Fréttatíminn - 03.11.2016, Qupperneq 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 3. nóvember 2016
Það er ekki annað hægt en að fagna því ef úrslit kosninganna um helgina neyða stjórnmálaflokk-anna til nýrra vinnu-
bragða.
Virðing Íslendinga fyrir Alþingi
og stjórnmálunum er miklum mun
minni en í öðrum löndum í okk-
ar heimshluta. Ástæðan er ekki
sú að Íslendingar þekki ekki eða
skilji ekki stjórnmálin. Íslendingar
þekkja þau nógu vel til að draga
þann lærdóm að störf þingsins og
stjórnmálamenningin sé brokuð
og hálf ónýt.
Það er því öllum fagnaðarefni
að stjórnmálafólk neyðist til að
endurskoða vinnubrögð og hvern-
ig það nálgast mál. Tveggja flokka
stjórnir hafa verið hryggjarstykkið
í íslenskum stjórnmálum. Í krafti
þeirra hefur vilji naums meirihluta
verið knúinn í gegnum þingið og
upp á almenning.
Síðustu tvær ríkisstjórnir eru
ágætt dæmi um þetta. Báðar of-
mátu stuðning sinn út í samfé-
laginu. Afleiðingin varð að ríkis-
stjórnirnar voru meira og minna í
stríði við þjóðina í flestum málum.
Niðurstaða kosninganna gæti
orðið sú, að stjórnmálamenn
neyðist til að byggja upp breiða
samstöðu um öll mál, ekki aðeins
inn á þingi heldur út í samfélag-
ið. Það yrði óendanlega jákvæð
niðurstaða.
Það hefur verið vaxandi krafa
um það í samfélaginu að lífskjör
hér verði sambærileg og í ná-
grannalöndunum. Einnig um auk-
ið lýðræði og þátttöku fleiri í mót-
un mála og ákvörðunum.
Það er löngu tímabært að múra
upp í hin reykfylltu bakherbergi
íslenskra stjórnmála.
Gunnar Smári
GÓÐAR
BREYTINGAR
3 ×
í viku Guðjón S. Brjánsson, Samfylking í Norðvestri:1.054
Benedikt Jóhannesson,
Viðreisn í Norðaustri:
1.482
Teitur Björn Einarsson,
Sjálfstæðisflokkur í Norðvestri:
1.650
Oddný Harðardóttir,
Samfylking í Suðri:
1.725
Elsa Lára Arnardóttir,
Framsókn í Norðvestri:
1.741
Logi Már Einarsson,
Samfylking í Norðaustri:
1.816
Eva Pandora Baldvinsdóttir,
Pírati í Norðvestri:
1.823
Jóna Sólveig Elínardóttir,
Viðreisn í Suðri:
1.983
Valgerður Gunnarsdóttir,
Sjálfstæðisflokkur í Norðaustri:
2.005
Unnur Brá Konráðsdóttir,
Sjálfstæðisflokkur í Suðri:
2.127
Rétt rúmlega þrjú þúsund kjósendur eru að
meðaltali að baki hverjum þingmanni. Það er
hins vegar misjafnt hversu margir kjósendur
eru að baki hverjum þingmanni. Dýrasti þing-
maðurinn er Rósa Björk Brynjólfsdóttir sem
hefur 6378 kjósendur Vinstri grænna í Suð-
vestri að baki sér en sá ódýrasti er Guðjón S.
Brjánsson, Samfylkingarmaður í Norðvestri,
en aðeins 1054 kjósendur kusu flokkinn í því
kjördæmi.
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisn-
ar, er sá þingmaður sem hefur næst fæsta
kjósendur að baki sér. Aðeins 1482 kusu Við-
reisn í Norðaustri. Næstur kemur Teitur Björn
Einarsson, aðstoðarmaður Bjarna Benedikts-
sonar fjármálaráðherra og þriðji maður á lista
Sjálfstæðisflokksins í Norðvestri. Þar fékk
flokkurinn 4951 atkvæði eða 1650 á hvern
þriggja þingmanna.
Næst dýrasti þingmaðurinn á eftir Rósu
Björk er Þorsteinn Víglundsson, Viðreisnar-
maður í Reykjavík norður. Hann náði einn
þingmanna flokksins kjöri í kjördæminu með
4064 atkvæðum. Þar skammt að baki kemur
Eygló Harðardóttir, Framsóknarkona í Suð-
vestri, með 4062 atkvæði að baki sér. | gse
Veikt umboð margra þingmanna
Ódýrustu þingmennirnir
Þeir þingmenn sem hafa fæsta kjósendur að baki sér
Rósa Björk
Brynjólfsdóttir
er sá þingmaður
sem hefur flesta
kjósendur að
baki sér.
Kjaramál Handhafar forseta-
valds munu áfram fá hlutfallsleg
laun af störfum sínum í fjarveru
forseta Íslands þó að hann hafi
sjálfur tilkynnt í gær að hann
myndi gefa upphæðina sem
hækkunin nemur, til góðgerða-
mála.
Þá er kjararáði óheimilt að lækka
laun forsetans og handhafanna,
nema þeir óski sjálfir sérstaklega eft-
ir því. Síðast voru laun Ólafs Ragnars
Grímssonar lækkuð skömmu eftir
hrun árið 2008.
