Morgunblaðið - 06.07.2016, Side 23

Morgunblaðið - 06.07.2016, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 ✝ SólveigÁgústsdóttir fæddist í Reykja- vík þann 30. júlí 1938. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 26. júní 2016. Foreldrar henn- ar voru þau Ágúst Jóhannesson, for- stjóri, og Áslaug Sigurðardóttir, verslunarmaður. Sólveig var yngst sex systkina, öll eru þau látin. Sólveig ólst upp í Reykjavík, gekk í Austurbæjarskóla og út- skrifaðist sem gagnfræðingur eiga þau þrjú börn; Guðrúnu Ernu, Örnu Kristínu og Krist- ófer Ágúst. Sólveig vann ýmis störf en frá 1981 starfaði hún sem skólaritari Flensborgarskóla Hafnarfjarðar. Sólveig var virk í félagsmálum. Sat í aðalstjórn FH og var fyrsti formaður kvennadeildar FH. Hún var virk i Málfreyjunum (ITC) og var ein af stofnendum mál- freyjudeildarinnar Iris í Hafn- arfirði. Sólveig lét sig pólitík varða. Hún sinnti formennsku í Vorboðanum, sjálfstæðis- kvenfélagi Hafnarfjarðar, auk þess að sitja í bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Sólveig var einnig mjög listræn og seinni hluta ævi sinnar naut hún sín með pensil í hendi. Útför Sólveigar fer fram frá Fríkirkju Hafnarfjarðar í dag, 6 júlí 2016, klukkan 15. frá Ingimarsskóla. Um tvítugt flutti Sólveig til Hafnar- fjarðar og giftist Kristófer Magn- ússyni. Leiðir þeirra skildu. Á námsárum Krist- ófers bjuggu þau hjónin í Dan- mörku, þar fæddist frumburður þeirra, Magnús Jón, sem giftur er Hrafnhildi Jónu Þórisdóttur og eiga þau þrjár dætur; Ólöfu Körlu, Sólveigu Kötlu og Dagnýju Káru. Seinna barn þeirra hjóna er Laufey Ósk, gift Júlíusi Finnssyni og Sólveig móðursystir okkar hef- ur nú kvatt þennan heim. Við systkinin munum fyrst eft- ir henni sem ungri stúlku í Auð- arstræti 3, þar sem hún bjó ásamt móður sinni. Hún var langyngst þeirra systra og var því í okkar augum á þeim tíma frekar sem elsta barnabarn móðurömmu okkar en dóttir. Það kom því, oft eðli málsins samkvæmt, í hennar hlut að líta eftir nokkuð óstýrilát- um hópi systrabarna sinna sem voru í heimsókn í Auðarstræti 3. Svo kom að því að Sólveig kynnt- ist sínum verðandi eiginmanni, Kristófer, og hafði hún þá eðlilega um allt annað að hugsa en systra- börnin. Þau hjónin eignuðust tvö yndisleg börn, Magnús og Lauf- eyju, sem nú syrgja báða foreldra sína sem önduðust með aðeins nokkurra vikna millibili. Á seinni árum fékk Sólveig út- rás fyrir sínar listrænu tilfinning- ar og liggur eftir hana fjöldi fal- legra mynda. Ávallt var gaman að hitta Sólveigu og snérust umræð- ur oftar en ekki um gömlu góðu dagana í Auðarstræti. Einnig var bæði gaman og fróðlegt að hitta á þegar Sólveig kom í heimsókn til mömmu hin seinni ár, þar sem oft bar á góma ýmsar fjölskyldu- uppákomur fortíðar. Um leið og við kveðjum Sól- veigu móðursystur okkar þökk- um við henni langa og góða sam- fylgd. Við vottum Magnúsi, Laufeyju og þeirra fjölskyldum innilega samúð okkar. Guð blessi minningu Sólveigar Ágústsdótt- ur. Fyrir hönd Þórunnarbarna, Kjartan Lárusson. Við Sólveig höfum verið vin- konur í 78 ár. Mæður okkar voru góðar vinkonur. Það kom að sjálfu sér að við fórum