Fréttablaðið - 05.01.2017, Síða 12
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
...fyrir alla muni
SMÁVÖRUHILLUR OG SKÁPAR
Stjórnendur Sparisjóðs Austur-
lands ætla að bíða eftir niðurstöðu
í dómsmáli Landsbankans gegn
Borgun áður en ákveðið verður
hvort sparisjóðurinn mun leita
réttar síns vegna sölu hans á 0,3
prósenta hlut í greiðslukortafyrir-
tækinu. Þetta staðfestir sparisjóðs-
stjórinn, Vilhjálmur G. Pálsson.
„Það var niðurstaða okkar að bíða
og sjá hvernig mál Landsbankans
endar. Okkar lending var sú að þetta
yrði of mikið orð gegn orði um það
hvort við hefðum fengið að vita af
þessari viðbótargreiðslu.“
Sparisjóðurinn, þá Sparisjóður
Norðfjarðar, seldi bréf sín í Borgun
á gamlársdag 2014 eða rúmum
mánuði eftir að Landsbankinn
seldi Eignarhaldsfélaginu Borgun
og einkahlutafélaginu BPS, sem
er í eigu tólf helstu stjórnenda
greiðslukortafyrirtækisins, 31,2
prósenta hlut sinn í fyrirtækinu.
Sjóðurinn seldi þá á sama gengi og
Lands bankinn og fékk 22,5 millj-
ónir króna fyrir bréfin. Eftir að í
ljós kom að Borgun ætti rétt á millj-
arðagreiðslum vegna yfirtöku Visa
Inc. á Visa Europe var 0,3 prósenta
hluturinn metinn á að lágmarki 57
milljónir. Eins og Landsbankinn
gerðu stjórnendur sparisjóðsins
enga fyrirvara um hlutdeild í við-
bótargreiðslunni og í apríl var lög-
fræðingi sjóðsins falið að meta hvort
ástæða væri til að stefna eigendum
BPS sem keyptu bréfin. Landsbank-
inn tilkynnti í síðustu viku að hann
hefði höfðað mál vegna sölu sinnar
á bréfunum í Borgun. – hg
Vilja sjá Borgunarmálið klárast
Óánægju gætir meðal íslenskra
einkafjárfesta, sem tóku þátt í hluta-
fjársöfnun Silicor Materials, með
hversu hægt fjármögnun sólarkísil-
verksmiðjunnar á Grundartanga
miðar. Þeir fjárfestar sem Frétta-
blaðið ræddi við segja það koma
sér á óvart hversu langan tíma það
hefur tekið að tryggja verkefninu
aukið eigið fé, lánsfjármögnun og þá
raforku sem til þarf. Eitt og hálft ár
er liðið síðan þeir tóku þátt í hluta-
fjársöfnun upp á alls fjórtán millj-
arða króna og stóð þá til að fjár-
mögnuninni lyki um mitt síðasta ár.
Fjárfestarnir eiga alls 3,5 prósent í
Silicor Materials Iceland Holding hf.
í gegnum sex einkahlutafélög. Auð-
mennirnir Sigurður Sigurgeirsson,
byggingaverktaki í Kópavogi, Jón
Árni Ágústsson, fyrrverandi hluthafi
í spænska lyfjafyrirtækinu Invent
Farma og skattakóngur Íslands
árið 2012, og hjónin og fjárfestarnir
Ósáttir við tafirnar hjá Silicor Materials
Seinkun á fjármögnun kísilversins á Grundartanga kemur einkafjárfestum á óvart. Keyptu 3,5 prósent í verksmiðjunni í ágúst 2015
en fjármögnuninni átti þá að ljúka um mitt síðasta ár. Fjórir lífeyrissjóðir eru einnig eigendur en framkvæmdastjóri Birtu er rólegur.
„Von allra að þetta gangi“
Fjórir lífeyrissjóðir lofuðu,
ásamt Sjóvá og Íslands-
banka, tæplega sex millj-
arða króna fjárfestingu í
Silicor Materials Holding
í ágúst 2015. Keyptu þeir í
fyrirtækinu í gegnum félagið
Sunnuvelli slhf. sem á nú 32,4
prósent í kísilverinu. Um er
að ræða Lífeyrissjóð verzl-
unarmanna, Festu-lífeyrissjóð,
Sameinaða lífeyrissjóðinn (nú
Birtu) og Lífeyrissjóð Vest-
mannaeyja.
Ólafur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Birtu, segir það „heppilegra“
ef fjármögnun verksmiðjunnar
væri lokið en að ekki sé komin upp
óánægja hjá stjórnendum lífeyris-
sjóðsins með tafirnar.
„Almennt er það von allra
að þetta gangi og því fyrr
því betra í þeim skilningi.
