Morgunblaðið - 06.07.2016, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Þegar gesturinn er með bundið fyr-
ir augun getur listamaðurinn gert
ótrúlega margt sem hann gæti ekki
annars. Notað vind, lykt og gefið
okkur meiri möguleika með hljóð.
Eins og einn hlustandinn sagði: ég
vissi ekki hvernig hausinn á mér
sneri eða hvort lappirnar sneru aft-
ur. Þetta er svo langt frá því að vera
það sama og að loka augunum og
hlusta á tónlist. Þetta eru tónleikar
þar sem þú átt ekki möguleika á að
sjá og verður bara að hlusta og
skynja,“ segir tónlistarmaðurinn
Jón Hilmar Kárason sem þriðja
sumarið í röð heldur tónleika í há-
deginu alla miðvikudaga í Tónlistar-
miðstöð Austurlands á Eskifirði.
Tónleikarnir eru haldnir með þeim
sérstöku skilyrðum að áheyrendur
verða að vera með bundið fyrir aug-
un á meðan á tónleikunum stendur.
Dætur Seifs að verki
Hvernig datt þér þetta í hug?
„Ég skipulegg fullt af verkefnum
og þetta var bara ein hugmyndin
sem kom upp. Þetta eru dætur Seifs
sem færa okkur þessar hugmyndir,“
segir Jón Hilmar og hlær. „En lista-
menn eru alltaf að leita eftir að gera
list sem hefur áhrif á aðra, gera eitt-
hvað sem getur breytt. Þetta var ein
af hugmyndunum sem kom upp hjá
mér og ég framkvæmdi hana. Ég
finn það á viðtökunum að þetta er
einhver skemmtilegasta hugmynd
sem ég hef framkvæmt.
Nokkrum mánuðum eftir Blind-
tónleikana á Bræðslunni í fyrra þar
sem Berglind Ósk sagnaþula var
með okkur Guðjóni Birgi að gera
tónleikana var hún stoppuð af
ókunnugri konu í Kringlunni og
spurð hvort hún hefði ekki verið með
Blind á Bræðslunni. Hún sagðist
aldrei hafa upplifað aðrar eins til-
finningar og muni aldrei gleyma tón-
leikunum. Mér þykir svo vænt um
þessa litlu sögu,“ segir Jón Hilmar.
Þetta er orðið flott, eitthvað sem
þú vilt bæta við?
Nei. Það held ég ekki. Ert þú
nokkuð á leið á Eistnaflug?
Nei, því miður er ég fastur hérna
á Morgunblaðinu, en þetta hljómar
spennandi sem þú ert að gera.
„Engar áhyggjur við komum suð-
ur í september og verðum með sýn-
ingu í Hörpu þann 10. september.
Það verkefni mun kallast Innrás úr
austri.“
Frábært, ég mæti í innrásina.
Tónlist Jón Hilmar Kárason vill ekki að fólk sjái hann á meðan hann spilar.
List og tónar með
bundið fyrir augun
Sérð ekkert á tónleikum á Eskifirði
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Ég mæti bara með gítarinn og spila
í klukkutíma. Ég mun leita í laga-
kistuna hjá mér og sjá hvort ég finn
ekki einhver lög sem tengjast svolít-
ið þessu norræna,“ segir tónlistar-
maðurinn Kristján Kristjánsson,
betur þekktur sem KK, en hann
kemur fram í Norræna húsinu í Arc-
tic Concerts röðinni annað kvöld.
KK hefur samið lög og leikið inn á
hljómplötur og geisladiska um ára-
tugaskeið og unnið til yfir tuttugu
gull- og platínuverðlauna fyrir tón-
list sína.
Tekur sjálfan sig alltaf með
KK kveður íslenska náttúru,
óbyggðirnar og öræfin hljóta að hafa
haft áhrif á sköpun sína í gegnum
tíðina. Tónlistarmaðurinn hefur
kynnst ýmsu á sínum ferli en hann
fagnaði nýverið sextíu ára afmæli
sínu. Hann fæddist í Minneapolis í
Bandaríkjunum en fluttist til Ís-
lands þegar hann var tíu ára. Hann
lærði á gítar sem barn í Reykjavík
og var þátttakandi í nýju blús-
bylgjunni á Íslandi á áttunda ára-
tugnum. KK flutti til Svíþjóðar árið
1977 og nam við Piteå- og Malmö-
tónlistarháskólana. Árið 1986 gerð-
ist hann götuspilari og ferðaðist um
Evrópu í fimm ár. Þá hefur hann
einnig komið að leikhúsi og bæði
samið tónlist fyrir verk auk þess
sem hann hefur leikið sjálfur.
„Maður tekur alltaf sjálfan sig og
þá reynslu sem maður býr yfir með
sér hvert sem maður fer. Þetta er
allt einn stór hrærigrautur og það
hefur allt áhrif hvað á annað. Maður
stendur af og til upp, allur ataður í
þessum graut, og reynir að gera eitt-
hvað,“ segir KK um listsköpun sína.
