Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is „Snyrtivörur eru mitt helsta áhuga- mál og draumurinn var að opna YouTube-rás og taka upp förðunar- myndbönd. Ég hef alltaf þurft að taka lítil skref í átt að markmiðum mínum og ákvað að opna Snapchat til að prófa mig áfram,“ segir hin 28 ára Ása Lind Elíasdóttir. Eftir að hafa verið á Snapchat í ákveðinn tíma fór hún að taka eftir að þeir sem fylgdust með henni á sam- félagsmiðlinum vildu fá að kynnast henni betur. „Já, fólk vildi sjá meira en bara snyrtivörutal. Það þótti mér rosalega merkilegt því ég var bara að gera þetta til að blaðra um förðun,“ segir Ása Lind sem hefur opnað sig mikið á undanförnum misserum. „Ég get verið rosalega feimin en mér hefur tekist að leyfa mér að sýna meira af mér sjálfri síðan ég byrjaði að „snappa“ og fólk virðist kunna að meta það.“ Ása Lind tók sér pásu frá Snap- chat í apríl á seinasta ári og þá vöknuðu spurningar hjá þeim sem fylgdu henni. „Í apríl 2016 fórum við hjónin í tæknisæðingu þar sem við fengum mjög leiðinlegar fréttir. Vandamálið hefur alltaf verið bara hjá mér. Ég er með fjöl blöðru eggja- stokkaheil kenni eða polycystic ovary syndrome (PCOS). Á upp- setningardegi fengum við að vita að það voru of fáar sæðisfrumur sem þýddi að tækni- og glasafrjóvgun myndi ekki virka fyrir okkur. Ég varð svo rosalega leið og hvarf af Snapchat. Þá hugsaði ég að það væri gott ef fólk bara vissi af hverju ég væri svona leið. Planið var svo að fara í smásjárfrjóvgun um haustið og um sumarið töluðum við Helgi, maðurinn minn, mikið um kosti og galla þess að opna sig um þetta opinberlega. Við tókum svo ákvörð- un um að hætta að vera feimin við þetta, það er í lagi að tala um svona hluti. Í ágúst sögðum við svo öllum frá, bæði á Snapchat og fólkinu í kringum okkur,“ segir Ása, sem leyfir áhugasömum að fylgjast með ferlinu bæði á Snapchat og á blogg- inu sínu, asalindmua.com. Léttir að geta talað opinskátt um ófrjósemina Þungu fargi var létt af Ásu Lind þegar hún byrjaði að tala um ófrjó- semina opinskátt. „Ég fann strax, eftir fyrsta „snappið“ þar sem ég sagði frá, hvað mér leið miklu betur. Ég mæli eindregið með því að fólk tali um þetta. Það þarf ekki að vera eins opinberlega og í mínu tilfelli, en það er svo gott ef fólkið í kring- um mann veit hvernig staðan er.“ Ása Lind hefur fengið mikil og jákvæð viðbrögð við umfjöllun sinni. „Viðbrögðin hafa verið ótrúleg. Og skilaboðin sem ég fæ eru svo yndisleg, þá sérstaklega frá fólki sem hefur líka verið að glíma við ófrjósemi. Það gleður mig að geta hjálpað öðrum og mögulega að opna umræðuna um ófrjósemi aðeins. Að fólk gefi sér tíma til að senda mér sínar sögur eða hvatn- ingu er ómetanlegt.“ Hvað er svo fram undan hjá þeim Ásu og Helga? „Það styttist í næstu smásjárfrjóvgun en hún á að vera núna í janúar eða febrúar. Svo vorum við að kaupa draumahúsið og við tökum við því næsta sumar,“ segir Ása og bendir áhugasömum á að fylgjast með framhaldinu á Snapchat undir notandanafninu asalindmua. Eins verður hægt að fylgjast með henni á YouTube og Instagram undir sama notanda- nafni. Og ekki má gleyma blogginu, asalindmua.com. gudnyhronn@365.is Talar opinskátt um ófrjósemina á samfélagsmiðlum Ása Lind Elíasdóttir byrjaði á Snapchat sumarið 2015. Upprunalega var hugmyndin að tala aðeins um snyrtivörur á þessum samfélags- miðli, en hlutirnir hafa þróast á undanförnum mánuðum og núna vekur hún athygli fyrir opinskáa umræðu um ófrjósemi sem hún glímir við. Ása Lind og Helgi S. Guðjónsson giftu sig um sumarið 2014. MyND/STúDÍÓ STUND Ása notar Snapchat til að leyfa fólki að fylgjast með ferlinu sem þau hjón eru að ganga í gegnum. Förðunarfræðingurinn Ása Lind Elías- dóttir tók nýverið ákvörðun um að tala opinskátt um ófrjósemi sem hún glímir við. Við Tókum sVo ákVörðun um að hæTTa að Vera feimin Við þeTTa, það er í lagi að Tala um sVona hluTi. SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON FYRIR ÁRIÐ 2016 1 2 5 6 7 8 109 43 Kakkalakkarnir Jo Nesbø Iceland in a Bag Ýmsir höfundar The Sagas Of Icelanders Ýmsir höfundar Tvísaga Ásdís Halla Bragadóttir Petsamo Arnaldur Indriðason Indipendent People Halldór Laxness Aflausn Yrsa Sigurðardóttir Meira blóð Jo Nesbø Iceland Small World Sigurgeir Sigurjónsson Þín eigin hrollvekja Ævar Þór Benediktsson 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r50 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð 0 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D C -B 2 3 4 1 B D C -B 0 F 8 1 B D C -A F B C 1 B D C -A E 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.