Fréttablaðið - 05.01.2017, Page 50
ÚTSALA
38
ÞREP
Laugavegi 49 / sími 561 5813
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16
BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS
„Vissulega gengur efni einleiksins
Hún pabbi nærri mér en ég hef aldrei
farið í felur með það,“ segir Hannes
Óli Ágústsson leikari, sem upplifði
fyrir fáum árum föður sinn breytast í
transkonuna Önnu Margréti. Hann er
í öflugum sviðslistahópi sem stendur
að sýningu um málið í Borgarleikhús-
inu annað kvöld klukkan 20.
Hannes Óli segir föður sinn, nú
Önnu Margréti, hafa verið með
í ráðum. „Þó sýningin sé fyrst og
fremst mín upplifun af ferlinu urðum
við að kafa dýpra í söguna, taka við-
töl við Önnu Margréti og fá aðgang
að efni frá henni þannig að hennar
rödd skín í gegn. Við komumst að
ýmsum hlutum sem ég vissi ekki
um, sumt sniðugt en margt miður
skemmtilegt. Þetta er fyrst og fremst
búin að vera áhugaverð vinna og líka
ákveðin ögrun en með henni hef ég
komist nær föður mínum.“
Hann var orðinn 28 ára þegar hann
vissi að pabbi hans væri í raun kona.
Þá tók við langt ferli sem fól í sér
skilnað foreldra hans og kynleiðrétt-
ingu föður hans. Kom þetta honum
allt mjög á óvart? „Ég hafði alveg tekið
eftir vísbendingum en ekki unnið úr
þeim, það gerðist ekki fyrr en eftir á,“
viðurkennir hann. „Ég hafði óvænt
séð pabba í kvenmannsfötum eina
nóttina og líka séð ljósmynd. Mig
grunaði að þetta væri eitthvert blæti
en hafði ekki gert mér grein fyrir
hversu djúpstætt málið var. Þegar
manneskja upplifir sig í röngu kyn-
hlutverki þá heltekur það líf hennar.“
Þetta var lífsspursmál
Á þeim tíma sem Anna Margrét
kom út sem transkona starfaði hún
sem öryggisvörður í vöruhóteli Eim-
skips að sögn Hannesar Óla. „Hún
afhjúpaði sig – ég segi ekki í stundar-
brjálæði en samt mjög óvænt. Það
var smá skemmtun hjá fyrirtækinu,
pabbi var á leiðinni þangað, kominn
í jakkafötum út í bíl. Þar leit hann á
sig í spegli og hugsaði: þetta gengur
ekki lengur, fór inn, klæddi sig í kven-
fatnað og dreif sig á staðinn. Þetta var
stórt skref og eftir það varð ekki aftur
snúið, enda Eimskip risavinnustaður.
Þetta gerðist stuttu áður en hún sagði
mér hver staðan væri. Þá var hún eitt-
hvað búin að leita sér hjálpar.“
Ekki býst Hannes Óli við að móðir
hans komi á sýninguna og kveðst
skilja það vel. „En hún er búin að
leggja ákveðna blessun yfir Önnu
Margréti. Þetta mál snertir auð-
vitað marga sem finnst þeir hafa
verið blekktir allan tímann. Fyrst
og fremst er þó manneskja sem
gengur í gegnum svona eftir miðjan
aldur búin að blekkja sjálfa sig lengi.
Pabbi fór sextugur í breytinguna, elsti
Íslendingurinn og með þeim elstu
í heiminum. Átti konu, tvö börn og
barnabörn. Pabbi hefur sagt mér að
ef hann hefði talað um þessar til-
finningar í kringum 1970 hefði hann
örugglega verið settur á Klepp, eða
eitthvað þaðan af verra. Á þeim tíma
reyndi fólk að aðlagast norminu. Það
var heilmikil ást í sambandi foreldra
minna og harmleikur sem fylgdi því
að þurfa að slíta hjónabandið.“
Hannes Óli segir mikinn fjölda
sjálfsvíga innan þess hóps sem upp-
lifi sömu hluti og faðir hans, jafnvel
50 prósent. „Pabbi hefur sagt að valið
hafi snúist um að koma út eða kála
sér. Þannig að þetta var lífsspursmál.“
Samfléttuð sýning
Sýningin Hún pabbi er sambland af
frásögnum Hannesar Óla og minn-
ingum og textabrotum héðan og
þaðan, ásamt líkamlegri túlkun, að
hans sögn.
„Ég er einn á sviðinu en verkið er
unnið í samvinnu hópsins Trigger
Warning sem við höfum mynd-
að kringum það,“ segir Hannes
Óli. „Halla Þórlaug Óskarsdóttir
er aðalhöfundur handrits en Kara
Hergils danshöfundur er frumkvöð-
ull að verkinu og listrænn stjórnandi.
Við Kara vorum skólasystkini í Lista-
háskólanum og vissum hvort af öðru.
Svo er líka leikmyndahönnuður,
ljósahönnuður, tónlistarmaður og
leikstjóri. Það er gaman að kynn-
ast nýju fólki og mikill eldmóður í
þessum hópi.“
Hafði óvænt séð pabba
í kvenmannsfötum
Hannes Óli Ágústsson leikari lýsir því í einleiknum Hún pabbi hvernig það er að
upplifa dag einn Ágúst Má Grétarsson, föður sinn, hverfa og verða að Önnu Margréti
Grétarsdóttur. Frumsýning er á Litla sviði Borgarleikhússins annað kvöld, föstudag.
„Þetta er fyrst og fremst búið að vera áhugavert en líka ákveðin ögrun,“ segir Hannes Óli um gerð einleiksins Hún pabbi.
Fréttablaðið/anton brink
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Þó sýningin sé
fyrst og fremst
mín upplifun af ferlinu
urðum við að kafa dýpra í
söguna, taka viðtöl við
önnu margréti og fá aðgang
að efni frá henni Þannig að
hennar rödd skín í gegn.
5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r38 M e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð
menning
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
C
-A
3
6
4
1
B
D
C
-A
2
2
8
1
B
D
C
-A
0
E
C
1
B
D
C
-9
F
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K