Fréttablaðið - 05.01.2017, Síða 18

Fréttablaðið - 05.01.2017, Síða 18
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@frettabladid.is Kastljósinu hefur verið beint að sykruðum gos-drykkjum sem sökudólg þess að landsmenn eru að þyngjast. Það er afar mikil einföldun að einblína á sykraða gosdrykki sem helstu orsök offitu- vandans. Það sem Hagstofan kallar „gosdrykki“ og er túlkað sem „sykrað gos“ er villandi þar sem staðreyndin er sú að einungis innan við helmingur af því er raunveru- lega sykrað gos. Það er því beinlínis rangt að leggja alla gosdrykki að jöfnu, líkt og gert hefur verið í umfjöllun undanfarið. Gosdrykkir skiptast í sykraða gosdrykki, sykurlausa drykki með sætuefnum og kolsýrða vatnsdrykki. Sam- kvæmt Markaðsgreiningu/AC Nielsen á árabilinu 2012 til 2016 hefur vægi sykraðra drykkja sem seldir eru á Íslandi minnkað úr 59 prósentum í 48 prósent. Á sama tíma hefur vægi sykurlausra drykkja (ósætra gosdrykkja og drykkja með sætuefnum) vaxið úr 41 prósenti í 52. Neysluhegðun Íslendinga er að breytast hratt. Það hefur ekkert með sykurskatta að gera heldur er skýringin miklu fremur sú að neytendur eru að taka upplýsta ákvörðun um sína neyslu. Vöruþróun og vöruframboð íslenskra framleiðenda tekur mið af þessu og er í stöðugri þróun til að mæta breyttu neyslumynstri. Þær vörur sem eru í langmestum vexti eru kolsýrðir vatnsdrykkir og hefur sala á slíkum drykkjum vaxið um 83 prósent frá árinu 2010. Á sama tíma hefur sala á sykruðum gos- drykkjum minnkað um 15 prósent og neysla á sykurlaus- um gosdrykkjum hefur dregist saman um sex prósent. Þá má nefna að sykurneysla á Íslandi hefur minnkað um nær tíu kíló á mann á nærri fimmtíu ára tímabili. Árið 1967 var neysla sykurs á mann 51,7 kg og árið 2014 var neysla sykurs komin niður í 41,8 kg á mann. Það er öfug fylgni milli heildarneyslu sykurs á mann og aukningar á líkamsþyngd og því erfitt að koma auga á orsakasamhengi þar á milli. Þessar staðreyndir staðfesta að það er ekki sykrinum einum að kenna að landsmenn þyngjast og ljóst að gosið er ekki sökudólgurinn. Það blasir því við að leita þarf orsakanna víðar. Gosið er ekki sökudólgurinn Almar Guðmundsson framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins Það er því beinlínis rangt að leggja alla gosdrykki að jöfnu, líkt og gert hefur verið í umfjöllun undanfarið. Gríptu lyfin á leiðinni heim Apótek Garðarbæjar í alfaraleið Litlatún 3, Garðarbæ | Sími 577 5010 Stólaleikurinn Stólaleikur væntanlegra ríkis­ stjórnarflokka er hafinn. Fréttir bárust af því í gær að Sjálf stæðis­ flokkur hlyti fimm ráðuneyti, Viðreisn þrjú og Björt framtíð tvö. Fyrir liggur að Bjarni Benediktsson verður forsætisráðherra og Bene­ dikt Jóhannesson, formaður Við­ reisnar, er sagður sækja það fast að fá fjármálaráðuneytið. Margir eru þeirrar skoðunar að Óttari Proppé færi mennta­ og menningarmála­ ráðuneytið vel en Óttarr er sjálfur sagður spenntastur fyrir utanríkis­ ráðuneytinu. Því er ekki að neita að sinnepsgulu jakkafötin myndu sóma sér vel á fundum utanríkis­ ráðherra Evrópu, innan um alla heimsins tóna af svörtum fötum. Kvennaframboð Það hefur lengi legið fyrir að Sjálf­ stæðisflokkurinn er í vandræðum þegar kemur að því að velja konur í ráðherrastóla. Ólöf Nordal er eini kvenkyns oddviti flokksins og hefur háð harða baráttu við heilsuleysi. Ef til stendur að hafa sem jafnasta kynjaskiptingu þurfa Sjálfstæðismenn að hafa tvær konur í ríkisstjórn, ef önnur er Ólöf þyrfti engu að síður að líta fram