Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2015, Side 8
8 Fréttir Vikublað 1.–3. desember 2015
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Föst
söluÞÓKNuN
Sími 568-
5556 www
.skeifan.is
1% með vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá
Tjón almennings
nemur milljörðum
n Samkeppniseftirlitið telur að samkeppni á olíumarkaðinum sé verulega skert
A
ðstæður og háttsemi sem
raska samkeppni hafa
myndast á íslenska olíu-
markaðinum og af þeim
sökum greiddu neytendur
4.000 til 4.500 milljónum króna of
mikið fyrir eldsneyti á bifreiðar sín-
ar árið 2014. Eldsneytisverð er hærra
hér en í flestum öðrum vestrænum
ríkjum og þann mun er ekki hægt
að útskýra með sköttum og öðr-
um opinberum gjöldum eða flutn-
ingskostnaði til landsins. Álagning á
eldsneyti fyrir bifreiðar var óeðlilega
há á árinu 2012 eða sem nemur allt
að 18 krónum á hvern lítra bensíns
og 20 krónum á hvern lítra dísilolíu.
Þetta kemur fram í frummats-
skýrslu Samkeppniseftirlitsins um
fyrstu markaðsrannsókn stofnunar-
innar á íslenska eldsneytismarkað-
inum sem var birt á mánudag. Sam-
kvæmt henni er þörf á aðgerðum til
að bæta hag neytenda sem greiði
mun meira fyrir bifreiðaeldsneyti en
hægt sé að réttlæta. Ástæðan sé sú
að þættir sem alla jafna ættu að hafa
áhrif á verðákvarðanir olíufélag-
anna, svo sem fjöldi keppinauta, geri
það ekki þegar komi að bifreiðaelds-
neyti, ólíkt því sem þekkist á virkum
samkeppnismörkuðum. Álagning
á aðrar eldsneytistegundir en bif-
reiðaeldsneyti, svo sem vegna orku-
gjafa til íslenska skipaflotans, virðist
þó benda til meiri samkeppni á milli
olíufélaganna fjögurra.
Samkeppniseftirlitið hóf mark-
aðsrannsókn sína í júní 2013 og afl-
aði ítarlegra upplýsinga um íslenska
eldsneytismarkaðinn. DV rýndi í
skýrslu Samkeppniseftirlitsins og
birtir hér helstu niðurstöður henn-
ar. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Mögulegar
úrbætur
Samkeppniseftirlitið telur að með
vissum úrbótum megi efla og virkja
samkeppni á eldsneytismarkaðinum og
bæta þannig hag almennings. Meðal
annars þurfi að tryggja aðgang nýrra
keppinauta að heildsölu og birgðarými
undir eldsneyti á jafnræðisgrundvelli.
Einnig þurfi að endurskoða samrekstur
N1 og Olís á birgða- og dreifingar-
fyrirtæki þeirra Olíudreifingu, tryggja
að eignarhald á olíufélögunum hafi ekki
neikvæð áhrif á samkeppni og að stjórn-
endum fyrirtækjanna verði óheimilt að
tengjast keppinautum sínum í gegnum
stjórnarsetu eða atvinnu.
Hlutabréf í N1 féllu
N1 sendi tilkynningu til Kauphallar Íslands
fyrir hádegi í gær, mánudag, þar sem olíufé-
lagið segist fagna útkomu skýrslunnar. Telur
fyrirtækið hana staðfesta að virk og heilbrigð
samkeppni ríki á íslenskum eldsneytismark-
aði. Þar sé álagning eldsneytis ekki of há og
N1 vísi því alfarið á
bug að samhæfing
verðlagningar á
eldsneyti sé til staðar. Gengi hlutabréfa í N1
féll um 2,1% í gær og nam heildarvelta með
bréf félagsins þá 350 milljónum króna.
47 milljarðar í
eldsneyti
Gera má ráð fyrir að íslensk heimili hafi
eytt um 47 milljörðum króna í eldsneyti á
árinu 2012. Samkeppniseftirlitið bendir á
að á árunum eftir hrun hefði mátt búast
við aukinni samkeppni á eldsneytismark-
aðinum, sérstaklega varðandi verslun
með bifreiðaeldsneyti, í ljósi dvínandi
eftirspurnar og rekstrarerfiðleika fyrir-
tækjanna sjálfra. Niðurstaðan hafi aftur á
móti verið þveröfug.
Of margar
stöðvar
Á undanförnum áratugum hefur
bensínstöðvum í Reykjavík fjölgað
umfram íbúafjölgun. Þeim myndi að
öllum líkindum fækka um allt að 30%
ef álagning í smásölu bifreiðaeldsneytis
væri í samræmi við það sem þekkist í
mörgum öðrum löndum og samkeppn-
ishömlum yrði rutt úr vegi.
„Þróunin í nágrannalöndunum hefur
verið þveröfug þar sem eldsneytisstöðv-
um hefur fækkað mikið á undanförnum
áratugum vegna aukinnar samkeppni.
Há álagning á Íslandi gerir olíufélögun-
um kleift að halda úti fleiri eldsneytis-
stöðvum en ella,“ segir í skýrslunni.
Hin fjögur
fræknu
Fjögur fyrirtæki reka bensínstöðvar
á Íslandi. N1 er stærsti eldsneytissali
landsins með 40–50% markaðshlut-
deild á árinu 2012. Það ár námu tekjur
fyrirtækisins um 60 milljörðum króna.
Skeljungur kemur þar á eftir með
20–30% hlutdeild og veltu upp á 33,5
milljarða á árinu 2012. Olís var þá einnig
með 20–30% af markaðinum og tekjur
upp á 34 milljarða. Atlantsolía var með
0–10% hlutdeild og veltu upp á 7,5
milljarða króna.
Samkvæmt skýrslu Samkeppnis-
eftirlitsins eru sterkar vísbendingar um
að olíufélögin fjögur samhæfi hegðun
sína með „þegjandi samhæfingu“ þegar
kemur að smásölu bifreiðaeldsneytis.
Fyrirtækin hafi hvata og úrræði til að
útiloka nýja keppinauta með því að
neita þeim um eldsneyti í heildsölu eða
aðgangi að birgðarýmum sínum. Þau
hafi jafnvel gengið svo langt að nýta
birgðarými á tilteknum stöðum til að
hindra innkomu nýrra keppinauta.