Morgunblaðið - 30.09.2016, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2016 MORGUNBLAÐIÐ 11
Er búið að
hanna hinn
fullkomna
vinnustól?
Stíll Stóllinn er klæddur skandinavísku leðri.
Stáss Elysium er stóll sem fer ekki í
felur. Verðmiðinn er líka á við lítinn bíl.
Úthugsað Þyngd líkamans á að dreifast einstaklega vel á stólinn.Elysium á að geta
framkallað þyngdar-
leysistilfinningu.
Þ
eir sem vinna við skrifborð
kannast örugglega við þá til-
finningu að vilja halla sér
langt aftur á bak, hvíla
kroppinn og hreinsa hugann, en
finna að stóllinn hefur eitthvað ann-
að í huga. Þeir djörfustu hætta á að
detta aftur fyrir sig en flestir sætta
sig við að stóllinn ræður ferðinni.
Kannski mun Elysium-stóllinn
breyta þessu. Um er að ræða sköp-
unarverk lífefnaverkfræðingsins
David Wickett, en hann einsetti sér
að búa til stól sem fengi notandann
til að líða eins og hann væri þyngd-
arlaus. Hreyfanlegu hlutar stólsins
eiga að bregðast áreynslulaust við
hreyfingum notandans og dreifa
þyngd líkamans fullkomlega.
Er eins gott að stóllinn standi
undir væntingum því hann kostar
26.000 dali, jafnvirði um þriggja
milljóna króna. Nánari upplýsingar
má finna á www.davidhugh.com
ai@mbl.is
Fyrir nýjar
hugmyndir
Oft er gott að hafa stílabók við hönd-
ina, til að krassa, pæla og spekúlera.
Flest af því sem er ritað niður er
samt að litlu gagni þegar upp er stað-
ið, og þarf alls ekki að varðveita um
alla eilífð.
Wipebook Pro er stílabók fyrir þá
sem skipta oft um skoðun og eru stöð-
ugt að hripa, án þess þó að vera að
skapa ódauðleg listaverk eða ljóð.
Síðurnar eru húðaðar með filmu og
hægt að krota á þær eins og á tús-
stöflu. Þarf svo bara að strjúka létt
yfir með klút og síðan er orðin hrein.
Sérstök hulsa er fyrir tússpennann
svo hann fer ekki á flakk. Vitaskuld
er kápan úr leðri. ai@mbl.is