Handhafar forsetans eru forsætis-
ráðherra, forseti Hæstaréttar Íslands
og forseti Alþingis en þeir hafa hing-
að til skipt með sér tíu milljónum
króna á ári fyrir störf sín sem stað-
genglar forsetans, eða um 3,3 millj-
ónir hver. Sú upphæð hækkar með
ákvörðun kjararáðs þegar laun for-
setans voru hækkuð um hálfa millj-
ón króna. Því má segja að þingfor-
seti og forsætisráðherra fái aukalega
kauphækkun ofan á allt annað.
Tvívegis hafa þingmenn reynt að
lækka upphæðina sem handhafar
hafa fengið fyrir störf sín, en það var
Brynhildur Pétursdóttir, fyrrver-
andi þingmaður Bjartrar framtíðar,
sem lagði síðast fram frumvarp þess
efnis.
„Við vildum að greiðslurnar til
handhafanna féllu niður á meðan
hann væri í útlöndum, enda er for-
setinn oft í vinnunni þegar hann er
erlendis,“ segir Brynhildur sem telur
það fyrirkomulag úrelt, en greiðslur
fyrir handhafanna hefði þá verið um
ein milljón á ári, en ekki tíu. Frum-
varpið dagaði uppi í stjórnskipunar-
og eftirlits nefnd. | vg
Laun handhafa
forsetans lækka ekki
Guðni Th. Jóhannesson tilkynnti um
ákvörðun sína í gær á Bessastöðum.
Mynd | Hari
Stjórnmál Bjarni Benediktsson
ætlar að ræða við formenn allra
flokka á Alþingi um væntanlega
stjórnarmyndun en forseti Ís-
lands afhenti honum umboðið í
gær. Benedikt Jóhannsson, for-
maður Viðreisnar, þykir sækja
fast eftir embætti forsætisráð-
herra en hann viðraði það við
formenn fleiri flokka en Bjartr-
ar framtíðar, að þeir mæltu
með að forsetinn léti hann hafa
stjórnarmyndunarumboðið.
Óttarr Proppé var hinsvegar sá
eini sem féllst á það.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG,
hefur verið ómyrk í máli um ríkis-
stjórnarsamstarf með Sjálfstæðis-
flokki og bent á að flokkarnir eigi
enga málefnalega samleið. Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, hefur sagt samstarf við
Pírata ólíklegt.
Fæstir geta hugsað sér að eiga líf
ríkisstjórnar undir Sigmundi Dav-
íð Gunnlaugssyni eins og ástandið
er hjá Framsóknarflokknum. Ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar
og Bjartrar framtíðar gæti þó þurft
að leita þangað því án Framsóknar
hefði hún einungis 32 þingmenn.
Bjarni Benediktsson útilokaði ekki
að hugsa til samstarfs við Fram-
sóknarf lokkinn á blaðamanna-
fundinum á Bessastöðum og hann
ræddi við Sigurð Inga Jóhannsson
síðdegis í gær.
Líklegast þykir að Björt framtíð
og Viðreisn fari saman í ríkisstjórn
með Sjálfstæðisflokki og jafnvel
fleirum.
Þar sem Benedikt Jóhannsson
sækist fast eftir embætti forsætis-
ráðherra er líklegt að Bjarni Bene-
diktsson vilji skoða fleiri kosti, jafn-
vel þótt það sé bara taktískt til að
setja Benedikt stólinn fyrir dyrnar.
Fréttatíminn spurði Benedikt
Jóhannsson um hvort hann gerði
kröfu til þess að leiða slíka ríkis-
stjórn?
„Forsetinn telur rétt að Bjarni fái
umboðið. Hann byggir það á við-
ræðum við formenn allra flokka.“
Þannig að þið gerið ekki ráð fyr-
ir að það sé til umræðu að einhver
annar en Bjarni fá stól forsætisráð-
herra?
„Við skulum sjá við hverja hann
talar fyrst.“
Um þá kenningu að verið sé að
kæla Viðreisn niður með því að
byrja á því að ræða við alla, segir
Benedikt.
„Ég er alveg svellkaldur.“
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar
framtíðar, játar því að vel fari á með
Viðreisn og Bjartri framtíð. „Þetta
eru náttúrulega frjálslyndir miðju-
flokkar og eiga málefnalega samleið
sem slíkir,“ segir hann.
„Benedikt gerði kröfu um umboð
forseta og við studdum hann. Við
höfum hinsvegar ekki farið í nein-
ar eiginlegar stjórnarmyndunar-
viðræður þar sem verið er að ræða
embætti.“
Óttarr segir hinsvegar alveg ljóst
að Björt framtíð sé ekki til í stjórn-
armyndun nema hún sé málefna-
lega góð, þar þurfi meðal annars að
taka á umbótum í sjávarútvegi og
landbúnaði og uppbyggingu inn-
viða. Þá vilji Björt framtíð taka upp
aðildarviðræður við ESB.
Líklegast að Bjarni horfi til
Viðreisnar, Framsóknar
og Bjartrar framtíðar
Bjarni Benediktsson hitti
formann Framsóknar-
flokksins síðdegis í gær.
Mynd | Hari
Nú einnig á
Glerártorgi
Laugavegur - Kringlan - Glerártorg - kunigund.is