Fréttablaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 16
Norðurturninn í mál og vill bílastæðin Eignarhaldsfélaginu Smáralind og Kópavogsbæ hefur verið stefnt vegna áforma um íbúðahverfið 201 Smári. Framkvæmdastjóri Norðurturnsins segir gengið á rétt félagsins. Forstjóri Regins segir BYGG, stærsta eiganda turnsins, vera á bak við málaferlin. Norðurturn- inn hf. við Smáralind hefur stefnt verslunar- miðstöðinni og Kópa- vogsbæ fyrir Héraðsdóm Reykjaness. FRéttablaðið/ GVa Hér má sjá teikningu af Smáralindinni, Norðurturninum og fyrirhuguðum framkvæmdum Klasa. 201 Smári er efst á myndinni fyrir miðju. myNd/JVaNtSpiJKeR Norðurturninn hf. vi ð S m á ra l i n d hefur stefnt versl-unarmiðstöðinni og Kópavogsbæ og vill staðfestingu dómstóla á að kvaðir um samnýt- ingu bílastæða séu í gildi og að deili- skipulag sem heimilar uppbyggingu íbúðahverfisins 201 Smári verði ógilt. Framkvæmdastjóri Norður- turnsins segir  framkvæmdirnar fyrirhuguðu rýra réttindi Norður- turnsins þar sem þær eigi eftir að fækka bílastæðum við suðvestur- horn Smáralindar. Forstjóri Regins, eiganda verslunarmiðstöðvarinnar, segir þær byggja á faglegri umfjöllun skipulagsyfirvalda og að stefnan komi ekki til með að hafa áhrif á framgang verkefnisins. „Þeir vilja taka hluta af bíla- stæðum á suðvesturhorninu, um 600 stæði, sem færi undir byggð, án þess að hafa samráð við okkur, og þar með er gengið á rétt Norður- turnsins á grundvelli þeirra þing- lýstu kvaða sem eru á lóðunum um gagnkvæma samnýtingu bílastæða,“ segir Ríkharð Ottó Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Norðurturnsins. „Við höfum ekki miklar áhyggjur af þessu. Auðvitað er BYGG [Bygg- ingafélag Gylfa og Gunnars hf.] sprautan á bak við þetta allt saman og að mínu mati ráða nátttröllsviðhorf ríkjum þarna,“ segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, í samtali við Mark- aðinn. byGG og ríkið stærst Stjórnendur Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. líta svo á að við- skiptavinir og starfsfólk verslunar- miðstöðvarinnar megi nota öll bílastæði hennar, um þrjú þúsund. Leigutakar Norður turnsins og við- skiptavinir þeirra eigi aftur á móti ekki rétt á sameiginlegum afnotum nema þegar kemur að bílastæða- húsinu sem byggt var við turninn. „Þarna er um að ræða bílastæði Þetta er lokatilraun þeirra til að trufla verkefnið. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins sem eru inni á lóð Smáralindar og með því að taka þau í burtu er verið að auka þunga á bílastæði okkar því þau eru svokölluð „prime-stæði“ og eru fyrst og síðast hugsuð fyrir við- skiptavini eða starfsmenn leigutaka okkar í turninum. Með þessu er verið að rýra þau réttindi að okkar mati. Fyrst og síðast erum við þarna í viðurkenningarmáli og viljum að þinglýst skjöl séu virt. Við höfum andmælt deiliskipulaginu og sent það til úrskurðarnefndar um skipu- lagsmál en þar var ekki tekin afstaða til þessarar kröfu okkar og vísað á dómstóla. Það væri eðlilegast að þeir úrskurði um þetta. Þetta skiptir máli varðandi samskipti þessara tveggja lögaðila í framtíðinni,“ segir Ríkharð Ottó. Hjúpur, dótturfélag BYGG, er stærsti eigandi Norðurturnsins með 28 prósenta hlut. Þar á eftir kemur íslenska ríkið sem tók við 26,8 prósentum sem hluta af stöðug leikaframlagi slitabús Glitnis. Íslandsbanki, sem er í eigu ríkisins, er einnig í hluthafahópnum og rekur höfuðstöðvar sínar í Norður- turninum. BYGG var