Morgunblaðið - 06.07.2016, Page 18

Morgunblaðið - 06.07.2016, Page 18
BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Leiðtogafundur Norður-Atlantshafsbandalagsins(NATO) verður haldinn íVarsjá í Póllandi, á föstu- dag, þann 8. júlí, og laugardag, þann 9. júlí. Búist er við að þar verði tek- in ákvörðun um fjölgun hermanna undir merkjum bandalagsins í aust- urhluta þess í Evrópu. Sigurður Ingi Jóhannsson for- sætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra munu sækja fundinn fyrir Íslands hönd. Jens Stoltenberg, fram- kvæmdastjóri NATO, sagði í sam- tali við Financial Times í lok maí- mánaðar, að útgjöld evrópskra NATO-ríkja til varnarmála myndu á þessu ári hækka í fyrsta sinn í ára- tug. Orðrétt sagði Stoltenberg m.a.: „Óvissa blasir við okkur. Meiri ógnir blasa við okkur, meiri áskoranir í öryggismálum en um langt skeið.“ „Friðartónn áranna eftir fall járntjaldsins er horfinn og andar köldu milli austurs og vesturs. Í Póllandi eru vaxandi áhyggjur af ógninni af Rússum og vilja pólsk stjórnvöld að tekið verði tillit til þess þegar leiðtogar NATO koma saman í Varsjá í byrjun júlí,“ skrif- aði Karl Blöndal í fréttaskýringu í Sunnudagsmoggann þann 29. maí sl. Í grein hans kom fram að á 25 árum eftir fall járntjaldsins fækkaði hermönnum í Þýskalandi úr hálfri milljón í 177 þúsund. Á síðustu misserum hafi þetta snúist við og víða fari útgjöld til varnarmála vax- andi. Í fyrra hafi útgjöldin sem hlut- fall af landsframleiðslu hækkað um 21,7% í Póllandi og 31,9% í Litháen. Fjölga í varaherliðinu Yfirvöld í Póllandi tilkynntu í byrjun júní að þau ætluðu að fjölga um 35.000 manns í varaherliði sínu vegna vaxandi spennu í samskiptum við Rússland. Breska ríkisútvarpið BBC hafði við það tækifæri eftir Antoni Ma- cierewicz, varnarmálaráðherra Pól- lands, að þegar væri búið að ráða í æðstu stöður, en varaliðið á að vera skipað almennum sjálfboðaliðum sem fá herþjálfun og er markmið sveitanna að koma í veg fyrir að ástand skapist líkt og það sem upp hefur komið í Úkraínu, þar sem uppreisnarmenn í austurhluta landsins vilja að svæðið tilheyri Rússlandi. Jens Stoltenberg sagði á blaða- mannafundi í Brussel sl. mánudag, samkvæmt frétt AFP, að hann væri sannfærður um að ný ríkisstjórn í Bretlandi, þegar hún tekur við, myndi áfram starfa af sömu heilind- unum innan NATO og hingað til. Hvorki útganga Breta úr Evrópu- sambandinu né afsögn Davids Cameron, forsætisráðherra Breta, myndi breyta nokkru þar um. „Brexit mun vissulega breyta sam- bandi Bretlands við Evrópusam- bandið, en Brexit mun ekki hafa áhrif á hlutverk Bretlands innan NATO,“ sagði Stoltenberg og bætti við: „Þetta er þýðingarmikið því framlag Bretlands til þess að tryggja öryggi í Evrópu og öryggi bandalagsþjóðanna er stórt.“ 22 af 28 Evrópusambands- þjóðum eru innan vébanda NATO. Í ofangreindri frétt frá AFP kemur fram að margar þessara þjóða líti fyrst til varnarsamstarfsins við Bandaríkjamenn í NATO fremur en ESB þegar kemur að því að tryggja öryggi þjóðanna. Af þeim sökum hafi utanríkismálastjóri ESB, Fed- erica Mogherini, í síðustu viku skor- að á ESB ríkin að leggja meira af mörkum til að tryggja eigið öryggi, þótt hún hafi jafnframt lagt áherslu á þýðingu samstarfsins við NATO. Auka útgjöld til varn- armála á nýjan leik AFP NATO Hersveitir NATO á heræfingu í Búlgaríu í grennd við Tsrancha í síðustu viku. Einkunnarorð æfinngarinnar voru „Ósveigjanlegur kjarkur“. 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ástand efna-hagsmálaer með besta móti um þessar mundir og það virðist vera að skila sér til al- mennings. Hag- fræðideild Lands- bankans sendi í gær frá sér útreikninga þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að kaupmáttur hefði aukist um 30% frá árinu 2010 og væri nú meiri en hann hefði nokkurn tímann verið áður. Ýmis góðærismerki bera þessum aukna kaupmætti vitni. Á undanförnum vikum hafa Íslendingar hópast til Frakklands til að fylgjast með afrekum íslenska karla- landsliðsins í fótbolta. Hann birtist einnig í frétt, sem birt- ist í Morgunblaðinu í gær, um að sala hjólhýsa hefði aukist um 30% á milli ára. Arnar Jónsson, framkvæmdastjóri Víkurverks, sem selur hjól- hýsi, segir í fréttinni að ástandinu sé farið að svipað til þess sem var árið 2006 og árin fyrir efnahagshrunið. Sá reginmunur sé þó á að fólk taki minna af lánum en var, taki lægri lán og eigi meira í eigninni. Reyndar sýna tölur að fjár- hagsstaða heimilanna hafi batnað verulega á síðustu ár- um. Eins og Þórarinn Pét- ursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, sagði í maí hefur sparnaður heimilanna vaxið þrjú ár í röð og hreinn auður þeirra vaxið um 30% að raunvirði á undanförnum tveimur árum. Þessa aukn- ingu sagði hann að mætti ekki eingöngu rekja til vax- andi kaupmáttar, heldur einnig skattalækkana, hóf- legrar verðbólgu, hækkandi eignaverðs og lækkandi skulda þar sem skuldaleið- réttingin hefði sitt að segja. Leiddi Þórarinn einnig getum að því að fall bankanna hefði gert fólk varkárara, slíkt gerðist oft þegar stór skellur kæmi á þjóðarbúskapinn. Miklu skiptir að hægt var að hækka laun án þess að það hefði áhrif á verðlag og hleypti verðbólgu af stað. Ýmsar ytri kringumstæður hafa einnig verið hagstæðar og orðið til þess að þrýst- ingur í hagkerfinu hefur ekki hleypt verðbólgunni af stað. Verð á eldsneyti og annarri innfluttri hrávöru hefur verið lágt og krónan hefur styrkst. Ekki er þó gefið að þessar aðstæður haldist. Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn spáði því þegar hann tók fyrir stöðu og horfur í íslensku efnahagslífi upp úr miðjum júní að hagvöxtur yrði 4,5% á þessu ári, en varaði við því að verðbólga gæti farið yfir 2,5% síð- ar á árinu vegna launahækkana. Sjóðurinn segir einnig að launahækk- anirnar gætu orðið til þess að samkeppnishæfni minnkaði með tímanum samfara því að drægi úr afgangi í gjaldeyris- skiptum. Það er mannlegt að ætla að morgundagurinn verði eins og gærdagurinn, þótt það gangi gegn betri vitund. Mun meiri innistæða er fyrir góð- æri þessara missera en upp- sveiflunni fyrir áratug. Nú er rétt að leggja línurnar fyrir það sem koma skal og nota tækifærið til að berja í bresti heilbrigðiskerfisins og efla menntakerfið. Um leið þarf að huga að bolmagni til eftirlits og að- halds samfara því að gjald- eyrishöftum verður aflétt og bankar færðir úr ríkiseigu. Athygli vekur að Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn talar um að efla þurfi vald og sjálf- stæði fjármálaeftirlits. Hvet- ur hann til „straumlínulög- unar“ á borð við að sameina allt eftirlit með bönkum í Seðlabankanum, en nefnir að einnig megi skoða aðra mögu- leika. Vissulega getur eftirlit ekki komið í veg fyrir vand- ræði í bankakerfinu. Eðli málsins samkvæmt fer það fram eftir á og um leið er erf- itt við að eiga ef einbeittur vilji er til að leyna upplýs- ingum. Full ástæða er hins vegar til að hlusta á þessar ábendingar. Það hefði getað skipt máli í aðdraganda falls bankanna hefði fjármálaeft- irlitið verið innan Seðlabank- ans. Víða eru efnahagshorfur svartari en hér. Mun verri staða er í þeim löndum evru- svæðisins sem urðu fyrir barðinu á fjármálakreppunni fyrir átta árum. Hinn sameig- inlegi gjaldmiðill reyndist myllusteinn um háls þeirra. Það er athyglisvert að á sama tíma og stöðugleiki ríkir í efnahagsmálum eru blikur á lofti í pólitíkinni. Oft hefur verið sagt að í kjörklefanum ráði buddan för, en sé eitt- hvað að marka skoðanakann- anir virðist það ekki eiga við nú. Þá er rétt að hafa í huga að í góðæri er ekkert síður erfitt að halda rétt á spil- unum en þegar illa árar. Rétt er að hafa í huga að í góðæri er ekkert