að leika okkur snemma saman. Áslaug og Sólveig dvöldust oft í sumarbú- stað forelda minna, það var alltaf svo gott á milli okkar og gaman að eiga hana fyrir vinkonu. Á þess- um árum vorum við mjög nánar. Ég get sannarlega litið til baka og brosað yfir fallegu minningunum sem við eigum saman. Það er svo margs að minnast. Það er sárt að hugsa til þess að Sólveig sé farin frá okkur. Það var mjög erfitt að sjá hana svona veika. Ég kom til að kveðja hana daginn áður en hún dó. Ég mun geyma minningu um Sólveigu eins og hún var áður en hún veiktist. Símanúmerið hennar verður áfram í bókinni minni um skemmtileg samtöl sem við áttum saman. Umræðuefnin voru fjölbreytt. Sólveig var glæsi- leg kona með fallegt hár og hafði alltaf gaman af að klæða sig upp. Hún var listræn og átti fallegt heimili. Ég minnist þess þegar hún kom í heimsókn til mín eins og prinsessa, alltaf í fallegum kjólum og með slöngulokka. Ég var montin að eiga vinkonu sem var frá Reykjavík, hún var sann- kölluð Reykjavíkurmær. Á þess- um árum bjó Sólveig í Reykjavík en ég í Hafnarfirði, en seinna átti þetta eftir að breytast. Ég fluttist til Reykjavíkur 10 ára og þá var gott að eiga vinkonu þar. Hún kynnti mig fyrir vinkonum sínum. Sólveig bjó í Norðurmýrinni og var vinamörg. Heimili hennar var alltaf opið fyrir okkur og við söfn- uðumst saman heima hjá henni. Þar var oft glatt á hjalla. Hún eignaðist fljótt plötuspilara og nýjustu plöturnar voru keyptar. Það var dansað og sungið. Við vinkonurnar höfum oft talað um það hvað mamma Sólveigar var umburðarlynd við okkur. Hún var einstök kona og góður gestgjafi. Svo kom nýr kafli í lífi okkar, ég fluttist til Ameríku og bjó þar um tíma. Það var á þeim árum sem við vorum að þroskast. Sólveig kynntist sínum manni, Kristófer Magnússyni, og þá fluttist hún til Hafnarfjarðar. Þau eignuðust tvö börn, Magnús og Laufeyju. Seinna fluttust þau til Danmerk- ur þar sem Kristófer hóf nám. Þá var lengra á milli okkar en alltaf var sterkur þráður sem batt okk- ur saman. Við vinkonurnar stofn- uðum saumaklúbb, sem er enn starfandi og bindur okkur vel saman. Síðustu árin hefur verið mikið samband á milli okkar Sól- veigar, það má segja að við höfum talað saman á hverjum degi á meðan maðurinn minn dvaldist á sjúkrahúsi. Hittumst við oft og borðuðum saman og áttum góðar stundir saman. Ég kem til með að sakna hennar mikið því við áttum eftir að gera margt saman. Við töluðum oft um Sumarlandið. Ég er viss um að það var tekið vel á móti henni. Nú getur hún hoppað um dali og grænar grundir án þess að finna til. Hvíldin var kær- komin, hún dvelur nú á góðum stað í faðmi þeirra sem hún unni. Komið er að kveðjustund. Við eig- um eftir að hittast aftur og hún mun taka á móti mér og sýna mér grænar grundir og falleg gul og blá blóm. Ég sendi Magnúsi, Laufeyju og barnabörnum Sólveigar inni- legar samúðarkveðjur. Maja Veiga. Sólveig Ágústsdóttir, vinkona mín, hefur kvatt okkur. Því er erf- itt að kyngja, okkur hefði svo mörgum verið mikilvægt að fá að njóta samveru við hana lengur. Sólveig var einstök kona, hrein og bein, glæsileg í sjón en einnig til orðs og