aðalverktaki framkvæmdanna við turninn og var í eigendahópi Fasteignafélags Íslands sem hóf byggingu hans árið 2007. Félagið átti þá einnig Smáralindina en framkvæmdirnar stöðvuðust í nóvember 2008 og í kjölfarið var farið fram á greiðslu- stöðvun Fasteignafélags Íslands. Norðurturninn hf. var síðan stofn- aður af kröfuhöfum og fjárfestum sem luku verkinu í fyrra. „Þeirra lokatilraun“ Íbúðahverfið 201 Smári á að rísa á um þriggja og hálfs hektara nær óbyggðu svæði sunnan við Smára- lindina. Þar er gert ráð fyrir um 84 þúsund fermetrum af nýju húsnæði eða um 620 íbúðum auk atvinnu- húsnæðis. Fasteignafélagið Klasi, í eigu fjárfestanna Finns Reyrs Stef- ánssonar, Tómasar Kristjánssonar og Ingva Jónassonar, hefur síðustu ár unnið að þróun svæðisins í sam- starfi við Regin og Kópavogsbæ sem á bílastæðin við heilsugæsluna Hvamm. Nýtt deiliskipulag svæðis- ins tók gildi í fyrra og stefnt er að því að uppbygging hefjist á þessu ári. Eignarhaldsfélagið Smáralind var í maí 2013 sýknað í Hæstarétti af kröfum þrotabús Norðurturnsins um greiðslu 1,3 milljarða króna sem byggðu á því að fyrrnefnda félagið hefði skuldbundið sig til að leggja til fjármuni til byggingar turnsins og þá bílastæðahúss hans. „Þeir eru búnir að stefna okkur hægri vinstri síðustu fimm árin, það er Norðurturninn og eigendur hans. Við erum búin að vinna fyrri mál á öllum stigum en eitt þeirra snerist meðal annars um þátttöku í kostn- aði við bílastæði turnsins. Okkar til- gangur með þessu verkefni, sem við erum einungis hluti af, er að bæta nýtingu á landinu og byggja þarna upp fjölbreyttar íbúðir og bæta bílastæðaaðkomu. Þetta er hluti af heildarsýn svæðisins þar sem horft er til skipulagsmála, umferðarmála og nýrrar nálgunar í samgöngu- málum,“ segir Helgi. „Við erum alls ekki að ganga á bíla- stæði. Eitt af okkar sterku tækifærum í Smáralind er fólgið í mörgum bíla- stæðum. Auðvitað lendir maður oft í því að slást við svona aðila sem eru að reyna að standa í vegi fyrir eðli- legri þróun í samfélaginu. Þeir hafa reynt að setja spýtu í tannhjólið hjá okkur og reynt að nota allar hugsan- legar aðferðir. Það hefur verið sett fyrir kærunefndir á öllum stigum og fengið eðlilega umfjöllun og verið vísað frá eða hafnað. Þetta er lokatil- raun þeirra til að trufla verkefnið,“ segir forstjóri Regins. haraldur@frettabladid.is 450 Fasteignasala ehf. kt. 620900-2490 Engjateigur 9, 105 Reykjavik - 450@450.is Fjölskyldufyrirtæki til sölu - einstakt tækifæri! Um er að ræða afar vel rekið fjölskyldufyrirtæki í eigin húsnæði á frábærum stað í Reykjavík. Fyrirtækið selur eigin framleiðslu og vörur til fyrirtækja og einstaklinga. Fyrirtækið er með sterk viðskiptasambönd, eigin innflutning og góðar og stöðugar arðgreiðslur. Sömu eigendur frá upphafii hátt í tvo áratugi. Vaxandi velta og miklir vaxtamöguleikar. Upplýsingar eingöngu veittar á skrifstofu að undangenginni undirskrift trúnaðaryfirlýsingar. 450@450.is | Erlendur Davíðsson löggiltur fasteignasali Tilboðsdagar í Verslun Guðsteins Valdar vörur með óheyrilega miklum afslætti Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34 Síðan 1918 8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r4 markaðurinn 0 8 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :4 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 1 -B 6 B 4 1 C 3 1 -B 5 7 8 1 C 3 1 -B 4 3 C 1 C 3 1 -B 3 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.