Morgunblaðið - 30.09.2016, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2016
E
infaldasta leið stjórnandans
til að hafa umtalsverð, já-
kvæð áhrif á afkomu fyr-
irtækisins er líklegast sú
að vanda til verka við val á
nýjum starfsmönnum. Því er mik-
ilvægt fyrir stjórnendur að leggja
vinnu og tíma í ráðningarferlið og
hafa fagfólk sér til halds og trausts,“
segir Katrín S. Óladóttir, fram-
kvæmdastjóri ráðningar- og ráð-
gjafafyrirtækisins Hagvangs. „Með
því að nýta sér reynslu og þekkingu
starfsfólks Hagvangs geta fyrirtæki
bætt árangur í ráðningum, aukið
framleiðni og sparað sér tíma og
kostnað.“
Katrín leggur áherslu á að hver
og ein ráðning sé stór og mikilvæg
fjárfesting fyrir fyrirtækið. „Það er
oft ágætt að rifja upp að útgjöld fyr-
irtækis vegna starfsmanns sem
staldrar við í fimm ár nema oftast á
bilinu 60 til 80 milljónum króna. Að
sama skapi er það stór ákvörðun
fyrir hvern einstakling að velja sér
framtíðarstarf. Okkar mikilvægasta
viðfangsefni er að tryggja að fyr-
irtækið fái góðan arð af sinni fjár-
festingu og það gerist ekki nema
hinn nýráðni starfsmaður ráði vel
við verkefnið og líki vel við starf sitt.
Við skilgreinum okkur því sem ráð-
gjafafyrirtæki sem vinnur að því að
hámarka framlegð mannauðsins, öll-
um til hagsbóta.“
Beittar spurningar
Hagvangur hefur starfað á vett-
vangi ráðninga og mannauðsmála
síðan 1976, en fyrirtækið var stofnað
1971. „Á löngum ferli höfum við allt-
af lagt okkur fram um að vera leið-
andi í faglegum og vönduðum vinnu-
brögðum og beita fjölbreyttum
aðferðum við mat á hæfni umsækj-
enda. Auk viðtala og hefðbundinna
aðferða leggjum við fyrir umsækj-
endur raunhæf verkefni þegar það á
við, ásamt því að vera leiðandi í
notkun persónuleika- og hæfn-
isprófa í ráðningum, svo nefnd séu
dæmi,“ segir Katrín. „Með því að
nota bestu aðferðir hverju sinni
tryggjum við hámarksforspá um
frammistöðu í starfi og að starfs-
maður falli vel að menningu fyr-
irtækisins. Við lögum þjónustu okk-
ar að þörfum hvers verkefnis og
sérsníðum lausnir eftir því sem við
á. Ávallt er lögð mikil áhersla á
hreinskiptin samskipti og gagn-
kvæman trúnað við alla hags-
munaaðila.“
Spurð nánar út í viðfangsefnin
segir Katrín þau vera fjölbreytt, allt
frá því að finna hæfan stjórnanda
eða almennan starfsmann yfir í flók-
in, viðamikil verkefni þar sem jafn-
vel þurfi að manna heilu deildirnar.
„Einnig hafa starfsmenn Hagvangs
oft notið þess trausts að vera skip-
aðir í valnefndir hjá hinu opinbera,
gjarnan þegar verið er að velja for-
stöðumenn eða stjórnendur í efstu
lögum.
Oftast er ráðningarferlið í heild í
okkar höndum en við bjóðum við-
skiptavinum einnig að taka að okkur
einstaka þætti þess, svo sem grein-
ingu og mat umsókna, viðtöl eða
prófanir. Reynsla okkar er sú að
fagleg og beitt spurningatækni okk-
ar dregur fram bæði styrkleika og
veikleika viðkomandi gagnvart
starfinu, með afgerandi hætti. Þann-
ig styðjum við stjórnendur og ger-
um þeim kleift að velja þann hæf-
asta í starfið.“
Leit að stjórnanda
Talið berst að ráðningu stjórn-
enda og þar segir Katrín nokkrar
áherslubreytingar hafa orðið. „Und-
anfarin ár hefur það færst í vöxt að
fyrirtæki feli okkur að leggjast í
markvissa leit að mjög hæfum
stjórnendum – eða headhunting,
eins og það er kallað á ensku,“ út-
skýrir Katrín. „Staðreyndin er sú að
hæfasta fólkið er oft í mjög góðum
störfum sem því líður ágætlega í.