æðis, vinur vina sinna, hlý og hugsunarsöm. Hún bar hag annarra fyrir brjósti, ekki síst fjölskyldu sinnar, barna og barnabarna sem og styrktar- barns hennar frá Austur-Evrópu, sem hún studdi til að verða Ís- lendingur. Þetta fór ekki fram hjá okkur vinum hennar. Sólveig var árum saman ritari í Flensborgarskóla í Hafnarfirði og sinnti því starfi af elju og áhuga. Hún átti mörg hugðarefni og vann ötullega að þeim. Hún fékkst við handmenntir af ýmsu tagi og var vandvirk í meira lagi. Sólveig lagði stund á myndlist og tók þátt í myndlistarsýningum, sköpunarþörfin var henni eigin- leg. Á vettvangi myndlistarinnar kynntumst við Sólveig fyrir tæp- um þrjátíu árum. Minningarnar frá samverustundum okkar eru ótal margar, langflestar úr kennslustofu minni þar sem hún málaði myndir sínar af einlægni og áhuga en einnig frá ferðum á myndlistarsýningar hér heima og mjög vel heppnaðri námsferð til Parísar fyrir allmörgum árum. Síðustu minningarnar á ég frá yndislegri heimsókn á heimili hennar um miðjan febrúar síðast- liðinn. Milli okkar Sólveigar sköp- uðust sérstök vinatengsl sem aldrei bar skugga á. Hún var afar raungóð kona, ákveðin og trygg, átti ráð til að miðla og lá ekki á liði sínu þegar hún gat aðstoðað. Fyr- ir það skal hér þakkað. Sólveig hefur þurft að stríða við erfið veikindi nokkur undan- farin ár og baráttuviljinn var til staðar. En tími hennar var þrot- inn. Ég veit að ég tala fyrir hönd vina hennar úr fimmtudagshópn- um (með penslana) þegar ég þakka henni samfylgdina og full- yrði að við munum sakna hennar. Fjölskyldu hennar votta ég inni- lega samúð mína. Guð geymi Sól- veigu Ágústsdóttur. Rúna Gísladóttir. Sólveig vinkona mín er látin og langar mig að minnast hennar í nokkrum orðum. Það var árið 1943 að ég og fjöl- skylda mín fluttumst í Auðar- stræti. Í næsta húsi bjó Sólveig með Áslaugu mömmu sinni og Stefáni stjúpa sínum. Sólveig var jafngömul mér og varð okkur fljótt vel til vina og leið aldrei langur tími á milli funda. Í nær- umhverfi okkar voru staðirnir sem við fórum seinna daglega í, Austurbæjarskólinn, Sundhöllin og Skátaheimilið, svo var mjólk sótt á sveitabæ við Klambratún og ekki má gleyma ferðum okkar niður í Frón að hitta Ágúst, pabba Sólveigar, en þar var hann alls- ráðandi. Þegar voraði breyttist gatan okkar í leikvöll á kvöldin og þar var verið í leikjum sem eldri börn- in stýrðu. „Kíló“ og „Fallin spýta“ nutu mikilla vinsælda og allir voru með en bestir voru þeir sem hlupu hratt og þar var Sólveig framarlega. Að loknu barnaskóla- prófi lá leið Sólveigar í Ingimars- skóla og þaðan varð hún gagn- fræðingur. Sólveig hitti Kristófer Magn- ússon, verðandi eiginmann sinn, ung, þau gifta sig 1958 og Sólveig flyst með honum til Danmerkur og er þar í 5 ár á meðan Kristófer lýkur námi í tæknifræði. Þar eignast hún fyrra barn þeirra hjóna, Magnús Jón, árið 1962 en Laufey Ósk fæðist hér heima 1967. Heimkomin flytja þau í Hafnarfjörð, þar tekur Sólveig þátt í að stofna Málfreyjudeildina Írisi í Hafnarfirði og um árabil er Sólveig virk í pólitík og var tvö kjörtímabil í bæjarstjórn. Sólveig var fagurkeri í sér, það sást best á heimilinu hennar og öllu sem hún gerði, t.d. fallega uppdekkuðu borðin hennar og ekki síður myndirnar hennar, en hún hafði mikla ánægju af að mála. Um 1980 fer Sólveig að vinna á skrifstofu Flensborgarskóla og vinnur þar samfellt til starfsloka. Þar liggja leiðir okkar saman, en ég hafði þá kennt þar um árabil. Leitaði ég oft til Sólveigar í skól- anum, hún var bæði minnisgóð og úrræðagóð sem kom sér vel fyrir mig í því starfi sem ég gegndi þar. Sólveig og Kristófer slitu sam- vistum og síðustu árin gerðust Sólveigu erfið. Veikindi sem ekki var við ráðið hrjáðu hana og þá var oft gott að sitja saman með prjónana sína og ræða málin. Þar voru öll mál rædd, heimsmál sem og önnur mál og alltaf fannst okk- ur að lausnin væri ekki svo langt undan. Það voru góðar stundir fyrir okkur báðar. Hafðu þökk fyrir allt kæra vin- kona. Bestu samúðarkveðjur send- um við Árni til fjölskyldu Sólveig- ar. Guðríður Karlsdóttir (Rúrí). Nú þegar við minnumst og kveðjum kæra vinkonu okkar, Sólveigu Ágústsdóttur, þá koma margar minningar upp í hugann. Við vorum fjórtán ára gamlar þegar við ákváðum að stofna saumaklúbb. Við vorum þá í öðr- um bekk í Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar. Nokkrar bættust síðar við og urðum við alls 9. Nokkrar höfðu verið saman í Barnaskóla Austurbæjar áður en ég kom ný inn í skólann á því ári. Ég var hálf kvíðin fyrsta daginn sem ég mætti í skólann, ég leit inn í skóla- stofuna og hugsaði með mér, hvar ætti ég nú að sitja. Þá sé ég að það er laust sæti við hliðina á stelpu sem mér leist mjög vel á. Þarna sat Sólveig, okkar kæra vinkona, sem við erum að kveðja í dag. Við sátum síðan saman okkar skóla- göngu. Sólveig hafði þægilega og góða nærveru. Hún er sú þriðja úr okkar hóp sem fellur frá. Það var ekki ósjaldan sem við fórum heim í Auðarstræti með Sólveigu eftir skóla. Þar tók Ás- laug, móðir Sólveigar, á móti okk- ur opnum örmum. Það má segja að hún hafi opnað heimili sitt fyrir okkur vinkonurnar. Margt kemur upp í hugann frá þessum tíma til dæmis þegar við tókum hornher- bergið á efri hæðinni undir okkur og settum The Platters á fóninn en þá voru þeir alvinsælastir. Þá má ekki gleyma árlegum boðum sem Áslaug hélt fyrir Sólveigu þar sem okkur vinkonunum var boðið ásamt ungu fólki úr ná- grenninu. Þar var drekkhlaðið borðstofuborðið af veitingum, síð- an stjórnaði Áslaug leikjum eftir að búið var að gæða sér á krás- unum. Þetta voru skemmtilegir tímar. Sólveig var há og grönn, ljós yfirlitum og bauð af sér góðan þokka. Hún giftist ung Kristófer Magnússyni sem var frá Hafnar- firði og bjuggu þau mestallan sinn búskap þar. Þau eignuðust tvö börn, þau Magnús og Laufeyju. Það var eðlilega fylgst vel með öll- um fæðingum, skírnum og ferm- ingum í saumaklúbbnum og lagt á ráðin hvað væri nú best í þessu eða hinu tilfellinu. Síðan kom að því að blessuð börnin fóru að gifta sig og þá var fylgst með barna- börnunum. Stuttu eftir að Sólveig og Kristófer giftu sig héldu þau til Danmerkur þar sem Kristófer fór í framhaldsnám. Þá misstum við af samveru við Sólveigu í nokkur ár. Eftir að heim kom og börnin uxu úr grasi starfaði