Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 10
StjórnSýSla Um hver áramót gengur í gildi fjöldi nýrra laga sem samþykkt hafa verið á Alþingi á árinu eða árunum þar á undan. Þessi lög geta haft veruleg áhrif á líf Íslendinga og budduna, án þess að breytingarnar séu sérstaklega kynntar almenningi. Fréttablaðið hefur hér gert til- raun til að draga saman þau lög sem kunna að hafa áhrif á almenning og tóku gildi nú um áramótin. Ekki er alveg um tæmandi lista að ræða en reynt er að stikla á því helsta sem Íslendingar kunna að finna fyrir á árinu sem nú gengur í garð. Kerfisbreytingar í félagsmálum Í fyrsta lagi tóku í gildi ný lög um almannatryggingar nú um ára- mótin. Ofan á almenna hækkun ellilífeyris sem kemur til um hver áramót hefur orðið kerfisbreyting á kerfinu sem hækkar bæturnar enn frekar. Fréttablaðið fjallaði um hluta þessara breytinga þegar fjárlagafrumvarpið var kynnt í byrjun desember. „Það mun von- andi nást saman við hagsmuna- samtök öryrkja til að gera sam- bærilegar breytingar fyrir öryrkja. Ég hef mikla sannfæringu um að ný ríkisstjórn hljóti að breyta kerfi örorkubóta líka,“ segir Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðis- málaráðherra. Önnur lög sem tóku gildi um ára- mótin og heyra undir ráðuneyti Eyglóar eru ný lög um húsnæðis- bætur. Með lögunum hafa fleiri á leigumarkaði rétt á húsnæðisbótum en áður var. „Það er verið að hækka tekjuviðmiðin í húsnæðisbótunum miðað við það sem var í húsaleigu- bótunum. Fyrir fólk á vinnumarkaði er þetta veruleg breyting en þetta er líka breyting fyrir námsmenn. Þetta er nýtt kerfi og það er veruleg viðleitni frá ráðuneytinu, þingi og Syndsamlega gott, kolvetnaskert skyr með dökku súkkulaði og vanillubragði. Nú fáanlegt í 500 g dósum Syndsamlega gott, kolvetnaskert skyr með dökku súkkulaði og vanillubragði. Nú fáanlegt í 500 g dósum Dökkt súkkulaði og vanilla 50 0 g Fleiri fá húsaleigubætur, starfslok verða sveigjanlegri og skrá þarf Airbnb-íbúðir Ný lög tóku í gildi um áramótin sem takmarka heimildir lögreglu til að hlera almenning. Minni skattur verður tekinn af almenningi en nú þarf að skrá allar Airbnb-íbúðir, vilji maður ekki fá sekt upp á allt að einni milljón króna. Fréttablaðið dró saman helstu breytingar. sveitarfélögum að tryggja að það sé enginn í verri stöðu en áður,“ segir Eygló. Það sem áður hét sérstakar húsaleigubætur heitir nú sérstakur húsnæðisstuðningur og heyrir undir félagsþjónustuna. Vinnu- málastofnun sér svo nú um greiðslu húsnæðisbótanna til almennings. „Það er verið að útvíkka rétt- indin. Þetta var hluti af samkomu- lagi við aðila vinnumarkaðarins og þetta var sérstaklega hugsað til að bæta stöðu þeirra sem eru á vinnu- markaði,“ segir Eygló. Húsnæðis- bætur verða greiddar mánaðarlega og grunnfjárhæð þeirra mun taka mið af fjölda heimilismanna óháð aldri þeirra. Minni skattheimta Ríkið tekur til sín minni skatt af almenningi á þessu ári en verið hefur. Til dæmis má nefna að við andlát einstaklings verður ekki lengur greiddur erfðafjárskattur af þeim hluta arfs sem gefinn verður til góðgerðarfélaga. Þetta er breyting frá því sem áður var þegar erfðafjár- skattur var tíu prósent. Ekki verður lengur tekinn skattur af þeim hagnaði sem verður til hjá einstaklingum sem ákveða að flytja í ódýrara húsnæði. Með öðrum orðum, ríkið tekur ekki lengur til sín skatt þegar einstaklingar ákveða að minnka við sig. Það má ímynda sér að sú skattaprósenta hafi lagst hvað mest á eldra fólk sem hafði hug á að minnka við sig og nýta fjármagnið sem umfram var til efri áranna. Á nýju ári verður