Fréttablaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 23
– Tengir þig við framtíðina!
Sjónvarpsdreifikerfi
fyrir hótel, gistiheimili og skip.
Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660
oreind@oreind.is • www.oreind.is
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
...fyrir alla muni
SMÁVÖRUHILLUR OG SKÁPAR
Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík
Sími: 517 0900 / 777 1901
www.kaelivirkni.is
VIÐHALD OG VIÐGERÐIR
Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM
VIÐ
SJÁUM
UM
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða?
Iðnaðarmann
Bílstjóra
Bifvélavirkja
Þjónustufólk
Öryggisvörð
Lagerstarfsmann
Matreiðslumann
markaði nefna að með hliðsjón af
þeirri miklu lækkun sem hefur
orðið á hlutabréfaverði Iceland
air þá séu líkur til þess að félagið
muni ekki lengur spila sambæri
legt hlutverk á markaði.
Ekki er langt síðan að stór við
skipti voru með bréf í Iceland
air þegar hópur fjárfesta keypti
fyrir samanlagt um 1,5 milljarða
í félaginu 20. janúar síðastliðinn.
Það voru markaðsviðskipti Lands
bankans sem höfðu umsjón með
þeim viðskiptum en á meðal kaup
enda, samkvæmt upplýsingum
Markaðarins, voru Lífeyrissjóð
ur starfsmanna ríkisins, Frjálsi
lífeyrissjóðurinn og trygginga
félag. Gengi bréfa Icelandair
hækkaði um rúmlega þrjú pró
sent í viðskiptum
þann dag og stóð
í 22,65 krónum
á hlut við lokun
markaða. Þau
viðskipti þóttu
til marks um, að
sögn sumra við
mælenda Mark
aðarins, að mögu
lega væri hið
versta að baki
hjá félaginu. Svo
reyndist ekki vera.
Hjá stærstu hluthöfum Ice
landair, lífeyrissjóðunum, hefur
hin mikla lækkun á hlutabréfa
verði félagsins – það hefur fallið
í verði um 60 prósent frá því í lok
apríl 2016 – rýrt verulega bókfært
virði bréfa þeirra í félaginu. Þann
ig hefur markaðsverðmæti Ice
landair minnkað um 118 milljarða
frá því að hlutabréfaverð félagsins
var í hæstu hæðum. Lífeyrissjóð
ur verslunarmanna, sem stærsti
einstaki hluthafi Icelandair með
14,7 prósenta hlut, hefur á þessum
tíma þurft að horfa upp á eign sína
lækka að markaðsvirði um meira
en 17 milljarða. Þegar gengi bréf
anna stóð hvað hæst nam virði
hlutarins um 27 milljörðum, sem
jafngilti nærri fimm prósentum af
heildareignum sjóðsins.
Daði nefnir sérstaklega að gengi
hlutabréfa Icelandair á markaði
hefur lækkað á hverjum einasta
degi – samtals um 30 prósent –
Icelandair flutti alls 3,7 milljónir farþega í millilandaflugi 2016 og fjölgaði þeim um 20% frá fyrra ári. Þrátt fyrir að bréf félagsins hafi lækkað mikið á síðasta ári þá var rekstrarniðurstaða Icelandair sú næstbesta í 80 ára sögu félagsins.
frá því að „tilkynningin örlaga
ríka var birt fyrir viku. Það virð
ist fyrst og fremst vera vegna þess
að markaðsaðilar telja að þær upp
lýsingar sem komu fram í tilkynn
ingunni hafi ekki útskýrt nægilega
vel hvernig félagið ætlar að bregð
ast við þessari erfiðu stöðu. Mikil
vægt er að stjórnendur Icelandair
leggi fram ítarlega og trúverðuga
áætlun um hvernig það verði gert
á uppgjörsfundi á miðvikudags
morgun [í dag].“
Icelandair, líkt og mörg önnur
flugfélög, hefur þurft að mæta
vaxandi samkeppni með því að
lækka fargjöld en útlit er fyrir að
vel á þriðja tug flugfélaga muni
fljúga til og frá Keflavíkurflug
velli næsta sumar. „Þetta aukna
framboð,“ útskýrir Daði, „hefur
haft í för með sér lægri meðal
fargjöld en Icelandair gerði ráð
fyrir. Þrátt fyrir erfiðar horf
ur til skemmri tíma virðist Ice
landair ekki ætla að draga saman
seglin og minnka framboð á næst
unni þar sem félagið metur lang
tímahorfur góðar. Það má því
leiða líkur að því að félagið búist
við að önnur flugfélög muni draga
úr framboði sínu hingað til lands
á næsta ári. Erfitt er samt að spá
um hvort það verði raunin.“
Horft til SAS?
Í uppfærðu verðmati á Icelandair,
sem hagfræðideild Landsbankans
sendi frá sér síðastliðið miðviku
dagskvöld, kom
meðal annars
fram að „eins og
staðan er í dag
lítur út fyrir að
Icelandair sé að
selja lággjalda
fargjöld með
kostnaðarstrúkt
úr hefðbundins
(e. full service)
f lugfélags“. Í
verðmatinu, sem
Markaðurinn hefur undir höndum,
segir einnig að hinar nýju vænt
anlegu vélar Icelandair, en þær
fyrstu verða afhentar á næsta ári,
hafi aldrei verið mikilvægari. „Á
sama tíma og flugfargjöld eru lág
og olíuverð á uppleið þá er ljóst að
spar neytnar vélar skipta verulegu
máli.“
Á meðan tekjur Icelandair eru
að langstærstum hluta í erlend
um gjaldeyri eru um 30 prósent
af kostnaði félagsins í íslenskum
krónum. Gengisstyrking krón
unnar, sem flestir búast við að
muni halda áfram á næstu miss
erum, hefur því neikvæð áhrif á
afkomu félagsins. Þá hefur grein
ing Capacent bent á aukinn launa
kostnað sem hlutfall af veltu, sem
gæti orðið um 27 prósent á árinu,
sem veigamikla ástæðu þess að
EBITDAhagnaður félagsins fer
lækkandi.
Daði segir það alveg ljóst að
hluthafar Icelandair muni krefjast
skýrari svara um hvernig eigi að
ná niður kostnaði samhliða aukinni
samkeppni frá lággjaldaflugfélög
um. „Forstjóri félagsins hefur sagt
í fjölmiðlum að verið sé að íhuga
að taka upp töskugjöld og að gera
félagið sýnilegra á bókunarvélum
en líklega þarf meira til en það.“
Að mati Daða mun Icelandair
vafalaust skoða frekari leiðir til
hagræðingar. „Það verður áhuga
vert að sjá hvort félagið muni
í þeim efnum horfa til nýlegra
aðgerða skandinavíska flugfélags
ins SAS sem ætlar að opna starfs
stöðvar í London og á Spáni, með
flugrekstrarleyfi frá Írlandi. SAS
hefur einnig fundið harkalega
fyrir aukinni samkeppni undan
farið og hefur hlutabréfaverð
félagsins lækkað um ríflega 40%
á einu ári. Þessi aðgerð var leið
SAS til þess að bregðast við erf
iðu umhverfi og miðar hún meðal
annars að því að ná niður launa
kostnaði með því að ráða ódýrari
starfsmenn en hægt er að gera í
Skandinavíu. Þetta er vitaskuld
ekki óumdeild aðgerð þar sem
störf í heimalöndunum geta tapast
en hún var engu að síður samþykkt
af stjórn SAS þrátt fyrir að vera
í tæplega helmingseigu danska,
norska og sænska ríkisins.“
Íhugar stjórnarframboð
Í samtölum við stærstu hluthafa
vilja þeir ekkert gefa upp um hvort
þeir séu farnir ráða ráðum sínum
varðandi mögulega uppstokkun á
stjórn félagsins. Hins vegar, eins
og einn hluthafi segir við Mark
aðinn, þá „ætti það ekki að koma
neinum á óvart ef það yrðu breyt
ingar á stjórninni í ljósi þess sem
á undan hefur gengið“.
Svanhildur Nanna, sem er á
meðal stærstu hluthafa, ásamt
eiginmanni sínum, Guðmundi Erni
Þórðarsyni, í tryggingafélaginu
VÍS og Kviku fjárfestingabanka
bauð sig fram í stjórn Icelandair
á aðalfundi flugfélagsins í mars í
fyrra en hlaut ekki brautagengi.
Aðspurð segir Svanhildur Nanna
að það komi vissulega til greina að
bjóða sig fram á ný í stjórn Ice
landair, en aðalfundur verður
3. mars næstkomandi, sjái hún
fram á að hluthafar séu tilbún
ir í breytingar á stjórn félagsins.
Svanhildur segist löngum hafa
verið þeirrar skoðunar að það sé
mikilvægt að jafnvægi ríki milli
svonefndra óháðra stjórnarmanna
og stjórnarmanna sem hafa beina
hagsmuni af árangri félaganna.
„Það skortir nokkuð á það jafnvægi
í stjórn Icelandair eins og sakir
standa,“ segir hún. Þau hjónin hafa
minnkað lítillega hlut sinn í félag
inu að undanförnu en fjárfestinga
félag þeirra á í dag um 15 millj
ónir hluta. Miðað við gengi bréfa
í Icelandair er sá hlutur metinn á
um 230 milljónir en engir einka
fjárfestar eru á lista yfir tuttugu
stærstu hluthafa í félaginu.
