Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 44
Í dag
19.05 Keflavík - Njarðvík Sport
23.00 Tourn. of Champions Golfst.
19.15 Stjarnan - Þór Ak. Ásgarður
19.15 Keflavík - Njarðvík Keflavík
19.15 Skallagr. - Haukar Borgarnes
19.15 Snæfell - ÍR Stykkish.
Strákarnir hafa ekki tapað
fyrir egyptum í níu ár
íslenska handboltalandsliðið
hefur í dag keppni á Bygma Cup
æfingamótinu í Danmörku. fyrsti
leikur liðsins er á móti egyptalandi
klukkan 17.00 að íslenskum tíma.
egyptar eru að undirbúa sig fyrir
hm í frakklandi eins og íslenska
liðið og mæta þar meðal annars
tveimur landsliðum undir stjórn
íslendinga (Danmörku og Svíþjóð).
íslenska landsliðið hefur unnið tvo
síðustu leiki sína á móti egypta-
landi og ekki tapað fyrir þeim
í tæp níu ár eða síðan í síðasta
undirbúningsleik sínum fyrir
Ólympíuleikana
ógleymanlegu í
peking 2008.
guðjón Valur
Sigurðsson
skoraði
13 mörk
í síðasta
leik
sínum
á móti
egypta-
landi sem
var á hm í
katar 2015.
upplýSingar SÓttar til
þjálfara í fÓtBoltanum
andri Steinn Birgisson, fyrrverandi
þjálfari 3. deildarliðs þróttar í
Vogum, segir að reglulega hafi
hann verið inntur eftir upplýsing-
um um stöðu liðsins og heilsufar
leikmanna. er það gert í því skyni
að afla sér upplýsinga sem nýtast
fyrir veðmálastarfsemi í tengslum
við íslenska knattspyrnuleiki.
„Ég held að flestir þjálfarar lendi í
þessu, sérstaklega í neðri deild-
unum. Ég veit svo sem ekki hvernig
þetta er hjá stóru klúbbunum,“
sagði andri Steinn við íþróttadeild.
íslensk rannsókn leiddi í ljós að
12,9 prósent leikmanna á íslandi
hafi verið innt eftir upplýsingum
um eigið lið af erlendum veðmála-
fyrirtækjum. nánar má lesa um
þessi mál á íþróttavef Vísis.
Nýjast
Enska úrvalsdeildin
Tottenham - Chelsea 2-0
1-0 Dele Alli (45.+2), 2-0 Dele Alli (54.). Þrett-
án leikja sigurganga Chelsea er á enda en
þetta var fyrsta tapið síðan 24. september.
Staðan
FÉLAG L U J T MÖRK S
Chelsea 20 16 1 3 42-15 49
Liverpool 20 13 5 2 48-23 44
Tottenham 20 12 6 2 39-14 42
Man. City 20 13 3 4 41-22 42
Arsenal 20 12 5 3 44-22 41
Man. UTd 20 11 6 3 31-19 39
Everton 20 8 6 6 28-23 30
West Brom 20 8 5 7 28-24 29
Bournem. 20 7 4 9 29-34 25
Southampt. 20 6 6 8 19-25 24
Stoke City 20 6 6 8 24-32 24
Burnley 20 7 2 11 22-31 23
West Ham 20 6 4 10 23-35 22
Watford 20 6 4 10 23-36 22
Leicester 20 5 6 9 24-31 21
Middlesbr. 20 4 7 9 17-22 19
Cry. Palace 20 4 4 12 30-37 16
Sunderland 20 4 3 13 19-37 15
Swansea 20 4 3 13 23-45 15
Hull City 20 3 4 13 17-44 13
5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r32 s p o r T ∙ F r É T T a B L a ð I ð
Sport
Skallaprinsinn af White Hart Lane stöðvaði sigurgöngu Chelsea
Tvenna í þremur leikjum í röð Hinn tvítugi Dele Alli skoraði bæði mörk Tottenham-liðsins í 2-0 sigri á toppliði Chelsea á White Hart Lane í gær og
hefur strákurinn þar með skorað tvö mörk í þremur leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni og alls sjö mörk í síðustu fjórum leikjum sínum í ensku
úrvalsdeildinni. Hér sést Dele Alli skora seinna skallamarkið sitt í gær en Daninn Christian Eriksen lagði upp bæði mörkin hans. FRÉTTABLAðið/GETTy
KörFUBoLTI „það er ekki hægt að
horfa fram hjá því að tindastóll
gerði rétt með að skipta um þjálfara
og fá sér annan útlending. það eru
Stólarnir búnir að sýna með því að
vinna fimm leiki í röð og vera í efsta
sætinu um jólin,“ segir kristinn g.
friðriksson, fyrrverandi landsliðs-
maður og sérfræðingur íþrótta-
deildar 365 um Domino’s-deild
karla í körfunni, sem fer aftur af stað
á nýju ári í kvöld.
Stólarnir voru búnir að ná fjórum
sigrum og tapa tveimur leikjum
þegar þeir skiptu út joe Costa fyrir
israel martin í þjálfarastólnum og
fengu Bandaríkjamanninn antonio
hester. Síðan hefur liðið ekki tapað
leik. það er allt annað að sjá það.
„andrúmsloftið virðist líka hafa
snarbreyst,“ segir kristinn sem
fréttablaðið fékk til að horfa fram
á veginn og rýna í seinni ellefu
umferðirnar í deildinni áður en
kemur að úrslitakeppninni.
