Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 50
ÚTSALA 38 ÞREP Laugavegi 49 / sími 561 5813 OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16 BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS „Vissulega gengur efni einleiksins Hún pabbi nærri mér en ég hef aldrei farið í felur með það,“ segir Hannes Óli Ágústsson leikari, sem upplifði fyrir fáum árum föður sinn breytast í transkonuna Önnu Margréti. Hann er í öflugum sviðslistahópi sem stendur að sýningu um málið í Borgarleikhús- inu annað kvöld klukkan 20.  Hannes Óli segir  föður sinn, nú Önnu Margréti, hafa  verið með í ráðum. „Þó sýningin  sé fyrst og fremst mín upplifun af ferlinu urðum við að kafa dýpra í söguna, taka við- töl við Önnu Margréti og fá aðgang að efni frá henni þannig að hennar rödd  skín í gegn. Við komumst að ýmsum hlutum sem  ég vissi ekki um, sumt  sniðugt en margt miður skemmtilegt.  Þetta er fyrst og fremst búin að vera áhugaverð vinna og líka ákveðin ögrun en með henni hef ég komist nær föður mínum.“ Hann var orðinn 28 ára þegar hann vissi að pabbi hans væri í raun kona. Þá tók við langt ferli sem fól í sér skilnað foreldra hans og kynleiðrétt- ingu föður hans. Kom þetta honum allt mjög á óvart? „Ég hafði alveg tekið eftir vísbendingum en ekki unnið úr þeim, það gerðist ekki fyrr en eftir á,“ viðurkennir hann. „Ég hafði óvænt séð pabba í kvenmannsfötum eina nóttina og líka séð ljósmynd.  Mig grunaði að þetta væri eitthvert blæti en hafði ekki gert mér grein fyrir hversu djúpstætt  málið var. Þegar manneskja upplifir sig í röngu kyn- hlutverki þá heltekur það líf hennar.“ Þetta var lífsspursmál Á þeim tíma sem Anna Margrét kom út sem transkona starfaði hún sem öryggisvörður í vöruhóteli Eim- skips að sögn Hannesar Óla. „Hún afhjúpaði sig – ég segi ekki í stundar- brjálæði en samt mjög óvænt. Það var smá skemmtun hjá fyrirtækinu, pabbi var á leiðinni þangað, kominn í jakkafötum út í bíl. Þar leit hann á sig í spegli og hugsaði: þetta gengur ekki lengur, fór inn, klæddi sig í kven- fatnað og dreif sig á staðinn. Þetta var stórt skref og eftir það varð ekki aftur snúið, enda Eimskip risavinnustaður. Þetta gerðist stuttu áður en hún sagði mér hver staðan væri. Þá var hún eitt- hvað búin að leita sér hjálpar.“ Ekki býst Hannes Óli við að móðir hans  komi á sýninguna og kveðst skilja það vel. „En hún er búin að leggja ákveðna blessun yfir Önnu Margréti. Þetta mál snertir auð- vitað marga sem finnst þeir hafa verið blekktir allan tímann. Fyrst og fremst er þó manneskja  sem gengur í gegnum svona eftir miðjan aldur búin að blekkja sjálfa sig lengi. Pabbi fór sextugur í breytinguna, elsti Íslendingurinn og með þeim elstu í heiminum. Átti konu, tvö börn og barnabörn. Pabbi hefur sagt mér að ef hann hefði talað um  þessar til- finningar í kringum 1970 hefði hann örugglega verið settur á Klepp, eða eitthvað þaðan af verra. Á þeim tíma reyndi fólk að aðlagast norminu. Það var heilmikil ást í sambandi foreldra minna og harmleikur sem fylgdi því að þurfa að slíta hjónabandið.“   Hannes Óli segir mikinn fjölda sjálfsvíga innan þess hóps sem upp- lifi sömu hluti og faðir hans, jafnvel 50 prósent. „Pabbi hefur sagt að valið hafi snúist um að koma út eða kála sér. Þannig að þetta var lífsspursmál.“ Samfléttuð sýning Sýningin Hún pabbi er sambland af frásögnum Hannesar Óla og minn- ingum og textabrotum héðan og þaðan, ásamt líkamlegri túlkun, að hans sögn. „Ég er einn á sviðinu en verkið er unnið í samvinnu hópsins Trigger Warning sem við höfum mynd- að kringum það,“ segir Hannes Óli.  „Halla Þórlaug Óskarsdóttir er  aðalhöfundur handrits en Kara Hergils danshöfundur er frumkvöð- ull að verkinu og listrænn stjórnandi. Við Kara vorum skólasystkini í Lista- háskólanum og vissum hvort af öðru. Svo  er líka leikmyndahönnuður, ljósahönnuður, tónlistarmaður  og leikstjóri. Það  er gaman að kynn- ast nýju fólki og mikill eldmóður í þessum hópi.“ Hafði óvænt séð pabba í kvenmannsfötum Hannes Óli Ágústsson leikari lýsir því í einleiknum Hún pabbi hvernig það er að upplifa dag einn Ágúst Má Grétarsson, föður sinn, hverfa og verða að Önnu Margréti Grétarsdóttur. Frumsýning er á Litla sviði Borgarleikhússins annað kvöld, föstudag. „Þetta er fyrst og fremst búið að vera áhugavert en líka ákveðin ögrun,“ segir Hannes Óli um gerð einleiksins Hún pabbi. Fréttablaðið/anton brink Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Þó sýningin sé fyrst og fremst mín upplifun af ferlinu urðum við að kafa dýpra í söguna, taka viðtöl við önnu margréti og fá aðgang að efni frá henni Þannig að hennar rödd skín í gegn. 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r38 M e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð menning 0 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D C -A 3 6 4 1 B D C -A 2 2 8 1 B D C -A 0 E C 1 B D C -9 F B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.