Fréttablaðið - 08.02.2017, Síða 6
Fitul’til og
pr—teinr’k . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Starfsfólk reyndi að gera hið besta úr aðstæðunum
Fyrrverandi starfsmaður Kópavogs-
hælis segir að starfsfólk þess hafi
allt verið af vilja gert að gera hið
besta úr þeirri vinnuaðstöðu sem
þeim var boðið upp á. Vistheimila-
nefnd skilaði skýrslu um málefni
hælisins í gær.
„Ég viðurkenni að þegar ég horfi
til baka hefði ég ekki viljað taka
þátt í þessari menningu en þetta
var menning á þeim tíma,“ segir
Kristjana Sigurðardóttir þroska-
þjálfi. Kristjana hóf störf á hælinu
kornung árið 1960 og starfaði þar
með hléum í hálfa öld.
„Þarna gerðust ýmsir hlutir sem
áttu alls ekki að gerast. Á hælinu var
oft einn starfsmaður með 20-25
vistmenn í sinni umsjá. Það gefur
augaleið að við slíkar aðstæður
næst aðeins að sinna grunnþörfum
með herkjum. Þess á milli var fólkið
afskiptalaust úti í garði eða lokað
frammi á gangi,“ segir Kristjana.
Kristjana segir að almennt hafi
starfsmenn reynt að vinna eins
vel úr aðstæðum og unnt var en
inn á milli hafi reynst rotin epli.
Þá hafi ekki aðeins vistmenn sætt
fordómum af hálfu samfélagsins
heldur hafi það einnig gilt um
starfsfólk.
„Það var erfitt að manna
stofnanir og launakjörin voru ekki
góð. Það var ekki hægt að velja úr
starfsfólki nema síður væri,“ segir
Kristjana.
Eftir að hún vann á hælinu fékk
hún áhuga á starfinu og fór því í
nám í þroskaþjálfun í stað þess að
læra kennarann. Litið hafi verið á
hana af fjölskyldu og vinum líkt og
hún væri glötuð.
„Starfið þótti ekki fínt. Að-
búnaðurinn nú er allt, allt annar
með aukinni menntun og ýmsum
hjálpartækjum sem ekki var til
að dreifa á fyrstu árunum. Við
þóttum mjög uppreisnargjarnar
þegar við snerum til baka úr námi
og kröfðumst betri aðbúnaðar,“
segir Kristjana.
„Þetta er mjög viðkvæm og
erfið umræða en hún er þörf svo
að við höldum ekki áfram að gera
sömu vitleysurnar,“ segir hún að
lokum.
Niðurstöðurnar voru kynntar á fundi í Iðnó í gær. Unnið hefur verið að skýrslunni frá árinu 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SAMFÉLAG Börn vistuð á Efra-Seli
og barnadeildum Kópavogshælis
á árunum 1952-1993 máttu í ein-
hverjum mæli sæta líkamlegu og
andlegu ofbeldi auk harðræðis á
meðan á vistun stóð. Vistheimila-
nefnd skilaði skýrslu um vist barna
á hælinu í gær.
Vistheimilanefnd var komið á
laggirnar árið 2007 og skilaði hún
þremur áfangaskýrslum um mál
ýmissa unglinga- og vistheimila
sem starfrækt voru síðustu öld.
Síðustu skýrslunni var skilað árið
2011. Ný vistheimildanefnd var
skipuð árið 2012 til að gera úttekt
á málum Kópavogshælis. Hrefna
Friðriksdóttir, prófessor við laga-
deild Háskóla Íslands, var skipuð
formaður nefndarinnar.
„Í erindisbréfi ráðuneytisins var
nefndinni falið að skoða aðeins mál
barna á heimilinu,“ segir Hrefna.
Á Kópavogshæli voru bæði börn
og fullorðnir vistuð í sameiningu.
Þetta er fyrsta heimilið sem nefndin
kannar þar sem sá hátturinn var
hafður á.
Í skýrslunni er lagaramminn,
sem í gildi var á þeim tíma sem
heimilið var starfrækt, rakinn. Þar
kemur fram að stjórnvöld hafi sett
að mörgu leyti framsækin lög um
málefni þess fólks sem vistað var
á heimilinu. Hins vegar vanræktu
þau hrapallega að leggja það fjár-
magn í starfsemi og uppbyggingu
sem nauðsynlegt var til að fullnægja
markmiðum laganna.
