Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 24
5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð
Á forsíðu Tryggingastofn-unar stendur: „Gleðilegt ár. Greiðslur 1. janúar 2017.
Mikilvæg atriði vegna greiðslna TR
þann 1. janúar: – Hækkun fjárhæða
um áramót verður 7,5%. – Greitt
verður samkvæmt nýjum lögum um
almannatryggingar. Miðað verður
við staðgreiðslu og persónu afslátt
ársins 2016 í greiðslunum 1. janúar
sem verður síðan leiðrétt 1. febrúar.“
Þessi kveðja Tryggingastofnunar
til eldri borgara og öryrkja, sem eiga
að njóta lágmarkstryggingar til að
lifa, er eins og blekking í framhaldi
af allri umræðunni um að stórkost-
legar bætur hafi verið greiddar inn í
málaflokkinn með nýsamþykktum
lögum um almannatryggingar.
Hið rétta er að þessa 7,5%
hækkun hefði orðið að greiða eftir
eldri lögum og er greidd ári eftir á.
Ákvörðunin „skal taka mið af launa-
þróun, þó þannig að þær hækki
aldrei minna en verðlag samkvæmt
vísitölu neysluverðs“ (69. gr.). Þessir
aðilar fá sína lágmarkshækkun
miðað við aðra, greidda ári eftir á,
í prósentum miðað við sínar lág-
marksgreiðslur, um 230 þúsund kr.
á mánuði og að auki þurfa þeir að
greiða skatt af þeirri upphæð um 30
þúsund og er þannig ætlað að lifa af
um 200 þúsund kr. á mánuði eftir
þessa hækkun!
Þegar rýnt er í hinar stórkostlegu
bætur sem lofað var með nýjum
lögum um almannatryggingar, sem
sagt er að hafi kostað ríkissjóð tutt-
ugu milljarða króna, sést hvergi
kostnaðargreining þessarar upp-
hæðar, t.d. hvað kostar 7,5% hækk-
unin, sem án lagabreytingar hefði
orðið að greiða, hvað sparast með
afnámi grunnlífeyris til tekjuhærri
eldri borgara og hvað sparast með
45% skerðingu á tekjum umfram
25 þúsund kr. á mánuði, þeirra sem
verða að vinna sér til lífs eða þeirra
sem vilja vinna sér til sáluhjálpar.
Þessi breyting á lögunum, að lækka
frítekjumark úr 109 þúsund í 25 þús-
und á mánuði gagnvart eldri borg-
urum, er til ævarandi skammar fyrir
þá sem samþykktu þetta á Alþingi sl.
haust, einnig fyrir alla hina sem sátu
hjá við atkvæðagreiðsluna. Enginn
greiddi þar atkvæði á móti. Eru
alþingismenn tilbúnir að greiða um
63% skatt af öllum launum sínum
og fríðindum umfram 230 þúsund
á mánuði? Útskýring frá Trygginga-
stofnun til að milda þessa skerðingu
er, að af 1.000 kr. á mánuði umfram
25 þúsund til eldri borgara, sé tekinn
skattur um 370 kr., síðan sé lífeyris-
greiðsla lækkuð um 45% af eftir-
stöðvum, eða 240 kr. og þá haldi sá
sem vinnur, eftir 347 kr. Greiðslum
til öryrkja er haldið niðri með skerð-
ingum og mismunun milli einstakl-
inga, samsvarandi til skammar.
Þetta er reikningsaðferðin með
áramótakveðjunni til þeirra, sem
stofnunin á að tryggja lífsafkomu!
Allar spurningarnar til stofnunar-
innar og öll svörin sem liggja þar
fyrir bera með sér óskiljanleg lög
skerðinga og millifærslna milli
bótaflokka, sem verður að afnema
og einfalda. Skattleysismörk verða
að hækka upp í 300 þúsund krónur
á mánuði til að bæta lífeyrisþegum,
öryrkjum og láglaunafólki kjara-
rýrnun miðað við aðra, einkum
miðað við alþingismenn, sem vildu
ekki breyta ólöglegri 44% hækkun
kjara ráðs til sín, meira að segja
afturvirkt, þrátt fyrir að hafa fengið
7,15% hækkun 1. júní 2016 og í árs-
lok 2015 fengu þeir 9,3% hækkun
afturvirka til 1. mars það ár. Höfum
í huga samanburðinn við hækk-
anir Tryggingastofnunar til sinna
lífeyris þega: 9,6% í ársbyrjun 2016
fyrir árið 2015 og núna í ársbyrjun
2017, 7,5% fyrir árið 2016. Gerum
okkur einnig grein fyrir hinum
mikla mun á prósentutölunni af
lágum greiðslum annars vegar og
hins vegar þessum himinháu, með
öllum fríðindunum. Hækkanir á
síðasta ári á mánuði til alþingis-
manna samsvara grunnlaunum á
mánuði til kennara og eru meira en
helmingi hærri en lífeyrisgreiðslur
Tryggingastofnunar á mánuði til
einstaklinga. Þetta er áramóta-
kveðja Tryggingastofnunar og
alþingismanna til lífeyrisþega um
gleðilegt fátæktarár til öryrkja og
hluta eldri borgara 2017.
