Fréttablaðið - 05.01.2017, Side 32
Fatasöfn er að finna í mörgum af helstu stórborgum Svíþjóðar. NordicphotoS/getty
Fatasöfn er nú að finna í mörg-
um af helstu stórborgum Svíþjóð-
ar auk þess sem pop-up fatasöfn
skjóta reglulega upp kollinum.
Markmið þeirra er að nýta þann
fatnað sem er í umferð betur og
draga úr neyslu og þar með um-
hverfisáhrifum fataiðnaðarins.
Fyrirkomulagið sparar peninga
auk þess sem notendur fá útrás
fyrir þá upplifun að klæðast nýrri
flík sem margir sækjast eftir án
þess að það kosti mikið eða nokkuð.
Hugmyndin er að fólk þurfi
ekki endilega að eiga fötin sem það
klæðist og eins að það geti klætt sig
með fjölbreyttari hætti en ella. Þá
skiptir einnig máli að sem flestir
hafi aðgang að tískuvarningi gegn
lágu og jafnvel engu gjaldi.
Fyrirkomulagið er mismun-
andi eftir söfnunum. Sums stað-
ar kemur fólk með þrjár flíkur að
heiman og fær þrjár aðrar í skipt-
um. Annars staðar þarf ekki að
leggja neitt af mörkum heldur er
einungis hægt að fá lánað. Sums
staðar þarf að kaupa fatasafnskort
en annars staðar er lánið ókeypis.
Hversu lengi má hafa flíkurnar að
láni er mjög mismunandi, allt frá
nokkrum vikum upp í nokkra mán-
uði. Eina skilyrðið er að skila þeim
heilum og hreinum.
Það er misjafnt hvernig fata-
söfnin byggja upp lagerinn. Skipti-
fyrirkomulag er sem fyrr segir
sums staðar við lýði en annars stað-
ar byggist lagerinn að einhverju
leyti upp á gjöfum einstaklinga
og fataframleiðenda. Filippa K fer
þar fremst í flokki en árlega gefur
framleiðandinn föt úr nýjustu fata-
línunni. Filippa K, sem er í grunn-
inn sænskt merki, er með yfirlýsta
umhverfisstefnu og leggur upp úr
því að framleiða endingar góðar
flíkur.
Með því að gefa hluta framleiðsl-
unnar til fatasafnsins undirstrik-
ar fyrirtækið endingu og gæði fatn-
aðarins. Flíkurnar á fatasöfnunum
eru því síður en svo alltaf vintage
eða dottnar úr tísku. Talsvert er
um að tísku- en umhverfismeðvit-
aðir einstaklingar nýti sér þjón-
ustu safnanna til að geta endur-
nýjað innihaldið í fataskápnum
með reglubundnu millibili án þess
að auka neysluna.
Fatalán í
stað Fatakaupa
Fatasöfn fóru að gera vart við sig í Svíþjóð fyrir nokkrum árum.
Fyrirkomulagið er svipað og á hefðbundnum bókasöfnum að því
undanskildu að notendur fá lánuð föt og fylgihluti í stað bóka.
Fjörutíu ár eru síðan bandaríska
leikkonan Diane Keaton lék eitt
sitt frægasta hlutverk, Annie
Hall, í samnefndri kvikmynd
Woody Allen en myndin kom út
árið 1977. Keaton er fædd 5. janú-
ar árið 1946 og á því sjötíu og eins
árs afmæli í dag.
Leikferill Diane Keaton
hófst á leiksviði. Hún sást
fyrst á hvíta tjaldinu árið
1970. Fyrsta bitastæða hlut-
verkið hennar var Kay
Adams Corleone í Guð-
föðurnum árið
1972 en eftir
að hún kynnt-
ist Woody Allen og lék í
myndum hans Play it again
Sam, Sleeper, Love and death
og loks Annie Hall, mótaði
hún stíl sinn sem gamanleik-
kona. Fyrir hlutverk sitt sem
Annie Hall fékk hún Óskar-
inn.
Woody Allen og Diane
Keaton áttu í sambandi með
hléum á þessum árum og á
Woody að hafa byggt hlut-
verk Annie á persónu-
leika Diane sjálfrar.
Annie státar meðal ann-
ars af sérstökum fatastíl
og komu sumir búning-
anna úr fataskáp Diane.
Víðar karlmannsbux-
ur og vesti, jakkaföt,
hálsbindi og hattar ein-
kenna Annie og eftir að
myndin kom út urðu buxnadragt-
ir og karlmannsföt vinsæl meðal
kvenna. Diane hefur gegnum tíð-
ina verið hrifin af „herralegum“
fatnaði, jakkafötum, rúllukraga-
peysum og sést oftar en ekki með
hatt.
www.wikipedia.org
Diane Keaton er 71 árs
diane Keaton sló í gegn sem hin skondna Annie hall í samnefndri kvikmynd
Woody Allen. NordicphotoS/getty
Fa
rv
i.i
s
//
0
11
7
KRINGLUNNI | 588 2300
KJÓLL
6.995
89%
af lesendum dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 18–49 ára
lesa Fréttablaðið daglega.
Lesa bara FBL
68%
Lesa bæði
FBL OG MBL
21%
Lesa bara MBL
11%
Allt sem þú þarft ...
*Fréttablaðið og Morgunblaðið.
Heimild : Prentmiðlamæling Gallup júl.-sep. 2016
5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r6 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
C
-A
8
5
4
1
B
D
C
-A
7
1
8
1
B
D
C
-A
5
D
C
1
B
D
C
-A
4
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K