBI) segist ekki mæla með ákæru á hend- ur Hillary Clinton fyrir að hafa mis- notað viðkvæmar ríkisupplýsingar með því að notast við persónulegan tölvupóst sinn þegar mál vörðuðu ut- anríkisráðuneyti Bandaríkjanna. Al- ríkislögreglan segir Clinton hins vegar hafa hagað sér „ákaflega kæruleysislega“. Clinton, fyrrverandi þingmaður, forsetafrú og núverandi forseta- frambjóðandi, hefur sakað pólitíska andstæðinga sína um að búa til deil- ur í tengslum við tölvupóstana úr engu til að varpa skugga á framboð hennar til forseta Bandaríkjanna. Má því ætla að þessi afstaða FBI sé Clinton og félögum hennar í Demó- krataflokknum mikill léttir. „Þótt sannanir séu fyrir hugsan- legum brotum þegar kemur að með- höndlun trúnaðarmála, er það okkar mat að enginn skynsamur saksókn- ari myndi flytja slíkt mál,“ sagði James Comey, yfirmaður alríkislög- reglunnar, á blaðamannafundi í gær, en dómsmálaráðuneytið á eftir að taka endanlega niðurstöðu í málinu. Sáu óvinveittir póstana? „Þrátt fyrir að við fundum ekki sannanir fyrir því að Clinton eða starfsfólk hennar hefði ætlað sér að brjóta lög er snúa að meðhöndlun trúnaðarmála, liggja fyrir upplýsing- ar þess efnis að þau voru ákaflega kærulaus í meðhöndlun sinni á afar viðkvæmum trúnaðargögnum,“ sagði Comey og bætti við: „Við teljum mögulegt að óvinveitt- ir aðilar hafi komist inn í persónu- legan tölvupóst Clintons.“ Mæla ekki með ákæru  Hillary Clinton hegðaði sér „ákaflega kæruleysislega“ að mati bandarísku alrík- islögreglunnar  Talið er mögulegt að óvinveittir aðilar hafi komist í tölvupóstana AFP Forsetaframbjóðandi Þrátt fyrir að bandaríska alríkislögreglan telji að Hillary Clinton hafi sýnt af sér kæruleysi, mælir hún ekki með ákæru. Ellefu eru látnir eftir úrhelli og skriðuföll í vesturhluta Nep- al. Þeirra á með- al eru tánings- drengur og fjórar ungar telpur, sam- kvæmt frétta- veitu AFP. Tvö íbúðarhús grófust undir þegar skriður féllu á tvö þorp í Pyuthan-héraði í Nepal. Í öðru þorpinu létust hjón og þrjár dætur þeirra, sem allar voru undir 10 ára aldri, en í hinu hjón og sjö ára telpa. Þá létust tvær konur, 35 og 45 ára, og 15 ára gamall piltur í skriðu í Gorkha-héraði. Þrír til við- bótar voru fluttir á sjúkrahús. NEPAL Úrhelli og skriðuföll urðu 11 að bana Sorg Hermenn flytja látna. Ítalska lögreglan hefur handtekið 41 árs gamlan heimilislausan mann sem grun- aður er um aðild að dauða banda- rísks skiptinema. Hinn látni hét Beau Solomon, 19 ára gamall frá Wisconsin-ríki, og fannst lík hans í ánni Tíber í Róm síðastliðinn mánudag. Vitni segjast hafa séð mann kasta ein- hverju, að líkindum öðrum manni, í áðurnefnda á aðfaranótt föstudags. Lögreglan segir lík Solomons vera með áverka á höfði og var greiðslukort hans notað til þess að taka út 1.500 evrur í Mílanó. ÍTALÍA Lík skiptinema fannst í ánni Tíber Beau Solomon Fyrsta umferð leiðtogakjörs breska Íhalds- flokksins fór fram í gær, en Theresa May, innanrík- isráðherra Breta sigraði með 165 atkvæðum þing- manna flokksins. Næst á eftir henni var Andrea Leadsom með 66 atkvæði. Núverandi formaður, Dav- id Cameron forsætisráðherra, mun hætta eftir ósigur í atkvæðagreiðsl- unni um aðild landsins að Evrópu- sambandinu. BRETLAND Theresa May líkleg sem næsti formaður Theresa May Sambýlisfólk frá Singapúr, 41 árs gömul kona og 46 ára karlmaður, voru í gær fundin sek um að hafa misþyrmt tveggja ára göml- um dreng með þeim afleiðingum að hann hlaut bana af. Drengurinn var sonur konunnar og beitti parið hann ítrekað grófu ofbeldi, m.a. þegar hann óhlýðnaðist og neitaði að klára morgunverð sinn. Lýsingar á ódæðinu eru sláandi. Greinir fréttaveita AFP frá því að parið hafi látið drenginn standa upp- réttan tímunum saman á bleyju einni klæða og sparkað í hann og slegið. Stóð þessi misþyrming yfir í fimm vikur. Þegar drengurinn neit- aði dag einn að klára morgunverð sinn, versnaði ofbeldið. Létu þau þá högg og spörk dynja á barninu. Var stappað á bringu drengsins og hann neyddur til að borða rauðan pipar. Barnið lést í svefni skömmu síðar. Móðirin fékk 11 ára fangelsisdóm og sambýlismaður hennar 10 ára dóm og 12 stafshögg. Barni ítrekað misþyrmt  Drengurinn lést í svefni eftir ódæðið Rannsókn Búið er að dæma fólkið. Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • facebook.com/okkarbakari SÆLKERA SÚRDEIGSBRAUÐ bökuð eftir aldagömlum hefðum SÍÐDEGISBAKSTUR Um kl. 15 alla virka daga tökum við nýbökuð súrdeigsbrauð úr ofninum, fást einungis í Iðnbúð 2 Skoðið úrvalið á okkarbakari .is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.