Morgunblaðið - 06.07.2016, Síða 36

Morgunblaðið - 06.07.2016, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 188. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Dómarinn sendur heim 2. Hver er Björn Steinbekk? 3. Segjast ætla að sniðganga Kost 4. Ók í veg fyrir flugvél á braut »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Fjarskaland nefnist nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Guðjón Davíð Karls- son sem Þjóðleikhúsið frumsýnir í byrjun næsta árs. Leikstjóri sýningar- innar er Selma Björnsdóttir. Leik- mynd hannar Finnur Arnar Arnarsson og búninga María Th. Ólafsdóttir, en tónlistina semur Vignir Snær Vigfús- son. Fjarskaland er staðurinn þar sem persónur gömlu góðu ævintýr- anna eiga heima. Þar ríkir neyðar- ástand sökum þess að mannfólkið er hætt að lesa ævintýrin, sem aftur hefur þau áhrif að persónur gleymast og eyðast. Meðal leikara eru Edda Björg Eyjólfsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Ragnheiður Steindórsdóttir og Snæ- fríður Ingvarsdóttir, sem útskrifaðist úr leikaranámi frá Listaháskóla Ís- lands í vor sem leið. Morgunblaðið/Golli Nýtt barnaleikrit eftir Guðjón Davíð  Kammerkórinn Schola cantorum syng- ur tónleika í Hallgríms- kirkju í dag kl. 12. Á efnisskránni eru kór- verk án undirleiks sem valin eru með tilliti til hljómburðar kirkj- unnar. Má þar nefna „Heyr himna smiður“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson og „Stóð- um tvö í túni“ eftir Hjálmar H. Ragn- arsson, en á sumartónleikum Schola cantorum þetta árið er áhersla lögð á íslenskan tónlistararf. Aðgöngumiðar eru seldir í anddyri kirkjunnar klukkustund fyrir tónleika. Sumartónleikar Schola cantorum Á fimmtudag Norðaustlæg átt, 3-8 m/s. Skýjað að mestu norð- austan- og austanlands. Annars bjartviðri með síðdegisskúrum. Á föstudag Norðlæg átt 5-13, hvassast NV-til, skýjað að mestu, væta á köflum, þurrt og víða bjart suðvestan- og vestanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða bjartviðri, sérstaklega inn til landsins, og áfram má gera ráð fyrir síðdegisskúrum. Hiti 7 til 18 stig. VEÐUR Selfoss varð í gærkvöld síð- asta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Borg- unarbikars karla í knatt- spyrnu, með 2:0-sigri á Fram á Laugardalsvelli. Efstu liðin í Pepsi-deild kvenna, Stjarn- an og Breiðablik, tryggðu sér sæti í undanúrslitum kvenna með því að leggja að velli andstæðinga úr 1. deild. Dregið verður til undan- úrslita í höfuðstöðvum KSÍ í dag. »2-3 Selfoss ekki náð svo langt í 47 ár Aníta Hinriksdóttir og Hafdís Sig- urðardóttir keppa á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í Amsterdam í dag. Aníta, sem í síðasta mánuði hjó afar nærri Íslandsmeti sínu, er til alls lík- leg. Meiðsli gera Hafdísi erfitt fyrir. Ísland á fimm fulltrúa á mótinu. »4 Hversu langt nær Aníta á EM í Amsterdam? „Við ætluðum okkur að ná lægra skori, en aðstæður voru býsna krefj- andi. Nokkur vindur var, auk þess sem völlurinn er erfiður,“ sagði Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari í golfi, eftir fyrsta keppnisdag á Evrópumóti áhugamanna í kvennaflokki á Urriða- velli í gær. Ísland er í 16. sæti af 20 sveitum. Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék langbest Íslendinga. »1 Guðrún Brá lék afar vel en Ísland er í 16. sæti ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Mýrdælingurinn og hestamaðurinn Hermann Árnason hélt í gær í 42 daga hestaferð, sem er líklega ein sú lengsta sem farin hefur verið hér á landi. Hann fer norður yfir land um fáfarnar slóðir og ætlar einnig að ríða um Vestfirði. „Ég hef verið að reyna að útskýra fyrir fólki að þetta sé svipuð della og hjá þeim sem vilja toppa fjöll og fara á hæstu tinda,“ segir Hermann, sem verður í samfloti með fimm er- lendum reiðmönnum og 35 hestum auk þess sem trússbíll mun elta hópinn. Hugsanlega munu aðrir slást í för og ríða með. Hermann stefnir á að ríða landið í stjörnu; byrja á syðsta oddanum og fara á þann nyrsta, svo þann vestasta og loks þann austasta. Hveravellir verða miðpunktur ferðarinnar. „Ég fór frá Vík og sem leið liggur austan við Mýrdalsjökul og þaðan vestur Mælifellssand. Held sem leið liggur að Hveravöllum og þaðan niður í Skagafjörð, þar sem verður haldið út á Hraun á Skaga. Ég valdi Hraun þótt það sé ekki endilega nyrsti oddi landsins en staðurinn fer fallega á korti,“ segir hann. Stytta sér leið um heiðar Eftir ferðalagið norður mun hópurinn ríða í Vestur-Húnavatns- sýslu þar sem hestar og menn verða ferjaðir vestur á Bolungarvík þar sem verður haldið í Skálavík og til baka. „Það verður snúin reið. Fjörð- urinn er skorinn og við munum þurfa að fara upp á heiðarnar til að stytta vegalengdina. Þaðan fer ég í átt að Húnavatnssýslunni, inn á Hveravelli, fer norðan við Kerling- arfjöll yfir Þjórsá og þaðan sem leið liggur að Ingólfshöfða. Þetta mun reyna á hesta og menn,“ segir hann hvergi banginn. „Þetta kom í haus- inn á mér fyrir þó nokkuð mörgum árum, að ríða landið í stjörnu, og þetta er annar leggurinn af tveimur. Eftir tvö ár, eða 2018, ætla ég mér að ríða frá Reykjanesi og til Langa- ness og einnig frá Dalatanga til Snæfellsness og alltaf verða Hvera- vellir sem miðpunktur. Eftir það get ég sagt að ég sé búinn að ríða landið í stjörnu og slakað á. Þetta er ein- hver hugmynd sem maður fær í hausinn og einhvern veginn er mað- ur ekki í rónni fyrr en það er búið. Ég er reyndar búinn að segja að þegar ég verði sextugur árið 2018 og búinn með þetta verkefni fari ég að róast,“ segir hann. Ný lífsreynsla Hópurinn mun gista í skálum á hálendinu og skömmu áður en lagt var af stað var Hermann hinn bratt- asti. „Þetta leggst ljómandi vel í mig. Ég hef gert ýmislegt í hesta- mennskunni og riðið víða en þetta verður ný lífsreynsla,“ segir Her- mann. Mun reyna á hesta og menn  Hestamaðurinn Hermann Árnason lagði af stað í 42 daga hestaferð í gær Af stað Hermann Árnason í léttum undirbúningi skömmu áður en hann lagði af stað í hina löngu ferð sem áætlað er að taki 42 daga. Hermann hefur gert ýmislegt í hestamennsku, meðal annars riðið öll vatns- föll á Suður- landi, frá Hornafirði til Selfoss árið 2009 en bókin Vatnagarpar fjallar einmitt um það ævintýri. Hermann viðurkennir að hann hafi ekki haft hugmyndaflug að gera bók eða segja frá þessu ævintýri en ætlar að vera með myndavélina á lofti. „Það er ekkert á áætlun en ferðin verður mynduð allavega,“ segir hann. Með mynda- vélina á lofti ENGIN BÓK Í KORTUNUM Hermann Árnason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.