Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 2
Veður
Miklir umhleypingar verða í veðrinu
næstu daga. Skil gengu austur yfir landið
í nótt og í dag með sunnanhvassviðri
eða stormi. Sums staðar mikil rigning
sunnan- og vestanlands, en úrkomu-
minna norðaustan til. sjá síðu 36
Sungið af innlifun fyrir heimilisfólk Hrafnistu
Sópraninn Guðrún Ingimarsdóttir söng af innlifun fyrir íbúa Hrafnistu í Reykjavík í gær en sumir þeirra tóku sig til og sungu með líkt og hér sést.
Undanfarna daga hefur Guðrún farið ásamt tenórnum Elmari Gilbertssyni og undirleikaranum Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur milli heimila
Hrafnistu og sungið ýmsar aríur fyrir heimilisfólkið. Vínartónleikarnir í gær voru þeir fjórðu það sem af er ári hjá þeim. FRÉTTABLAÐIÐR/STEFÁN
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
� Stærð: 149 x 110 x 60 cm
ÚTSALA
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Grillbúðin
25-50
aðeins í nokkra daga
afsláttur
Opið virka daga 11-18 - Gamlársdag 10-12
www.grillbudin.is
%
lögreglumál Eldur kom upp í
sendibíl neðan við Ártúnsbrekku í
gær og skemmdist hann nokkuð en
bílstjórann sakaði ekki.
Að sögn bílstjórans kom eldurinn
upp aftan við stýrishúsið er sendi
bíllinn var á ferð. Upptökin voru
enn ekki ljós er Fréttablaðið bar að
garði enda var þá enn verið að kæla
bílinn eftir brunann svo hægt væri
að skoða hann nánar. Töldu menn
hugsanlegt að leki hafi komið að
olíuleiðslu og síðan hafi kviknað í
olíunni. – gar
Eldur kviknaði
í sendibíl á ferð
Unnið var að því að kæla bílinn fyrir
frekari skoðun. FRÉTTABLAÐIÐ/EyþóR
samfélag Á árinu 2016 námu
heildar framlög Íslands til mann
úðar aðstoðar um 770 milljónum
króna. Þetta kemur fram í tilkynn
ingu frá utanríkisráðuneytinu. Þar
af voru 500 milljónir króna af sér
stöku framlagi sem samþykkt var
í ríkisstjórn haustið 2015 og síðar
í fjárlögum á Alþingi 2016 um að
verja allt að einum milljarði króna
til að bregðast við vaxandi vanda
í málefnum flóttamanna í kjölfar
átakanna í Sýrlandi.
Framlögin til mannúðaraðstoðar
skiptast á milli borgarasamtaka, 175
milljónir króna, og alþjóðastofnana,
595 milljónir króna.
Utanríkisráðuneytið veitir árlega
styrki til íslenskra borgarasam
taka sem starfa á sviði mannúðar
aðstoðar. Íslensk stjórnvöld reiða
sig meðal annars á borgarasamtök
til að koma mannúðaraðstoð sinni
til skila og er styrkjum vegna mann
úðar aðstoðar ætlað að svara alþjóð
legum neyðarköllum allt árið um
kring.
Í júní voru tæpar 90 milljónir
króna veittar sérstaklega til sex
verkefna til að bregðast m.a. við
flóttamannastraumnum sem átökin
í Sýrlandi hafa leitt af sér og í Eþí
ópíu og Malaví.
Á árinu fór stærstur hluti af fram
lögum í mannúðaraðstoð vegna
afleiðinga átakanna í Sýrlandi. Einn
ig voru veitt framlög vegna jarð
skjálftans í Ekvador og fellibylsins
sem gekk yfir Haítí. – bb
Mest fór
til Sýrlands
Vaxandi vandi er í málefnum flótta-
manna í Sýrlandi. MyNd/GETTy
félagsstarf Miklar væringar hafa
verið innan skátahreyfingarinnar
undanfarið. Milli jóla og nýárs lýstu
fyrrverandi skátahöfðingi og núver
andi stjórnarmaður hjá Bandalagi
íslenskra skáta, Ólafur Proppé,
vantrausti á bæði Braga Björnsson
skátahöfðingja og Fríði Finnu Sig
urðardóttur varaskátahöfðingja.
