Morgunblaðið - 06.07.2016, Síða 25

Morgunblaðið - 06.07.2016, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 Raðauglýsingar Atvinnuhúsnæði Iðnaðarhúsnæði að Lækjarmel 12, 116 Reykjavík til sölu. Stórglæsilegt 131 fm. Stórar innkeyrsludyr og mjög mikil lofthæð. Teikningar fylgja fyrir 70 fm millilofti. Verð 29,9 millj. Jón Egilsson, 896-3677 – 568-3737. Iðnaðarhúsnæði að Lækjarmel 12, 116 Reykjavík til sölu. Tilkynningar Til útleigu er hluti af Félagsheimilinu Gunnarshólma í Austur-Landeyjum og hluti af Félagsheimilinu Njálsbúð í Vestur-Landeyjum þar sem áður voru starfræktir grunnskólar. Aðstaðan er til sýnis fimmtudaginn 7. júlí milli kl. 15.00 og 17.00. Tilboð sendist á netfangið bygg@hvolsvollur.is eða á skrifstofu byggingarfulltrúa Ormsvelli 1 860, Hvolsvöllur fyrir kl. 12.00 föstudaginn 8. júlí 2016. Áskilinn réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Sveitarstjóri Rangárþings eystra Gunnarshólmi / Njálsbúð Rangárþing eystra Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Handavinna m/leiðb. kl. 8.30-16.30. Opið hús m.a. spilað vist og bridge kl. 13-16. Garðabæ Bridge og bútasaumur kl. 13, heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30, meðlæti selt með síðdegiskaffinu kl.14-15.50. Skrifstofa FEBG opin kl 13.30-15.30. Gullsmári Ganga kl. 10, Myndlist kl. 9, Kvennabridge kl. 13. Hárgreiðslustofa og Fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir! Hraunbær 105, 110 Reykjavík Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9. Opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9– 14. Morgunleikfimi kl. 9.45. Gönguhópur kl. 10.30 – þegar veður leyfir. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 10.30, matur kl. 11.30. Létt gönguferð um nágrennið kl. 14, kaffi kl. 14.30, minnum á púttvöllinn okkar sem er opinn á opnunartíma stöðvarinnar. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 14, ganga m. starfsmanni kl. 14, bónusbíllinn kl.14.40. Upplýsingar í síma 4112760 Seltjarnarnes Tölvunámskeið Valhúsaskóla kl. 10.00 - 12.00. Kaffi- spjall í króknum kl. 10.30. Ganga frá Skólabraut kl. 13.30. Ath. Þeir sem skráðir eru í sumarferðina okkar í Borgarfjörðinn þá leggjum við að stað frá Skólabraut kl. 9.00 á morgun fimmtudag. Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Ræðumaður Frank M. Halldórsson. Allir velkomnir. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Smáauglýsingar Húsgögn Hjónarúm án dýnu Til sölu hjónarúm 180x200. Búið er að taka rúmið í sundur til að auð- velda flutning. Selst mjög ódýrt. Upplýsingar í síma 620-3003. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. CC.BÍLALEIGA S. 861 2319. Húsviðhald Tíminn sem ég fékk með þér í maí er mér dýrmætari en gull, við kúrðum saman eins og litlar stelp- ur, báðum, lásum, grétum, hlógum og töluðum um allt milli himins og jarðar. Ég elska þig, elsku systir, og mun hugsa til þín þangað til við hittumst á ný. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar elsku Þorsteinn, Kristinn, Gestur, Andri og Klara, makar og börn. Megi Guð umvefja ykkur öll í sorginni elskurnar mínar. Ástar- og saknaðarkveðja, Anna Þórdís Guðmundsdóttir. Eitt er það sem við vitum öll að einhvern tíma eigum við eftir að hverfa úr þessum heimi. En það er nú einhvern veginn þannig að það er alltaf jafn erfitt að sætta sig við það þegar sú staðreynd er orðin að veruleika. Það að Haddý, ung kona í blóma lífsins, sé dáin er eitthvað sem erfitt er að sætta sig við. Haddý var sú þriðja í röðinni af stórum alsystkinahópi. Konan mín, Karen, sem er einu ári eldri en Haddý, hefur sagt mér frá mörgu skemmtilegu sem þær systur bröll- uðu á sínum æsku-, unglings- og fullorðinsárum. Ekki verður það allt upptalið hér því það er örugg- lega efni í heila bók. Sjálfur kynntist ég Haddý stuttu eftir að ég og Kæja fórum að vera saman. Kæja vildi ólm kynna mig fyrir systur sinni. Ekki var að sökum að spyrja, svarið hvað henni fannst kom fljótt og hreinskilið, eins og þær systur eru þekktar fyr- ir. „Guð minn góður Kæja, hann er eins og gangandi ljósastaur“ (á þeim árum var ég mjór og langur). Til að bera í bætifláka fyrir mann- valið svaraði Kæja: „En það kvikn- ar nú einstöku sinnum á perunni.