Fréttablaðið - 08.02.2017, Page 16
Norðurturninn í mál og vill bílastæðin
Eignarhaldsfélaginu Smáralind og Kópavogsbæ hefur verið stefnt vegna áforma um íbúðahverfið 201 Smári. Framkvæmdastjóri
Norðurturnsins segir gengið á rétt félagsins. Forstjóri Regins segir BYGG, stærsta eiganda turnsins, vera á bak við málaferlin.
Norðurturn-
inn hf. við
Smáralind
hefur stefnt
verslunar-
miðstöðinni
og Kópa-
vogsbæ fyrir
Héraðsdóm
Reykjaness.
FRéttablaðið/
GVa
Hér má sjá teikningu af Smáralindinni, Norðurturninum og fyrirhuguðum framkvæmdum Klasa. 201 Smári er efst á myndinni fyrir miðju. myNd/JVaNtSpiJKeR
Norðurturninn hf. vi ð S m á ra l i n d hefur stefnt versl-unarmiðstöðinni og Kópavogsbæ og vill staðfestingu
dómstóla á að kvaðir um samnýt-
ingu bílastæða séu í gildi og að deili-
skipulag sem heimilar uppbyggingu
íbúðahverfisins 201 Smári verði
ógilt. Framkvæmdastjóri Norður-
turnsins segir framkvæmdirnar
fyrirhuguðu rýra réttindi Norður-
turnsins þar sem þær eigi eftir að
fækka bílastæðum við suðvestur-
horn Smáralindar. Forstjóri Regins,
eiganda verslunarmiðstöðvarinnar,
segir þær byggja á faglegri umfjöllun
skipulagsyfirvalda og að stefnan
komi ekki til með að hafa áhrif á
framgang verkefnisins.
„Þeir vilja taka hluta af bíla-
stæðum á suðvesturhorninu, um
600 stæði, sem færi undir byggð, án
þess að hafa samráð við okkur, og
þar með er gengið á rétt Norður-
turnsins á grundvelli þeirra þing-
lýstu kvaða sem eru á lóðunum um
gagnkvæma samnýtingu bílastæða,“
segir Ríkharð Ottó Ríkharðsson,
framkvæmdastjóri Norðurturnsins.
„Við höfum ekki miklar áhyggjur
af þessu. Auðvitað
er BYGG [Bygg-
ingafélag Gylfa
og Gunnars hf.] sprautan á bak
við þetta allt saman og að mínu
mati ráða nátttröllsviðhorf ríkjum
þarna,“ segir Helgi S. Gunnarsson,
forstjóri Regins, í samtali við Mark-
aðinn.
byGG og ríkið stærst
Stjórnendur Eignarhaldsfélagsins
Smáralindar ehf. líta svo á að við-
skiptavinir og starfsfólk verslunar-
miðstöðvarinnar megi nota öll
bílastæði hennar, um þrjú þúsund.
Leigutakar Norður turnsins og við-
skiptavinir þeirra eigi aftur á móti
ekki rétt á sameiginlegum afnotum
nema þegar kemur að bílastæða-
húsinu sem byggt var við turninn.
„Þarna er um að ræða bílastæði
Þetta er lokatilraun
þeirra til að trufla
verkefnið.
Helgi S. Gunnarsson,
forstjóri Regins
sem eru inni á lóð Smáralindar og
með því að taka þau í burtu er verið
að auka þunga á bílastæði okkar því
þau eru svokölluð „prime-stæði“ og
eru fyrst og síðast hugsuð fyrir við-
skiptavini eða starfsmenn leigutaka
okkar í turninum. Með þessu er
verið að rýra þau réttindi að okkar
mati. Fyrst og síðast erum við þarna
í viðurkenningarmáli og viljum að
þinglýst skjöl séu virt. Við höfum
andmælt deiliskipulaginu og sent
það til úrskurðarnefndar um skipu-
lagsmál en þar var ekki tekin afstaða
til þessarar kröfu okkar og vísað á
dómstóla. Það væri eðlilegast að
þeir úrskurði um þetta. Þetta skiptir
máli varðandi samskipti þessara
tveggja lögaðila í framtíðinni,“ segir
Ríkharð Ottó.
Hjúpur, dótturfélag BYGG, er
stærsti eigandi Norðurturnsins
með 28 prósenta hlut. Þar á eftir
kemur íslenska ríkið sem tók
við 26,8 prósentum sem hluta af
stöðug leikaframlagi slitabús Glitnis.