síður erfitt að halda rétt á spil- unum en þegar illa árar} Seglum þöndum É g fletti stundum gömlum blöðum í leit að gömlum fréttum og frá- sögnum. Í þeim blöðum, flestum frá seinni hluta þarsíðustu aldar eða byrjun þeirrar síðustu, eru iðulega skrýtlur og gamanmál, sumt torskilið svo löngu síðar, annað skondið og skemmti- legt, og svo er reytingur af gamansemi sem er ekkert gaman að lesa, enda byggð á for- dómum og fyrirlitningu, aðallega kvenfyrir- litningu. Kvenfyrirlitning er harkalegt orð og eflaust veigra einhverjir sér við að nota það, en mér er tamt að grípa til þess þegar ég rekst til dæmis á „gamanmál“ sem gerir grín að kon- um fyrir að vera glysgjarnar og heimskar tildurdrósir (af hverju er orðið „tildurdrós“ til?). Það getur líka ekki verið nema viðeig- andi að nota orðið kvenfyrirlitning til að lýsa því hvernig konum var haldið utan við samfélagið öldum saman, ljóst lengst af en leynt síðustu áratugi, hvernig það var talið viðeigandi og við hæfi að gera lítið úr þeim vegna kyn- ferðis, neita þeim um mannréttindi sem þótti sjálfsagt að veita körlum og hneppa þær í fjötra afkáralegra útlits- og hegðunarfjötra. Já, og gera líkama þeirra að söluvöru og nota hann til að selja vörur. Kvenfyrirlitning er til að mynda snar þáttur í fyrir- bæri eins og vændi og klámi (það síðarnefnda er náttúr- lega vændi líka þegar grannt er skoðað) og í raun grunn- þáttur – þegar við samþykkjum vændi erum við að samþykkja kvenfyrirlitningu. Í forvitnilegri bók breska rithöfundarins Kat Banyard, Pimp State, rekur hún meðal annars samtöl sem hún átti við vændiskaup- endur og í þeim kemur einmitt fram að karlar eru ekki að kaupa kynlíf þegar þeir eiga við- skipti við vændiskonur, þeir eru að kaupa vald: „Ég vil að þær komi fram við mig eins og ég vil, en ekki eins og þær vilja,“ sagði einn viðmælandi Banyard og mælir fyrir munn flestra þeirra sem hún ræddi við. Áþekkt kemur fram þegar litið er yfir um- sagnir „viðskiptavina“ vændiskvenna sem finna má á netinu, því að algengast er að menn kvarti yfir því að þeir fái ekki nógu góða „þjónustu“ og þá að því leyti að stúlk- urnar séu ekki nógu undirgefnar, þær geri sér ekki upp nóga ánægju og, verst af öllu: sumar gefi það skýrt til kynna að þær vilji sem minnsta snertingu og enga kossa. Í bók Banyard vitnar hún í orð einnar vændiskonunnar sem sagðist hafa óbeit á karlmönnum sem krefðust þess að hana langaði til að gera allt sem þá langaði til að gera og nyti þess. Það er ofbeldi þegar einhver þvingar annan til að gera eitthvað sem hann hefur óbeit á, þótt hann borgi honum eitthvað fyrir. Mörgum er tamt að nota orðið „kynlífs- þjónusta“ og „kynlífsiðnaður“, og sumir sjá það meira að segja í hillingum að slík þjónusta verði leyfð hér á landi undir eftirliti stjórnvalda. Það er þó óþarfi að vera með einhvern tepruskap, nefnum hlutina réttum nöfnum: of- beldisþjónusta og ofbeldisiðnaður. Með tilheyrandi ráðu- neyti þá. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Ofbeldisiðnaðarráðuneytið STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Jens Stolten- berg, fram- kvæmdastjóri NATO, sagði á blaðamanna- fundi í Brussel í Belgíu í fyrradag, að NATO hygðist funda form- lega með rúss- neskum stjórnvöldum í kjölfar leiðtogafundar NATO í Varsjá nú á föstudag og laugardag. Stoltenberg vill ræða við Rússa um hernaðarumsvif Rússa í Úkraínu, á Krímskaga. Í apríl á þessu ári fundaði NATO með rússneskum stjórn- völdum í fyrsta skipti frá því í júní 2014, en segja má að samskipti NATO og Rússa hafi verið langt undir frostmarki frá því að þeim fundi lauk, án nokkurs árangurs. Ætlunin er að ræða við Rússa hvernig draga megi úr áhættu á svæð- inu og auka gegnsæi í sam- skiptum. NATO fundi með Rússum JENS STOLTENBERG Jens Stoltenberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.