“ Eftir því sem árin liðu tókst með okkur virðing og vinátta. Ógleym- anlegar eru ferðir sem voru farnar inn í Veiðivötn, Kerlingarfjöll, Þórsmörk, svo ekki sé talað um skíðaferðir bæði innanlands og ut- an. Lítið dæmi um það traust sem við bárum til Haddýjar var það þegar við báðum hana að vera guð- móður dóttur okkar sem var skírð á afmælisdegi hennar 21. júní 1990. Ekki erum við í vafa um að Guðrún Ósk hafi fengið frá henni góða strauma sem fylgja henni lífið út. Að heimsækja þau hjónin þótti okkur alltaf gott og skemmtilegt, fyrst í Kópavoginn og svo síðar út á Álftanes, þar sem þau bjuggu sér hlýlegt, fallegt og stílhreint heimili. Er það því þyngra en tárum tekur að Haddý, móðir fjögurra barna og átta yndislegra barnabarna sem hún dýrkaði og dáði, náði ekki að sjá þau dafna og vaxa úr grasi. En því miður fáum við engu um það ráðið hver örlög okkar mannanna eru. Við sem eftir lifum getum ekk- ert annað gert en að halda heiðri Hafdísar á lofti og þakkað fyrir þær stundir sem við áttum saman í þessu lífi hér á jörð. Við hjónin sendum Þorsteini, börnum og barnabörnum okkar dýpstu samúðarkveðjur héðan frá Stavanger. Megi algóður guð blessa minningu Haddýjar og styrkja fjölskyldu og ástvini henn- ar á þessum erfiðu tímum. Blessuð sé minning Hafdísar um aldur og ævi. Auðunn Örn Jónsson, Karen Guðmundsdóttir og fjölskylda. Með þessum kveðjuorðum vilj- um við minnast Hafdísar, okkar kæru vinkonu með þakklæti í huga fyrir góðar og ógleymanlegar stundir, en hún lést nýlega eftir stutt og erfið veikindi. Hafdís var ákaflega kraftmikil, vinnusöm og lífsglöð. Hún var menntuð sjúkra- liði og félagsráðgjafi og vann meðal annars á geðdeild Landspítalans og sem félagsráðgjafi hjá Reykja- nesbæ, en síðustu ár sem forstöðu- maður og félagsráðgjafi hjá Björg- inni, Geðræktarmiðstöð Suður- nesja. Hafdís var glæsileg kona og hafði góða nærveru. Áberandi var hversu skemmtileg og fyndin hún var auk þess sem hún hafði ein- staklega smitandi hlátur. Hún sagði skemmtilega frá og til frá- sagnar voru allskyns sögur, ekki síst af barnabörnunum sem voru hennar yndi og mikið var hlegið. Ekkert kom henni á óvart enda var hún góð í því að „tækla“ augna- blikin og sjá spaugilegu hliðarnar, ekki síst hjá sér sjálfri, sem var hæfileiki sem nýttist henni vel í starfi og í lífinu almennt. Hafdís ól upp fjögur börn og eignaðist átta barnabörn og sjálf fæddist hún inn í stóran systkinahóp. Hún hafði mikla stjórnunarhæfileika, var ein- staklega traust og með sterkar skoðanir og réttlætiskennd. Við saumaklúbbsvinkonurnar eigum ótrúlega skemmtilegar minningar frá ferðum okkar til Barcelona árið 2003 og til Glasgow árið 2014. Ferðirnar einkenndust af mikilli gleði, hlátri, verslunar- rápi og góðum mat á veitingahús- um. Við fórum margar skemmti- legar ferðir innanlands, aðallega á vorin, heimsóttum handverkshús og fórum út að borða. Auk þess voru farnar fjölmargar sumarbú- staðaferðir sem veittu okkur margar ánægjustundir. Síðast en ekki síst má nefna okkar árlegu árshátíðir þar sem eiginmenn okk- ar voru einnig með. Við vinkonurnar erum harmi slegnar yfir fráfalli Hafdísar og áð- ur Guðnýjar sem lést árið 2014, báðar á besta aldri og er stórt skarð höggvið í okkar vinkonuhóp. Um leið og við kveðjum okkar kæru vinkonu viljum við minnast hennar með eftirfarandi ljóði: Svo snauð er engin íslenzk sál að elska ei ljósið bjarta, að finna ei sérhver sumarmál til sólargleði í hjarta, að finna ekki þunga þrá til þess að vaxa og gróa, við slíka yndissjón að sjá allt sefgrænt, tún og móa. Ég vissi það og veit það enn, að vorið alla bætir, að bæði guð og góða menn með geislunum það kætir og vekur líf um völl og sund og vetrargaddinn bræðir og sjúka hugsun, sjúka lund með sólskininu græðir. (Davíð Stefánsson) Kæri Þorsteinn og