Það gerði Ólafur í bréfi sem hann
kvað sér „siðferðislega skylt“ að
senda til félagsforingja og annarra
leiðtoga skátastarfs á landinu.
Í bréfinu lýsir Ólafur aðdrag
anda þess að meirihluti stjórnar
Bandalags íslenskra skáta ákvað
13. desember að segja Hermanni
Sigurðssyni, framkvæmdastjóra
bandalagsins, upp störfum.
„Allt málið tengist langvarandi
samskiptavanda Braga og Her
manns. Á þeim samskiptavanda
ber Bragi meginábyrgð sem ger
andi og sem leiðtogi hreyfingar
innar. Ástæður Braga og meirihluta
stjórnar BÍS fyrir uppsögninni eru,
að mínu mati, léttvægar og byggðar
á sandi,“ segir Ólafur meðal annars
í bréfi sínu.
Ólafur bendir einnig á að á
árinu sé fram undan stærsti við
burður sem skátar á Íslandi hafa
staðið frammi fyrir, sem er afar stórt
alþjóðlegt skátamót hérlendis. „Er
hætt við að umræddur gerningur
meirihluta stjórnar á vafasömum
forsendum geti haft neikvæð áhrif
á framkvæmd þessa stóra viðburðar
og skátastarf á Íslandi á næstu mán
uðum.“
Hafdís Bára Kristmundsdóttir,
félagsforingi Vífils í Garðabæ,
boðaði til opins fundar um mál
efni skátahöfðingjans síðastliðið
mánudagskvöld. Þar samþykktu
45 fundarmenn vantraust á Braga
og Fríði Finnu og skoruðu á þau að
segja af sér „vegna framgöngu þeirra
í eineltismáli innan skátafélagsins
Ægisbúa og við brottvikningu
framkvæmdastjóra BÍS“. Eineltis
Allt í hnút hjá skátum
Opinn fundur hjá skátum í Garðabæ í gær hvetur skátahöfðingja og varaskáta-
höfðingja til að segja af sér vegna framgöngu þeirra í eineltismáli og uppsagnar.
Frá stjórnarfundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
málið sem vísað er til tengist bróður
skátahöfðingjans sem sagður er vera
gerandi í því máli.
Enn fremur skoraði fundurinn
á stjórnir skátafélaga að krefjast
aukaskátaþings til að fjalla um van
traustsmálið.
Stjórn BÍS fundaði í gærkvöld en
mál þetta var þar ekki á dagskrá. Í
tilkynningu sem stjórnin sendi til
Fréttablaðsins skömmu áður en
það fór í prentun kom fram að efni
fundarins hafi verið undirbúningur
félagsforingjafundar sem er á dag
skrá 14. janúar.
„Okkur þykir miður að þeir
sem skrifuðu undir yfirlýsinguna
skuli ekki hafa gefið sér tíma til að
bíða eftir þeim fundi þar sem fyrir
liggur að það á að fara yfir gögnin
í kringum starfslok framkvæmda
stjórans og meðferð eineltismála á
fundinum,“ segir enn fremur í til
kynningunni. gar@frettabladid.is
Okkur þykir miður
að þeir sem skrifuðu
undir yfirlýsinguna skuli
ekki hafa gefið sér tíma til að
bíða eftir þeim fundi þar sem
fyrir liggur að það á að fara
yfir gögnin í kringum
starfslok framkvæmdastjór-
ans og meðferð eineltismála
á fundinum
Yfirlýsing frá stjórn BÍS
5 . j a n ú a r 2 0 1 7 f I m m t u D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
C
-A
3
6
4
1
B
D
C
-A
2
2
8
1
B
D
C
-A
0
E
C
1
B
D
C
-9
F
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K