Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2015, Side 28
20 Menning Vikublað 1.–3. desember 2015
Í S L E N S K H Ö N N U N O G S M Í Ð I
LAUGAVEGI 61 KRINGLUNNI SMÁRALIND
Bak við ysinn
og þysinn
Humátt er fimmta ljóðabók Guðrúnar Hannesdóttur
H
umátt er fimmta ljóðabók
Guðrúnar Hannesdóttur.
Spurð um yrkisefni bókar-
innar segir Guðrún: „Stund-
um verður ysinn og þysinn í
kringum okkur svo yfirþyrmandi og
hávær að maður er nauðbeygður til
að reyna að velta fyrir sér úr hverju
raunveruleikinn sé eiginlega gerður,
hvernig hann sé í laginu. Ein aðferð
er að sjá hvort hann birtist ekki í ljóð-
inu. Það er ekki þar með sagt að mað-
ur hafi erindi sem erfiði. En slík heila-
brot geta yfirfallið besta fólk og hafa
gert frá upphafi vega – með vægast
sagt margvíslegum og misjöfnum
árangri!
Fjölmargt er nefnilega hulið á
bak við ysinn og þysinn, falið und-
ir yfirborðinu.Við vitum af þessum
fyrirbærum, en þau eru ógreini-
leg og halda sig stundum til hlés
en eiga líka til að birtast óvænt
og í ólíklegustu myndum, sum-
um stórháskalegum. Önnur koma
aldrei í ljós. Þekkingarleysi okkar
sjálfra, minnisleysi og ýmsar aðr-
ar brothættar breytur bætast svo
við og þvælast fyrir skilningi. Við
neyðumst til þess að gera mála-
myndasáttmála um það hvað viðtek-
inn veruleiki sé, en skynjum undir
niðri hve óendanlega flókinn og fjöl-
breytilegur hann er bæði á ytra borði
og því sem að okkar innra manni
snýr.
Svo ég vitni í orð ljóðskáldsins
Seamusar Heaneys fremst í bókinni:
„Vitund okkar getur vakað í tveimur
eða fleiri ólíkum víddum samtímis
og milli þeirra verið greiður gangur.“
Í þessari bók slær hugsunum
mínum um þetta saman við ým-
islegt sem er hálfgleymt og grafið,
bæði úr nútíð og þátíð, fréttum, hjá-
trú og þjóðsögum. Allt fléttast þetta
saman. Sumar þessar hugsanir mín-
ar um raunveruleikann og birtingar-
myndir hans hafa setið eftir í minn-
inu og birtast hér. Aðrar eru foknar út
í veður og vind eins og þeirra var von
og vísa.“
Auk þess að hafa sent frá sér
ljóðabækur hefur Guðrún, sem er
bókasafnsfræðingur að mennt, skrif-
að og myndskreytt barnabækur og
gefið út bækur með gömlum alþýðu-
vísum fyrir börn. Fyrsta ljóðabók
hennar kom út árið 2007 þegar hún
var á miðjum aldri. Hún er spurð af
hverju bækur eftir hana hafi ekki
komið út fyrr en þá. „Það gerðist af
sjálfu sér, svo að segja, í fyllingu tím-
ans. Ég var farin að yrkja miklu fyrr,
en það þarf auðvitað visst næði til að
hugsa hlutina til enda og það gafst
ekki fyrr en ég var komin á þennan
aldur. Þannig er það oft með konur,
þær hafa í svo mörg horn að líta. Og
stundum hafa hlutirnir bara gott af
því að bíða.“
Hún er spurð hvort hún sé sátt
við viðtökur bóka sinna. „Þeim hefur
verið vel tekið af mörgum. Það gleður
mig auðvitað en ég yrki ekki með við-
tökur í huga. Stundum er því haldið
fram að það sé erfitt að mæta draum-
um sínum á hversdagsfötunum. Það
finnst mér ekki. Ljóðheimar eru dýr-
indis umhverfi. Hægt og sígandi hef
ég kynnst mörgum ljóðskáldum, sér-
staklega konum, og hrífst af verkum
þeirra. Mér líður vel í því kompaníi
og það er aukaatriði í mínum huga
hversu hátt á strái ég lendi. Satt að
segja finnst mér það ekki skipta
máli.“ n
„Við neyðumst
til þess að gera
málamyndasáttmála
um það hvað viðtekinn
veruleiki sé, en skynjum
undir niðri hve óendan-
lega flókinn og fjölbreyti-
legur hann er bæði á ytra
borði og því sem að okkar
innra manni snýr.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Guðrún Hannesdóttir
„Það þarf auðvitað visst
næði til að hugsa hlutina til
enda og það gafst ekki fyrr
en ég var komin á þennan
aldur.“ Mynd SiGtryGGur Ari
Úr listheiminum
Það vakti mikla athygli á mánudag þegar 23 ára nemi við myndlistadeild Listahá-
skóla Íslands, Almar Atlason,
tilkynnti að hann myndi dvelja
nakinn í litlum glerkassa í skól-
anum í heila viku. Hægt er að
fylgjast með gjörningnum sem
er lokaverkefni í námskeiðinu
„Leiðir og úrvinnsla“ í beinni út-
sendingu á Youtube-rás Almars.
Fyrir helgi var tilkynnt að Gunnar I.
Gunnsteins-
son muni láta
af störfum sem
framkvæmdastjóri
Menningarfélags Akur-
eyrar um mánaðamótin. Í viðtali
við RÚV sagði Sigurður Kristins-
son, stjórnarformaður Menn-
ingarfélagsins, að Gunnar hætti
af persónulegum ástæðum. Hann
mun þó leikstýra Sögu Garðars-
dóttur í barnaeinleiknum Grýlu,
sem sýndur verður í samkomu-
húsinu í desember.
Mikil eftirvænting ríkir eftir Njálu Þorleifs Arnar og Mikaels Torfasonar sem
verður frumsýnd í Borgar-
leikhúsinu um áramót. Erna
Ómarsdóttir sér um dans, Ilmur
Stefánsdóttir um leikmynd og
myndlistarkonan Sunneva Ása
Weisshappel um búninga. Þá
var fenginn til landsins drama-
túrginn Uwe Gössel, sem er stórt
nafn í þýska leiklistarheiminum,
til aðstoða leikstjórann.