Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2015, Blaðsíða 24
Vikublað 1.–3. desember 20158 Með allt á hreinu - Kynningarblað
H
ingað kemur fólk víða
að sem treystir okkur; úr
Mosfellsbæ, Akranesi,
Reykjanesbæ og víðar. Fólk
sem vill ekki fara neitt ann-
að. Það er að koma með sparifötin
sín, uppáhaldskjólinn og spariblúss-
una, – sjáðu til, fólki er ekki sama
hvert það fer með þetta. Við erum
með eigur fólks í höndunum og verð-
um að vanda til verka – kunna til
verka,“ segir Kristinn Guðjónsson,
sem á og rekur Efnalaugina Björg,
Háaleitisbraut 58–60. Kristinn legg-
ur höfuðáherslu á fagmennsku
en kjörorð fyrirtækisins eru Gæði,
þekking og þjónusta:
„Fagmennska finnst mér vera lyk-
illinn að því að veita góða þjónustu,
hvort sem það er í hreinsun, þvotti
eða í frágangi, það er líka miklu
skemmtilegra að vinna þegar mað-
ur veit hvað maður er að gera. Til að
tryggja fagmennsku er símenntun
nauðsynleg en ég geri mér far um að
sækja upplýsingar og fræðslu erlend-
is þar sem framfarirnar verða.“
Kristinn hefur verið félagi í DLI,
Drycleaning and Laundry Institute,
í fjölmörg ár og sótt námskeið sam-
takanna, meðal annars í Bandaríkj-
unum. Þá hefur Björg fengið viður-
kenningu frá fataframleiðandanum
Hugo Boss fyrir frágang og hreinsun
á fatnaði frá fyrirtækinu.
Efnalaugin Björg byggir á göml-
um og traustum grunni, en fyrir-
tækið var stofnað árið 1953. Stofn-
andinn, Magnús Kristinsson, hóf
starfsemina að Sólvallagötu 74.
Tengdasonur hans, Kristinn Guð-
jónsson, rekur fyrirtækið í dag en
hann hóf störf í því fyrir rúmum 30
árum.
„Ég kom inn í þetta fyrir tilviljun
á sínum tíma. Síðan hef ég tekið það
sem áskorun að reka þetta fagmann-
lega og með fjölskyldustolti líka,“
segir Kristinn.
Veitingahúsaþjónusta
„Það eru tíu veitingahús í mið-
borginni sem við leigjum dúka og
servíettur og við förum daglega í bæ-
inn til að sækja og senda. Við þvo-
um og straujum dúka, servíettur,
kokkajakka og allt sem tilheyrir eld-
húsunum í veitingahúsunum. Þeir
vilja vera fínir til fara, matreiðslu-
mennirnir okkar.“
Enginn verksmiðjuþvottur
heldur einstaklingsþjónusta
„Upphaflega var þetta eingöngu
hreinsun en fyrir um tíu árum fór
ég að stíga meira út í þvottinn. Úr
þvottahúsinu erum við mikið að
senda og sækja fyrir einstaklinga í
fyrirtækin þar sem þeir starfa. Spara
mönnum sporin, svo þeir þurfi ekki
að fara með fötin í hreinsun,“ segir
Kristinn en Björg tekur ekki að sér
risavaxin þvottaverkefni því það
samræmist ekki fagstefnu fyrirtæk-
isins:
„Við þjónum einstaklingum og
litlum fyrirtækjum. Það fer illa
saman við það sem ég kalla verk-
smiðjuframleiðslu í þvotti, til þess
eru til dæmis fyrirtæki eins og
Þvottahús ríkisspítalanna. Við erum
að fá jóladúkinn sem amma saum-
aði. Þar er ólíku saman að jafna.
Skyrtuþvottur hefur jafnt og þétt
aukist síðustu tíu árin og við tökum
inn mörg hundruð skyrtur í viku,
menn koma kannski með 8 til 10
skyrtur í einu. Þeir sjá það og finna
að þeir geta notað skyrtuna lengur
eftir að hafa fengið hana frá okkur
heldur en ef þeir þvo hana heima.
Vegna þess að í þvottinum hjá okk-
ur eru alls konar efni til að halda
skyrtunni betur við. Í pressuninni
erum við líka með einstaklega flotta
skyrtuvél sem tók mig fimm ár að
finna – réttu vélina.“
Menn eru því ekki bara að spara
sér sporin með því að fara með
skyrturnar í þvott til Bjargar heldur
halda þær sér miklu lengur.
„Frá okkur koma líka rúmfötin
straujuð, samanbrotin og fín. Sum-
ir karlmenn sem hafa tekið að sér
þvottinn heima hjá sér hafa kom-
ið með hann til okkar og látið okk-
ur sjá um hann – konum þeirra til
mikillar ánægju. Þetta er orðið ótrú-
lega algengt. Við erum alltaf leysa
vandamál annarra og gera þau að
skemmtilegum verkefnum. Enda er
nafn fyrirtækisins ekki kvenmanns-
nafnið Björg heldur er þetta komið
af sögninni að bjarga,“ segir Kristinn
að lokum. n
„Við erum með eigur fólks í höndunum og verðum að vanda til verka“
Efnalaugin Björg:
Gæði, þekking og þjónusta