Íslandsbanki, sem er í eigu ríkisins,
er einnig í hluthafahópnum og
rekur höfuðstöðvar sínar í Norður-
turninum. BYGG var aðalverktaki
framkvæmdanna við turninn og
var í eigendahópi Fasteignafélags
Íslands sem hóf byggingu hans
árið 2007. Félagið átti þá einnig
Smáralindina en framkvæmdirnar
stöðvuðust í nóvember 2008 og í
kjölfarið var farið fram á greiðslu-
stöðvun Fasteignafélags Íslands.
Norðurturninn hf. var síðan stofn-
aður af kröfuhöfum og fjárfestum
sem luku verkinu í fyrra.
„Þeirra lokatilraun“
Íbúðahverfið 201 Smári á að rísa
á um þriggja og hálfs hektara nær
óbyggðu svæði sunnan við Smára-
lindina. Þar er gert ráð fyrir um 84
þúsund fermetrum af nýju húsnæði
eða um 620 íbúðum auk atvinnu-
húsnæðis. Fasteignafélagið Klasi, í
eigu fjárfestanna Finns Reyrs Stef-
ánssonar, Tómasar Kristjánssonar
og Ingva Jónassonar, hefur síðustu
ár unnið að þróun svæðisins í sam-
starfi við Regin og Kópavogsbæ
sem á bílastæðin við heilsugæsluna
Hvamm. Nýtt deiliskipulag svæðis-
ins tók gildi í fyrra og stefnt er að
því að uppbygging hefjist á þessu
ári. Eignarhaldsfélagið Smáralind
var í maí 2013 sýknað í Hæstarétti
af kröfum þrotabús Norðurturnsins
um greiðslu 1,3 milljarða króna sem
byggðu á því að fyrrnefnda félagið
hefði skuldbundið sig til að leggja
til fjármuni til byggingar turnsins
og þá bílastæðahúss hans.
„Þeir eru búnir að stefna okkur
hægri vinstri síðustu fimm árin, það
er Norðurturninn og eigendur hans.
Við erum búin að vinna fyrri mál á
öllum stigum en eitt þeirra snerist
meðal annars um þátttöku í kostn-
aði við bílastæði turnsins. Okkar til-
gangur með þessu verkefni, sem við
erum einungis hluti af, er að bæta
nýtingu á landinu og byggja þarna
upp fjölbreyttar íbúðir og bæta
bílastæðaaðkomu. Þetta er hluti af
heildarsýn svæðisins þar sem horft
er til skipulagsmála, umferðarmála
og nýrrar nálgunar í samgöngu-
málum,“ segir Helgi.
„Við erum alls ekki að ganga á bíla-
stæði. Eitt af okkar sterku tækifærum
í Smáralind er fólgið í mörgum bíla-
stæðum. Auðvitað lendir maður oft
í því að slást við svona aðila sem eru
að reyna að standa í vegi fyrir eðli-
legri þróun í samfélaginu. Þeir hafa
reynt að setja spýtu í tannhjólið hjá
okkur og reynt að nota allar hugsan-
legar aðferðir. Það hefur verið sett
fyrir kærunefndir á öllum stigum og
fengið eðlilega umfjöllun og verið
vísað frá eða hafnað. Þetta er lokatil-
raun þeirra til að trufla verkefnið,“
segir forstjóri Regins.
haraldur@frettabladid.is
450 Fasteignasala ehf. kt. 620900-2490
Engjateigur 9, 105 Reykjavik - 450@450.is
Fjölskyldufyrirtæki til sölu
- einstakt tækifæri!
Um er að ræða afar vel rekið fjölskyldufyrirtæki í eigin húsnæði á
frábærum stað í Reykjavík.
Fyrirtækið selur eigin framleiðslu og vörur til fyrirtækja og einstaklinga.
Fyrirtækið er með sterk viðskiptasambönd, eigin innflutning og góðar
og stöðugar arðgreiðslur. Sömu eigendur frá upphafii hátt í tvo áratugi.
Vaxandi velta og miklir vaxtamöguleikar.
Upplýsingar eingöngu veittar á skrifstofu að undangenginni undirskrift
trúnaðaryfirlýsingar.
450@450.is | Erlendur Davíðsson löggiltur fasteignasali
Tilboðsdagar í
Verslun Guðsteins
Valdar vörur með óheyrilega miklum afslætti
Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34
Síðan 1918
8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r4 markaðurinn
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
1
-B
6
B
4
1
C
3
1
-B
5
7
8
1
C
3
1
-B
4
3
C
1
C
3
1
-B
3
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K