Morgunblaðið - 30.09.2016, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2016
Computer.is Skipholti 50c
S: 582 6000
L
Frábær tölva í bókhaldið
Verð: 69.900
Asus 13,3" Zenbook með Intel i5
Örþunn, fislétt og mjög hraðvirk
Verð: 179.900
Intel NUC smátölvur 11x11cm
Viftulaus og nett, styður snertiskjái,
flott lausn sem kassakerfi
Verð frá: 59.900
IIYAMA 17" snertiskjár
Frábær við kassakerfislausnir
Verð: 69.900
V
anda þarf valið þegar hús-
gögn eru keypt á vinnu-
staðinn. Ekki aðeins
þurfa húsgögnin að bjóða
upp á þægilega vinnuað-
stöðu heldur skiptir líka máli að
vinnurýmið sé fallegt.
Guðmundur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Á. Guðmundsson,
ehf. segir að húsgagnasalan hafi
tekið nokkuð fljótlega við sér eftir
hrun. Hafi það hjálpað fyrirtækinu
að margir leggja ríka áherslu á að
kaupa íslensk húsgögn, og hampa
íslenskri hönnun. „Við erum líka
rótgróið fyrirtæki sem fólk treystir
vel, og með eldgamla kennitölu.“
Að mati Guðmundar hefur safn-
ast upp þörf fyrir endurnýjun.
„Einkageirinn stóð lengur á brems-
unni en hið opinbera. Miklar skipu-
lagsbreytingar í stjórnsýslunni á
síðasta kjörtímabili kölluðu á ný
húsgögn. Var til dæmis Fjármála-
eftirlitið stækkað og ýmsar stofn-
anir settar á laggirnar til skemmri
tíma. Upp á síðkastið hafa fyr-
irtækin byrjað að taka við sér og
mikið um að vera í húsgagnasölu
bæði til hins opinbera og til einka-
geirans.“
Rafmögnuð borð
Þegar hann er spurður um helstu
áherslubreytingar á undanförnum
árum segir Guðmundur að hækk-
anleg borð með rafmagnsmótor séu
núna orðin mjög útbreidd. „Vinnu-
flöturinn fer líka minnkandi enda
fer vinnan í dag nær öll fram í tölv-
um. Ekki er lengur sama þörf fyrir
stór borð og hillur, en í staðinn eru
fleiri komnir með tvo eða fleiri
skjái sem mikilvægt er að geta
stillt auðveldlega í rétta hæð.“
Vinsældir opinna rýma fara ekki
minnkandi og algengara en ekki að
skrifstofur séu hannaðar þannig að
starfsmenn deili stóru opnu rými
en hafi lokuð fundarherbergi og
aðra króka til að fá næði ef þess er
þörf. „Í opnum rýmum þarf að
gæta að hljóðvistinni. Talað hljóð
berst mest í þeirri hæð sem talað
er í og því geta lág, hljóðdempandi
skilrúm gert gæfumuninn.“
Margir um sama skrifborðið
Eflaust þekkja margir lesendur það
líka af eigin reynslu að breytingar
hafa orðið á því hvernig fólk vinn-
ur. Sumir starfsmenn vinna að
miklu eða öllu leyti fjarvinnu, aðrir
eru á stöðugum þeytingi inn og út,
og þýðir þetta að ekki er endilega
sama þörfin fyrir að hver hafi sína
vinnustöð. Segir Guðmundur færast
í aukana að starfsmenn hafi ekki
hver sitt skrifborð heldur færi sig á
milli vinnustöðva eftir því hvar er
laust pláss hverju sinni. „Ef við
skoðum t.d. nokkuð stóra skrifstofu
þar sem starfa 100 manns, þá má
áætla að að jafnaði séu 10% í fríi,
5% fjarverandi vegna veikinda eða
barna, og svo eru alltaf einhverjir
sem eru úti í bæ heilu og hálfu
dagana. Þegar allt kemur til alls
þarf kannski ekki nema 70 skrif-
borð fyrir þennan hóp. Þegar hver
fermetri skrifstofuhúsnæðis er orð-
inn dýr þá horfa menn i þessa
hluti.“
Ekkert rusl á borðum
Allt verður síðan að verða snyrti-
legt, slétt og fellt. Má varla sjást í
snúrur og verður að bjóða upp á
skipulagslausnir sem fela möppur
og ritföng. „Er það oft leyst með
því að hafa lítinn „kálf“ með skrif-
borðinu, þ.e. litla skúffueiningu þar
sem starfsmaðurinn getur geymt
sína persónulegu muni og plögg.
Snúrur eru leiddar í stokka og
ruslafötur hanga á krókum undir
borðunum svo að ræstifólk getur
athafnað sig betur við þrifin.“
Talandi um þrif, þá virðast sumir
tískulitirnir í dag kalla á að vera
með tuskuna við höndina. Guð-
mundur segir meira seljast af hvít-
um og dökkum borðplötum, og
sömuleiðis sé grár og dökkgrár vin-
sæll litur. „Litagleðin er að koma
sterkt inn á kostnað hefðbundnu
viðaráferðarinnar.“ ai@mbl.is
Snyrtilegt, stílhreint og stillanlegt
Gæði Mörg fyrirtæki hampa íslenskri hönnun.Þægindi Ekki má gleyma mjúkum stólum fyrir gesti og spjall.
Morgunblaðið/Ófeigur
Það þarf ekki endilega
eitt skrifborð á hvern
starfsmann. Greina má
meiri litagleði í skrifstofu-
húsgögnum á kostnað
viðaráferðarinnar.
Vinnuvist Guðmundur
Ásgeirsson segir lang-
flest ný skrifstofuborð
í dag hæðarstillanleg
með rafmagnsmótor.
Velja má á milli margra seljenda
skrifstofuhúsgagna og getur verið
vandasamt fyrir kaupandann að
gera upp á milli þeirra. Spilar fleira
inn í en útlit, gæði og verð. „Í út-
boðum er verðinu iðulega gefið 50-
70% vægi og gæðin fá 20-30%
vægi. Loks vegur þjónustan 10-
20% og er þá m.a. horft til þess
hvort viðgerðir og sérsmíði eru
mögulegar. Við smíðum okkar eigin
húsgögn, erum með gott verkstæði
og stóran lager. Ef húsgagn bilar
eða skemmist getum við því oftast
lagað það mjög fljótt.“
Guðmundur segir innanhúss-
arkitektana líka kunna að meta
þann möguleika að geta keypt sér-
smíði sem gerir mögulegt að há-
marka nýtingu á rými og ná fram
þeirri sýn sem hönnuðurinn hefur.
„Við vitum líka um fyrirtæki sem
eru í miklum alþjóðlegum við-
skiptum og er mjög í mun að hafa
íslensk húsgögn í fyrirtækinu. Þeg-
ar erlenda gesti ber að garði eru
þessi fyrirtæki stolt af að geta
sagt þeim að allt á skrifstofunni sé
íslenskt.“
Ungu fyrirtækin sem hafa úr
minna að moða þurfa ekki heldur
að sætta sig við léleg húsgögn.
„Við bjóðum upp á ýmsa verð-
flokka og er t.d. hægt að fá bæði
dýrari og ódýrari rafmangsborð.
Sprotafyrirtækjum sem vilja eyða
sem allra minnstu getum við boðið
hagkvæmar lausnir og hönnuðir
okkar eru boðnir og búnir að að-
stoða stór og smá fyrirtæki við að
skipuleggja og hanna hjá sér rým-
in.“
Góð þjónusta skiptir máli