Fréttablaðið - 05.01.2017, Síða 8
Tyrkland Tyrkir hafa hand
tekið um 40 manns í tengslum
við fjöldamorðin í næturklúbbi í
Istanbúl á nýársnótt. Stjórnvöld
segja hina handteknu alla tengjast
hryðjuverkasamtökunum Íslömsku
ríki, en á meðal hinna handteknu
eru um tuttugu manns á barnsaldri,
níu drengir og ellefu stúlkur.
Þrjár fjölskyldur, sem allar eru
sagðar tengjast árásarmanninum,
eru meðal hinna handteknu. Flest
ir hinna handteknu eru frá Túrk
istan, Dagestan og Kirgistan, en
árásarmaðurinn sjálfur er sagður
vera frá Kirgistan.
Þá segjast tyrknesk stjórnvöld
hafa borið kennsl á árásarmann
inn. Hann er sagður 28 ára gamall
og hafa komið til Tyrklands frá Sýr
landi.
Hann var enn ófundinn í gær, en
honum tókst að komast burt frá
skemmtistaðnum í Istanbúl á nýárs
nótt eftir að hafa myrt þar 39 manns
og sært um sjötíu.
Í nóvember síðastliðnum var
hann staddur í bænum Konja ásamt
eiginkonu sinni og tveimur börn
um. Hann hafði leigt sér hús þar.
Eiginkona hans sagðist í viðtali
við tyrkneska dagblaðið Hurriyet
ekkert hafa vitað af því að maður
sinn hafi hrifist af boðskap Íslamska
ríkisins, hvað þá að hann hafi fram
ið þetta voðaverk.
„Ég frétti af árásinni í sjónvarpi,“
sagði hún.
Tyrkneskir fjölmiðlar segja hann
heita Lakhe Mashrapov og hafa
barist með vígasveitum Íslamska
ríkisins í Sýrlandi, meðal annars
í götubardögum. Hann sé því vel
þjálfaður í vopnaburði.
Stjórnvöld hafa birt myndband
sem hann tók af sjálfum sér þar
sem hann gekk um á Taksimtorgi í
Istanbúl innan um almenning. Ekki
er ljóst hvort þetta myndband var
tekið upp áður en hann hélt inn á
skemmtistaðinn Reina til að drepa
fólk eða eftir að hann var búinn að
því.
Íslamska ríkið, eða Daish, lýsti
yfir ábyrgð á hryðjuverkinu strax
á mánudaginn, en þetta mun vera í
fyrsta sinn sem þessi samtök segja
hreint út að maður á þeirra vegum
hafi framið árás af þessu tagi.
gudsteinn@frettabladid.is
- 25%
Vítamín
Boomba!
2248 kr.stk.
Now Eve fjölvítamín fyrir konur, 90 töflur
Verð áður 2297 kr. stk.
Bandaríkin Donald Trump, sem
tekur við forsetaembætti í Bandaríkj
unum eftir rúmar tvær vikur, hefur
ákveðið að James Lighthizer verði
viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna.
Viðskiptafulltrúi er veigamikið
embætti í bandarískri stjórnsýslu og
jafnast á við mikilvægustu ráðherra
embættin.
Lighthizer var aðstoðarviðskipta
fulltrúi í forsetatíð Ronalds Reagan.
Hann hefur svipaðar skoðanir og
Trump á alþjóðaviðskiptum. Báðir
hafa þeir miklar efasemdir um
alþjóðlega fríverslunarsamninga
og báðir leggja þeir mikla áherslu á
að vera fastur fyrir þegar kemur að
milliríkjaviðskiptum Bandaríkjanna
við önnur ríki, ekki síst ríki á borð við
Mexíkó og Kína, sem þeir telja hafa
fært sig um of upp á skaftið.
Með því að velja Lighthizer sýnir
Trump að hann ætli ekkert að gefa
eftir í þessum efnum. – gb
Trump tekur
inn Lighthizer
James Lighthizer verður viðskiptafull-
trúi Bandaríkjanna í stjórn Donalds
Trump. NorDicphoTos/AFp
ísrael Ísraelskur hermaður var
sakfelldur í gær af ísraelskum dóm
stól fyrir að hafa orðið Palestínu
manni að bana í mars í fyrra.
Hermaðurinn, sem er tvítugur og
heitir Elor Azaria, skaut Palestínu
manninn þar sem hann lá hreyf
ingarlaus á götu í borginni Hebron
á Vesturbakkanum.
Hann segist hafa talið að Palest
ínumaðurinn hafi getað verið með
sprengjuvesti. Saksóknarar í málinu
sögðu hann hins vegar hafa verið að
hefna sín á Palestínumanninum, sem
var 21 árs og hét Abdul Fatah alSharif.
