Fréttablaðið - 05.01.2017, Page 46
„Þetta er að sjálfsögðu mjög mikil viður-
kenning, ekki síst vegna þess að það veit-
ir ekki af því að minna samfélagið á vægi
menningarinnar, það er alls ekki mikið
um menningarverðlaun á Íslandi,“ segir
Elín Hansdóttir myndlistarkona sem
hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin
annan janúar.
Í dómnefnd sátu frú Vigdís Finnboga-
dóttir, sem er formaður nefndarinnar,
Rannveig Rist, Þórunn Sigurðardóttir og
Örnólfur Thorsson. Íslensku bjartsýnis-
verðlaunin voru fyrst afhent árið 1981 og
voru allt til ársins 1999 kennd við upp-
hafsmann sinn, Danann Peter Brøste.
„Þau voru á sínum tíma stofnuð vegna
þess að Brøste varð svo uppnuminn af
því þegar Vigdís Finnbogadóttir varð
forseti Íslands. Það var ekki síst mikið
gleðiefni í mínu lífi að fá að hitta hana
við afhendingu verðlaunanna, þar sem
hún er mér mikil fyrirmynd og verður
líklega alltaf ein stærsta fyrirmynd
íslenskra kvenna,“ segir Elín.
Íslensku bjartsýnisverðlaunin hafa
fyrir löngu fest sig í sessi. En árið 2000
varð ISAL bakhjarl verðlaunanna.
„Verðlaunin eru auðvitað mikil viður-
kenning og hafa hvetjandi áhrif fyrir mig
til að halda áfram starfi mínu. Sköpunar-
ferli myndlistarmanna er mikið óvissu-
ferli og maður er í stöðugri rússíbanaferð
svo þetta er virkilega mikil hvatning fyrir
mig til að halda áfram,“ útskýrir Elín.
Elín útskrifaðist með BA-próf frá
Listaháskóla Íslands og magisterspróf
frá Berlín-Weissensee listaháskólanum.
Hún hefur haldið fjölda einkasýninga
víðsvegar um heiminn. Nú er hún með
sýningu í Galleríi i8 sem stendur til
4. febrúar.
„Þetta eru níu ljósmyndir sem ég er að
sýna, sem eru samt sem áður mjög rýmis-
bundnar, en þær eru teknar inni í sýningar-
rýminu sjálfu. Ég er að nota gamla blekking-
araðferð úr kvikmyndaheiminum, þar sem
glerplötum var stillt upp fyrir framan kvik-
myndavélina, og viðbætur við landslag eða
rými voru málaðar á glerið, svo var skotið í
gegn um glerið, sem þjónaði þeim tilgangi
að bæta við eða breyta rými frá sjónar-
horni myndavélarinnar. Það sem ég er að
gera í þessu tilfelli er að reyna að stroka út
stóra súlu í miðju rýminu með því að setja í
hennar stað svífandi blómvönd sem sést frá
níu mismunandi sjónarhornum,“ útskýrir
Elín og bætir við að þetta sé alls ekki eins
flókið og það hljómar.
Á næstunni mun Elín einblína á vinnu-
stofuvinnu, þar sem hún ætlar að taka sér
tíma til að skapa og búa til ný verk.
„Ég mun taka mér tíma á næstunni til
að þess að vinna verk. Ég legg það nú ekki
í vana minn að plana marga mánuði fram
í tímann. En það koma alltaf ný og spenn-
andi verkefni til að takast á við,“ segir Elín
að lokum. gudrunjona@frettabladid.is
Elín hlaut bjartsýnisverðlaunin
Íslensku bjartsýnisverðlaunin eru árleg menningarverðlaun sem eiga sér langa sögu. Þau
voru veitt í þrítugasta og sjötta skipti á Kjarvalsstöðum annan janúar og forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Elínu Hansdóttur myndlistarkonu verðlaunin.
Elín Hansdóttir ásamt Rannveigu Rist og Guðna Th. Jóhannessyni. FRéTTablaðið/ERniR
Ástkær eiginkona mín,
móðir, amma og langamma,
Pálína Ágústa Jónsdóttir
Sólvöllum 1, Stokkseyri,
sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands að
morgni aðfangadags verður jarðsungin
frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn
7. janúar kl. 13.00.
Kristinn Jón Reynir Kristinsson,
fjölskylda og tengdabörn.
