Morgunblaðið - 19.11.2016, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
VIÐ VILJUM GETA TREYST.
ÞAÐ TRAUST ROFNAR
AUÐVELDLEGA ÞEGAR HIÐ
VERSTA GERIST.
HVAÐ GERIR ÞÚ ÞEGAR
TRAUSTIÐ ROFNAR?
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Ný sending
Opið 10-16 í dag
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Siffon Poncho
Kr. 9.800
Litir: rautt, svart
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Fylgist með okkur á faceboock Kringlunni 4c – Sími 568 4900
KÁPUR
FYRIR
VETURINN
mikið úrval
SKOÐIÐ LAXDAL.IS/BASIC
Laugavegi 63 • S: 551 4422
15%
jólaafsláttur
FYRIR VINNUNA, ODDFELLOW,
VEISLURNAR OG HÁTÍÐIRNAR
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Í dag eru 40 ár síðan hjónin Arnar
Guðmundsson og Sigríður Guð-
mundsdóttir stofnuðu íþrótta-
vöruverslunina Ástund.
Þótt fyrirtækið hafi í áranna rás
selt hinar ýmsu íþróttavörur hefur
það verið þekktast fyrir að bjóða
vörur fyrir hestafólk. Raunar hefur
Ástund hannað og selt vörur fyrir
hestafólk frá árinu 1985 þegar
fyrirtækið opnaði söðlaverkstæði.
Stendur fyrirtækið m.a. í
hnakkaútflutningi og að sögn Guð-
mundar Arnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Ástundar, nær það
ekki að anna allri eftirspurn. „Við
sérhæfðum okkur strax í hestum. Í
fyrstu var þetta líka bóka- og rit-
fangaverslun en varð síðar ein-
göngu íþróttavöruverslun. Stærsta
vörumerki okkar er Ástund-
hnakkarnir. Við flytjum út til allra
Norðurlandaríkjanna, Hollands,
Austurríkis, Sviss, Þýskalands,
Nýja-Sjálands, Ástralíu og Banda-
ríkjanna,“ segir Guðmundur.
Ásamt hestafólki þekkir margt
ballett-, dans- og fimleikafólk til
Ástundar, þar sem alla jafna hefur
verið úrval af fatnaði tengdi þess-
um íþróttum í boði.
Leita samstarfsaðila
Hann segir að erfitt sé að eiga í
verðstríði við seljendur hnakka
sem framleiddir eru í löndum á
borð við Indland og Pólland og víð-
ar. Þess í stað er mikið lagt upp úr
gæðum hnakkanna. Að sögn Guð-
mundar eru flutt út hundruð
hnakka ár hvert. „Um 70% af
hnökkum okkar fara úr landi,“ seg-
ir Guðmundur. „Vandamálið okkar
er það að allir hnakkar sem við
framleiðum eru seldir. Við erum að
reyna að finna samstarfsaðila hér-
lendis eða erlendis til að geta aukið
framleiðsluna,“ segir Guðmundur.
Samningur við United
Á tímabili voru einnig seldar
knattspyrnuvörur í Ástund og að
sögn Guðmundar er fyrirtækið
eina íslenska fyrirtækið sem gert
hefur formlegan samning við Man-
chester United. Hann var undirrit-
aður árið 2001 og hljóðaði upp á að
Ástund sæi um sölu á félagsbún-
ingum og öðrum varningi merktum
félaginu. Í framhaldinu var opnuð
Ástund Megastore. Hún varð þó
ekki langlíf. „Við lögðum það niður
fyrir nokkrum árum enda fara svo
margir orðið til Manchester að sjá
liðið spila og versla í leiðinni,“ seg-
ir Guðmundur.
Bjart yfir eftir mögur ár
Fyrirtækið hefur verið rekið
með sömu kennitölu allt frá upp-
hafi. „Framtíðin er björt. Það
komu nokkur mögur ár í krepp-
unni en nú sjáum við fram á betri
tíma og við vorum að búa til nýjan
hnakk í tilefni af afmælinu. Hann
er einn sá flottasti sem við höfum
gert og er á tilboðsverði þessa dag-
ana,“ segir Guðmundur.
Fjölskyldufyrirtæki í 40 ár
Ástund fagnar 40 ára afmæli Flytur út hnakka um
allan heim Gerði samning við Manchester United
Ástund Guðmundur ásamt foreldrunum Arnari Guðmundssyni og Sigríði
Guðmundsdóttur sem stofnuðu Ástund. Fyrirtækið fagnar nú 40 ára afmæli.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS