Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 03.11.2016, Qupperneq 18

Fréttatíminn - 03.11.2016, Qupperneq 18
Einfaldur og stílhreinn Vönduð íslensk framleiðsla síðan 1959. Stáliðjan er gamalgróið íslenskt fyrirtæki sem framleiðir vandaða vöru fyrir heimilið og vinnustaðinn. Stáliðjan ehf - Smiðjuvegi 5, 200 Kópavogi - Sími 564 5885 - www.stalidjan.is Verð 27.900 kr. Fjölbreytt litaúrval. 18 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 3. nóvember 2016 Fá dýr valda meiri usla á Íslandi en rottur. Þegar sést til þessa holræsafyrirbæra á yfirborði jarðar, vekur það óhug og heiftarleg viðbrögð. Fréttatíminn tók saman nokkrar eftirminnilegar hryllingssögur af rottum. Lesningin er ekki fyrir viðkvæma. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Meindýraeyðirinn Ómar F. Dabney hefur ótal rottulíf á samviskunni. Hann hefur margoft verið bitinn af rottum og í eitt skiptið svo illa að hann þurfti að grípa til einstaklega ógeðfelldra bragða. Ómar hefur starfað við að ráða niðurlögum meindýra í tuttugu ár og eru rottur meðal helstu við- fangsefna hans. „Heimkynni rott- unnar eru náttúrulega holræsa- kerfin. Þegar þessi kvikindi sjást ofanjarðar, þá er það vísbending um að einhversstaðar sé opið ofan í skólp eða að það vanti rist yfir niðurfall.“ Ómar er gjarnan ræstur út þegar rotta lætur á sér kræla. „Auðvitað ber ég virðingu fyrir þessum dýr- um. Rottur eru engir bjánar. Þær eru mjög skynsamir og velgefn- ir einstaklingar sem hafa verið þrælstúderaðir. Ef það er matur annarsvegar þá er engin þraut sem þær geta ekki leyst til að komast í hann. Enda væri ekkert gaman að vinna við þetta ef þær væru ekki svona klárar. Þegar maður mæt- ir í vinnuna þá veit maður aldrei í hverju maður lendir.“ Ómar segir rottur allstaðar valda Rottustífla Þessi reynslusaga er frá manni sem ekki vildi koma fram undir nafni. „Ég vann hjá gatnamálastjóra fyrir fimmtán árum og eitt af því sem við þurftum að gera var að fara í klóakið á Meistaravöll- um. Það þurfti að grafa djúpa holu til að tengja klóaklögn sem var víst eitthvað stífluð. Rörið var sagað í sundur með vélsög til að komast að vandanum og það tók aðeins að seytla úr rörinu. Þarna með okkur var reyndur maður, starfsfélagi minn, sem gekk í málið og fór ofan í holuna. Svo fór að flæða meira upp úr rörinu af mesta viðbjóði sem ég séð. Þarna var allt sem maður þekkir úr klósettinu, en til viðbótar við það voru dauðar rottur. Ég grínast ekki þegar ég segi að þær hafi verið um það bil hund- rað stykki. Kannski hundrað og fimmtíu. Þær höfðu safnast saman í eina stíflu og voru bleikar og hárlausar, eins og blöðrur. Í ofanálag voru þær uppblásnar og bólgnar eftir að hafa legið í klóakinu lengi. Þetta er klárlega eitthvað ógeðslegasta sem ég hef séð á ævi minni en rottustíflur eru víst þekkt vandamál í klóakbransanum.“ Rottur – Bráðgreind en ógeðsleg dýr „Rottan beit mig af öllu afli í höndina og læsti kjaft- inum svo hún hékk föst. Ég reyndi hvað ég gat að snúa upp á hana til að losna en ekkert gekk.“ „Ég beit þar til brakaði í hausnum á henni“ usla enda haldi fólk að þær beri með sér plágu, eins og þær gerðu í gamla daga. „Fólk er yfirleitt mjög hrætt við rottur og sér fyrir sér að þær hagi sér eins og í bíómyndum, að hópur af rottum taki sig saman og geri árásir á fólk. Það er ekki rétt. Rotta getur hinsvegar bitið ef þú ert að eltast við hana og króa hana af. Ef þú reynir að grípa hana, þá bítur hún þig. Ég má nú sjaldnast vera að því að setja upp hanska þegar ég er að eltast við þær,“ segir Ómar. Hann hefur nokkrum sinnum farið illa út úr því. „Einu sinni fékk ég símtal klukk- an ellefu um kvöld, frá konu sem var alveg í öngum sínum. Ég var löngu búinn á vakt og hafði gleymt að slökkva á vinnusímanum. Þessi unga kona var í mikilli geðshrær- ingu því hún hafði orðið vör við rottu í barnaherberginu hjá sér. Ég útskýrði fyrir henni að ég væri hættur að vinna en hún sagðist vera búin að hringja í alla meindýraeyði í borginni sem gáfu henni sömu svör. Ég gat ekki hugsað mér að láta aumingja stúlkuna vera með rottu inni í barnaherbergi svo ég dreif mig til hennar.“ Ómar segist hafa komið að feiknastóru barnaherbergi fullu af allskyns dóti. Fataskáparnir hafi verið opnir upp á gátt og dótakass- ar og pokar um allt. Felustaðirnir voru því óteljandi. „Ég var búinn að fara í gegnum dót í marga klukkutíma þegar ég sá glitta í brúnan feld á bak við ofninn við rimlarúm- ið. Ég hljóp út í bíl og náði í svokallaðan límbakka sem maður notar í svona tilfellum. Rotturnar festast í bökkunum og þá getur maður aflífað þær. Ég var ekki fyrr búinn að koma bökk- unum fyrir áður en ég heyri þetta djöfulsins öskur. Rottan var kom- in með afturfæturna í bakkann en var við það að losna. Ég gat ekki hugsað mér að missa hana í dótið aftur svo mín ósjálfráðu viðbrögð voru að grípa hana. Það var eins og við var að búast. Rottan beit mig af öllu afli í höndina og læsti kjaft- inum svo hún hékk föst. Ég reyndi hvað ég gat að snúa upp á hana til að losna en ekkert gekk. Þetta var á vondum stað, milli þumalfingurs og vísifingurs vinstri handar. Ég greip því til þess ráðs að smeygja gúmmíhanska yfir hana og drepa hana með því að bíta hana þar til ég heyrði að það brakaði í hausnum á henni. Ég man líka að maður kon- unnar varð alveg kjaftstopp. Hann horfði á mig og spurði hvort ég væri brjálaður. Ég sagði, „já, stundum er ég það.“ En ég var bara að reyna að bjarga málunum. Fólk trúir þessu ekki með nokkru móti, en þetta er alveg dagsatt. Ég er ekkert að búa þetta til.“ –Nagar samviskan þig einhverntíma yfir þessu? „Nei, hún gerir það nú ekki. Þó þetta séu rottur þá reyni ég að af- lífa þær fljótt og örugg- lega, án þess að þær þjáist verulega.“ Fáir hafa drepið rottu með ógeðfelldari hætti en Ómar þurfti eitt sinn að gera.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.