Okkar ástkær,
Þorbergur Benedikt
Guðmundsson
hjúkrunarheimilinu Ísafold,
Garðabæ,
andaðist 14. desember. Útförin fer fram
í dag, fimmtudaginn 5. janúar kl. 13.00
frá Garðakirkju á Álftanesi.
Aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Ingi Guðjón Magnfreðsson
Fjarðarstræti 57, Ísafirði,
lést laugardaginn 3. desember. Útför
hans fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 7. janúar nk. kl. 14.00.
Björk Ingadóttir
Víðir Ingason Auðbjörg Gerður Pálsdóttir
Tryggvi Ingason Sólveig Fríða Kjærnested
barnabörn og barnabarnabörn.
Alúðarþakkir fyrir samúð
og hlýhug við andlát
Guðrúnar Sveinbjarnardóttur.
Arnþór Garðarsson
Soffía Arnþórsdóttir
Þrándur Arnþórsson, Álfheiður Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Sigrún Halla Eiríksdóttir
Hrafnistu, Hafnarfirði,
lést föstudaginn 30. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju,
miðvikudaginn 11. janúar kl. 13.00.
Eiríkur Kristófersson Sigríður Bragadóttir
Elín Kristófersdóttir Einar Sigursteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Elín Sigurrós Sörladóttir
lést 23. desember. Jarðarförin fer fram
frá Langholtskirkju 10. janúar kl. 13.00.
Einar Gunnarsson
Gunnar Einarsson Hafdís Inga Gísladóttir
Rafn Einarsson Una Eyrún Ragnarsdóttir
Þorlákur Ómar Einarsson Sara María Karlsdóttir
Einar Sörli Einarsson Guðrún Gunnarsdóttir
Guðmundur Heimir Einarsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
Guðmundur
Hafsteinn Hjaltason
prentari,
lést að heimili sínu föstudaginn
30. desember. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju mánudaginn 9. janúar kl. 13.00. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Kristín Auðunsdóttir
Jóna Björg Hafsteinsdóttir Fjölnir Björgvinsson
Helen Neely
Soffía Auður Sigurðardóttir Viðar Árnason
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Guðbrands Árnasonar
Fiskakvísl 13.
Áshildur E. Daníelsdóttir
Daníel Guðbrandsson Birna Benediktsdóttir
Árni Guðbrandsson Kristín E. Björnsdóttir
Guðbrandur Guðbrandsson Sigrún Davíðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Ingibjörg Magnúsdóttir
Imba frá Grund,
lést á Sólvöllum Eyrarbakka 1. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Fjölskyldan.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Brynhildur Sigurðardóttir
er látin. Jarðsungið verður í
Grafarvogskirkju 6. janúar
klukkan 13.00.
Sigríður Magnúsdóttir Grettir Gíslason
Sveinn Brynjar Diego Ólína Björk Kúld
Jóna Sveinsdóttir Diego
Elma Björk Diego Vilhjálmur Húnfjörð
Arnar Þór Diego Signý Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Margrét Sigurðardóttir
Skipalóni 16, Hafnarfirði,
lést á Vífilsstöðum 28. desember.
Útför fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 6. janúar kl. 15.00.
Sigurður Steingrímsson
Inga Dóra Sigurðardóttir Börkur Arnviðarson
Þröstur Már Sigurðsson Þóra Kristín Björnsdóttir
Sólrún Ólína Sigurðardóttir Indriði Hauksson
barnabörn og langömmubörn.
Merkisatburðir
1531 Klemens páfi sjöundi bannar Hinriki áttunda Englandskon-
ungi að giftast aftur.
1848 Franskir skipbrotsmenn koma að landi í Breiðdal eftir mikla
hrakninga á hafi.
1859 Fyrsta gufuskipið siglir.
1909 Kólumbía viðurkennir sjálfstæði Panama.
1920 Boston Red Sox selur Babe Ruth til New York Yankees.
1931 Fyrsta barnið fæðist á Landspítalanum sem tekinn var í
notkun tveimur vikum áður.
1946 Frumsýnd fyrsta íslenska kvikmyndin með tónum, tali og í
„eðlilegum litum“ um lýðveldishátíðina 17. júní 1944.
5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r34 T í M a M ó T ∙ F r É T T a B L a ð I ð
tímamót
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
C
-B
C
1
4
1
B
D
C
-B
A
D
8
1
B
D
C
-B
9
9
C
1
B
D
C
-B
8
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K