Fréttablaðið - 05.01.2017, Page 17

Fréttablaðið - 05.01.2017, Page 17
Björn Guðmundsson Löggiltur fasteignasali 464 9955 bjorn@byggd.is Jón Rafn Valdimarsson Löggiltur fasteignasali 695 5520 jonrafn@miklaborg.is Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali 824 9093 kjartan@eignamidlun.is Ágúst Guðmundsson Löggiltur fasteignasali 453 5900 agust@krokurinn.is TÆKIFÆRI TIL FERÐAÞJÓNUSTU Á SÖGUFRÆGUM STAÐ 40 eignir til sölu að Hólum í Hjaltadal Til sölu 40 íbúðir í háskólaþorpinu að Hólum í Hjaltadal. Íbúðirnar eru í eigu Nemendagarða Hólaskóla. Gert er ráð fyrir að selja a.m.k. 38 þeirra til sama aðila. Auk þess er um að ræða tvö stök hús sem henta mjög vel sem orlofshús, t.d. fyrir stéttar– eða starfsmannafélög. Hjaltadalur er með fegurstu dölum landsins og Hólar þekktur sögustaður. Eignirnar henta vel í ferðaþjónustu og eru miðsvæðis á Norðurlandi. Fjölmargir útivistarkostir eru í næsta nágrenni og miklir möguleikar á að auka þjónustu á svæðinu, sem og samstarf við Háskólann á Hólum. Hagstætt verð fyrir framsækna aðila, ásett verð 298 m.kr., 40 eignir, 2.699 m2. Nánari upplýsingar um eignirnar veita neðangreindar fasteignasölur. Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík . Sími 588 9090 eignamidlun@eignamidlun.is Samskiptafyrirtækið AT&T tilkynnti í gær að fyrirtækið ætlaði að prófa næstu kynslóð farsímanets, oftast kölluð 5G, í Austin í Texas-ríki á árinu. Verður tæknin notuð til þess að knýja þjónustuna DirecTV Now á heimilum borgarinnar. Fréttastofa CNN greindi frá því að búist væri við því að pruf- urnar færu fram á fyrri hluta þessa árs. Er þeim ætlað að kanna hversu vel 5Gfarsímaneti tekst að meðhöndla mikla umferð. AT&T hélt því fram í fréttatilkynn- ingu að 5G netið sem fyrirtækið væri að þróa næði allt að fjórtán gígabita hraða á sekúndu, sem er mun meiri hraði en fæst með 4G tengingu. Þessi aukni hraði myndi gera neytendum kleift að horfa á myndbönd í mun betri upplausn án þess að þurfa að bíða eftir því að þau hlaðist inn. Tilkoma 5G farsímanets mun væntanlega koma til með að breyta netnotkun snjall- símaeigenda. Aukið geymslupláss og aukinn hraði opna leiðir fyrir hærri upplausn myndbanda og stærri snjall- símaforrit. Mun því þróunin sem hófst með 4G tengingu halda áfram. Annar samskiptarisi, Verizon, býst einnig við því að hefja prufur á 5G neti á árinu og þá er Google með sams konar áætlanir. – þea AT&T prufar 5G farsímanet 5G farsímanet er væntanlegt. Nordicphotos/AFp Facebook býður nú notendum upp á að texta myndbönd sem þeir hlaða upp á síðuna. Fram til þessa hefur það ekki verið hægt nema notandinn hafi gert það áður en myndbandinu var hlaðið upp. Enn sem komið er stendur banda- rískum like-síðum möguleikinn til boða en von er á því að allir notendur Facebook geti textað myndbönd sín á næstunni. Annars vegar er hægt að hengja svokallaða SRT-skrá við myndbandið. Slíkar skrár eru notaðar til þess að texta myndbönd. Þá verður einnig hægt að reiða sig á sjálfvirkt textunar- forrit Facebook en ekki er víst hversu áreiðanlegt það er. Eins og notendur Facebook vita spilast myndbönd á síðunni sjálfkrafa þegar þau rata á skjáinn og án hljóðs. Með tilkomu texta mun notandinn ekki þurfa að kveikja á hljóðinu til þess að vita hvað er í gangi í mynd- böndunum. – þea Facebook textar myndbönd Þessi snjallsímaeigandi er með átta til- kynningar á Facebook. Nordicphotos/AFp Risavaxin verksmiðja rafbílafram- leiðandans Tesla hóf í gær fjölda- framleiðslu lithium-ion rafhlaðna. Er verksmiðjunni ætlað að útvega öllum bílum hinnar nýju tegundar, Model 3, rafhlöður. Einnig mun verksmiðjan framleiða rafhlöður fyrir Powerwall 2, heimilisrafhlöðu Tesla. Fram til þessa hefur Panasonic framleitt rafhlöður fyrir Tesla. Hins vegar er búist við því að hin nýja verksmiðja tryggi að eftirspurn verði annað og að kaupendur Model 3 bíla fái bíla sína í hendurnar á skikkan- legum tíma. Frá þessu greinir Tech- Crunch. Verksmiðjan, sem kölluð er Giga- factory, var opnuð í fyrra og hefur fram til þessa sett saman vörur á borð við Powerwall auk þess að vinna að undirbúningi fyrir komandi vörur Tesla. Enn sem komið er framleiðir verk- smiðjan eingöngu rafhlöður fyrir Powerwall en framleiðsla rafhlaðna í Model 3 hefst á öðrum fjórðungi þessa árs. Það að anna eftirspurn er ekki eina markmið rafbílarisans með þessari breytingu. Fjöldaframleiðsla raf- hlaðna á einnig að lækka verð  á vörum frá Tesla þar sem hagkvæm- ara er að framleiða rafhlöðurnar í miklu magni. Þá verði færri mistök við framleiðslu rafhlaðnanna þar sem verksmiðjan er að miklu leyti sjálfvirk. Þrátt fyrir háþróuð framleiðslu- tæki munu um 6.500 manns starfa við verksmiðjuna þegar hún er fullkláruð og komin á fulla ferð. Tesla tilkynnti á þriðjudag að fyrir- tækið hefði framleitt 83.922 bíla á síðasta ári og skilað 76.230 í hendur kaupenda. Áætlað var að skila 80.000 bílum. Ástæðan þess að það tókst ekki var sögð vera vandamál við flutninga og framleiðslu. – þea Tesla hefur fjöldaframleiðslu rafhlaðna tesla Model s. MyNd/Ap f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 17f i M M t U D A G U r 5 . j A n ú A r 2 0 1 7 0 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D C -A 8 5 4 1 B D C -A 7 1 8 1 B D C -A 5 D C 1 B D C -A 4 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.