„Ég hef komið af og til við í leik-
húsinu í gegnum tíðina. Árið 1992
var sett upp leikritið Þrúgur reið-
innar í leikstjórn Kjartans Ragn-
arssonar og ég sá þar um tónlistina.
Það var í fyrsta skiptið sem ég
reyndi fyrir mér í þessu og ég hef
aldrei slitið tengslin eftir það. Ég
spilaði einnig og samdi tónlistina
fyrir Fjölskylduna á sínum tíma. Í
vetur sem leið settum við Jón Gunn-
ar Þórðarson líka upp langþráð
stykki, Vegbúar, sem við byrjuðum
að vinna að fyrir um tíu árum. Það
verk er um heiminn og geiminn og
hvernig gítarinn tengist sögunni og
þar fram eftir götunum,“ segir hann
en þess má geta að Þrúgur reiðinnar
og Fjölskyldan slógu bæði aðsóknar-
met í Borgarleikhúsinu.
Leikur í bandarískum þáttum
KK tók nýverið beygju á sínum
litríka ferli þegar hann fór með hlut-
verk Gunnars, föður einnar aðal-
persónunnar, í bandarísku Netflix-
seríunni Sense8.
„Sú reynsla var einstaklega
skemmtileg. Ég kynntist leikstjór-
unum, Wachowski-systkinunum,
sem eru heimsfræg og komu meðal
annars að gerð Matrix-kvik-
myndanna. Það er svo gaman að
kynnast listamönnum sem eru svona
kærleiksríkt fólk. Þau eru í raun
bara með einn boðskap í sínum
myndum sem er kærleikurinn. Þau
búa síðan til utan um boðskapinn
þessar skemmtilegu sögur og í því
felst list þeirra,“ segir KK. Þá segist
hann vissulega sjálfur boða kærleik í
sinni sköpun en þó á sinn hátt.
„Ég held að með tjáningu þinni,
hvort sem þú ert að syngja baráttu-
söngva, mála blóm eða hvað sem það
er, þá sértu alltaf að breiða út ein-
hvern boðskað ef þú ert að gera það
af fullri og einlægri sannfæringu. Ef
þú gerir eitthvað með hjartanu þá er
það alltaf ákveðið „steitment“,“ seg-
ir hann. KK kveðst sjaldnast setja
sér langtímaplön en land verði þó
lagt undir fót á næstu vikum í
tengslum við Sense8.
„Svo er ég að gera upp bát, trill-
una mína, og ætla að gera eitthvað
út á hana í sumar. Auk þess verð ég
eitthvað að spila með KK bandinu,
við munum meðal annars koma fram
á Bræðslunni. Síðan er þetta bara
dittinn og dattinn,“ segir hann.
Tónleikarnir annað kvöld,
fimmtudag, hefjast kl. 20.30 en á
undan býður Sveinn Kjartansson á
Aalto Bistro upp á sérstakan mat-
seðil fyrir tónleikagesti.
„Allur ataður í graut“
KK leikur á
Arctic Concerts
í Norræna húsinu
Gítarleikur Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, er með mörg járn
í eldinum en hann mun leika úrval af lögum á tónleikunum annað kvöld.
Listamenn samtímans kinka kolli
til Kjarvals í sumar með frásögn-
um, gjörningum og myndverkum.
Dagana 7. til 9. júlí kl. 15 er röðin
komin að Styrmi Erni Guðmunds-
syni, en hann býður upp á leið-
söngvahljóðsögn um sýninguna Jó-
hannes S. Kjarval: Hugur og
heimur á Kjarvalsstöðum.
„Sögumaðurinn, dansarinn,
söngvarinn og myndskreytirinn
Styrmir Örn leiðir áhugafólk og
aðdáendur Kjarvals um sýningar-
sali Kjarvalsstaða með músíkalskri
leiðsögn. Þátttakendum gefst ein-
stakt tækifæri á að upplifa hina
rómuðu sýningu á verkum Kjar-
vals með nýjum og óhefðbundnum
hætti,“ segir í tilkynningu. Þar
kemur fram að fjöldi þátttakenda
sé takmarkaður hverju sinni og
því þurfi áhugasamir að skrá sig á
vefnum listasafnreykjavikur.is.
Samkvæmt upplýsingum frá
Listasafni Reykjavíkur hrífst
Styrmir Örn af hinu fjarstæðu-
kennda. „En með því er frekar átt
við milda og kærleiksríka afstöðu
en þráhyggju fyrir hinu fárán-
lega,“ segir í tilkynningu. Þar
kemur fram að Styrmir býr í
Varsjá.
Leiðsögn Styrmir Örn Guðmundsson veitir nýja sýn á verk meistarans.
Kinkar kolli til Kjarvals