hjá karlkyns oddvitum og neðar á lista flokksins. Engin kona í öðru sæti á listum flokksins hefur þingreynslu. Kannski Sjálfstæðis­ menn taki kvenkyns utanþings­ ráðherra í ríkisstjórnina. Í þeim spám hefur nafn Svanhildar Hólm Valsdóttur, aðstoðarmanns Bjarna Benediktssonar, oftast borið á góma. snaeros@frettabladid.is Nýlega samþykktu Frakkar breytingar á löggjöf um líffæragjafir sem tóku gildi um áramótin. Franska löggjöfin grundvallast á svokölluðu ætluðu samþykki. Það felur í sér að hinn látni hafi samþykkt að gefa líffærin úr sér eftir andlátið til að bjarga lífi annarrar manneskju nema fyrir liggi yfirlýsing um hið gagnstæða. Þetta þýðir að allir verða sjálfkrafa líffæragjafar nema til staðar sé yfirlýsing um annað. Aðstand- endum látinna verður framvegis ekki heimilt að neita læknum um að taka líffæri úr látnum og græða í annað fólk í Frakklandi. Hugmyndir um ætlað samþykki hafa ekki hlotið brautargengi hér á landi. Árið 2012 dagaði tvær þingsályktunartillögur Sivjar Friðleifsdóttur um efnið uppi í þinginu. Árið 2014 hafnaði velferðar- nefnd Alþingis frumvarpi 12 þingmanna úr öllum flokkum um efnið. Meðal annars á þeirri forsendu að ætlað samþykki færi gegn sjálfsákvörðunarrétti einstaklingsins. Til þess að gerast líffæragjafi á Íslandi þarf maður að fylla út skjal sem aðgengilegt er á heimasíðu landlæknis á vefnum donor.landlaeknir.is. Þar þarf maður að taka afstöðu til líffæragjafar með rafrænum skilríkjum eða með íslykli sem aðgengilegur er í heimabanka. Ef löggjöf um ætlað samþykki yrði inn- leidd hér á Íslandi væri þetta úr sögunni og taflinu væri snúið við. Menn þyrftu að leggja á sig þessa fyrirhöfn, sem er þó ekki stórvægileg, til að gefa yfir- lýsingu um hið gagnstæða. Það er erfitt að hugsa sér hvers vegna einhver ætti að vera andsnúinn því að gefa úr sér líffærin í ljósi þess að þau koma ekki að neinum notum eftir dauða og breyt- ast í ösku ofan í jörðinni að því gefnu að hinn látni hafi ekki verið brenndur áður. Fyrir því gætu hins vegar verið einhver prinsipp eða trúarsannfæring. Ef svo ber undir er það enn frekar við hæfi að einstaklingur sem getur ekki gefið líffæri sín vegna eigin trúarskoðana eða sannfæringar lýsi því sérstaklega yfir. Vilhjálmur Árnason heimspekingur hefur fært fyrir því rök að réttara geti verið að gera ráð fyrir að einstaklingar vilji gefa líffæri sín en ekki, þar sem eðlilegt hljóti að vera að manneskjur vilji koma öðrum einstaklingum sam- félagsins til hjálpar frekar en hitt. Það væri hægt að fara leið meðalhófsins milli gildandi laga á Íslandi og frönsku löggjafarinnar með því að einfalda skráningu líffæragjafarinnar. Ágæt til- laga að lausn í þessu máli var sett fram í vikunni sem ástæða er til að taka undir. Hún felst í því að einfalda ferlið við samþykki. Þetta væri hægt að gera með rafrænum hætti með einni spurningu við villuprófun skattframtals þar sem notandinn myndi haka við þar til gerðan reit áður en skattframtalið væri sent og spurningin kæmi bara fram í þetta eina skipti. Þá lægi fyrir samþykki við andlát, hægt væri að fjölga skráðum líffæragjöfum í einu vetfangi og ekki kæmi upp ágreiningur á milli heilbrigðiskerfisins og fjöl- skyldu hins látna um hugsanlegan vafa um afstöðu hans við andlát. Að gefa líf 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð SKOÐUN 0 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B D C -A D 4 4 1 B D C -A C 0 8 1 B D C -A A C C 1 B D C -A 9 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.