Mikilvægt er að
stjórnendur Ice
landair leggi fram ítarlega
og trúverðuga
áætlun.
Daði Kristjánsson
í markaðsvið-
skiptum hjá Arctica
Finance
Bandarískur vogunar
sjóður seldi allt í janúar
Á meðal hluthafa sem höfðu selt
bréf sín í Icelandair áður en félagið
sendi frá sér hina örlagaríku afkomu-
viðvörun 1. febrúar síðastliðinn var
bandarískur vogunarsjóður. Sam-
kvæmt lista yfir alla hluthafa í flug-
félaginu, sem Markaðurinn hefur séð,
fór vogunarsjóðurinn Taconic Capital
af hluthafalista Icelandair í janúar.
Sjóðurinn hafði áður átt, í gegnum
félagið TCA sem er skráð með lög-
heimili í Lúxemborg, samanlagt um
11 milljónir hluta í Icelandair. Miðað
við að bréf Icelandair voru allajafna
að ganga kaupum og sölum á genginu
22 krónur á hlut í janúar má áætla að
sjóðurinn hafi selt hlut sinn fyrir um
240 milljónir.
Vogunarsjóðurinn Taconic Capital
á mikilla hagsmuna að gæta á Íslandi
sem langsamlega stærsti einstaki
hluthafi eignarhaldsfélagsins Kaup-
þings sem fer með 87 prósenta hlut í
Arion banka. Þá var sjóðurinn í hópi
erlendra fjárfesta sem keyptu saman-
lagt fyrir um 80 milljarða í íslenskum
ríkisskuldabréfum á árunum 2015
og 2016 auk þess að hafa keypt í
fleiri skráðum íslenskum félögum á
síðustu misserum, meðal annars í
smásölurisanum Högum.
Taconic Capital er ekki eini erlendi
fjárfestirinn sem sýnt hefur Icelandair
áhuga en tveir bandarískir fjárfest-
ingasjóðir Eaton Vance Management
– Global Macro Portfolio og Global
Macro Absolute Return Advantage
– hafa sömuleiðis fjárfest í félaginu.
Þannig komst sjóðurinn Global Macro
Portfolio um tíma í lok síðasta árs í
hóp tuttugu stærstu hluthafa með
tæplega eins prósents eignarhlut.
EBITDA minnkaði um 90% á síðasta fjórðungi
Aðgerðir sem stjórnendur Ice landair
Group hyggjast ráðast í, bæði á
tekju- og gjaldahlið félagsins, eiga
að skila bættri afkomu að fjárhæð
30 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði
um 3,5 milljarða íslenskra króna,
þegar þær verða að fullu komnar til
framkvæmda í ársbyrjun 2018.
Þetta er haft eftir Björgólfi Jó-
hannssyni, forstjóra Icelandair Group,
í tilkynningu til Kauphallarinnar í gær-
kvöldi. Samkvæmt uppgjöri félagsins
nam EBITDA á síðasta ársfjórðungi
2016 samtals 2,5 milljónum dala
borið saman við 22,9 milljónir dala
á sama tíma árið áður. Hagnaður
Icelandair eftir skatta á öllu síðasta ári
var 89,1 milljón dala og minnkaði um
tæplega 22 milljónir dala á milli ára.
Björgólfur segir að að undanförnu
hafi orðið „breyting í bókunarflæði
Icelandair til hins verra. Bókanir eru
hægari en gert var ráð fyrir og meðal-
fargjöld á mörkuðum hafa lækkað
umfram spár. Á síðustu dögum hafa
komið fram upplýsingar um að þetta
sé þróun sem almennt á sér stað á
alþjóða flugmarkaði.“
Þá segir Björgólfur að gripið hafi
verið til aðgerða til að mæta þessum
breyttu aðstæðum. „Meðal aðgerða
eru breytingar á uppbyggingu á far-
gjöldum og vöruframboði. Þessar
breytingar, sem unnið hefur verið
að frá því í haust, eru til að mæta
aukinni samkeppni, breyttum að-
stæðum á mörkuðum fyrirtækisins
og breytingum á neysluvenjum flug-
farþega. Markmið breytinganna er að
ná til nýrra viðskiptavina, auka sýni-
leika félagsins í leitarvélum gagnvart
tilteknum markhópum og breikka
tekjugrunn félagsins. Frá síðastliðnu
hausti hefur enn fremur verið hert
verulega á kostnaðar aðhaldi innan
félagsins.“
30 milljónir dala
er sú fjárhæð sem aðgerðir
Icelandair eiga að skila í
bættri afkomu
MarkaðurInn 7M I Ð V I K U D A G U R 8 . f e b R ú A R 2 0 1 7
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
1
-B
1
C
4
1
C
3
1
-B
0
8
8
1
C
3
1
-A
F
4
C
1
C
3
1
-A
E
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K