Hingað til hafa menn
metið seinkunina í þeim
skilningi að hún sé mál-
efnaleg. Ég held að það sé
ljóst að við lögðum öll upp
með ákveðna áætlun og það
er ljóst að henni seinkar og
við getum lítið ráðið við það
að svo stöddu.“
Hlutafjáröflunin, sem lauk
í september í fyrra, var eins og áður
segir fyrri hluti fjármögnunar 121
þúsunds fermetra kísilvers sem á að
framleiða sólarkísil fyrir sólarhlöð og
fullklárað að kosta um 900 milljónir
Bandaríkjadala eða 100 milljarða
króna.
Fjárfestahópurinn sem keypti fimm
prósenta hlut í Símanum í umdeildri
sölu Arion banka í ágúst 2015 getur
nú selt bréfin. Söluhömlum var aflétt
1. janúar en við opnun markaða þann
dag nam gengi hlutabréfa Símans 3,13
krónum. Virði þeirra hafði þá hækk-
að um 24 prósent síðan hópurinn
keypti þau á genginu 2,518.
Viðskiptafélagarnir Sigurbjörn
Þorkelsson, Árni Hauksson og Hall-
björn Karlsson eiga 48 prósenta hlut
í eignarhaldsfélaginu L1088 ehf. sem
heldur utan um eign fjárfestahópsins í
fjarskiptafyrirtækinu. Orri Hauksson,
forstjóri Símans, og Gunnar Fjalar
Helgason, yfirmaður stefnumótunar
og stjórnunar hjá Símanum, eru
skráðir fyrir 16,5 prósentum. Félag-
ið Íshóll ehf. er þriðji stærsti eigandi
L1088 með 15,6 prósenta hlut. Það er
í eigu Stefáns Ákasonar, fyrrverandi
forstöðumanns skuldabréfamiðlunar
Kaupþings. Bertrand Kan, hollenskur
fjárfestir og stjórnarmaður í Símanum,
átti 6,38 prósent. Önnur bréf félagsins
voru í eigu innlendra og erlendra fjár-
festa sem tóku þátt í kaupunum. Arion
banki var harðlega gagnrýndur fyrir
söluna enda fékk hópurinn að kaupa
bréfin í lokuðu söluferli. – hg
Geta selt
Símabréfin
Bréf Japana á uppleið
Nikkei-hlutabréfavísitalan í japönsku kauphöllinni hækkaði um 2,5 prósent á miðvikudag. Hafði hún þá ekki verið hærri í rúmt ár og nam 19.594
stigum. Fréttablaðið/epa
Sparisjóður austurlands átti 0,3 prósenta hlut í greiðslukortafyrirtækinu borgun.
Finnur reyr
Stefánsson
fjárfestir
Jón Árni
Ágústsson
fjárfestir
talið að verkefnið yrði nú lengra á
veg komið þegar þeir tóku þátt í
hlutafjársöfnuninni í ágúst 2015.
Þeir hafi samið um ákveðin tíma-
mörk sem Silicor Materials þurfi að
mæta svo þeir taki ekki fjárfestingu
sína til baka.
Forsvarsmaður eins einkahluta-
félags úr hópnum segist aftur á móti
lítið hafa velt framgangi verksmiðj-
unnar fyrir sér og að aðkoma hans
að verkefninu hafi verið í gegnum
Davíð Stefánsson, stjórnarmann í
Silicor Materials og talsmann fyrir-
tækisins. Davíð svaraði ekki beiðni
Fréttablaðsins um viðtal en hann
hefur bent á að um viðamikla fjár-
festingu sé að ræða sem hafi tafist
af ýmsum ástæðum. Gildistöku
samninga Silicor Materials við Faxa-
flóahafnir, um hafnaraðstöðu og lóð
á Grundartanga, var seinkað um
miðjan desember eða til 20. janúar.
haraldur@frettabladid.is
Finnur Reyr Stefánsson og Steinunn
Jónsdóttir tilheyra þeim hópi. Það
gera einnig þeir Ingi Guðjónsson,
stofnandi Lyfju og viðskiptafélagi
Jóns Árna í Invent Farma, Berglind
Björk Jónsdóttir, fjárfestir og tón-
listarkennari, og eigendur Máln-
ingar hf. í Kópavogi. Þeir fjárfestar
sem blaðið ræddi við vildu ekki
láta nafns síns getið en sögðust hafa
Ólafur
Sigurðsson,
framkvæmda-
stjóri birtu
markaðurinn
24%
er hækkun hlutabréfa með-
lima hópsins í Símanum.
5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r12 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
C
-C
5
F
4
1
B
D
C
-C
4
B
8
1
B
D
C
-C
3
7
C
1
B
D
C
-C
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K