fjölskylda, sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur, Auður Agnes, Ásdís, Elín Bára, Kristín og Sigríður Björk. Hafdís, vinkona mín og sam- starfskona, var einstök mann- eskja. Hún var glæsileg kona, svip- sterk, skarpgreind og lausnamiðuð. Við keyrðum saman í vinnu nánast daglega á þriggja ára tíma- bili frá Hafnarfirði til Suðurnesja, svo margt var spjallað. Hafdís var frábær fagmann- eskja, sjúkraliði og síðar félagsráð- gjafi. Þar var hún á réttri hillu, hún var mjög vel að sér varðandi rétt- indamál skjólstæðinga og úrræði. Hún var fylgin sér þegar hún tók að sér mál skjólstæðinga sem hún fylgdi eftir. Hún gekk í hlutina og hennar mottó var „ég redda því“, enda var Hafdís einstaklega vinsæll vinnu- kraftur og vann í fjölda ára á Landspítalanum á hinum ýmsu deildum geðsviðs. Hafdís hafði þann einstaka hæfileika að muna öll nöfn og tengingar í fjölskyldum, sem kom sér vel í hennar starfi. Hún gekk vasklega í hlutina og kom alltaf með farsælar lausnir, hafði gott tengslanet og fylgdi þeim skjólstæðingum sem hún kom í vistunarúrræði út á land vel eftir með reglulegum heimsókn- um. Síðustu árin var hún forstöðu- maður Bjargarinnar, geðræktar- miðstöðvar Suðurnesja. Nokkrum sinnum vorum við spurðar hvort við værum systur. Ég var svo ánægð að vera spurð að því og sagði að hún væri bæði hærri og grennri en ég, þá hló hún. Hafdís var smekkmanneskja, átti fallegt heimili og hafði smekk fyrir fallegum hlutum. Því var stundum fleygt í gríni hjá okkur vinkonunum, ef mikið hafði verið að gera og mikið álag, að það væri nú ekkert sem nýir skór gætu ekki lagað. Hafdís greindist með krabba- mein í byrjun árs, sem hún tókst á við af miklu æðruleysi. Húmorinn hennar var til staðar fram á síðustu stund. Við gerðum okkur hins vegar grein fyrir því að nýir skór gætu ekki breytt þeirri stöðu sem hún var komin í. Hafdís var mikil fjölskyldu- manneskja og það var aðdáunar- vert að fylgjast með henni og Steina hennar, hvað þau voru sam- stiga og báru mikla virðingu fyrir hvort öðru og tóku mikinn þátt í lífi barna sinna og barnabarna. Hafdís var þeirrar gæfu aðnjótandi í lífinu að eiga góð börn, tengdabörn og barnabörn og verður hennar sárt saknað af þeim sem áttu svo stóran sess í hennar lífi. Fyrst og fremst er ég þakklát fyrir að hafa kynnst Hafdísi, þess- ari yndislegu manneskju og mann- þekkjara, en hún var mikill mann- vinur og sá það góða í öllum. Minning hennar mun lifa og henn- ar verður sárt saknað. Ég votta fjölskyldu hennar, Steina, börnum, tengdabörnum og barnabörnum samúð mína, þeirra missir er mikill . Einnig votta ég skjólstæðingum Hafdísar og samstarfsfólki og vin- um hluttekningu mína. Moldun kemur dagur fer hringur ljúfur lokast mjúkur faðmur moldar tekur til sín þig í aðfalli alda aftur heim (Ferdinand Jónsson) Þín vinkona, Hrönn Harðardóttir. Ein af fallegustu mannverum sem ég hef verið svo lánsöm að vera samferða spottakorn í þessu jarðneska lífi mínu, Hafdís Guð- mundsdóttir, er látin. Hjarta mitt grét þegar ég fékk þær fregnir og tíminn stóð augna- blik í stað. Hjarta mitt grætur enn í hvert sinn sem ég hugsa til þess hvað við, sem nutum samferðar hennar, höfum misst. Á sama tíma finn ég mikið þakklæti og kærleik fyrir allt það sem hún hefur áorkað og skilið eftir sig. Hafdís var falleg jafnt utan sem innan. Hún bar virðingu fyrir öllu litrófi mannfólks sem snerti líf hennar. Hún sá alltaf það fallega í fólki og hjálpaði því að finna sína innri fegurð. Hún gekk æðrulaus í öll verk sem þurfti að vinna og við höfðum gaman af að fara saman í „stakk og stígvél“ og láta verkin tala. Ég mun minnast hennar sem eins míns besta samstarfsmanns og vinar og hún er einn fallegasti gimsteinninn sem skreytir lífsháls- festina mína. Takk, kæra vinkona, það voru forréttindi að kynnast þér. Fjölskyldu Hafdísar, vinum og samferðafólki, sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Hjördís.  Fleiri minningargreinar um Hafdísi Guðmundsdótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.