Sharif hafði ásamt jafnaldra
sínum, Ramzi Aziz al Qasrawi, veitt
öðrum ísraelskum hermanni hníf
stungusár. Þeim hafi tekist að stinga
Ísraelann, en var svarað með byssu
skotum frá ísraelsku hermönn
unum. Báðir Palestínumennirnir
særðust en um fimmtán mínútum
síðar skaut Azaría á Sharif þar sem
hann lá hreyfingarlaus á götunni.
Það skot varð honum að bana.
Málið hefur vakið miklar deilur
í Ísrael þar sem sitt sýnist hverjum.
Yfirstjórn Ísraelshers segir framferði
hermannsins alls ekki samræmast
þeim reglum sem hermenn eiga að
fara eftir. – gb
Ísraelskur hermaður sakfelldur
Árásarmaðurinn hundeltur
um alla Evrópu en finnst ekki
Tugir manna handteknir í Tyrklandi vegna skotárásarinnar á nýársnótt. Þar á meðal er fjölskylda meints
árásarmanns, margir á barnsaldri. Allir sagðir tengjast Íslamska ríkinu. Árásarmaðurinn barðist í Sýrlandi.
Ísraelski hermaðurinn Elor Azaria ásamt foreldrum sínum og unnustu áður en
hann var sakfelldur í Tel Aviv í gær. NorDicphoTos/AFp
Borgarstjórar stærsta stjórnarandstöðuflokks Tyrklands minntust hinna látnu með
því að leggja blóm á gangstéttina fyrir utan næturklúbbinn reina í istanbúl. Nor-
DicphoTos/AFp
Árásarmaðurinn tók myndband af
sjálfum sér nálægt árásarstaðnum.
FréTTABLAðið/EpA
Geimurinn Í fyrsta sinn hafa
stjörnufræðingar staðsett uppruna
útvarpsblossa – skammlífra en
öflugra útvarpsmerkja – í stjörnu
þoku. Þeir endast í aðeins nokkra
þúsundustu hluta úr sekúndu og
hafa valdið stjörnufræðingum heila
brotum í nokkra áratugi. Síðan 2007
hafa borist 18 slík merki en aðeins
eitt hefur borist oftar en einu sinni.
„Með því að nota sjónauka sem
staðsettir eru víða um heim vitum
við að þessar sendingar koma frá
stjörnuþoku sem er í þriggja millj
arða ljósára fjarlægð frá jörðinni,“
segir Shami Chatterjee, stjörnufræð
ingur við Cornellháskóla í samtali
við AFPfréttaveituna. Greint var frá
tíðindunum á fundi stjarnfræðinga
sem fram fer í Texas.
Áður hafði stjörnufræðinga skort
sannanir fyrir því að merkin væru
upprunnin utan Vetrarbrautarinnar.
Stjörnu þokan hefur innan við
eitt prósent af massa vetrar
brautarinnar og þykir vísinda
mönnum það merkileg staðreynd.
En þó að vísindamenn viti hvaðan
merkin koma er enn eftir að greina
frá því hvað þau eru.
„Það á enn eftir að vinna mikla
vinnu. En að finna út hvaðan merk
in koma er stórt skref í átt að lausn
þessarar gátu,“ segir Victoria Kaspi
eðlisfræðiprófessor en hún fer fyrir
alþjóðlegu liði sem sér um rann
sóknina. – bb
Grunsamleg merki berast úr geimnum
sjónaukar víða um heim gátu náð að staðsetja útvarpsblossa í stjörnuþoku sem er
í þriggja milljarða ljósára fjarlægð. MyND/GETTy
Það á enn eftir að
vinna mikla vinnu.
En að finna út hvaðan
merkin koma er stórt skref í
átt að lausn þessarar gátu.
Victoria Kaspi, eðlisfræðiprófessor
11
stúlkur eru meðal hinna
handteknu í Tyrklandi.
Tyrknesk stjórnvöld eru
sögð hafa borið kennsl á
árásarmanninn.
ViðskipTi Milljarðamæringurinn
Warren Buffett græddi að meðal
tali 32,2 milljónir dala á dag eða 3,6
milljarða allt árið 2016, samkvæmt
útreikningum Bloomberg. Hann
gaf góðgerðarsamtökum hlutabréf
fyrir 2,6 milljarða dollara í júlí síð
asta sumar en þrátt fyrir það aukast
auðæfi hans. Þrátt fyrir andstöðu
sína gegn Donald Trump í forseta
kosningum Bandaríkjanna segir Dr.
Brian Klaas, prófessor í hagfræði, að
milljarðamæringar eins og Buffett
muni græða vel á kosningu Trumps.
„Verkamenn munu ekki njóta
góðs af stefnu Trumps heldur við
skiptamógúlar,“ segir hann í sam
tali við breska blaðið Independent.
Buffett er annar ríkasti maður heims
á eftir Bill Gates. – bb
Buffett
græðir vel
Warren Buffett hefur það ágætt.
MyND/GETTy
5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F i m m T u d a G u r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
C
-D
E
A
4
1
B
D
C
-D
D
6
8
1
B
D
C
-D
C
2
C
1
B
D
C
-D
A
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K