Hrefna segir að í lögum hafi verið
sett ýmis skilyrði fyrir vistun fávita
og vanvita, eins og það var orðað á
þeim tíma, á hælinu. Framkvæmdin
var allt önnur þegar á hólminn var
komið.
„Það er niðurstaða okkar að
eftirlitsaðilar hafi brugðist. Bæði
ytra eftirlitið, ráðuneytið og ýmsir
aðrir og líka þetta innra eftirlit.
Það hvíldu skyldur á æðstu stjórn-
endum til að tryggja að starfsemin
væri í ákveðnu horfi og við teljum
að þeir hafi brugðist í því,“ segir
Hrefna.
Á þeim árum sem skýrslan nær
til voru 178 börn vistuð á hæl-
inu í lengri eða skemmri tíma.
Skemmstu innlagnirnar námu
nokkrum dögum en þær lengstu
hátt í fjórum áratugum. Af þeim 178
eru um hundrað enn á lífi.
johannoli@frettabladid.is
Börn vanrækt og beitt ofbeldi
á Kópavogshæli og á Efra-Seli
Sláandi frásagnir af ofbeldi er að finna í skýrslu Vistheimilanefndar um málefni Kópavogshælis og Efra-Sels.
Stjórnvöldum mistókst hrapallega að setja nægt fjármagn í málefni og uppbyggingu hælisins og sköpuðu
með því aðstæður fyrir ofbeldið. Af 178 börnum sem vistuð voru á hælinu eru um hundrað enn á lífi.
Lýsingar úr skýrslunni
Í skýrslunni er að finna lýsingar að-
standenda og vistmanna á hræði-
legu ofbeldi. Hér að neðan er að
finna nokkur dæmi úr skýrslunni.
l „[É]g gekk fram á vaktmann þar
sem hann stóð yfir litlum og
horuðum dreng, sjö eða átta
ára gömlum, og hafði bundið
hann við ofn í dagstofunni með
báðar hendur fyrir aftan bak svo
að drengurinn gat ekki borið
hönd fyrir höfuð sér. Þarna stóð
maðurinn yfir drengnum með
hnefann á lofti, öskraði svo á
hann að þegja, en barnið veinaði
og grét og kastaði svo allt í einu
upp á gólfið af einskærri skelf-
ingu. Ég gekk á milli og stoppaði
manninn, en þá gerði hann sér
lítið fyrir og reiddi hnefann á
móti mér í bræði sinni. Minnstu
munaði að ég fengi högg, en
hann áttaði sig þó á því hver var
komin og lét hendur síga.“
l „[É]g hef aldrei borðað síld … ég
ældi þessu, ég var látinn éta æl-
una upp þrisvar, fjórum, fimm,
sinnum niðri í kjallara, svona
var meðferðin á okkur þarna …
þarna verður þú þar til diskurinn
er orðinn tómur, var stundum
að dunda við að éta upp æluna í
þrjá til fjóra tíma.“
l „Meðferðin á krökkunum á
Efra-Seli var verri en á Breiðavík
… það mátti ganga um svona
hálfvita bara eins og þú vildir,
það mátti sparka í þá ef að þess
þurfti, það mátti berja þá ef að
þess þurfti“.
l „[X] slasaðist nokkuð oft þarna
inni, datt í baði, brenndist,
skarst, klemmdi sig en það var
yfirleitt aldrei nein skýring á því
… stundum fékk engin okkar að
vita það heldur … aldrei neinn
sem bar ábyrgð á þessu, að hafa
verið á staðnum, svoleiðis að
við fengum aldrei neinar upp-
lýsingar um hvað hafði skeð.“
l Bróðir sagði frá því að X (vistun
12 ára á fullorðinsdeild) hefði
verið sleginn, þegar X dó var
sagt að þetta hefði verið slys
en bróður fannst að fjölskyldan
hefði aldrei fengið skýringar á
því sem gerðist.
Þegar X dó var
sagt að þetta
hefði verið slys en bróður
fannst að fjölskyldan
hefði aldrei fengið skýr-
ingar á því sem gerðist.
Á hælinu var oft
einn starfsmaður
með 20-25
vistmenn í
sinni umsjá.
Kristjana Sigurðar-
dóttir þroskaþjálfi
8 . F e b r ú A r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U r6 F r É t t I r ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
1
-A
C
D
4
1
C
3
1
-A
B
9
8
1
C
3
1
-A
A
5
C
1
C
3
1
-A
9
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K