Sólveig lengst af sem skólaritari í Flens- borgarskóla í Hafnarfirði. Lengst af bjuggu Sólveig og Kristófer í Fjóluhvammi í Hafnarfirði. Alls staðar þar sem Sólveig bjó átti hún glæsilegt heimili og var höfð- ingi heim að sækja. Henni var margt til lista lagt. Á seinustu árum fór Sólveig í nám í listmálun og málaði margar mjög fallegar myndir. Margar okkar eiga myndir eftir hana sem prýða heimilin. Um leið og við kveðjum Sól- veigu með þakklæti í huga send- um við börnum hennar, barna- börnum og nánustu ættingjum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Fyrir hönd saumaklúbbsins, Kristín Zoëga. Frá Flensborgarskólanum. Sólveig Ágústsdóttir hóf störf við Flensborgarskólann árið 1981. Hún vann á skrifstofu skól- ans þar til hún lét af störfum vorið 2008. Sólveig er eftirminnilegur starfsmaður. Hún var glaðbeitt og það var alla jafna stutt í brosið. Að sama skapi gustaði af henni og hún lá ekki á skoðunum sínum. Sólveig var félagsvera og var jafnvirk í félagslífi okkar starfs- manna sem og utan skólans. Og ekki vantaði samviskusemina, eða stundvísina. Ég naut þess mjög að milli okkar Sólveigar varð til þráður sem aldrei slitnaði. Þá var ég ný- bakaður kennari í afleysingum í Flensborg. Ég fór um tíma annað en sneri aftur haustið 1998 sem aðstoðarskólameistari. Þá tók Sólveig vel á móti mér. Það var frábært að hafa hana sér til stuðnings, yfirlestrar og leiðsagn- ar. Það er erfitt að kveðja góðan vin og samstarfsmann. Við í Flensborgarskólanum sendum fjölskyldu hennar og ástvinum samúðarkveðjur með þakklæti fyrir það að hafa fengið að kynn- ast og vinna með Sólveigu Ágústsdóttur. Magnús Þorkelsson, skólameistari. Sólveig Ágústsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AXEL ÞORBERG INGVARSSON, Heiðarholti 7, Keflavík, lést á Landspítalanum 24. júní. Útför hans fer fram frá safnaðarheimili Keflavíkurkirkju 7. júlí kl. 13. Blóm og kransar afþökkuð. Þeir sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Suðurnesja. . Elsa Björk Kjaransdóttir Þorgeir Axelsson Þorgerður Kristjánsdóttir Guðjón M. Axelsson Arnbjörg Ólafsdóttir Soffía I. Axelsdóttir Jóhann Gunnar Sigmarsson Anney Guðjónsdóttir og afabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN MAGNÚSSON hæstaréttarlögmaður, Mörk, Suðurlandsbraut 66, lést á heimili sínu sunnudaginn 3. júlí. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 12. júlí klukkan 15. . Laufey Sólmundsdóttir, Magnús Björn Jónsson, Kristín V. Sveinsdóttir, Ellert Már Jónsson, Hildur Ríkarðsdóttir, Ágúst Már Jónsson, Guðný Rósa Þorvarðardóttir, Sólmundur Már Jónsson, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Björn Már Jónsson, Melkorka Gunnarsdóttir, Guðrún Rós Jónsdóttir, Jochen Kattol, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, ANNA LOVÍSA JOHANNESSEN, Vesturgötu 41, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum 4. júlí, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 11. júlí klukkan 13. . Jóhannes Johannessen, Laufey Johannessen, Ólafur Garðarsson, Haraldur Johannessen, Svava Björk Hákonardóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.