Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 60
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR www.husgagnahollin.is 558 1100 afsláttur 60% Allt að ÚTSALA RISA Linsubauna- og sætkartöflu- pottréttur eftir Þórdísi Her- mannsdóttur. Mynd/Þórdís „Áður en ég tók þátt í veganúar 2014 var ég búin að vera grænmetisæta í nokkur ár, þá hafði ég hugsað út í það lengi að verða vegan. Ég var viss um að það væri ómögulegt að lifa án mjólkursúkkulaðis og osts, en ég hafði rangt fyrir mér,“ segir Þór- dís Hermannsdóttir, en hún hefur verið vegan í rúmlega eitt og hálft ár og aldrei liðið betur á nokkru öðru mataræði. Nú stendur yfir árlega átakið veganúar sem haldið er allan janúarmánuð til að hvetja fólk til að prófa að vera vegan og hefur nú fjöldi fólks þegar skráð þátt- töku sína á Facebook- síðu átaksins og óhætt er að segja að töluverð vit- undarvakning sé meðal fólks hvað varðar vegan-lífsstíl. „Það er svo sannarlega vakning í gangi varðandi veganisma, ótrú- legasta fólk er farið að stíga skref í þessa átt. Fólk er farið að átta sig á því að þetta er hvorki skrítið né erf- itt. Veganúar er æðislegt fyrirbæri, í hverjum janúarmánuði er fólk hvatt til að prófa að sleppa öllum dýra afurðum. Markmiðið er að vekja sem flesta til umhugsunar um það hvaða áhrif neysla dýraafurða hefur á svo margt í kringum okkur, ekki bara dýrin og okkur sjálf heldur einnig umhverfið,“ útskýrir Þórdís. Það getur verið snúið að finna einfaldar og skemmtilegar upp- skriftir til að prófa sig áfram í veg- anúar svo fréttablaðið fékk Þórdísi til að deila með okkur einfaldri og góðri uppskrift, sem allir geta nýtt sér. „Einn af mínum uppáhalds réttum er linsubauna- og sætkart- öflupottréttur sem ég hef verið að þróa, þetta er auðveld uppskrift sem bragðast vel,“ segir Þórdís og hvetur alla til að prófa. gudrunjona@frettabladid.is Hvorki skrítið né erfitt að vera vegan Veganúar er nú í fullum gangi. Við fengum Þórdísi Hermannsdóttur til að deila með okkur ljúffengri vegan-uppskrift. Þórdís hefur verið vegan í eitt og hálft ár og aldrei liðið betur á nokkru öðru mataræði. Linsubauna- og sætkartöfLu- pottréttur 1 sæt kartafla 4 hvítlauksrif 1 cm engiferrót 2/ 3 bolli rauðar linsubaunir 3 tsk. rautt karrímauk (passa að það sé vegan) 1 lítil dós tómatmauk 3 bollar grænmetissoð (vatn og grænmetiskraftur) ½ tsk. túrmerik 2 tsk. kókosolía 2 tsk. agavesíróp Hvítlaukur, engifer og kartöflur eru steikt upp úr kókosolíu í nokkrar mínútur. Karrímauki er svo bætt við og hrært í tvær mínútur. Næst er tómatmauki og grænmetissoði hrært saman við. Linsubaunum, sírópi og túrme- riki er svo bætt við og suðan látin koma upp á meðan hrært er í pottinum. Eftir að suðan kemur upp er hitinn lækkaður og rétturinn látinn malla í um tutt- ugu mínútur eða þar til linsurnar eru orðnar mjúkar. Svo er um að gera að smakka og bæta við kryddi eftir smekk. Fyrirsætan og raunveruleika- stjarnan Kendall Jenner lætur smá kulda ekki hindra sig í að vera flott klædd frá toppi til táar. Jen- ner spókaði sig um í Hollywood á dög- unum í um níu stiga hita sem verður að teljast kalt á mæli- kvarða þeirra sem búa við stanslausa sól og sumar- yl. Hún klædd- ist gylltum og glæsilegum jakka úr smiðju Acne Studio’s. Sá jakki kostar 2.500 evrur sem gerir tæpar 300.000 í s l e n s k a r k r ó n u r . Þ á klæddist hún svartri hettu- peysu, galla- b u x u m o g g eg nsæjum h æ l a s k ó m við jakkann flotta. Hélt á sér hita með 300.000 króna jakka Kendall Jenner er mikil tískuáhugakona. nordicpHotos/Getty Söngkonan Celine Dion hefur sett húsið sitt á sölu. Um stærðarinnar hús í París er að ræða og ásett verð nemur rúmum milljarði króna að því er fram kemur á vef Mirror. Í húsinu eru fimm svefnherbergi, fimm baðherbergi, bíósalur og vínkjallari, svo eitthvað sé nefnt. Söngkonan bjó í húsinu ásamt eiginmanni sínum, René Angelil, sem lést fyrir um ári, en þau hjón keyptu húsið árið 2008. Ásett verð er milljarður 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r48 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð 0 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D C -C 5 F 4 1 B D C -C 4 B 8 1 B D C -C 3 7 C 1 B D C -C 2 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.