veittur skatta- afsláttur vegna hlutabréfakaupa einstaklinga. Skattafrádráttur vegna hlutabréfakaupa er nú um 50 pró- sent og lágmarksupphæð þeirra er 300 þúsund. Bæði meira og minna eftirlit Nýju og umdeildu Airbnb-lögin svo- kölluðu tóku gildi um áramótin. Þau skylda þá sem ætla að gera út svo- kallaða heimagistingu, til dæmis í gegnum vefsíðuna Airbnb, til að skrá það hjá sýslumanni og endurnýja þarf skráninguna á hverju ári. Ein- staklingar hafa heimild til að leigja heimili sitt út í 90 daga á ári og að hámarki fyrir tvær milljónir króna. Allt umfram það krefst rekstrarleyfis frá stjórnvöldum. Þetta þýðir að hver nótt má ekki kosta meira en rúmar 11 þúsund krónur ef útleiga fer fram allar þessar 90 nætur. Skráningargjald hjá sýslumanni fyrir airbnb íbúðir er 8.000 krónur á hverju ári. Ef skráningarskyldunni er ekki hlýtt má búast við að fá sekt Ellilífeyrir hækkar Söluhagnaður þegar fólk minnkar við sig húsnæði verður ekki lengur skattlagður ✿ Hvernig breyttist líf þitt um áramótin? Skattaskil verða alfarið rafræn. Gjafir til góðgerðarfélaga verða undanþegnar erfðafjárskatti nýtt greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðisþjónustu tekur gildi 1. febrúar Húsaleigubætur flytjast frá sveitarfélögum til ríkis. Hús­ næðis bætur verða greiddar mán­ aðarlega og grunnfjárhæð tekur mið af fjölda heimilismanna óháð aldri. Fleiri hafa rétt til þess að fá bætur því tekjumörk hækka. airbnb lögin taka gildi – Einstaklingar hafa heimild til að leigja heimagistingu í 90 daga á ári og að hámarki fyrir tvær millj­ ónir króna. Skráningarskylda gildir fyrir alla sem ætla að bjóða upp á heimagistingu og endurnýja þarf skráninguna á hverju ári. Heimild lögreglu til að hlera verður þrengd og lögreglu verður sýnt meira aðhald. Brot verður að varða sex ára fangelsi og ríkir al­ mannahagsmunir eða einkahagsmunir verða að vera fyrir hendi. Þeim sem er hleraður verður skipaður lögmaður sem gætir hags­ muna hans. Skattaafsláttur vegna hlutabréfakaupa tekur gildi. Lágmarksupphæðin verður 300 þúsund krónur. Sjúkratryggðum er gert kleift að sækja heilbrigðisþjónustu í öðru aðildarríki EES og sjúktratryggingar greiða kostnaðinn ef um brýna almannahagsmuni er að ræða. Íslendingar þurfa ekki lengur að borga skatt af afganginum sem þeir fá ef þeir minnka við sig húsnæði. FréttaBlaðið/DanÍel frá 10 þúsund krónum og allt að einni milljón króna. En þrátt fyrir þessar sektargreiðsl- ur má að minnsta kosti ekki búast við því að lögreglan hleri mann vegna gruns um að brjóta gegn airbnb-reglunum. Heimildir lög- reglu til símahlustunar hafa nefni- lega verið þrengdar og nú verður brot að varða sex ára fangelsisvist og ríkir almannahagsmunir eða einka- hagsmunir að vera í gildi. Þeir sem eru svo óheppnir að vera hleraðir af lögreglu fá úthlutað réttargæslu- manni sem hefur aðgang að ýmsum gögnum í málinu og gætir réttar þess sem er hleraður. Lögmaðurinn má þó ekki láta skjólstæðing sinn vita að hann sé að gæta réttar hans. snaeros@frettabladid.is Ég hef mikla sann- færingu um að ný ríkisstjórn hljóti að breyta kerfi örorku- bóta líka. Eygló Harðardóttir, félags­ og hús­ næðismálaráðherra Einstaklingar hafa heimild til að leigja heimili sitt út í 90 daga á ári og að hámarki fyrir tvær milljónir króna. 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M t U D a G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a ð I ð 0 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B D C -D 9 B 4 1 B D C -D 8 7 8 1 B D C -D 7 3 C 1 B D C -D 6 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.