Það er oft í viðkvæmri stöðu atvinnu
sinnar vegna, en treystir Hagvangi
til að vera traustur milliliður þegar
áhugaverð störf kunna að skjóta upp
kollinum, án þess að nafnleynd sé
stefnt í voða. Þetta skapar okkur
mjög sterka stöðu þegar kemur að
beinni stjórnendaleit, þar sem þekk-
ing okkar og yfirsýn yfir íslenskt at-
vinnulíf kemur að góðum notum.
Flestum þykir vænt um að við hugs-
um til þeirra og margir
eru tilbúnir að skoða
nýjar áskoranir í starfi,
í samráði við okkur.“
Katrín bendir á að
Hagvangur sé aðili að
alþjóðasamtökum
EMA, Executive Ma-
nagement Association, sem séu ein
stærstu samtök ráðningarfyrirtækja
í heiminum. „Ráðningarfyrirtækin
innan EMA vinna eftir samræmdum
aðferðum, þar sem gerðar eru mikl-
ar gæðakröfur. Með þessu þýðing-
armikla samstarfi opnast nýir og
spennandi möguleikar fyrir okkar
viðskiptavini, því með þéttu tengsl-
aneti Hagvangs og samvinnu við
sérfræðinga innan EMA á erlendri
grundu getum við víkkað út sjón-
deildarhringinn og aðstoðað fyr-
irtæki við beina leit að hæfum
stjórnendum víða um heim.“
Hogan-persónuleikapróf
Katrín ítrekar mikilvægi persónu-
leika- og getuprófa í ráðningum.
„Hagvangur er dreifingaraðili fyrir
persónuleika- og getupróf frá Hog-
an Assessements, sem nota má í
ráðningum, við
starfsþróun og stjórn-
endaþjálfun. Vönduð
próf af þessu tagi hafa
góða forspá um
frammistöðu, þau gera
fyrirtækjum og stofn-
unum kleift að „kynn-
ast“ umsækjendunum talsvert betur
en hægt er í nokkrum stuttum við-
tölum og þau gefa upplýsingar sem
erfitt er að fá fram með hefðbundn-
ari aðferðum. Þannig styrkja þau og
bæta ákvarðanatöku og minnka
áhættu við ráðningar.
Enn þá vantar mikið upp á að
konur ráðist í stjórnendastöður til
jafns við karla. Á því kunna að vera
ýmsar skýringar, til dæmis und-
irliggjandi og ómeðvitaðar hug-
myndir um staðalmyndir kynjanna
sem geta unnið gegn konum í við-
tölum um stjórnendastöður. Kerf-
isbundin notkun persónuleikaprófa
frá Hogan gerir konum kleift að
keppa við karla á jafnréttisgrund-
velli um stjórnunarstöður því í próf-
unum mælist enginn kerfisbundinn
munur á kynjunum. Þau eru því
hlutlæg og vísindaleg leið til að slá
tvær flugur í einu höggi, bæta ráðn-
ingarferlið og stuðla að jöfnum tæki-
færum kynjanna.“
Hún bætir við: „Á nýju hagvaxt-
arskeiði finnum við hjá Hagvangi
fyrir mikilli samkeppni um starfs-
fólk. Fyrirtæki sem fara sér hægt
við ákvarðanir missa nú orðið af
besta fólkinu því það ræður sig ann-
að. Slíkt getur orðið fyrirtækjum
dýrkeypt og er því enn ein ástæðan
til að fela Hagvangi að ganga hratt
og vel frá ráðningum. Stjórnenda
framtíðarinnar bíða mörg ögrandi
verkefni og okkar er ánægjan að fá
að hjálpa þeim á þeirri vegferð.“
beggo@mbl.is
Áherslan á gagnkvæman trúnað
Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri ráðningar-
fyrirtækisins Hagvangs, segir velgengni fyrirtækja í
síauknum mæli velta á hæfu og metnaðarfullu
starfsfólki. Með sterku trúnaðarsambandi við ein-
staklinga og fyrirtæki, ásamt faglegri ráðgjöf, sé
unnt að leiða saman umsækjendur og atvinnurek-
endur með góðum árangri.
Morgunblaðið/Eggert
Verðmæti „Á nýju hagvaxtarskeiði finnum við hjá Hagvangi fyrir mikilli samkeppni um starfsfólk; fyrirtæki sem fara sér hægt
við ákvarðanir missa nú orðið af besta fólkinu því það ræður sig annað,“ segir Katrín um ástandið um þessar mundir.
Persónuleikapróf
stuðla að jöfnum
tækifærum
kynjanna.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Mannval „Við skilgreinum okkur sem ráðgjafafyrirtæki sem vinnur að því að hámarka framlegð mannauðsins, öllum til hagsbóta,“ segir Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs.