Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 03.11.2016, Qupperneq 15

Fréttatíminn - 03.11.2016, Qupperneq 15
| 15FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 3. nóvember 2016 kvenna til fóstureyðinga er svo auð- vitað mikilvægasti liður baráttu hægrisinnaðra aktívista. Mikilvægasti vígvöllurinn: Hæsti- réttur Mikilvægasti vígvöllur þessara menningarstríða, en ekki síður baráttunnar gegn eftirlitshlutverki ríkisstofnana og tilraunum síðustu ára til að víkka út velferðarkerfið, er í Hæstarétti Bandaríkjanna. Þökk sé dómaraskipunum Roosevelt og þó ekki síður skipun Earl Warren sem forseta réttarins af Dwight D. Eisenhower 1953, stóð hæstiréttur Bandaríkjanna vörð um velferðar- kerfið og endurgjöf kreppuáranna auk þess að leika lykilhlutverk í því að þoka Bandaríkjunum í átt að frjálslyndi og tryggja minnihluta- hópum jöfn réttindi. Síðan á áttunda áratugnum hef- ur Hæstiréttur hins vegar sveigt af- dráttarlaust til hægri. Nokkrar af dómaraskipunum Reagan (William Rehnquist og Antonin Scalia) og Bush eldri (Clarence Thomas) færðu réttinn skarpt til hægri, og sömuleiðis skipun Samuel Alito af Bush yngri, en Alito er líklega íhaldssamasti hæstaréttardómari síðustu áratuga. Repúblikönum hef- ur hins vegar ekki tekist að tryggja öruggan meirihluta íhaldsmanna í Hæstarétti og það er ekki síst því að þakka að Demókratar í öldunga- deild þingsins hafa komið í veg fyr- ir tilnefningu harðra afturhalds- manna, t.d. Robert Bork árið 1987. Eina sem skiptir máli Næsti forseti Bandaríkjanna mun hins vegar skipa allt að fjóra dóm- ara, sem myndi tryggja annað hvort frjálslyndan eða íhaldssaman meirihluta í hæstarétti næstu ára- tugi. Af þessum sökum kjósa margir íhaldsmenn að styðja Trump, þrátt fyrir að hafa fordæmt hann hástöf- um. Gott dæmi er John Boehner, fyrrverandi þingflokksformaður Repúblikana, en í viðtali við Fox News um miðjan síðasta mánuð útskýrði Boehner af hverju hann styddi Trump: „Þingið og stjórnmálin öll munu vera lömuð og ekkert gerast um komandi framtíð, burtséð frá því hver vinnur kosningarnar. Það eina sem skiptir raunverulegu máli næstu fjögur til átta ár er hver skip- ar hæstaréttardómara.“ Lokasigur eða -ósigur Reagan- byltingarinnar Repúblikanar í öldungadeild þings- ins hafa beitt málþófi til að koma í veg fyrir að Obama geti skipað arf- taka Scalia sem lést fyrr á þessu ári, í von um að Trump vinni kosn- ingarnar. Forystumenn flokksins lofa stuðningsmönnum sínum að þeir muni beita málþófi til að stöðva allar dómaraskipanir Clinton, nái hún kjöri. Ef Trump og Pence, sem er einn íhaldssamasti þingmaður öldungadeildarinnar frá aldamót- um, ná kjöri er hins vegar ljóst að fé- lagslegir afturhaldsmenn, sem hafa aldrei haft jafn sterka stöðu innan flokksins, munu tryggja að þetta lokatakmark Reaganbyltingarinn- ar verður loksins að raunveruleika, þremur og hálfum áratug eftir að Phyllis Scafly hrósaði fyrsta stóra sigrinum í menningarstríðunum. Ef Trump tapar hins vegar, og Hillary nær kjöri, og þó sérstaklega ef Demókratar vinna meirihluta í öldungadeildinni og geta sigrast á málþófi Repúblikana, lítur dæm- ið hins vegar öðruvísi út. En þó Phyllis Schafly, einn mikilvægasti grasrótaraktivisti Reaganbyltingarinn- ar. Schafly, sem lést fyrr í haust, leiddi baráttuna á áttunda áratugnum gegn því að ákvæði um jafnrétti kynjanna væri bætt við stjórnarskrá Bandaríkj- anna, en á seinustu árum einbeitti hún sér að baráttu fyrir „hefðbundnum fjölskyldugildum“. Schafly var ein af áköfustu stuðningsmönnum Donald Trump, sem hún lýsti sem „gamaldags karlmanni“ sem setti fjölskyldu sína í fyrsta sæti. „Þingið og stjórnmálin öll munu vera lömuð og ekk- ert gerast um komandi framtíð, burtséð frá því hver vinnur kosningarnar. Það eina sem skiptir raun- verulegu máli næstu fjög- ur til átta ár er hver skipar hæstaréttardómara.“ hann yrði að teljast varnarsigur sem leiddi ekki til róttækrar um- bótastjórnar eða endurgjafar yrði hann líklega mikilvægasti varnar- sigur frjálslyndra afla í bandarísku menningarstríðunum, lokasigur á Reaganbyltingunni. Um leið gæti hann lagt grunn að nýrri sókn, sambærilegri réttindabyltingu eft- irstríðsáranna, og rutt brautina fyr- ir róttækari vinstri-pólítík í anda New Deal Roosevelt sem við höfum séð brjótast fram í framboði Bernie Sanders og grasrótarlýðræði í fylkj- unum. Sigur Clinton gæti því markað endalok Reaganismans, hinnar bandarísku útgáfu Thatcherism- ans sem hefur mótað hægripólítík á Vesturlöndum síðustu þrjá og hálf- an áratug, og opnað á að bandaríska vinstrið geti sagt skilið við Clinton- ismann, bandarísku útgáfu þriðju- -leiðarinnar og Blairismans. Ef við horfum á kosningarnar í þessu ljósi eru þær ekki bara mikilvægar, þær eru hugsanlega einhverjar þær mik- ilvægustu sem við munum upplifa. 537 7000 hringdu.is INTERNET 3.990 kr. 50 Mb/s Mb/s 5.990 kr. 100 500 Vinsælast! 7.390 kr. Mb/s Hægt er að leigja router fyrir aðeins 790 kr. á mánuði Allar leiðir Í boði á ADSL, Ljósnet og Ljósleiðara Mánaðarlegt línugjald er 2.680 kr.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.