Áramótakveðja
Tryggingastofnunar
Allar spurningarnar til
stofnunarinnar og öll svörin
sem liggja þar fyrir bera með
sér óskiljanleg lög skerðinga
og millifærslna milli bóta-
flokka, sem verður að af-
nema og einfalda.
Halldór
Gunnarsson
varaformaður
flokks fólksins
Ferðamenn sem til Íslands koma gera sífellt meiri kröfur um gæði þjónustunnar sem
þeir kaupa og þeir bera hana saman
við bestu ferðamannastaði í heimi.
Ferðamenn vilja geta treyst ferða-
þjónustunni og deila upplifun
sinni jafnóðum með umsögnum
og myndum sem birtast samtímis
úti um allan heim. Samkeppnin
er hörð og ferðaþjónustufyrirtæki
með hugsunarhátt gullgrafara sem
tjaldar til einnar nætur eru skamm-
líf og geta skemmt orðstír Íslands.
Hraður vöxtur ferðaþjónustunnar
á Íslandi dregur fram ýmsar áskor-
anir sem tengjast samfélagsábyrgð
fyrirtækja. Þar má telja aukinn
ágang á náttúruna, að réttindi starfs-
fólks séu virt, að nærsamfélögin sem
ferðamenn heimsækja fái sann-
gjarnan skerf af ávinningnum og
ekki síst að öryggi ferðamanna sé
tryggt og þeim veitt góð þjónusta.
Það er því á þessum grunni sem
FESTA, miðstöð um samfélags-
ábyrgð og Íslenski ferðaklasinn efla
til hvatningarverkefnis um ábyrga
ferðaþjónustu. Verkefnið felur í sér
að fyrirtæki skrifa undir einfalda og
skýra yfirlýsingu um að þau muni
bjóða ábyrga ferðaþjónustu. Fyrir-
tækjunum verður í kjölfarið boðin
fræðsla um ábyrga starfshætti og
sjálfbærni. Samstarfsaðilar að verk-
efninu eru SAF, Ferðamálastofa,
Íslandsstofa, Höfuðborgarstofa,
Markaðsstofur landshlutanna og
Safetravel.
Í dag sýnir fjöldi fyrirtækja í
ferðaþjónustu fagmennsku og ábyrg
vinnubrögð. Sífellt fleiri taka upp
markviss umhverfis- og gæðakerfi
eins og t.d. Vakann sem er orðið
þekkt og virt kerfi innan ferða-
þjónustunnar. Hvatningarverk-
efnið „Ábyrg ferðaþjónusta“ á bæði
við um þá sem eru nú þegar komnir
vel á veg og eru fyrirmyndir, eins og
þau fyrirtæki sem eru enn í start-
holunum og vilja setja sér mælanleg
markmið í sjálfbærni og samfélags-
ábyrgð.
Tilgangur verkefnisins er að
stuðla að því að Ísland verði
ákjósan legur áfangastaður ferða-
manna um ókomna tíð sem styður
við sjálfbærni fyrir komandi kyn-
slóðir þjóðarinnar. Forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannesson, er verndari
verkefnisins, sem undirstrikar að
góður orðstír ferðaþjónustunnar
skiptir okkur öll máli.
Yfirlýsingin um ábyrga ferða-
þjónustu verður undirrituð þann
10. janúar. Við hvetjum öll fyrir-
tæki sem tengjast ferðaþjónustu
til að skrá fyrirtæki sitt til þátttöku
í verkefninu. Skráning fer fram á
heimasíðu Festu, www.festasam-
felagsabyrgd.is.
Þarf að hvetja til
ábyrgrar ferðaþjónustu?
Ketill Berg
Magnússon
framkvæmda-
stjóri FESTU –
miðstöðvar um
samfélagsábyrgð
Ásta Kristín
Sigurjónsdóttir
klasastjóri
Íslenska ferða-
klasans
L-Mesitran
Náttúruleg
sáragræðsla
með hunangi
Vörurnar fást í Lyf og heilsu, Lyfjaveri, Apótekaranum, Hraunbergsapóteki,
Lyfsalanum Glæsibæ,Akureyrarapóteki, Apóteki Mos og Apóteki Ólafsvíkur.
Nánari upplýsingar
fást á www.wh.is.
Þorrablót
Árshátíðir
Grímuböll
Dimmisjón
ofl. & ofl.
Ykkar skemmtun....
....okkar fókus
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
M
ER
KI
Ð
M
IT
T
www.gilbert.is
FRISLAND CLASSIC
TÍMALAUS GÆÐI
VIÐ KYNNUM
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
C
-E
8
8
4
1
B
D
C
-E
7
4
8
1
B
D
C
-E
6
0
C
1
B
D
C
-E
4
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K