Morgunblaðið - 06.07.2016, Síða 29

Morgunblaðið - 06.07.2016, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 • AMT eru hágæða pönnur úr 9 mm þykku áli • Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita • 3 ára ábyrgð á verpingu • Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem er sterkari en Teflon og án eiturefna • Nothæf fyrir allar eldavélar • Má setja í uppþvottavél • Kokkalands- liðið notar AMT potta og pönnur Úlfar Finnbjörnsson notar AMT potta og pönnur WORLD’S BESTPAN „ “ THE * “The world‘s best pan”according to VKD, largest German Chefs Association * Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið Þýskar hágæða pönnur frá AMT Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vinir og vandamenn vilja ná at- hygli þinni en það er ekki auðvelt. Fjallið virðist bara sátt við að þurfa að koma til Múhameðs, ef svo má segja. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu það ekki hafa áhrif á þig, þótt fólk í kring um þig sé með uppsteyt og læti. En hóf er best á hverjum hlut. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert ánægður með lífið. Farðu þér því hægt, gefðu þér tíma til þess að kanna málin og taktu svo afstöðu. Njóttu líðandi stundar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samstarfsfólk styður þig í dag og þess vegna gætir þú átt dásamlegan vinnudag. Reyndu að hafa það í huga og hafa stjórn á skapi þínu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gamalt vandamál kemur upp á yf- irborðið að nýju. Ef þú þarft að leggja spilin á borðið skaltu gera það kurt- eislega. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur þörf fyrir að koma skoð- unum þínum á framfæri. Atriðin eru kannski lítil en skipta öllu máli. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú gætir fengið óvænta peninga eða gjöf, annað hvort beint eða í gegnum ein- hvern nákominn. Hertu upp hugann því nú hefurðu allt að vinna og engu að tapa. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einhver kemur með góða hugmynd sem getur skilað þér árangri í starfi og aukið virðingu þína. Ekki hafa samviskubit. En ef þú gerir fátt annað telst það ekki dyggð, heldur meðaumkv- un. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er í fínu lagi að gera sér eitthvað til dægrastyttingar, þegar laus stund liggur fyrir. Láttu þig fljóta með straumnum og brostu til þeirra sem eru í kring um þig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú gætir þurft að ganga þvert á vilja hóps sem þú átt dagleg samskipti við. Störf þín tala sínu máli og allt sem þú þarft að gera er að vera þú sjálfur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vertu þolinmóður við sam- starfsmenn þína. Hlustaðu eins vel og þú getur því fagrir tónar gætu verið slegnir án þess að þú takir eftir því. 19. feb. - 20. mars Fiskar Bogmaðurinn er dugnaðurinn upp- málaður að öllu jöfnu. Leyndarmál sálar- innar og duldir kraftar vekja áhuga þinn. Það liggur vel á Kerlingunni áSkólavörðuholtinu, – skilj- anlega: „Auðvitað byrjuðu Strák- arnir Mínir hjá mér á Skólavörðu- holtinu, hvar annars staðar! Burtu hröktu mæðu mína, miklu fylltu stolti, fyrst þeir komu og kysstu sína Kerlu upp á Holti.“ Karlinn á Laugaveginum kann- aðist við þetta, hnykkti höfðinu aft- urábak og á ská og tautaði: Á Melavelli mín var brellin kerling, rautt á herðum hafði sjal. Þá hélt hún upp á Lolla í Val. Björn Ingólfsson skrifaði í Leir- inn í gær að „í viðtali í morgun- útvarpi var maður, að ég held fram- kvæmdastjóri landsmóts hesta- manna á Hólum, spurður hvað stæði upp úr eftir helgina. Hann hafði það alveg á hreinu: Sigurveg- ari í A-flokki gæðinga var kona. Ég sem hélt að þarna væru bara hestar í gæðingakeppni. Frá landsmóti hesta sagt var svona: „Sannlega eitt af flestu bar; í A-flokki gæðinga efst var kona.