Fréttablaðið - 05.01.2017, Side 60
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR
www.husgagnahollin.is
558 1100
afsláttur
60%
Allt að
ÚTSALA
RISA
Linsubauna- og sætkartöflu-
pottréttur eftir Þórdísi Her-
mannsdóttur. Mynd/Þórdís
„Áður en ég tók þátt í veganúar 2014
var ég búin að vera grænmetisæta í
nokkur ár, þá hafði ég hugsað út í
það lengi að verða vegan. Ég var
viss um að það væri ómögulegt að
lifa án mjólkursúkkulaðis og osts, en
ég hafði rangt fyrir mér,“ segir Þór-
dís Hermannsdóttir, en hún hefur
verið vegan í rúmlega eitt og hálft ár
og aldrei liðið betur á nokkru öðru
mataræði.
Nú stendur yfir árlega átakið
veganúar sem haldið er allan
janúarmánuð til að hvetja
fólk til að prófa að vera
vegan og hefur nú fjöldi
fólks þegar skráð þátt-
töku sína á Facebook-
síðu átaksins og óhætt
er að segja að töluverð vit-
undarvakning sé meðal fólks
hvað varðar vegan-lífsstíl.
„Það er svo sannarlega vakning
í gangi varðandi veganisma, ótrú-
legasta fólk er farið að stíga skref í
þessa átt. Fólk er farið að átta sig á
því að þetta er hvorki skrítið né erf-
itt. Veganúar er æðislegt fyrirbæri,
í hverjum janúarmánuði er fólk
hvatt til að prófa að sleppa öllum
dýra afurðum. Markmiðið er að
vekja sem flesta til umhugsunar um
það hvaða áhrif neysla dýraafurða
hefur á svo margt í kringum okkur,
ekki bara dýrin og okkur sjálf heldur
einnig umhverfið,“ útskýrir Þórdís.
Það getur verið snúið að finna
einfaldar og skemmtilegar upp-
skriftir til að prófa sig áfram í veg-
anúar svo fréttablaðið fékk Þórdísi
til að deila með okkur einfaldri og
góðri uppskrift, sem allir geta nýtt
sér.
„Einn af mínum uppáhalds
réttum er linsubauna- og sætkart-
öflupottréttur sem ég hef verið að
þróa, þetta er auðveld uppskrift sem
bragðast vel,“ segir Þórdís og hvetur
alla til að prófa.
gudrunjona@frettabladid.is
Hvorki skrítið né
erfitt að vera vegan
Veganúar er nú í fullum gangi. Við fengum Þórdísi Hermannsdóttur
til að deila með okkur ljúffengri vegan-uppskrift. Þórdís hefur verið
vegan í eitt og hálft ár og aldrei liðið betur á nokkru öðru mataræði.
Linsubauna- og
sætkartöfLu-
pottréttur
1 sæt kartafla
4 hvítlauksrif
1 cm engiferrót
2/ 3 bolli rauðar linsubaunir
3 tsk. rautt karrímauk (passa
að það sé vegan)
1 lítil dós tómatmauk
3 bollar grænmetissoð (vatn
og grænmetiskraftur)
½ tsk. túrmerik
2 tsk. kókosolía
2 tsk. agavesíróp
Hvítlaukur, engifer og kartöflur
eru steikt upp úr kókosolíu í
nokkrar mínútur. Karrímauki
er svo bætt við og hrært í tvær
mínútur. Næst er tómatmauki og
grænmetissoði hrært saman við.
Linsubaunum, sírópi og túrme-
riki er svo bætt við og suðan
látin koma upp á meðan hrært
er í pottinum. Eftir að suðan
kemur upp er hitinn lækkaður og
rétturinn látinn malla í um tutt-
ugu mínútur eða þar til linsurnar
eru orðnar mjúkar. Svo er um
að gera að smakka og bæta við
kryddi eftir smekk.
Fyrirsætan og raunveruleika-
stjarnan Kendall Jenner
lætur smá kulda ekki hindra
sig í að vera flott klædd
frá toppi til táar. Jen-
ner spókaði sig um í
Hollywood á dög-
unum í um níu stiga
hita sem verður að
teljast kalt á mæli-
kvarða þeirra sem
búa við stanslausa
sól og sumar-
yl. Hún klædd-
ist gylltum og
glæsilegum jakka úr
smiðju Acne Studio’s.
Sá jakki kostar 2.500
evrur sem gerir
tæpar 300.000
í s l e n s k a r
k r ó n u r . Þ á
klæddist hún
svartri hettu-
peysu, galla-
b u x u m o g
g eg nsæjum
h æ l a s k ó m
við jakkann
flotta.
Hélt á sér hita með 300.000 króna jakka
Kendall Jenner er mikil tískuáhugakona.
nordicpHotos/Getty
Söngkonan Celine Dion
hefur sett húsið sitt á sölu.
Um stærðarinnar hús í París
er að ræða og ásett verð
nemur rúmum milljarði
króna að því er fram kemur
á vef Mirror. Í húsinu eru
fimm svefnherbergi, fimm
baðherbergi, bíósalur og
vínkjallari, svo eitthvað
sé nefnt. Söngkonan bjó í
húsinu ásamt eiginmanni
sínum, René Angelil, sem
lést fyrir um ári, en þau hjón
keyptu húsið árið 2008.
Ásett verð er milljarður
5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r48 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
C
-C
5
F
4
1
B
D
C
-C
4
B
8
1
B
D
C
-C
3
7
C
1
B
D
C
-C
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K