„þar sem andrúmsloftið hefur
breyst svona mikið grunar mig að
undirliggjandi hafi verið kergja
og það er erfitt að spila í þannig
umhverfi. Ég þekki það vel enda
lenti ég í nokkrum þannig liðum.
þessar breytingar hafa leyst eitthvað
úr læðingi þarna og það kæmi mér
verulega á óvart, í raun yrði ég bara
fyrir vonbrigðum, ef Stólarnir fara
ekki alla leið í úrslit.“
KR bíður eftir Jóni Arnóri
kristinn segir að þetta verði þriggja
hesta kapphlaup að íslandsmeist-
aratitlinum á milli tindastóls,
Stjörnunnar og kr en tvö síðar-
nefndu liðin eru í öðru og þriðja
sæti deildarinnar. „þau ættu öll að
fara í lokaúrslitin en þangað komast
bara tvö. það er svekkjandi því eitt
liðið verður að heltast úr lestinni á
endanum,“ segir kristinn.
Stjarnan skipti út Bandaríkja-
manninum Devon austin fyrir
nýjan bakvörð þar sem þeir hafa
fengið styrk í kraftframherjastöð-
una. tímabilið ræðst á því hvað
þessi nýi maður getur.
„fyrir mér er þetta einfalt. þessi gæi
„meikar eða breikar“ tímabilið hjá
Stjörnunni. ef hann er nógu góður þá
er liðið nógu gott til að verða íslands-
meistari. þetta er áhætta sem Stjarnan
er að taka en það er bara gott því líf
án áhættu er sorglegt. það er bara að
vonast eftir því að þessi nýi gaur sé
betri en skuggamaðurinn sem var
fyrir áramót.“
en hvað með kr? „þeir eru ekki
enn búnir að skipta um kana og
eru bara að bíða eftir jóni arnóri.
það finnst mér mistök hjá þeim.
þeir eiga að vera í stakk búnir til
að vinna titilinn án jóns og svo fá
hann bara inn þegar hann kemur
inn. kr vann titilinn ekkert rosa-
lega sannfærandi í fyrra og er núna
án Craions þannig að mér finnst
þetta viðhorf ekki nógu gott,“ segir
kristinn.
Nýliðarnir dala
grindavík er í fjórða sæti og þar
telur kristinn að liðið verði eftir 22
umferðir. engin breyting verður á
efstu fjórum en haukarnir eiga eftir
að koma upp á meðan nýliðarnir
munu lenda í erfiðleikum.
„Skallagrímur er búinn að vinna
nokkra leiki án þess að vera að spila
eitthvað rosalega vel. Skallarnir
treysta svolítið á gamla menn eins
og magga gunn og Darrell flake
sem er ekki nógu gott. þeir munu
dala verulega og þór frá akureyri
missir flugið, held ég. þorlákshafn-
ar-þórsarar og haukar fara að vinna
leiki og verða sterkari núna í seinni
hlutanum,“ segir kristinn.
Jákvæðara en erfitt hjá Njarðvík
Stórlið njarðvíkur er í fallsæti eftir
fyrri hlutann sem er fáheyrt og
óboðlegt þar á bæ. Daníel guðni
guðmundsson, þjálfari liðsins, þarf
ekki lengur að vera með Bonneau-
drauginn svífandi yfir sér því liðið
er búið að fá myron Dempsey sem
áður spilaði með tindastóli.
„Danni er kominn með liðið sem
hann fær þannig að hann þarf ekk-
ert að vesenast í því lengur. það er
algjörlega fráleitt að halda að þetta
Þriggja hesta kapphlaup
Domino’s-deild karla í körfubolta fer aftur af stað eftir jólafrí í kvöld. Hún hefst með látum með Suðurnesja-
slag. Kristinn G. Friðriksson, sérfræðingur íþróttadeildar 365, fer yfir seinni hlutann fyrir Fréttablaðið.
Tólfta umferðin:
Í dag:
19.15 Keflavík - Njarðvík
Stöð 2 Sport HD
19.15 Stjarnan - Þór Ak.
19.15 Skallagrímur - Haukar
19.15 Snæfell - ÍR
Á morgun:
19.15 Þór Þ. - Grindavík
20.00 Tindastóll - KR
Stöð 2 Sport HD
22.00 Domino’s-Körfuboltakvöld
Stöð 2 Sport HD
Þeir eiga að vera í
stakk búnir til að
vinna titilinn án Jóns og svo
fá hann bara inn þegar hann
kemur inn.
Kristinn G. Friðriks-
son, sérfræðingur
365 um Domino´s-
deildina
2.826
Dagar síðan Jón Arnór
Stefánsson spilaði síðast í
efstu deild á Íslandi en búist
er við endurkomu hans í Kr-
liðið á móti tindastóli annað
kvöld.
lið núna sé ekki betra en það sem
spilaði fyrir áramót,“ segir kristinn
en fljúga þeir grænu þá inn í úrslita-
keppnina?
„þeir munu þurfa að hafa fyrir því
að komast í úrslitakeppnina ef það
verður rétt hjá mér að haukarnir
fari á flug. þetta verður erfitt hjá
njarðvík en liðið ætti að komast
í úrslitakeppnina með þessu nýja
blóði,“ segir kristinn g. friðriksson.
tomas@365.is
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
C
-C
F
D
4
1
B
D
C
-C
E
9
8
1
B
D
C
-C
D
5
C
1
B
D
C
-C
C
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K