“ Ekki var nefnt hver knapinn var. Helgi Zimsen skrifaði á sunnu- dag: „Fyrsta tap Íslands á EM Frakkar sigur fengu greitt færir vel og heppnir. Okkar hetjur yfirleitt eiga svona keppnir. Fyrsta tapið fengum við Farsæl var þó saga. Þetta frækna franska lið fellum aðra daga. Aðeins hingað leiðin lá lengra ei nú förum. Upp þó munum aftur ná (ekki fara af hjörum). Bæði spörk á beint og ská bjartsýn ei þá spörum. Hæstu tinda hlaupum á Með “HUHH!“ á okkar vörum.“ Jónas Frímannsson skrifar í Leir- inn: „Sólmánuður hófst á sumarsól- stöðum: Sendir geisla sól um landið fríða, sóleyjar og fíflar brekku prýða. Sólin heita sælu vekur lýða, sólmánuður fljótur er að líða.“ Jón H. Arnljótsson yrkir „í orða- stað hins óþolinmóða“: Ég tel okkar tilveru snúna, á túnum er grasið að fúna. Það er grenjandi regn, ég er geðillur þegn og grátlegt til heyskapar núna. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lolli í Val, gæðingakeppni og fyrsta tapið Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ÉG ÞARF AÐ SINNA SMÁ PAPPÍRSVINNU JÓN? PAPPÍRSVINNU? AH ÉG HEYRÐI AÐ KASTALI KÓNGS- INS VÆRI SKÍTUGUR… EN MÉR FINNST HANN VERA HREINN! ÞAÐ ER ÚT AF SKEMMTUNINNI… …HIRÐ- FÍFLIÐ VEÐUR Í FORINNI! HVERS VEGNA FÓR @%#&# KJÚKLINGUR- INN YFIR #$&%# GÖTUNA?! JÆJA, HVAÐ SEM ÞAÐ VAR SEM BEIT HANN – GLEYPTI HANN. „ÞESSIR ARINELDKUBBAR ERU BARA BÚTAR ÚR TRÉ. EIGIÐ ÞIÐ EKKI NEINA AF ÞESSUM ÚR EKTA PLASTI?“ það stærsta!... Víkverji hefur um fátt annað hugs-að en fótbolta undanfarnar vik- ur. Hann átti bágt með að trúa þegar honum var sagt að þýska fótbolta- blaðið Kicker hefði spáð því að Ís- land kæmist í átta liða úrslit, en smitaðist af fárinu í kringum ís- lenska karlalandsliðið í aðdragand- anum að EM í Frakklandi og var farinn að halda að allt gæti gerst þegar á leið. Þegar kom að tapinu á móti Frakklandi hafði liðið gert miklu meira en nokkru sinni hefði verið sanngjarnt að búast við af því. x x x Cristiano Ronaldo kvartaði undanþví að íslenska liðið hefði ekki leikið til sóknar, heldur stillt upp strætisvagni í markinu. Það kann að einhverju leyti að hafa verið rétt, en liðið var þó síður en svo feimið við að sækja. Það eyddi bara ekki miklum tíma í að dútla með boltann. Töl- urnar bera marksækni íslenska liðs- ins vitni. Á vefsíðu evrópska knatt- spyrnusambandsins, UEFA, mátti í gær lesa yfirlit yfir mörk skoruð á EM. Þar er Ísland í fjórða sæti með 1,6 mörk skoruð að meðaltali í leik. Fyrir ofan Ísland eru Frakkar, Walesverjar og Belgar í þeirri röð. Ísland er því fyrir ofan lönd á borð við Þýskaland, Ítalíu, Portúgal, Spán og England. Nýting íslenska liðsins vekur einnig athygli. Liðið átti 40 marktilraunir og voru 19 á rammann. Eitt af hverjum fimm skotum var inni og er það besta nýt- ingin í keppninni. Þjóðverjar hafa átt 91 skot á mark og skorað einu marki færra en Ísland. x x x Hannes Halldórsson, markmaðuríslenska landsliðsins, er enn skráður sem sá markmaður sem varið hefur flest skot á síðu UEFA. Þar segir að hann hafi varið 27 sinn- um. Þeir fjórir markmenn sem næst- ir honum koma, þeir Thibaut Curto- is frá Belgíu, Łukasz Fabiański frá Póllandi, Michael McGovern frá Norður-Írlandi og Gabor Király frá Ungverjalandi, leika allir með liðum, sem fallin eru úr keppni. Það er því allt eins víst að Hannes haldi sæti sínu með flest varin skot. Hann gæti því þegar upp er staðið gert tilkall til að verða titlaður öflugasti mark- vörður keppninnar. víkverji@mbl.is Víkverji Hann veiti þér það sem hjarta þitt þráir, láti öll áform þín lánast. (Sálm. 20:5)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.