Morgunblaðið - 06.07.2016, Page 26

Morgunblaðið - 06.07.2016, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 Ég er sá lukkunnar pamfíll að hafa fengið tækifæri til að vinnavið það sem er mér kærast og haft góða ævi að því leytinu til,á góða hesta, góða konu, góð börn og góð barnabörn, ekki endilega í þessari röð samt,“ segir Magnús Jón Kjartansson, hljóm- listarmaður og hestamaður á Snæfoksstöðum í Grímsnesi. Magnús vill frekar kalla sig hljómlistarmann en tónlistarmann. „Ég hef alltaf unn- ið svo mikið í sándinu, hljómnum. Annars má búast við mér úr öllum áttum í tónlistinni, vinn við upptökur, spila inn á plötur, stjórna kór- um og hvað þetta heitir nú allt saman. Ég er með aðstöðu hérna til að vinna heimavinnuna líkt saumakonur eiga saumavél og rennismiðir rennibekk.“ Magnús verður með tónleika á bæjarhátíðinni Sumar á Selfossi, sem verður helgina eftir verslunarmannahelgi. „Þetta verða ansi stórir tónleikar byggðir á ferli Vilhjálms Vilhjálmssonar. Við verðum þarna, ásamt syni hans, helstu samstarfsmenn Vilhjálms seinustu árin hans eins og Pálmi Gunnars og Gunni Þórðar. Svo verð ég að vesenast í Reykjanesbæ á Ljósanótt samkvæmt venju. Það stendur ekkert sérstakt til í tilefni dagsins, verð á hestbaki með góðum vinum, verð að leika mér eins og ég kann svo vel. Nú er ég elta hestana því það þarf að járna þá, raspa og ormahreinsa. Það er eitt og annað sem fylgir þessu ef maður vill hafa þetta í lagi.“ Eiginkona Magnúsar er Sigríður Kolbrún Oddsdóttir og þau eiga þrjú börn og fjögur barnabörn. Hjónin Magnús og Sigríður í sveitinni á Snæfoksstöðum. Sinnir hljómlistinni og hestum þess á milli Magnús Kjartansson er 65 ára í dag D óra Ólafsdóttir fæddist í Sigtúnum á Kljáströnd í Grýtubakkahreppi í Suður-Þingeyjarsýslu 6. júlí 1912. Hún bjó í áratugi í Norðurgötu 53 á Akureyri og var talsímavörður hjá Land- símanum á Akureyri á árunum 1936- 78. Dóra er vel ern þótt sjón og heyrn hafi dalað. Hún er einlægur stuðn- ingsmaður íslenska landsliðsins í fót- bolta og horfir á alla leiki. Hún segir reyndar að ef spennan verður mikil í leiknum eigi hún það til að hætta að horfa – en hún kemur alltaf aftur að skjánum og biður fyrir sigri. Eitt af áhugamálum Dóru er að prjóna dýr og furðuverur í ýmsum stærðum og gerðum. Flest börn í ættinni hafa fengið prjónaðan kött eða eitthvað áþekkt frá Dóru sem er enn að, þrátt fyrir dapra sjón. Síðasta prjónadýrið, sem hún kláraði fór til barnabarna í Ameríku. Þegar Dóra var búsett á Akureyri og eiginmaður hennar, Þórir, var fall- inn frá, hóf hún að kaupa Morgun- blaðið. Að sjálfsögðu las hún það vandlega en síðdegis kom Baldvin bróðir hennar, sem bjó í næsta húsi, og fékk blaðið. Um leið skrapp hann í Hagkaup fyrir systur sína og keypti í matinn. Þau systkinin ræddu um fréttir dagsins – í Mogganum – og ekki síst um fótboltaleiki. Enn les Dóra Morgunblaðið spjaldanna á milli og miðlar fróðleik úr því til þeirra sem hún umgengst. – En hver er ástæðan fyrir svona háum aldri? Dóra telur það vera gott mataræði og hreyfingu: „Í æsku fengum við alltaf hollan mat hjá móður okkar. Mamma fór til Danmerkur ung stúlka og lærði að matbúa. Á Kljá- strönd var rekin útgerð og því nægan fisk að fá. Kljástrendingar voru líka duglegir að ná í nýmeti á borð við seli og fugla. Við fengum alltaf nægan og góðan mat. En þetta snýst ekki síður um hreyfingu. Þegar ég vann hjá Land- símanum gekk ég í vinnuna og fór í sund á undan eða eftir vinnu. Þetta hefur sjálfsagt bætt mína heilsu.“ Þegar Dóra varð 100 ára fór hún í Dalina en hún getur rakið sig í 29. lið til Auðar djúpúðgu og hefur stundum Dóra Ólafsdóttir, fyrrverandi talsímavörður – 104 ára Afmælisbarnið Dóra hefur áhuga á knattspyrnu og fylgdist spennt með gengi íslenska karlalandsliðsins á Evr- ópumeistaramótinu nú á dögunum. Hún hefði helst viljað að við ynnum Frakka en er samt ánægð með strákana. Prjónar lukkudýr og les ætíð Morgunblaðið Handavinna Lukkudýr Dóru sem hún prjónar fyrir yngstu kynslóðina. Alexander Máni Ívars- son og Kristinn Ágúst Kristinsson, sem búa í Vogum á Vatnsleysu- strönd, gengu í hús og söfnuðu peningum og gáfu Rauða krossinum, alls kr. 5.357. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Feld u það

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.